Morgunblaðið - 16.11.2010, Qupperneq 19
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á
gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar
eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í
eindaga til og með 15. nóvember 2010, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga
til og með 5. nóvember 2010 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir
er fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2010, á staðgreiðslu tekjuskatts,
útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum
launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda
aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi,
kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum,
skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum,
fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á
eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum,
sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar,
sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til
að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem
lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði
þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki
í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. nóvember 2010
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í
Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í
Bolungarvík
Sýslumaðurinn á
Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á
Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
endur halda tryggð við þennan
svikahrapp? Það væri í besta falli
heimska.
Ögmundur vill að allir fari að
prjóna lopapeysur, maðurinn sem
komst á Alþingi fyrir stöðu sína
innan hinnar spilltu verkalýðs-
hreyfingar. Ögmundur talar og tal-
ar eins og Steingrímur Joð, en
ekkert liggur eftir þá félaga. Jó-
hanna stendur að vísu betur enda
vinnur hún enga Morfískeppni
með að staulast í gegn um ræð-
urnar sem Hrannar B. Arnarsson
skrifar fyrir hana. Hún er komin
með okkur inn um dyragættina á
ESB eins og hún lofaði, með Stein-
grím Joð undir hendinni. En þar
eru líka upptalin þau kosningalof-
orð sem hún hefur staðið við. Hin-
ir flokkarnir eru ekkert betri, Siv
Friðleifsdóttir var næstum jafn-
slæmur heilbrigðisráðherra og Álf-
heiður, sem er mesti hrokagikkur
sem hefur gegnt ráðherradómi.
Um hina flokkana ræði ég síðar.
Það er komið nóg af ruglinu,
það er búið að gera aldraða og ör-
yrkja að ölmusufólki, og venjulegt
fjölskyldufólk að bónbjargafólki.
Við verðum að knýja fram kosn-
ingar, kannski er Auður, og hinar
duglegu konurnar á tunnunum,
með í að taka völdin af þessari
duglausu ríkisstjórn, og þú mátt
gjarnan vera með, ef þú ert ekki
að dröslast áfram með það sem
hefur síast inn í Morfískeppninni,
og kastar af þér hlekkjum sálar-
innar.
ÓMAR SIGURÐSSON
skipstjóri.
UMRÆÐAN 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2010
Landar hér um
slóðir hafa þungar
áhyggjur af ástandinu
á gamla ættlandinu.
Þeir sitja við tölv-
urnar og lesa færi-
bandafréttir miðlanna
á Íslandi. Hver nýr
dagur færir ný vond
tíðindi. Þetta gæti
orðið svo slæmt, að
fólk hafi ekki lengur
efni á að kaupa egg til að henda í
Alþingishúsið. Það er náttúrulega
skammarlegt, að það skuli vera
svona tilfinnanlegur skortur á
grjóti. Sagt hefir verið frá því, að
einhverjir borgarar hafi orðið að
rífa upp gangstéttarhellur til að
varpa í þinghúsið. Það er ekki bjóð-
andi að leggja slíkt erfiði á fólk.
Einhver stakk upp á því, að fjár-
söfnun yrði hafin hér í Flórida til
að styrkja eggjakaup á Fróni, svo
fólkið geti haldið áfram mótmælum
sínum. Annar taldi það óráð. Frek-
ar væri að fá einhverja unga at-
hafnamenn heima til þess að safna
fjörugrjóti af hæfilegri stærð, sem
notað yrði í stað eggjanna. Gætu
þeir sett grjótið í plastpoka (eins
og tveggja kílóa) og þeim yrði síð-
an úthlutað til þurfandi. Aðrir gætu
borgað og myndi það koma á móti
kostnaði.
