Hamar - 14.07.1950, Síða 1

Hamar - 14.07.1950, Síða 1
IV. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐl 14. JÚLÍ 1950 17. TÖLUBLAÐ Tillaga að fjárh agsáætlun Raf- veifu Hafnarfjai 'ðar fyrir árið 1950 samþykkf í bæjarsfjórn Hér fer á eftir fjárhagsáætlun Rafveitu Hafnarfjarðar eins og hún var samþykkt (með 5:3 atkv.) á bæjarstjórnarfundi þriðju- daginn 11. júlí s.l. T E K J U R : Raforkusala kr. 2.070.000,00 Mælaleiga — 58.000,00 Heimtaugagjöld — 60.000,00 Ýmsar tekjur — 2.000,00 kr. 2.190.000,00 G JÖLD: Rekstur: Raforkukaup kr. 900.000,00 Skrifstofukostnaður — 162.000,00 Innheimtukostnaður — 51.000,00 Gæzla bæjarkerfis — 49.000,00 Viðlialdskostnaður — 194.000,00 Vextir og bankakostnaður ... — 40.000,00 Opinber gjöld — 12.000,00 Vátryggingar — 12.000,00 Tillag til bæjarsjóðs — 20.000,00 Ýmislegur kostnaður — 5.000,00 — 1.445.000,00 Afborganir lána: Samningsbundin lán — 53.000,00 Sparisj. Hfj. (70 þús. kr. víxill) — 35.000,00 Rafmagnsv. Rvíkur (ógr. rafo.) — 150.000,00 — 238.000,00 Rannsóknarkostnaður í Krýsuvík ... — 150.000,00 Aukning bæjarkerfis og tækja — 357.000,00 kr. 2.190.000,00 Það er nú fyrst, þegar komið er fram í júlímánuð að drög að fjárhagsáætlun Rafveitu Hafnar- fjarðar eru tekin til umræðu. Að vísu hefur ekki verið venja að sérstök áætlun yrði tekin til um- ræðu í bæjarstjórn og hlyti sam þykkji hennar, en, Sjálfstæðis- menn töldu eðlilegt að jafn stórt fyrirtæki og Rafveitan er hefði áætlun sem hlotið hefði stað- festingu bæjarstjórnar til að fara eftir. í þeim tilgangi báru bæjar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram eftirfarandi tillögu við aðra umræðu fjárhagsáætlunar bæjarins 1949, á bæjarstjórnar- fundi 12. apríl það ár: „Bæjarstjórn samþykkir að fela rafveitustjóra, bæjar stjóra og bæjarráði að taka upp samningsumleitanir við stjórnendur Sogsvirkjunar- innar og Reykjavíkurbæjar, um hagkvæmari kaup á raf- orku til þarfa bæjarins. Jafn framt samþykkir bæjarstjórn að láta nú semja fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir Rafveituna fyrir yfirstand- andi ár og sá háttur verði framvegis viðhafðiu: í byrj- un hvers starfsárs. Að samn- ingu lokinni verði þessi áætlun lögð fyrir bæjar- stjórn til samþykktar." Tillögu þessari var þá vísað til bæjarráðs en var síðan sam- þykkt orðrétt á bæjarstjórnar- fundi 28. júní 1949. Nú skeður það að rafveitu- stjóri gerir tillögu að fjárhags- áætlun fyrir Rafveitu Hafnarfj. þá tillögu, sem samþykkt var orðrétt á bæj^rstjórnarfiíndin- um s.l. þriðjudag, og þessi til- laga er tilbúin fyrir s.l. áramót. En ekkert bólaði á því að hún yrði lögð fyrir bæjarstjórn, meira að segja var henni ekki hreyft, þegar fjárhagsáætlun bæjarins var tekin fyrir. Síðan kom reikningur Rafveitunnar fyrir árið 1949 fram til fyrri um- ræðu og ennþá var tillagan um fjárhagsáætlunina látin liggja í salti. Við aðra umræðu um reikninga Rafveitunnar á bæjar- stjórnarfundi 13. júní óskaði Þorleifur Jónsson eftir því að umræðum þá yrði frestað og tillagan að fjárhagsáætlun fyrir Rafveituna tekin til umræðu jafnframt. Var það því fyrst, að tillagan að fjárhagsáætlun Raf- veitunnar fékkst rædd í bæjar- stjórn, eftir að hún var búin að liggja tilbúin í 6 mánuði og að Þorleifur Jónsson gerði kröfu til þess að samþykktum bæjarstjórn ar yrði framfylgt í þessu efni. Hvað vakað hefur fyrir meiri- hluta bæjarstjórnar með að draga málið svo mjög er ekki vitað, því við umræður um til- löguna að fjárhagsáætluninni þögðu þeir algerlega að öðru en því að bæjarstjóri eftir beiðni Kristjáns Andréssonar las hana upp. Þorleifur Jónsson ræddi nokk- uð um tillöguna að fjárhagsáætl- uninni, einkum um það sem áætl að væri til hitarannsókna í Krýsuvík. Gat hann þess, að Sjálfstæðismenn hefðu lagt fram tillögu þess efnis við aðra um- ræðu um fjárhagsáætlun bæjar- ins 1949, að ekki yrði varið meira fé til