Morgunblaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Í dag kl. 9 verður tilkynnt hver
hlýtur Kvikmyndaverðlaun Norð-
urlandaráðs í ár en kvikmynda-
gerðarmaðurinn Dagur Kári Pét-
ursson er einn tilnefndra, fyrir
kvikmyndina The Good Heart, en
hann þykir sigurstranglegur að
mati danskra blaðamanna. Fjórir
aðrir eru tilnefndir. Verðlaunin
verða afhent á Norðurlandaráðs-
þinginu í Reykjavík 3. nóvember.
Fær Dagur Kári kvik-
myndaverðlaunin?
Fólk
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Rappsveitin Original Melody vakti lukku
mikla með plötunni Fantastic Four fyrir fjór-
um árum síðan. Lítið hefur til hennar spurst
síðan en hún er nú snúin aftur með þónokkr-
um krafti og auk þess nýja plötu í farteskinu,
Back & Forth. Það var þó ekki svo að sveitin
hafi hættt, segir einn liðsmanna, Ívar
Schram, þó að nóg hafi verið við að gera á
síðustu árum.
„Já, það hefur margt gerst í millitíðinni,“
upplýsir hann. „Nokkrar háskólagráður, börn
og fleira. Og við hófumst handa við þessa
plötu um leið og hin var frágengin. Segja má
að við höfum tekið hana upp á fjórum árum
með pásum.“
Góður jarðvegur
Ívar segir að fyrsta platan hafi fallið í góð-
an jarðveg en hún hafi engu að síður verið
þeirra fyrsta plata og því verið löng mjög, 23
lög alls, enn þeir félagar höfðu unnið saman í
langan tíma áður en frumburðurinn kom. Að-
spurður hvaðan sveitin komi, tónlistarlega,
segir Ívar að þeir hafi lítt velt því fyrir sér
þannig séð þó að uppruninn sé auðvitað ein-
hver.
„Ég veit þó að Helgi, sá sem sér að mestu
um tónlist og takta, er hrifinn af J-Dilla,
Premier (Gang Starr) og Tribe Called Quest.
Þetta er allt austurstrandarrapp en Helgi
hefur reyndar verið að vinna með röppurum
frá Bandaríkjunum.“
Myndbandið
Tónlistina vinna þeir svo í eigin hljóðveri í
Sundunum, en allar græjur voru keyptar af
fornfrægri sveit, Poetic Reflections. „Það er
okkar bækistöð og þar vinnum við í þessu –
meðfram barnastússi og skólagráðum!“
Sveitin hefur gert talsvert af því að kynna
plötuna undanfarnar vikur með hljómleikum.
Einnig er vert að benda á myndband við lag-
ið „Cosa Say“ sem nálgast má á youtube.
Þar eru meðlimirnir fjórir leiknir af sér eldri
mönnum og er framvindan æði kostuleg.
Original Melody gefur út aðra plötu sína
Gengi Original Melody gaf út fyrstu plötu sína fyrir fjórum árum síðan.
Heimildarmyndin Feathered
Cocaine verður tekin til sýninga í
Bíó Paradís í næsta mánuði. Mynd-
ina gerðu þeir Örn Marinó Arnar-
son og Þorkell Harðarson en mynd-
in fjallar að mestu um baráttuna
gegn fálkasmygli og helsti viðmæl-
andi er fyrrverandi fálka-
sölumaður.
Fiðrað kókaín í Bíó
Paradís í nóvember
Rokkabillýband Reykjavíkur
leggur í haustferð 2010 nú um
helgina. Leikur það í borginni nú á
fimmtudaginn, á Rósenberg, en
leggur svo í hann til Akureyrar
daginn eftir og leikur þá á Græna
hattinum. Bandið skipa Tómas
Tómasson (gítar, söngur), Björn
Vilhjálmsson (kontrabassi), Birgir
Baldursson (trommur) og Emil
Guðmundsson (hristur).
Rokkabillýband
Reykjavíkur á túr
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Retro Stefson hóf göngu sína í Aust-
urbæjarskóla fyrir fimm árum. Þá
langaði Unnstein Manuel Stefánsson
á Samfésballið og það var hægt að
komast frítt inná það með því að
vinna söngvakeppni Samfés. Hann
valdi þá vini sína sem hann langaði til
að skemmta sér með á ballinu í hljóm-
sveitina og var ekki horft til þess
hvort þeir kynnu mikið á hljóðfæri
eða ekki. Síðan þá eru fimm ár liðin
og nú er hljómsveitin feikilega vinsæl
og hljómsveitarmeðlimirnir hafa bætt
verulega leik sinn á hljóðfærin. Það
sást strax á fyrstu plötunni þeirra,
Montana, sem kom út fyrir tveimur
árum síðan. En nú er hljómsveitin að
gefa út sína aðra plötu en hún kom út
í fyrradag og munu útgáfutónleikar
verða haldnir um miðjan nóvember.
