Morgunblaðið - 20.10.2010, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA
HHHH
„ÞESSI LÆTUR KLÁRLEGA SJÁ SIG Á
ÓSKARNUM Á NÆSTA ÁRI.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHHH
“ÞETTA ER EINFALDLEGA
BESTA MYNDIN SEM ÉG
HEF SÉÐ Á ÁRINU”
- Leonard Maltin
HHHH
“EF ÞAÐ ER TIL MYND
SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ,
ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI”
- Boxoffice Magazine
HHHH
“THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR
GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД
- Wall Street Journal
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- SJÁÐU/STÖÐ 2
HHHH
„BESTA MYND SINNAR TEGUNDAR
Á KLAKANUM OG HIKLAUST EIN AF
BETRI ÍSLENSKUM MYNDUM SEM
ÉG HEF SÉÐ.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- H.S. MBL
HHHH
„FRAMVINDAN SVO ÁREYNSLU-
LAUS OG SKEMMTILEG AÐ
ÁHORFANDINN GLEYMIR SÉR.“
- R.E. FBL
BESTA SKEMMTUNIN
ÓRÓI kl.5:50-8-10:20 10 FURRYVENGEANCE kl.6 -8 L
THETOWN kl.6 -8-10:40 16 DINNERFORSCHMUCKS kl.5:40-8-10:20 7
THETOWN kl.8 -10:40 VIP-LÚXUS GOINGTHEDISTANCE kl.8:30-10:40 L
SOLOMONKANE kl.10:20 16 ALGJÖRSVEPPIOGDULARFULLA... kl.63D L
SOLOMONKANE kl.5:40 VIP-LÚXUS
/ ÁLFABAKKA
ÓRÓI kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
THE TOWN kl. 8 - 10:40 16
FURRY VENGEANCE kl. 6 L
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA... kl. 63D L
STEP UP 3 kl. 8 7
INCEPTION kl. 10:10 Sýnd í síðasta sinn 21. okt. 12
/ KRINGLUNNI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Flestir Íslendingar (a.m.k.þeir sem komnir eru yfirþrítugt) ættu að kannastvið smelli á borð við
„Harðsnúna Hanna“, „Er ég kem
heim í Búðardal“, „Það blanda allir
landa upp til stranda“, „Gvendur á
eyrinni“ og „Slappaðu af“. Dægurlög
þessi eiga það sameiginlegt að Þor-
steinn Eggertsson samdi textana við
þau. Í kvöld verða haldnir tónleikar í
Salnum og á þeim flytja óperusöngv-
ararnir Davíð Ólafsson og Stefán
Helgi Stefánsson nokkur af vinsæl-
ustu lögunum sem Þorsteinn hefur
samið texta við en Helgi Már Hann-
esson leikur með á píanó. En áður en
að þeim kemur ætlar Þorsteinn að
kvænast unnustu sinni, Jóhönnu
Fjólu Ólafsdóttur, í Salnum kl. 20.10,
hinn 20.10. árið 2010. Mun það vera í
fyrsta sinn sem gifting fer fram í
tónleikahúsinu og segist Þorsteinn
ekki vita til þess að fólk hafi almennt
verið að gifta sig á tónleikum heldur.
Dansandi óperusöngvarar
eins og John Travolta
Þorsteinn segir óperusöngvarana
fyrrnefndu og píanóleikarann
(„geggjaður rokkpíanisti“ eins og
Þorsteinn kallar hann) hafa valið lög
á tónleikana sem langflestir ættu að
kannast við, ef undanskilin séu tvö
eða þrjú lög.
– Það er frekar óvenjulegt að óp-
erusöngvarar syngi þessi dægurlög,
ekki satt?
„Já, þegar þeir komu heim til að
æfa þetta til að byrja með þá átti ég
von á einhverju óperulegu en þeir
gera þetta algjörlega á sinn hátt. Ég
veit ekki hvað á að kalla þetta, hálf-
gerð rokkópera eða söngleikjastíll á
þessu, eitthvað í þá veru,“ segir Þor-
steinn. „Þeir dansa líka, eru með
svaka hreyfingar, í einu laginu eru
þeir eins og John Travolta í Sat-
urday Night Fever,“ bætir Þor-
steinn við, söngvararnir sýni á sér
nýja hlið.
Samnefnari fyrir 15 ára stelpur
– Og þú ætlar að segja frá tilurð
lagatextanna?
„Við ætlum að sitja þarna, ég og
konan mín, og ég ætla að rifja upp
hvernig þessir textar sem þeir eru
að syngja urðu til. Og sumt af þessu
eru nokkuð skrautlegar sögur.“
– Máttu gefa forskot á sæluna?
„Jaa … ég segi t.d. frá því hvernig
„Slappaðu af“ varð til en ég ætla
ekkert að segja þér meira um það í
bili, það eru margir sem þekkja þá
sögu.“
– En ef ég spyr þig um „Harð-
snúnu Hönnu“?
