Hamar - 25.08.1950, Side 2
2
H A M A R
—
HAMAR
ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Páll V. Danielsson.
(Símar: 9228 - 9394).
AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Stranugötu 29.
IIAMAR kemur út annan hvern föstudag.
Áskriftaverð kr. 15.00 á ári.
PRENTAÐ í PREN l'SMIÐJU IIAFNARFJARÐAR H. F.
>._,
>> Bú er landsstólpi“
Eitt af stærstu vandamálum íslenzku þjóðarinnar er hinn mikli
fólksflutningur úr sveitunum til kaupstaðanna, enda er afleiðing-
in sú, að framleiðsla landbúnaðarafurða er á ýmsum sviðum langt
frá því að fullnægja neyzluþörf þjóðarinnar. Það ætti að vera öll-
um Ijóst, að slíkt er mjög háskasamlegt, hvað snertir afkomu
þjóðarbúsins er til lengdar lætur og er því nauðsynlegt að glæða
sem mest áhuga fólks fyrir sveitabúskap og skapa honum þau skil-
yrði, að hann geti eflst sem mest og boðið þeim, sem að honum
vinna upp á góð og arðvænleg kjör.
Ámi G. Eylands ritar grein, sem heitir „Fögur er hlíðin“, um
þessi mál í 1. og 2. hefti tímaritsins „Stefnir“. Það ættu sem flestir
að lesa grein þessa, því fullvíst er að þeir yrðu nokkuð auðugri
af þekkingu á þessum sviðum eftir lesturinn en áður.
Árni G. Eylands leiðir skýr rök að því hve þjóðinni er mikil
•nauðsyn á því, að landbúnaðurinn sé efldur, svo og hvað hann
liefur upp á að bjóða því fólki til handa, sem vill af alúð leggja
sig fram og stunda hann.
Þá bendir Árni á leiðir sem fara mætti til að vekja áhuga fólks
fyrir búskapnum, bæði þess sem stundar hann og annars. Þar
farast Árna þannig orð:
„Á Norðurlöndum hafa búnaðarfélög æskulýðsins mótast nokk-
uð á annan veg en í Ameríku, þar sem vagga þeirra var, og þar
sem vegur þeirra er mestur. Af báðum þessum aðilum þurfum
vér að læra. Alls staðar er tilgangurinn hinn sami: „að þroska bú-
mannsspíruna í unglingunum“, að vekja trú þeirra á gildi og getu
landbúnaðar og sveitalífs og skilning á því að það geti verið að-
laðandi og eftirsóknarvert bæði sem líf og atvinna.
Alls konar keppni og vinnusýningar er eitt af því, sem bezt reyn-
ist í þessari starfsemi, og það er einmitt þessi þáttur starfseminnar
sem mesta eftirtekt vekur á meðal fólks sem aðra atvinnu stundar
og ef til vill þekkir lítið til búskapar og lífsskilyrðanna í sveitun-
um.
Félögin halda mót, þar sem fer farm keppni í plægingu, bæði
með hestum og traktorum. Þessi keppni er hin algengasta á
Norðurlöndum, og henni er ávallt fylgt með mikilli athygli, ekki
sízt síðan traktorarnir komu til sögunnar. Af annarri starfskeppni
á slíkum mótum má nefna: mjaltir, rúningu fjár, að dæma hesta og
nautgripi, að leggja á horð, að grafa lokræsi o. s. frv., svo að það
sé helzt nefnt, sem hér gæti komið til greina, bæði fyrir pilta og
stúlkur. Þetta eru starfsíþróttir og áhuginn fyrir þeim getur á
sína vísu orðið engu minni heldur en áhugi á venjulegum íþrótt-
um. Á Jaðri í Noregi kepptu 20 ungir menn í traktorplægingu
síðastliðið haust, þúsundir manna mættu til að horfa á og göml-
um bændum út og suður um sveitir Jaðars varð ekki um annað
tíðræddara þá dagana heldur en hver myndi vinna, þar kom metn-
aður hreppanna mjög til greina. Og blöðin og útvarpið slæfðu
ekki áhugann.
í fyrra var í Svíþjóð háð Norðurlandamót og keppni í ýmsum
starfsgreinum. Þar mætti ungur maður frá Kanada með traktor og
plóg til að keppa í traktorplægingu og annar frá Englandi. Slíkt
mót verður í Danmörku á sumri komanda og er þegar hafinn mik-
ill undirbúningur undir það. Þar verður keppt í plægingu bæði
með traktorum og hestum, og mjöltum. Er mikill viðbúnaður með-
al æskumanna um öll Norðurlönd til þess að keppa á því móti. Á
slíkum mótum mæta ýmsir fremstu menn hlutaðeigandi þjóða,
afhenda verðlaun og halda ræður. Gústaf konungsefni Sví kann
t. d. vel við sig á slíkum mannfundum.