Áhrif að sunnan
Tónlist Retro Stefson er grallara-
leg, létt, suðræn tónlist. Aðspurður
hvernig Unnsteinn lýsi henni segist
hann ekki lýsa henni yfir höfuð. „Mér
finnst það ekki vera mitt að lýsa eigin
tónlist,“ segir hann. En hann segist
vera undir áhrifum frá til dæmis
plötusafninu hennar mömmu sinnar.
Móðir hans er frá Angóla en hann á ís-
lenskan föður. Hið angólska plötusafn
innihélt plötur frá Brasilíu, Græn-
höfðaeyjum, Angóla og Portúgal. En í
Portúgal fæddist Unnsteinn og ólst
þar upp til fimm ára aldurs áður en
hann flutti til Íslands. Það kemur ekki
á óvart þarsem það er eitthvert suð-
rænt sólarskap í lögum þeirra. Hann
segir að undanfarin tvö ár hafi hann
og bróðir hans verið mikið að plötu-
snúðast og fyrir vikið sé hann farinn
að verða fyrir meiri áhrifum frá
house-tónlist. Bróðir hans, Logi Pedro
Stefánsson, er tveimur árum yngri og
er einnig í hljómsveitinni en hann spil-
ar á bassa. Aðspurður hversvegna í
ósköpunum hann hafi boðið bróður
sínum í hljómsveitina vísar Unnsteinn
til uppruna sveitarinnar og segir að
það hafi þótt góð hugmynd á þeim
tíma fyrir hagkerfi heimilisins
að redda bróður sínum
frítt inná Samfésballið.
„Svo verður það að við-
urkennast að hann er
svakalega góður bassa-
leikari. En við rífumst enda-
laust, það eru lítil takmörk
fyrir því hvað við rífumst
mikið. Það er sjaldan að
við náum að tjilla saman,
nema kannski á hljóm-
sveitaræfingum, “ seg-
ir hann.
Kimbabwe komin út
Nú er að koma út önnur plata
þeirra sem heitir Kimbabwe. Það er
tjilluð tilfinning í lögunum en sveitin
leggur ekki mesta metnaðinn í texta-
smíðina heldur góðan fíling. Það er í
anda uppruna hljómsveitarinnar
þegar Unnsteinn skýrir frá því um
hvað texti lagsins Velvakandasveinn
fjalli. „Þetta er lýsing á einu jólaballi
sem ég var á,“ segir hann. „Þetta var
hið fínasta ball þar til það kom þarna
strákur með koffínduft einsog vaxt-
arræktarmennirnir nota og allt í einu
varð allt vitlaust.“ Velvakandasveinn
er grípandi lag með orðskrípum eins-
og chikirí og kalilölölö, en orðin í text-
anum virðast þjóna hrynjandinni sem
er mjög góð.
Unnsteinn Manuel semur næstum
öll lög og texta en hann segir að það
sé eitthvað að breytast. „Bróðir minn
er að semja en hefur ekki enn komið
með það á hljómsveitaræfingu ennþá.
Svo er trommuleikarinn alltaf að
koma meira inní það að semja,“ segir
Unnsteinn.
Aðspurður um hvað sé framundan
hjá honum og hljómsveitinni segir
hann að þau ætli að flýja land, þau séu
svo reið yfir því að uppáhaldsstaðnum
þeirra í bænum hafi verið lokað. „Við
unnum öll á Karamba og þegar hon-
um var lokað ákváðum við að fara til
útlanda að spila. Við erum að skipu-
leggja þetta en líklegast er að Frakk-
land og Þýskaland verði fyrir valinu.
Ég er búinn að vera oft þar með FM
Belfast og það er frábært að vera í
þessum löndum. Menn einblína of
mikið á Bretland hérna heima. Það er
miklu betra að þvælast um á meg-
inlandi Evrópu en í Bretlandi, sér-
staklega ef litið er til gistingar, launa
og annars þessháttar.“
Retro Stefson flýr land
Tónlist Retro Stefson gaf út í vikunni nýja plötu sem heitir Kimbabwe. Platan er hressileg og meðlimir sveitarinnar eru litríkir.
Hljómsveitin Retro Stefson gaf út sína aðra plötu nú í vikunni
Hljómsveitin Retro Stefson hef-
ur vakið mikla athygli fyrir
skemmtilega tónlist sína. Þrír
meðlimir hljómsveitarinnar eru
Stefánssynir og þar af eru
tveir bræður, hálfangólskir og
hálfíslenskir. Aðallaga- og
textahöfundurinn er Unn-
steinn Manuel
Stefánsson.
Þeir eru búnir
að gefa út nýja
plötu og langar strax til að
gera þá næstu.
Synir Stefáns
RETRO STEFSON