Morgunblaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Efnt var til tónleika í Saln-um á 140 ára afmælis-degi Árna Thorsteinsson(1870-1962). Eins og frá
var greint í Mbl. daginn áður bár-
ust Tónlistarsafni Íslands nýverið
hátt í níutíu óþekkt eða áður óút-
gefin verk eftir Árna. Úr þeim valdi
Jónas Ingimundarson tólf einsöngs-
lög, er flutt voru um afmæliskvöldið
ásamt 22 þekktari laga þessa ást-
sæla tónskálds og frumherja.
„Nýju“ eða minnst kunnu lögin
voru ekki sérstaklega auðkennd í
tónleikaskrá, en með beitingu úti-
lokunaraðferðar úr söfnunum frá
1907[*] og 1921-22[**] mátti nokk-
urn veginn átta sig án þess endi-
lega að vera sérfræðingur í gullöld
íslenzkra sönglaga.
Öllu var skipt hnífjafnt milli
söngvaranna. Gunnar Guðbjörnsson
söng fyrst Vorgyðjuna*, Miðsumar,
Kirkjuhvol*, Kvöldklukkuna**,
Svanasöng á heiði og Gleði, og Ólaf-
ur Kjartan Fögur sem forðum*,
Söng víkinganna**, Yfir haf og
eyðimerkur, Nótt* og Fallin er frá
fegursta rósin í dalnum**. Eftir hlé
söng Ólafur Rósina*, Teldu ekki ár-
in, Dáin er Svava, Seinasta nóttin
og Nafnið*, en Gunnar síðan Frið á
jörðu*, Sólarlag, Draum hjarð-
sveinsins, Sólkveðju, Ingjald á
skinnfeldi** og Sigursöng. Auka-
lögin voru Fífilbrekka, Þar sem há-
ir hólar og Í birkilaut.
Skemmst er frá að segja að þeir
félagar fluttu söngperlurnar af
sannkölluðum glæsibrag. Þótt örlað
hafi á stakri örðu í „nýju“ lögunum
var fagmannlega spilað og sungið
af ýmist örvandi þrótti eða tignum
trega, og var öllu tekið með miklum
kostum og kynjum af fjölmennum
áheyrendaskaranum.
Að vísu gat eirðarlaus nútíma-
hlustandi stundum saknað ögn
„léttari strengja“ – þó ekki væri
nema til tilbreytingar frá ríkjandi
harmi eða hetjudáðum. Þó kann að
vera að fyrstu tónmenntakynslóð
landsmanna hafi þótt slíkt draga
dýrustu listina í svaðið og sízt í
anda upprisu úr aldafjötrum sultar
og seyru.
Hitt er undarlegra eftir á að
hyggja, nú þegar beztu sönglögin
hafa sannað endingargildi sitt, að
textarnir skuli enn óþýddir á ná-
grannatungur. Eða þykir engum
kominn tími til að 20-30 íslenzk úr-
valslög blandi geði við sambærileg
sönglög suður í Skandinavíu?
Af þrótti og tignum trega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flytjendurnir „Skemmst er frá að segja að þeir félagar fluttu söngperlurnar af sannkölluðum glæsibrag.“
Salurinn
Einsöngstónleikarbbbmn
Sönglög eftir Árna Thorsteinsson.
Gunnar Guðbjörnsson tenór, Ólafur
Kjartan Sigurðarson barýton og Jónas
Ingimundarson píanó. Föstudaginn 15.
