Morgunblaðið - 20.10.2010, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
„GEÐVEIKISLEGA
FYNDIN“
- SHAWN EDWARDS,
FOX-TV
Frábær
gamanmynd
frá þeim sömu
og færðu
okkur “40 Year
old Virgin” og
“Anchorman”
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
7
Steve Carrell og Paul Rudd
fara á kostum ásamt Zach
Galifianakis sem sló
eftirminnilega í gegn
í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
Dýrin eru
mætt....og
þau eru ekki
ánægð!
Bráð-
skemmtileg
grínmynd
fyrir alla
fjölskylduna
HHH
- D.H. EMPIRE
7
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
DAGSKRÁ
Modest Mussorgsky
BORIS GODUNOV
nánari upplýsingar ásamt sýnishornum úr stykkjunum má finna á www.operubio.is og á www.metoperafamily.org
René Pape tekur að sér eitt merkasta bassahlutverk óperusögunnar í uppfærslu hins virta
leikhúss- og óperuleikstjóra Peters Stein. Valery Gergiev stjórnar hljómsveitinni í epísku sjónarspili
Mussorgskys sem fangar þjáningu og metnað heillar þjóðar. ,,Boris Godunov er meistaraverk,“ segir Stein.
,,Helsta áskorunin er að koma til skila gríðarlegri tilfinningadýpt verksins. Boris er
keisarinn en hann tjáir vandamál sem við könnumst öll við, afleiðingar mannlegra gjörða.“
Aleksandrs Antonenko, Vladimir Ognovenko og Ekaterina Semenchuk fara fyrir gríðarstórum hópi leikara.
SÝNT Í BEINNI ÚTSENDINGU
í Sambíóunum Kringlunni laugard. 23. okt. kl. 16
Endurflutt miðvikud. 27. okt. kl. 18
Miðasala í
Sambíóunum
Kringlunni
BESTA SKEMMTUNIN
ÓRÓI kl. 8 -10:20 10
EAT PRAY LOVE kl. 8 L
WALL STREET kl. 10:30 L
/ KEFLAVÍK
ÓRÓI kl. 8 - 10:20 10
DINNER FOR SCHMUCKS kl. 8 - 10:20 7
/ SELFOSSI
ÓRÓI kl. 8 -10 10
FURRY VENGEANCE kl. 6 L
ALGJÖR SVEPPI OG... kl. 6 L
THE TOWN kl. 8 -10:30 16
/ AKUREYRI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í kvöld kl. 21 verður opnað nýtt hin-
segin kaffihús og bar á Laugavegi 22,
Trúnó, þar sem hinn góðkunni
skemmtistaður 22 var eitt sinn til
húsa. Það má því áreiðanlega halda
því fram að samkynhneigt fólk á Ís-
landi beri sterkar taugar til hússins
og mörg hafa þar danssporin verið
stigin. Á Trúnó verður menningu hin-
segin fólks flaggað, eins og því er lýst
í tilkynningu frá þeim sem að staðn-
um standa, og verða ýmsir viðburðir í
boði tengdir samkynhneigð. Eigandi
staðarins er Gunnar Már Þráinsson
(hann á einnig skemmtistaðinn á efri
hæð hússins, Barböru) en að Trúnó
stendur einnig plötusnúðatvíeykið DJ
Glimmer, þær Eva María Þórarins-
dóttir og Birna Hrönn Björnsdóttir.
Blaðamaður sló á þráðinn til Birnu og
forvitnaðist um staðinn nýja.
„Við ætlum að hafa opnunarpartí
frá kl. 21 til 1, og svo hefst daglegur
rekstur á fimmtudaginn (á morgun)
og við verðum með opið frá kl. 11 til
1,“ segir Birna.
-Verður staðurinn eitthvað svip-
aður 22?
„Að því leytinu til að við erum með
barsölu og þetta er náttúrlega hin-
segin staður en þetta verður ekki
skemmtistaður langt fram á nótt, við
ætlum að hafa opið til 2, 3 um helgar,“
svarar Birna.
Hinsegin höllin
-Það hljóta margir að fagna því að
þarna sé aftur kominn hinsegin stað-
ur á neðri hæðina. Það virðist hafa
gengið eitthvað illa að reka staði
þarna eftir að 22 hætti …
„Ætli húsið vilji ekki bara vera hin-
segin? Ég held það,“ segir Birna og
hlær. „Við erum búin að pæla mjög
mikið í þessu og fólki finnst þetta
mjög merkilegt og mjög skemmti-
legt. Það eru margir sem hlakka til að
koma hingað sem voru á 22 og það er
búið að kalla þetta „hinsegin höllina“
og fleira í þeim dúr.“
-Þið hafið væntanlega þurft að inn-
rétta staðinn?