Fréttirnar frá Íslandinu koma
miklu róti á hugann. Það er varla
hægt annað en að vorkenna vesa-
lings þingmönnunum. Þeir virðast
ekki í miklu uppáhaldi hjá landsins
lýð, þótt þeir hafi verið kosnir í
löglegri kosningu. Það er ekki þeim
að kenna, að hver höndin skuli vera
uppi á móti annarri í þingsölum.
Benda þeir réttilega á, að það sé
einungis spegilmynd af hugar-
ástandi þjóðarinnar. Og hvernig
geta þeir annars einbeitt sér að því
að leysa málin, þegar fólkið safnast
sífellt saman fyrir utan vinnustað-
inn, ber bumbur, kveikir bál, hend-
ir eggjum og öðru, brýtur rúður,
skemmir ráðherrabíla og eys úr sér
ókvæðisorðum, oft klámyrðum á
enskri tungu? Er annars ekkert
klám-blót til á móðurmálinu?
Stærsti hluti þjóðarinna tók þátt
í góðærisfylleríinu sem endaði með
hruninu. Nú vilja menn áfellast þá,
sem gáfu þeim vínið, sem meiri-
hlutinn þáði með þökkum og teyg-
aði af áfergju. Og í ljós hefir kom-
ið, að íslenzku forsprakkarnir
borguðu aldrei fyrir allt þetta vín,
heldur sviku það út eða fengu að
láni. Skiljanlega eru útlenzku vín-
salarnir reiðir, enda um að ræða
trilljónir flaskna. Og þjóðar-
timburmennin eru slæm.
Í annarri hvorri frétt frá gamla
landinu, ber fyrir orðið rannsókn.
Aðalúrræðið til að róa lýðinn er að
tilkynna nýja rannsókn. Það er erf-
itt að henda reiður á
því, hver er að rann-
saka hvað um hvern.
Ríkið bætir stöðugt
fólki í deildir rann-
sóknarmanna. Bráðum
verður líklega stofnuð
hrun-rannsóknardeild
við Háskólann.
Hvernig væri að
sameina allar þessar
rannsóknir og setja
þær undir einn hatt?
Nei, við myndum ekki
kalla apparatið „Rann-
sóknarstofan“. Nafnið verður
„Rannsóknarrétturinn“, alveg eins
og á Spáni fyrr um daga, sem allir
lærðu um í mannkynssögunni. En
við skulum sleppa brennunum og
láta nægja að tendra þær um ára-
mót, eins og verið hefir. Í réttinn
verður valið fólk úr öllum stéttum,
en samt engir stjórnmálamenn.
Ekki heldur hæstaréttardómarar;
þeir hafa fullt í fangi með öll
nauðgunarmálin. Bara til að sýna
tengslin við Spán og kaþólikkana,
og til að skjóta skelk í bringu til-
vonandi fórnarlamba, yrði valinn
einn prestur úr Landakoti. Upp á
það yrði vel passað, að helmingur
rannsóknar-dómaranna yrði af
kvenkyninu.
Rétturinn myndi bæði rannsaka
og dæma í málunum. Allt fyrir opn-
um dyrum og bezt að nota Laug-
ardalshöllina, svo fólk geti komið of
fylgst með framvindunni. Fyrir
réttinn yrðu dregnir útrásarmenn,
bankastjórar, embættismenn og
jafnvel ráðherrar. Fangelsisvist og
fésektir yrðu aðalrefsingarnar, en
jafnvel kæmi til greina að nota út-
legð, eins og gert var í fornöld.
Hængurinn er bara sá, að flestir
útrásaraularnir („víkingar“ er of
gott orð) búa núna í útlöndum. Á
þá mætti kannske nota innlegð, þ.e.
dæma þá til að búa á ættlandinu
góða, innan um bálreiðan landslýð-
inn.