október kl. 20.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Trúleysisdoðrantur breskaþróunarlíffræðingsinsRichards Dawkins, TheGod Delusion frá árinu
2006, er nú kominn út á íslensku. Í
bókinni færir Dawkins margs konar
rök fyrir því að Guð sé nær áreið-
anlega hugarburður en útilokar þó
ekki tilvist hans, þar sem end-
anlegar sannanir fyrir því liggja
ekki fyrir. Dawkins er nú einu sinni
vísindamaður. Í bókinni vitnar hann
í mikinn fjölda manna, m.a. lista-
menn, fræðimenn og heimspekinga
og sumir eru í meira uppáhaldi en
aðrir, m.a. rithöfundurinn Douglas
Adams. Fremst í bókinni er einmitt
tilvitnun í Adams sem dregur ágæt-
lega saman efni bókarinnar og til-
gang: „Nægir ekki að sjá fegurð
garðsins án þess að þurfa að trúa að
hann sé fullur af álfum?“ Dawkins
bendir á þær miklu framfarir sem
orðið hafa í vísindum í aldanna rás,
hvernig þau hafa aukið skilning
okkar á umheiminum og þeim fyrir-
bærum sem við áður töldum yfir-
náttúruleg og óútskýranleg. Enn er
þó mörgum spurningum ósvarað,
t.d. hvað sé handan hins sjáanlega
heims, hvort eitthvað geti virkilega
verið endalaust, hvort eitthvað geti
orðið til úr engu o.s.frv. Þegar mað-
urinn stendur andspænis slíkum
spurningum er auðveldast að
ímynda sér yfirnáttúrulega veru, að
hún hafi skapað þetta allt saman og
að við förum á vit hennar að lokinni
jarðvist. Hentug lausn.
Dawkins segir bókinni ætlað að
snúa mönnum til trúleysis en segir
þó jafnframt að trúmenn séu ónæm-
ir fyrir rökum. Því mætti ætla að
þetta sé vonlaust verkefni, eða
hvað?
Það er ógerningur í stuttri gagn-
rýni sem þessari að fara ítarlega í
rök Dawkins sem skipt er í níu kafla
(bókin er 453 bls. með formálum og
eftirmála). Miklu púðri er eytt í
kenninguna um náttúruval, enda
höfundurinn þróunarlíffræðingur. Á
köflum er þetta skemmtileg lesning
og fræðandi, þó rökin ættu að vera
kunnugleg þeim sem velt hafa þess-
um málum fyrir sér. Hugmyndin/
ranghugmyndin um guð fyllir jú
upp í ákveðið tómarúm, í eyður tak-
markaðrar skynjunar okkar á um-
heiminum og á það bendir Dawkins.
Guð er hentugt svar við spurningum
sem ekki er hægt að svara. En ef
trúin veitir mönnum vellíðan, er þá
ekki í lagi að halda í hana, hvort
sem hún er ranghugmynd eða ekki?
Á móti má spyrja hvort ekki sé
betra að leita vellíðunar og hugg-
unar í einhverju sem við vitum fyrir
víst að er til, og á það bendir Dawk-
ins. Bók þessi er mikið verk og vel
þýtt. Gallinn er sá að hún er alltof
löng, lopinn teygður óheyrilega og
mikið um endurtekningar.
Garðurinn er fallegur án álfa
Ranghugmyndin um guð
bbbnn
Eftir Richard Dawkins. Þýðandi Reynir
Harðarson. Ormstunga, 2010.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
BÆKUR
Richard Dawkins Höfundur Rang-
hugmyndarinnar um guð.
Sýning á verkum norska myndlistar-
mannsins Gardars Eide Einarsson (f.
1976) verður opnuð í Hafnarhúsinu á
morgun, fimmtudag, klukkan 17.
Hann er einn nafntogaðasti lista-
maður sem hefur komið fram á Norð-
urlöndum á síðustu árum og er skipað
á bekk með efnilegustu listamönnum
samtímans.
Einarsson, sem er af íslensku bergi
brotinn, býr og starfar í Osló, New
York og Tókýó. Í verkum hans gætir
sterkra áhrifa frá pönktónlist og
götulist, þar sem jaðarmenning kall-
ast á við kaldhamrað gangverk nú-
tímasamfélags. Hann vinnur í ýmsa
miðla sem viðfangsefnin kalla á: t.d.
málverk, ljósmyndir, skúlptúra, fána
og dreifimiða.
