Hamar - 20.10.1950, Page 1
HAMAR
IV. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI 20. OKT. 1950 23. TÖLUBLAÐ
Vinna við haSnar-
bygginguna stöðvuð
Bæjarstjórinn fær
húsaleigustyrk
Vinna við hafnarbygginguna
er stöðvuð í bili, enda mun vera
búið það fé, sem til verksins
hefur fengizt.
Verkið hefur gengið vel og
er heildarlengd garðsins orðin
390 m. Lerigd plötu er 382 m.
og skjólveggs 374 m. Komið er
út á ca 7 m. dýpi miðað við stór-
straumsfjöruborð.
Eins og lesendum blaðsins er
kunnugt þá vann dýpkunarskip-
ið Grettir að uppmokstri hér í
höfninni s.l. vor og vannst tvennt
við það, annað hið væntanlega
athafnasvæði innan hafnargarðs-
ins var dýpkað og hitt að upp
var mokað möl og grófum sandi,
sem notaður var til að þétta
botninn og fylla upp undir garð-
inn. Ofan á þessa fyllingu hefur
verið byggt og reyndist mjög
lítið sig á garðinum fyrr en kom-
ið var svo langt að farið var að
halla fram af uppfyllingunni,
en þá kom fram dálítið sig eða
frekar að megi kalla það skrið.
Það er þó ekki neitt að ráði.
Haldið hefur verið áfram með
varnarbekkinn að utanverðu jafn
framt garðinum og malarbing-
urinn grjótklæddur að utan og
nær sú grjóthleðsla víðast hvar
um 11—12 m. út frá rótum garðs-
ins en það eru 16—17 m. frá
garðbrún.
Þannig hefur verið gengið frá
garðendanum að hlaðið hefur
verið stórgrýti fyrir hann með
fláa ca. 1:1 til varnar því að grafi
undan garðinum.
Bæjarbúar fagna hverjum
þeim áfanga, sem næst í hafnar-
byggingunni, enda verður af-
koma bæjarbúa í framtíðinni
mjög háð því hvernig hægt verð-
ur að búa sem bezt að sjávarút-
veginum hér í bænum.
En mikið verk er ennþá að
vinna, bæði við að halda áfram
byggingu hafnargarðanna svo
og bryggjur o. fl. innan þeirra.
Allt kostar þetta mikið fé, en
höfnin þegar fjárþrota og það
skuldug orðin að hún mun tæp-
lega geta staðið undir greiðslu
vaxta og afborgana af þeim lán-
um, sem nú þegar hvíla á henni.
Það er því nokkurn veginn
Ijóst, að ekki verður hægt að
halda áfram öðruvísi en þannig
að bæjarbúar taki nokkurar byrð-
ar á sínar herðar til þessara fram
kvæmda, og á þeim erfiðleika-
tímum, sem nú eru verður ekki
hjá því komizt að gera upp á
milli þeirra stóru verka, sem
bærinn hefur og láta þau sem
nauðsynlegust eru og líftaug
bæjarfélagsins fastast við bundin
sitja í fyrirrúmi fyrir því fé, sem
borgararnir geta af höndum lát-
ið.
------•-------
Fulltrúar á Alþýðu-
sambandsþing
Héðan úr Hafnarfirði hafa
verið kosnir 14 fulltrúar á Al-
þýðusambandsþing frá 5 félög-
um.
Frá V.m.f. Hlíf voru kosnir
Hermann Guðmundsson, Sigurð-
ur T. Sigurðsson, Helgi Jónsson,
Ólafur Jónsson, Bjarni Erlends-
son og Jens Runólfsson.
Frá V.k.f. Framsókn voru kosn
ar: Guðrún Nikulásdóttir, Þór-
unn Sigurðardóttir og Sigríður
Erlendsdóttir.
Frá Sjómannafélagi Hafnar-
fjarðar voru kosnir: Borgþór Sig-
fússon, Pálmi Jónsson og Pétur
Óskarsson.
Frá Bifreiðastjórafél. Neista
var kosinn: Bergþór Albertsson.
Frá Iðju, félagi verksmiðjú-
fólks var kosinn: Þóroddur Giss-
urarson.
-----O------
Ný hafnarreglugerð
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var samþykkt ný hafnarreglu-
gerð fyrir Hafnarfjarðarkaup-
stað. Hefur hún í för með sér
nokkra hækkun á gjöldum til
hafnarinnar, er það gert, ef það
mætti verða til þess, að hún geti
staðið að mestu undir rekstrin-
um og þeim skuldmn, sem á
henni hvíla.
S.l. mánudagskvöld var hald-
inn fundur í V.m.f. Hlíf um at-
vinnumálin í bænum. Bæjarfull-
trúunum var boðið og mættu 6
þeirra.
Hermann Guðmundsson for-
maður Hlífar innleiddi umræð-
ur, sem snérust að mestu um þá
erfiðleika, sem nú væru með at-
vinnu í bænum m. a. vegna fækk-
unar í vinnu þar sem hafnar-
vinnunni hefur verið hætt og
vegna togarastöðvunarinnaír.
Fjórir bæjarfulltrúar tóku til
máls og auk þess ýmsir Hlífar-
félagar. Voru ræðumenn mjög á
einu máli um þá brýnu þörf,
sem á því væri að greiða úr nú-
verandi ástandi. Hinsvegar töl-
uðu bæjarfulltrúarnir um getu-
leysi bæjarsjóðsins til að bæta
nokkuð verulega úr, nema sala
vatnsveituskuldabréfanna ykist
eða lán fengizt á annan hátt.