„Harðsnúna Hanna er bara sam-
nefnari fyrir allar þessar stelpur
sem maður þekkti þegar maður var
svona 15 ára. 15 ára stelpur eru nátt-
úrlega dálítið töff sko og þetta er í
rauninni sama týpan og „Rabarbara-
Rúna“ sem ég gerði líka á sínum
tíma. Þegar maður er 15 ára og
þekkir fullt af 15 ára stelpum þá veit
maður bara ekki hvert maður ætlar,
það er bara sá aldur,“ segir Þor-
steinn.
800 lög
Þorsteinn segir um 20 lög verða
flutt á tónleikunum en hann segist
hafa samið texta við um 800 lög sem
hafi verið hljóðrituð. Fyrsta textann
samdi hann fyrir Savannatríóið.
„Það ætlar sér enginn að fara að
semja texta fyrir dægurlög, það er
nú bara svoleiðis, ég ætlaði ekkert að
fara út í svoleiðis bransa,“ segir Þor-
steinn. Þórir Baldursson hafi beðið
sig að semja texta við lag sem hann
samdi fyrir tríóið. Fyrsti textinn, við
lagið „Ást í meinum“, hafi verið um
viku í smíðum og þótti virka vel og
því var ráðist í næsta texta. „Ást í
meinum“ samdi Þorsteinn 23 ára, er
nú orðinn 68 ára og hundruð laga-
texta að baki.
Salurinn verður lokaður fyrir
brúðkaupsgesti frá kl. 20.10 til um
20.45, en þá verður tónleikagestum
hleypt inn. Og þeir geta að sjálf-
sögðu kastað kveðju á brúðhjónin í
hléi og óskað þeim til hamingju.
Brúðkaup og tónleikar
Þorsteinn Eggertsson kvænist í Salnum Að lokinni athöfn verða haldnir
tónleikar með vinsælum lögum sem Þorsteinn hefur samið texta við
Smellir Þorsteinn og óperusöngvararnir sem syngja munu lög með textum
hans í Salnum, Stefáni Helga Stefánssyni og Davíð Ólafssyni.
1961 Þorsteinn endilangur með félögum sínum í Beatniks árið, f.v: Eggert
Kristinsson, Björn Jónsson, Edward Frederiksen og Eiríkur Sigtryggsson.
Þorsteinn hóf snemma að
syngja með hljómsveitum. Hann
var í skólahljómsveit á Laugar-
vatni þegar hann var 15 ára, en í
henni var m.a. Ingimar Eydal.
Fyrir þá hljómsveit samdi Þor-
steinn lagatexta, vildi ekki
syngja bandaríska slagara á
ensku og hóf að semja íslenska
texta. Þorsteinn var einnig í
hljómsveit í Keflavík, H.J. kvin-
tett og KK sextettinum í Reykja-
vík (þá var Þorsteinn 18 ára) og
stofnaði hljómsveitina The
Beatniks í Keflavík árið 1961.
„Síðan fór ég til Danmerkur og
söng þar með hljómsveitum, í
Kaupmannahöfn og víðar,“ rifj-
ar Þorsteinn upp. „Svo bara eig-
inlega hætti ég þessu, hef kom-
ið fram á tónleikum hingað og
þangað af og til.“
Ísland og
Danmörk
FERILLINN
Vefurinn MTV segir frá því að leik-
arinn Mel Gibson muni leika í fram-
haldi gamanmyndarinnar Hang-
over sem tökur standa nú yfir á.
Zach Galifinakis, einn aðalleikar-
anna í myndinni, mun ekki vera
kátur á tökustað, ef marka má
tímaritið New York. Sagðist hann
lítið hafa um kvikmynd að segja
sem hann væri að leika í, og túlka
menn það svo að hann eigi við fram-
haldsmyndina. Leikarinn mun hafa
látið þau ummæli falla að hann væri
ósáttur við ákveðna hluti í mynd-
inni en „strákarnir vildu ekki
hlusta á hann“.
Reuters
Melurinn Mel Gibson mun fara með
hlutverk í framhaldi Hangover.
Gibson leikur
í Hangover 2
Kaliforníusveitin Red Hot Chili
Peppers er hálfnuð með næstu
plötu sína, að sögn trymbilsins
Chads Smiths. Síðasta plata, hin
tvöfalda Stadium Arcadium, kom út
2006 og féll í temmilega grýttan
jarðveg. Það er síðskeggurinn Rick
Rubin sem upptökustýrir að vanda.
„Við erum búnir að keyra tutt-
ugu lög inn á band og svo sorterum
við það besta úr þeim. En þetta
verður ekki tvöföld plata eins og
síðast, ég lofa því!“
Stefnt er að útgáfu í vor. Á plöt-
unni mun nýr gítarleikari sveitar-
innar, Josh Klinghoffer, láta ljós
sitt skína en hann leysir John
Frusciante af hólmi.
Nýr Josh Klinghoffer
Nýtt frá
Chili Peppers