Sýningin fyllir þrjá sali Hafnar-
hússins. Hún kemur frá Astrup Fe-
arnley-safninu í Osló. Sýningarstjór-
ar eru þau Gunnar B. Kvaran, safn-
stjóri þar, Sara Arrhenius frá Bonn-
ier Konsthall og Hafþór Yngvason,
safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Verk Gardars Eide
sýnd í Hafnarhúsinu
Málverk eftir listamanninn Our Rival the Rascal (Silver 1), verk eftir Gar-
dar Eide Einarsson frá 2008-2009, er meðal verkanna á sýningunni.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Sun 31/10 kl. 20:00 10.k Þri 16/11 kl. 20:00 Ný auka
Fös 22/10 kl. 19:00 Aukas Mið 3/11 kl. 20:00 11.k Lau 20/11 kl. 19:00 17.k
Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k Lau 20/11 kl. 22:00 18.k
Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Lau 6/11 kl. 22:00 aukas Sun 21/11 kl. 20:00 19.k
Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Sun 7/11 kl. 20:00 13.k Þri 23/11 kl. 20:00 20.k
Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Þri 9/11 kl. 20:00 aukas Fim 25/11 kl. 20:00 21.k
Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Fös 12/11 kl. 19:00 14.k Lau 27/11 kl. 19:00 22.k
Lau 30/10 kl. 19:00 9.k Fös 12/11 kl. 22:00 15.k
Lau 30/10 kl. 22:00 aukas Sun 14/11 kl. 20:00 16.k
Ath: Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning er hafin!
Gauragangur (Stóra svið)
Fim 21/10 kl. 20:00 11.k Lau 13/11 kl. 20:00 13.k Sun 28/11 kl. 20:00 15.k
Fös 29/10 kl. 20:00 aukas Mið 17/11 kl. 20:00 aukas
Fim 4/11 kl. 20:00 12.k Fim 18/11 kl. 20:00 14.k
Sýningum lýkur í nóvember
Enron (Stóra svið)
Fös 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 30/10 kl. 20:00 12.k Lau 20/11 kl. 20:00 15.k
Lau 23/10 kl. 20:00 10.k Lau 6/11 kl. 20:00 13.k Fim 25/11 kl. 20:00 16.k
Fim 28/10 kl. 20:00 11.k Fös 12/11 kl. 20:00 14.k Lau 27/11 kl. 20:00 17.k
Heitast leikritið í heiminum í dag
Fjölskyldan (Stóra svið)
Fös 5/11 kl. 19:00 1.k Fös 19/11 kl. 19:00 4.k Fös 3/12 kl. 19:00 7.k
Mið 10/11 kl. 19:00 2.k Mið 24/11 kl. 19:00 5.k Lau 4/12 kl. 19:00 8.k
Fim 11/11 kl. 19:00 3.k Fös 26/11 kl. 19:00 6.k Lau 18/12 kl. 19:00 9.k
"Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fös 22/10 kl. 19:00 11.k Fim 28/10 kl. 20:00 14.k Sun 31/10 kl. 20:00 16.k
Lau 23/10 kl. 19:00 12.k Lau 30/10 kl. 19:00 15.k
Sun 24/10 kl. 20:00 13.k Lau 30/10 kl. 22:00 aukas
Allra síðustu sýningar í Rvk. Sýnt á Akureyri í nóv.
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 23/10 kl. 13:00 8.k Sun 31/10 kl. 14:00 11.k Lau 13/11 kl. 14:00 14.k
Sun 24/10 kl. 14:00 9.k Lau 6/11 kl. 14:00 12.k Sun 14/11 kl. 14:00 15.k
Lau 30/10 kl. 13:00 10.k Sun 7/11 kl. 14:00 13.k
Gríman: Barnasýning ársins 2010!
Orð skulu standa (Litla svið)
Þri 26/10 kl. 20:00
Gestir 19/10: Brynhildur Guðjónsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson
Fjölskyldan - Forsala hefst í dag
Fíasól
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200
Sýningar alla laugardaga
og sunnudaga.