Ég nefndi Norðurlandamót. Eitt Norðurlandanna — ísland —
tekur ekki þátt í þessum mótum.“
íslendingar hafa sýnt það, að þeir geta komizt langt í keppn-
um þjóða á milli í íþróttum, skák, spila bridge o. fl. En er þá ekki
kominn tími til þess að sýna dugnaðinn við að vinna fyrir sér?
í
Eitt og annað----I
LOFORÐ I SVIGUM
1 15. tölubl. Alþ.bl. Hfj. er
sagt frá því í rammagrein að
fréttzt hefði að Björn Ólafs-
son ráðherra hafi „látið trúa
gæðinga sína og fylgifiska fá
sérleyfisleiðina Reykjavík —
Hafnarfjörður, þvert ofan í
tillögur skipulagsnefndar
fólksflutninga“. Síðan var ver-
ið með hnútur í garð Sjálfstæð
ismanna í Hafnarfirði og Stef-
án Jónsson bæjarfulltrúi eink-
um tilnefndur. Og að lokum
var lofað meiru um málið síð-
ar, að vísu var loforðið sett
innan sviga, hvort sem það er
merki þess, að það verði ekki
efnt, að minnsta kosti hefur
ekki bólað á því.
SAMBOÐIN IÐJA
Þessi mál voru lítillega
rædd í Hamri síðast og það
dregið fram í dagsljósið, að
sökin á því, að rekstur þessar-
ar leiðar fór að öllu leyti út
úr bænum hvílir af fullum
þunga á Alþýðuflokknum.
Enda hefur ásælni hans til
að þjóðnýta þennan rekstur
verið taumlaus og ekkert hef-
ur verið til sparað að níða nið-
ur einkaframtakið og tor-
tryggja það á allan hátt. Slík
iðja tilheyrir Alþýðuflokknum
mjög vel, enda í alla staði lítil-
mannleg og honum samboðin.
SELT HÆSTBJÓÐANDA
I tilefni af þessum umræð- j
um Hamars birtist klausa í
síðasta tölublaði Alþýðublaðs
Hafnarfjarðar og er þar ennþá
kastað hnútum að framkvæmd
Björns Ólafssonar ráðherra í
þessu máli. A hitt er svo vitan-
lega ekki minnst að ráðherr-
ann bauð Hafnarfjarðarbæ að
taka að sér reksturinn, en
hann vildi ekki, heldur beið
þess að sérleyfisleiðin yrði
boðin út og þá var boð bæjar-
ins í vagnana lægra en ein-
staklinga. Afleiðing þess er
svo ofureinföld þ. e. að hæst-
bjóðandi hlaut þá, og þar með
rekstur leiðarinnar.
FYRIR HVAÐ ÁTTI AÐ KAUPA
Annars hefur hinum víg-
reifa greinarhöf. Alþ.bl. Hfj.
sem vel gæti verið einn af
lærisveinum bæjarstjórans í
ræðumennsku því orðbragðið
er ekki ósvipað því, sem heyra
má stundum á bæjarstjórnar-
fundum, láðst að geta þess,
hvað var á bak við boð Hafnar
fjarðarbæjar. Hvernig ætlaði
hann að kaupa vagnana? Hvar
átti að fá fé til þess? Það er
staðreynd að vatnsveitan og
hafnarbyggingin var stöðvuð
vegna fjárskorts. Og bæjar-
stjórinn gafst upp við að fá
lán til vatnsveitunnar hjá lána
stofnunum. Heldur greinar-
höfundur að auðveldara hefði
verið að fá lán eða greiða fé
úr bæjarsjóðnum til að kaupa
strætisvagnana? Eða er hann
að belgja sig út í þeim tilgangi
að láta líta svo út, að Björn
Ólafsson, Þorleifur Jónsson
og Stefán Jónsson séu steinar
í götu hins „vel stjómaða“
bæjarfélags, annars væri því
allt mögulegt.
þjoðnýtingarfostrið
Annars er það von, að grein-
arhöf. Alþ.bl. Hfj. sé gram-
ur og reiðin hafi hlaupið með
hann gönuskeið út af braut
velsæmisins. Það hlýtur að
þurfa taugar til að þola það,
að sjá þetta þjóðnýtingarfóst-
ur sitt éta og éta og það geysi-
mikið en jafnlramt sjá það
dragast upp úr vesaldóm og
aumingjaskap og lognast síðan
útaf með skaða og skömm. Þá
er það heldur ekki óeðlilegt
þegar greinarhöf. lendir út
fyrir takmörk ótruflaðrar skyn
semi, að hann sjái bóla á „grá-
um nazisma“, því þá er orðið
svo grunnt á þeirri hneigð í
undirvitund hans sjálfs að
vilja mola allt undir sig og
sitt vald og er það ekld eitt-
hvað í ætt við nazisma?