þessara framkvæmda fyrr en athugun og áætlun hefði ver- ið gerð um möguleika og kostn- að við virkjun gufunnar til fram- leiðslu á raforku, sem nægði Hafnarfjarðarbæ og nágrenni. Tillaga í þessu máli var sam- þykkt af bæjarstjórn 28. júní 1949 og er hún svo hljóðandi: „Bæjarstjórn samþykkir að fela rafveitustjóra að gera áætlun um kostnað við virkjun gufu úr borholum í Seltúni í Krýsuvík, til fram- leiðslu raforku, er fullnægi rafmagnsþörf Hafnarfjarðar Hæsfu úfsvarsgjaldendur BÓKAHAPPÐRÆTTI Heimdallur og S.U.S. hafa efnt til bókahappdrættis og er vinningurinn glæsilegt heimilisbókasafn ásamt bókaskáp og er verðmætið kr. 10.000,00. Dregið verður 8. ágúst og kostar miðinn aðeins kr. 2,00. Miðarnir fást hér í bæ í Bókabúð Böðvars, Verzl, Einars Þqrgilssonar h.f. og skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins. Sala á efni úr bæjarlandinu Á síðasta bæjarstjórnarfundi var eftirfarandi bókun bæjarráðs samþykkt: „Samþykkt að leggja til við bæjarstjórn, að greitt skuli fyrir efni úr bæjarlandinu fyrst um sinn þannig: Fyrir bílhlass, miðað við 2—3 tonn kr. 20,00 fyrir vikur og Kleifarvatnssand, fyrir annað efni kr. 10 bílhlass 2—3 tonn. -----•------ 65 ára Stúkan Morgunstjarnan nr. 11, Ilafnarfirði verður 65 ára 2. ág. n.k. Verður nánar sagt frá henni hér í blaðinu síðar. og nágrennis, og sé sú áætl- un grundvölluð á þeirri reynslu, er þegar hefir feng- izt við jarðboranir á þessum stað. Verði áætlunargerð þessari flýtt svo sem verða má." Þorleifur gat þess að síðan væri liðið eitt ár og ekkert bólaði á kostnaðaráætlun samkvæmt tillögunni, heldur væri rannsókn urtum haldið áfram og trúin á því að þær gæfu góða raun væri samkv. reikningum Rafveit- unnar ekki meiri en svo að ástæða þætti til þess að afskrifa þennan kostnað um 33% á ári. Virðist hér vera ætt áfram í algjörri blindni og væri full ástæða til þess að stinga við fót- um áður en lengra er haldið og athuga vel, hvort gufuvirkj- un í Krýsuvík yrði ekki til þéss að að stórhækka raforkukaup bæjarbúa. Samkvæmt útsvarsskrá Hafn- arfjarðar, sem lögð var fram 5. þ. m. bera þessir gjaldendur útsvar kr. 10 þúsund og hærra: Bæjarútgerð Hfj. kr. 133.005,00 Einar Þorgilsson & Co. h.f......- 71.845,00 Venus h.f........- 65.270,00 Raftækjaverks. h.f. — 57.500,00 Dvergur h.f......— 32.860,00 Vélsmiðja Hfj. .. - 28.045,00 Árni Þorsteinsson — 27.580,00 Kaupfél. Hafnf. . - 24.705,00 íshús Hfj. h.f. .. - 22.670,00 Þorsteinn Eyjólfss. — 22.335,00 Verzl. E. Þorgilss. — 20.775,00 Ól. H. Jónsson .. — 20.125,00 Stebbabúð h.f. .. — 20.085,00 Sveiírir Magnúss. — 19.950,00 Sigurj. Einarsson — 19.655,00 Sviði h.f...........- 19.210,00 F. Hansen (dbú) — 18.690,00 Valdimar S. Long — 18.680,00 Benedikt Ögm.s. — 18.180,00 Fiskur h.f..........- 18.170,00 Þórarinn B Egilss. — 17.475,00 Júlíus Sigurðsson — 16.970,00 Frost h.f...........- 15.955,00 Guðjón Jónsson . — 15.560,00 Þorst. Einarsson . — 15.400,00 Hrafna Flóki h.f. — 15.105,00 B. M. Sæberg .. — 14.930,00 Ásg. G. Stefánsson — 14.730,00 Guðm. Þ. Magn. - 14.660,00 Ásmundur Jónss. — 13.830,00 Málningarstofan . — 13.490,00 Jón Gíslas. útgm. — 12.860,00 I Friðjón Guðl.s. .. — 12.580,00 | Ing. Flygenring . — 12.405,00 Emil Jónsson .... — 12.315,00 Loftur Bjarnason — 11.965,00 Krist. Kristjánsson — 11.795,00 Magnús Guðm.s. — 11.710,00 Dröfn h.f........- 11.510,00 Einar Einarsson . — 11.500,00 Vífill h.f......... - 11.430,00 Vélsm. Klettur h.f. — 11.315,00 Jökull h.f.......- 11.005,00 Stefán Jónsson .. — 10.885,00 Ársæll Kr. Jónsson — 10.865,00 Bjarni Snæbjörnss. — 10.830,00 Jón Mathiesen .. — 10.560,00 Gunnl. Stefánsson — 10.450,00 Lýsi éc Mjöl h.f. . — 10.415,00 Árni Sigurðsson . — 10.385,00 Ólafur Tr. Einarss — 10.315,00 HAMAR Vegna sumarleyfa kemur Hamar ekki út aftur fyrr en föstudaginn 11. ágúst.

x

Hamar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.