Sá atburður skeði á síðasta
bæjárstjórnarfundi að eftirfar-
andi tillaga frá bæjarráði var
samþykkt:
„Bæjarráð samþykkir, að
leggja til við bæjarstjórn
með tilliti til þess háa húsa-
leigukostnaðar, er bæjar-
stjóri hefur haft og hefir við
að búa, að kostnaður þessi
verði greiddur niður með kr.
500,00 á mánuði fyrst um
sinn.
Það hefur að vonum vakið
undrun bæjarbúa, að bæjar-
stjórinn, sem er hæstlaunaði
starfsmaður bæjarins skuli ekki
geta lifað af launum sínum,
sem munu komast yfir kr. 50
þús. á ári, ef aðeins eru talin
bæjarstjóralaunin svo og það,
sem hann fær greitt fyrir störf
sín í niðurjöfnunarnefnd.
Þegar um það var spurt á bæj-
arstjórnarfundinum af hverju
það stafaði, að nauðsynlegt væri
talið að greiða húsaleigu fyrir
bæjarstjórann, hvort húsaleigan
væri óeðlilega há o. fl., þá gaf
formaður bæjarráðs, Emil Jóns-
son, þau svör að húsaleigu- og
hitakostnaður bæjarstjórans væri
liátt á annað þús. kr. á mánuði
og þó að bæjarstjóri hefði góð
í fundarlok var eftirfarandi til-
laga, sem form. lagði fram strax
í byrjun fundar, samþykkt:
„Vegna þess alvarlega ástands
sem nú er í atvinnumálum verka-
manna, m. a. vegna fækkunar í
bæjarvinnu, stöðvunar á hafn-
argerðinni og togaradeilunnar,
skorar fundur haldinn í V.m.f.
Hlíf, mánudaginn 16. okt. 1950,
á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að
fjölga verkamönnum í bæjar-
vinnu og vatnsveitu úr 40 í 75.
Þá skorar fundurinn ennfrem-
ur á bæjarstjórn að fela útgerð-
arráði Bæjarútgerðarinnar að
hefja nú þegar umleitanir um sér-
samninga við Sjómannafélag
Hafnarfjarðar í því skyni að
koma skipum Bæjarútgerðarinn-
ar á veiðar.“
Fundurinn var mjög fjölmenn-
ur.
laun þá væri ekki hægt að Iáta
hann bera þennan kostnað án
þessarar aðstoðar. Nánari upp-
lýsingar voru ekki gefnar, nema
frá því var sagt, að ætlunin væri
að greiða þessar 500,00 kr. frá
því að bæjarstjórinn flutti í bæ-
inn.
Þegar þetta mál er íhugað þá
virðist einkum vera tvennt, sem
nauðsynlegt er að taka tillit til.
í fyrsta lagi er það, hvort ástæða
sé fyrir bæinn að taka ábyrgð á
því, hvort starfsmenn hans fari
þannig með laun sín, sem teljast
lífvænlegri en laun almennings,
að þeir geti ekki lifað af þeim
og í öðru lagi það, hvort hægt sé
að fara á þennan hátt með fé
bæjarbúa, sem reiða það af hendi
til hins sameiginlega sjóðs af
miklu lægri launum en viðkom-
andi aðili hefur úr að spila.
Hvað fyrra atriðið snertir þá
verður ekki séð, að nokkur nauð-
syn reki til að taka upp þá stefnu
að greiða húsaleigu fyrir há-
launamenn. Um það, hvað við-
komandi maður í þessu máli
auglýsir sig auðvirðilegan og
tillitslausan til alls almennings í
bænum með því að fara fram á
slíka framfærslu skal ekki rætt.
En það að húsaleigu- og hita-
kostnaður bæjarstjórans sé hátt
í tvö þúsund kr. á mánuð hvern
verður aðeins tahn saga en ekki
staðreynd þar til eitthvað liggur
fyrir, sem mark er á takandi. Það
er vitað, að sú húsaleiga, sem
bæjarstjórinn greiðir er kr. 1050
á mánuði og verður ekki talið,
að það sé óeðlileg húsaleiga mið-
að við verðmæti þess húsnæðis,
sem hann hefur til afnota. Sé
litið á málið frá sjónarmiði hús-
eigenda þá er sennilegra hag-
felldara fyrir þá að selja íbúð-
ina og kaupa t. d. vatnsveitu-
skuldabréf fyrir andvirðið. Eftir
þeim upplýsingum, sem formað-
ur bæjarráðs gaf ætti þá samkv.
framansögðu hitakostnaðurinn
að vera hátt í þús. kr. á mánuði.
Ja, trúi hver sem vill. Tonnið af
kolum kostaði s.l. vetur kr. 250,
það ættu því að hafa farið ca.
6 tonn á mánuði til kyndingar
hússins en það eru 3 íbúðir, í-
búð bæjarstjórans, önnur íbúð
jafn stór og þriðja íbúðin sem er
í kjallara og miklu minni, en í-
búandi þar annaðist kyndingu
Framh. á bls. 4
Orðsending til
Hafnfirðinga
Kæru samborgarar, við sendum yður kveðju vora og
minnum yður vinsamlegast á að félagið efnir til bazars fyrsta
vetrardag, laugardaginn 21. okt., svo sem að venju öll und-
anfarin 20 ár.
Hafnfirðingar hafa alltaf brugðizt vel og drengilega við
bónum þessa félagsskapar og treystum við enn og ætíð á
veglyndi yðar. Við förum ekki fram á neinar stórgjafir, en
ef við öll verðum samtaka og leggjum lítið eitt af mörkum
þá má segja að „margt srnátt geri eitt stórt,“ og allt er með
beztu þökkum þegið.
Bazarinn verður haldinn í Góðtemplarahúsinu og hefst
hann kl. 5 eftir miðdag.
Með vinarkveðju,
Kvennadeild Slysavarnafélags íslands
í Hafnarfirði.
FUNDUR í HLÍF