Afsakanir
Framh. af bls. 1
heldur tilheyri þær og eigi að
dekka óstjórnareyðslu bæjar-
stjórnarmeirihlutans á því ári. En
hvar er heimildin fyrir því að
fénu yrði eytt til annars en vatns
veitubyggingarinnar? Hefur bæj
arstjórnin verið kvödd þar til ráða
og samþykkis? Eða er hér um
að ræða óstjórn og fjárbruðl hjá
meirihlutanum í heimildarleysi?
Það er tilgangslaust fyrir for-
ystumenn meirihlutans að slá um
sig með fögrum orðum um nauð-
syn á að hraða byggingu vatns-
veitunnar, þegar hugur fylgir
ekki betur máli en raun hefur á
orðið, enda er langt frá því, að
framgangur málsins hafi verið
tryggður. Samkvæmt upplýsing-
um í grein bæjarstjórans vantar
ennþá, þó að skuldabréfin seljist
upp, allt að kr. 1 milljón til að
geta lokið verkinu. Hér duga eng
in vettlingatök, það verður að
tryggja skjótan og góðan fram-
gang þessa máls, en það verður
ekki gert með fögrum orðum, ef
í framkvæmdinni er svo allt látið
reka á reiðanum þar til verkið
stöðvast einn góðan veðurdag
vegna f járskorts.
Vonandi rétta bæjarbúar og
aðrir hjálparhönd til að vatns-
veitan komist upp með því að
leggja sitt af mörkum með að
lána fé til hennar. Eina leiðin
virðist nú orðið vera sú, að leita
til almennings í bænum um láns-
fé til að tryggja honum þau frum-
skilyrði, sem þarf til að geta lifað
menningarlífi, því þrátt fyrir góð-
æri undanfarin ár og það, að
bæjarbúar hafa reitt mikið fé af
hendi til hins sameiginlega sjóðs
borgaranna, þá hefur rás viðburð
anna verið sú, að furðu skammt
á veg hafa komizt þær fram-
kvæmdir, sem mest aðkallandi
voru. Veldur þar hver á heldur,
enda er það ekki ofsagt að fyrir-
hyggjuleysi hafi skipað öndvegi
í fjármálastjórn þessa bæjar.
Það verður alltaf staðreyndin
að feitu kýrnar skiluðu litlum var-
anlegum arði og það breytist ekki
við það, þótt Emil Jónsson og
Helgi Hannesson tvímenni á
einni mögru kúnni fram á rit-
völlinn í Alþýðul)laði Hafnar-
fjarðar.
Er ekki full ástæða til að taka störfin sem íþróttir og reyna að ná
góðum árangri á þeim sviðum? Er ekki kominn tími til að losna
við þann hugsunarhátt, sem alltof oft skýtur upp kollinum að
vinnan sé böl, sem þurfi helzt að losna við? Þjóðin þarf að sýna
það að hún geti unnið fyrir sér, að hún geti ávaxtað sitt pund
eða borið sitt barr eftir því sem með þarf hverju sinni og umfram
allt að hún vaxi með viðfangsefnunum, öðlist sanna gleði með
sigrunum en kasti sér ekki út í óhóf og sóun verðmæta sinna.
Hér er þörf dugandi fólks og margur mun komast að þeirri
niðurstöðu eftir að hafa lesið áðurnefnda grein Árna G. Eylands,
að hér sé þörf dugandi landnámsfólks, fólks til að yrkja landið
og sækja brauð sitt og sinna í frjómagn íslenzkrar gróðurmoldar.
Árni G. Eylands endar grein sína með þessum orðum:
„Flestir þekkja söguna um búmanninn, sem alltaf talaði um
tap sitt á búskapnum og sýndi fram á það með reikningum, að
hann væri alltaf að tapa, þó að allir vissu að hann væri að auka
efni sín.
Bændurnir og þjóðin öll hefur um skeið tamið sér þennan sama
sýting, þjóðinni verður skrafdrjúgt um tap sitt á búskapnum og
hvað mest sveitabúskapnum. Það er meira en kominn tími til
að venda sínu kvæði í kross og hætta talinu um tapið en reyna
að sjá þá sólskinsbletti, sem víða eru í heiði, ef með framsýni
er horft um dali og hlíðar lands vors, ef vér göngum ekki á gróðr-
inum, án þess að verða hans vör, en gerum oss ljóst, að vér erum
þess umkomin að vernda og efla gróður jarðar og mannlífs og
uppskera gnótt og gæfu, — gæfu starfs og hollra anna.“