„Já, já, við erum búin að því og lag-
færa það sem þurfti að lagfæra.“
-Þið ætlið m.a. að bjóða upp á sýn-
ingar á dramatískum spennuþáttum
um amerískar dragdrottningar. Út-
skýrðu það aðeins.
„Já, mikið rétt (hlær), þetta er
mjög nákvæm lýsing. Þetta er í lík-
ingu við þættina America’s Next Top
Model nema hvað frægasta drag-
drottning í heimi, RuPaul, stjórnar
þeim. Þættirnir heita RuPaul’s Drag
Race, dragkeppni RuPaul og í þeim
koma dragdrottningar og keppa og
detta út í hverri viku,“ útskýrir Birna.
Þættirnir verða sýndir í sjónvarpi á
Trúnó. Þá verður einnig boðið upp á
sögustundir með hinsegin fólki, á
þeim mun það veita innsýn í líf sitt og
tónlistarmenn munu einnig koma
fram, svo eitthvað sé nefnt. DJ
Glimmer mun svo sjá um val á tónlist
sem leikin verður á staðnum.
Fögnuður Samkynhneigðir fagna
eflaust opun nýs skemmtistaðar.
„Ætli húsið vilji ekki
bara vera hinsegin?“
Hinsegin kaffihús, Trúnó, verður opnað í kvöld á Lauga-
vegi 22 Menningu samkynhneigðra gert hátt undir höfði
Morgunblaðið/Ernir
Handtökutilskipun hefur verið gef-
in út á hendur bandaríska leikar-
anum Randy Quaid og eiginkonu
hans Evi, þar sem þau mættu ekki
fyrir rétt í hústökumáli í Kali-
forníu. Hjónin voru handtekin í síð-
asta mánuði þar sem þau neituðu
að yfirgefa hús í Santa Barbara
sem þau halda fram að sé enn í
þeirra eigu. Þá segir í frétt á vef
BBC að hjónin hafi valdið tjóni á
eigninni upp á 5.000 dollara.
Málið verður tekið fyrir 26. októ-
ber nk. og hefur Quaid-hjónum
verið gefinn sá kostur að gefa sig
fram við lögreglu. Þau verða að
öllum líkindum kærð fyrir húsbrot
og skemmdarverk. Eigendur húss-
ins hafa framvísað skjölum því til
sönnunar að þeir hafi keypt það
árið 2007 af manni sem keypti hús-
ið af Quaid-hjónunum nokkrum ár-
um fyrr. Þá hafa Quaid-hjónin áð-
ur verið kærð fyrir að svíkja fé út
úr kráareiganda en frú Quaid ját-
aði á sig brotið og hlaut skilorðs-
bundinn dóm fyrir, í apríl sl. Kær-
ur á hendur Randy voru þá felldar
niður.
Lýst eftir Quaid og frú
Vandræði Randy Quadi og eigin-
kona hans Eva.
Tónlistarmaðurinn Kalli (Karl
Henry úr Tenderfoot) fær það verð-
uga verkefni að hita upp fyrir ósk-
arsverðlaunahafana í The Swell
Season á Nasa fimmtudagskvöldið
28. október nk.
Kalli hefur nýlokið upptökum á
sinni annarri sólóplötu, Last Train
Home, og fóru upptökur fram í
Nashville þar sem Kalli naut lið-
sinnis reyndra tónlistarmanna úr
þessari höfuðborg sveitatónlistar-
innar. Platan kemur út á vegum
Smekkleysu mánudaginn 25. októ-
ber nk.
The Swell Season er skipuð írska
tónlistarmanninum Glen Hansard
og tékknesku tónlistarkonunni
Marketu Irglovu. Glen er meðal
annars þekktur sem forsprakki
írsku sveitarinnar The Frames og
fyrir að hafa leikið í myndinni The
Commitments á unga aldri. Glen
hefur einu sinni komið til Íslands
áður er hann kom fram á Iceland
Inspires-tónleikunum í Hljóm-
skálagarði í sumar.
Kalli hitar upp fyrir The
Swell Season á Nasa
Upphitun Kalli sér um að verma
áhorfendum á Nasa.
Stundum er veruleikinn skáld-
skapnum skrítnari. Í dag er al-
þjóðadagur hagtalna sem væri
sosum ekki í frásögur færandi ef
ekki væri fyrir þá staðreynd að
söngvissir hagspekingar víða um
heim hafa sett saman lög í tilefni
dagsins. Ungir hagfræðingar frá
Nýju-Gíneu sömdu t.d. lag sem
nálgast má hér ( http://wsd/
downloads/
PNG_WSD_Jingle.mp3) og svo
eru lög á youtube einnig (sláið
inn „World Statistics Day Song“).
Njótið!?
Sungið um hagtölur!?
Hagtölublús „Hagtölur hér,
hagtölur þar …“
unstats.un.org/unsd