En við erum að ræða um fjölda
manna, sem rannsakaðir yrðu og
dæmdir. Fangelsispláss er af
skornum skammti, eins og kunnugt
er. Þökk sé Schengen og EES og
öllum Austur-Evrópu-fag-
glæponunum. sem iðkað hafa iðn
sína á saklausa, litla Íslandi. Það er
líka nokkuð grimmt, að láta hrun-
sakamennina dúsa með þessum lýð
á Litla-Hrauninu. Þótt þeir hafi
steypt landinu í þennan vanda má
ekki gleyma, að þeir komu Íslandi
á kortið. Umheimurinn fór ekki að
taka mark á Íslendingum, fyrr en
útrásarkapparnir og bankasnilling-
arnir komu við pyngjuna á útlend-
ingnum. Við verðum að sýna þess-
um nýju tugthúslimum smá
virðingu.
Á Bessastöðum voru í eina tíð
geymdir sakamenn í dýflissu.
Hvernig væri að innrétta staðinn
sem fangelsi að nýju? Það ætti að
vera nóg pláss og forsetinn þyrfti
ekki endilega að flytja út. Hann
gæti verið eins konar yfir-
fangavörður, enda er hann líklega
málkunnugur mörgum af vænt-
anlegum föngum. Ímyndum okkur,
að verið væri að ræða um for-
sprakka efnahagsblöðrunnar:
„Hvar er hann aftur, hann Sig-
urfinnur Einreksson, bankastjórn-
armaður? Á Litla-Hrauni?“ „Ertu
frá þér, maður. Hann er á Bessa-
stöðum!“
Rannsóknarrétturinn
Eftir Þóri S.
Gröndal » Á Bessastöðum voru
í eina tíð geymdir
sakamenn í dýflissu.
Hvernig væri að inn-
rétta staðinn sem fang-
elsi að nýju?
Þórir S. Gröndal
Höfundur er afdankaður
fisksali í Flórída.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Sveit Hrundar Einarsdóttur
Íslandsmeistari
Íslandsmótið í parasveitakeppni
fór fram um helgina. Sveit Hrundar
Einarsdóttur sigraði af öryggi, tap-
aði einum leik með minnsta mun,
gerði tvö jafntefli en vann aðra leiki.
Í sigursveitinni spiluðu ásamt Hrund
þau Hrólfur Hjaltason, Ásgeir Ás-
björnsson og Dröfn Guðmundsdótt-
ir.
Lokastaðan:
Hrund Einarsdóttir 253
Hjördís Sigurjónsdóttir 233
Esther Jakobsdóttir 217
NA4 213
SB/JP 204
Plastprent 204
Alls tóku 14 sveitir þátt í mótinu.
Hraðsveitakeppni
Bridsfélaags Reykjavíkur
Staðan eftir tvær umferðir af
þremur:
H.F.Verðbréf 1223
Grant Thornton 1184
Garðs Apótek 1157
SFG 1146
Riddararnir 1116
„Gamlingjarnir“ efstir
á Akureyri
Eftir harða baráttu við sveit Gylfa
Pálssonar komust Old Boys á topp-
inn í hraðsveitakeppni Byrs hjá B.A.
Í sigursveitinni spiluðu Pétur Guð-
jónsson, Stefán Ragnarsson, Hörður
Blöndal og Grettir Frímannsson.
Efstu sveitir urðu:
Sveit Old Boys 1797
Sveit Gylfa Pálssonar 1751
Sveit Sagaplast 1685
Sveit Efnamóttökunnar 1640
Næsta mót er svo fjögurra kvölda
Akureyrarmót í tvímenning.
Flúðabrids
Nú er fjögurra kvölda keppni í
hausttvímeningi.
Í efstu sætum urðu:
Stefán Sævaldss - Vilhj. Vilhjálmss. 514
Magnús Gunnlss. - Pétur - Skarphéðinss.498
Þórdís Bjarnad. - Viðar Gunngeirss. 487
Margrét Runólfssd.- Bjarni H Ansnes 467
Ásgeir Gestss. Guðm. Böðvarsson 462
Karl Gunnlss. - Jóhannes Sigmunds. 451