Morgunblaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2010
Írland og einkum þó bankakerfiþess lenti á
ógurlegu skulda-
fylliríi.
Margur hafðiaf því góða
skemmtun á meðan það stóð sem
hæst.
En skyndilega rann upp fyrir sí-fellt fleirum að ógurlegir af-
borgunartimburmenn væru fram-
undan.
Og margur sem hafði farið svomikinn breytti gleðiskríkjum í
angistarvein.
ESB bauð í ofboði fram stóralánafyrirgreiðslu til Íra.
Íslenskir ESB-trúaðir fórnuðuhöndum og sögðu að sambandið
væri komið Írum til bjargar.
Það væri mikil blessun að eigaslíkan vin í nauð.
Annars staðar í heiminum vartalið að Seðlabanki ESB og
Brusselveldið væri á nálum og von-
aðist til að geta bjargað evrunni
sinni frá hruni.
Þeirra leið var að rétta hinum of-urskuldsettu Írum meira af
hinu sama.
Það myndi geta forðað þeim frátimburmönnunum ógurlegu
sem væru að hvolfast yfir þá.
Þórarinn Tyrfingsson á Vogihefði getað útskýrt fyrir hin-
um efnahagslegu hómópötum í
Brussel hvers mætti vænta af slíkri
lækningu.
Evru-Írar á Vog?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.11., kl. 18.00
Reykjavík -1 heiðskírt
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -1 skýjað
Egilsstaðir -1 alskýjað
Kirkjubæjarkl. -1 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 1 skýjað
Ósló -8 heiðskírt
Kaupmannahöfn -1 snjókoma
Stokkhólmur -3 snjókoma
Helsinki -8 heiðskírt
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 2 slydda
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 2 léttskýjað
London 2 skýjað
París 2 léttskýjað
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg -2 heiðskírt
Berlín 0 skýjað
Vín 4 skýjað
Moskva 2 skýjað
Algarve 17 skýjað
Madríd 10 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Róm 8 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -15 snjókoma
Montreal -3 skýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 4 alskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:32 15:59
ÍSAFJÖRÐUR 11:03 15:38
SIGLUFJÖRÐUR 10:47 15:20
DJÚPIVOGUR 10:07 15:23
Þórhallur Arnbergur Sigurjónsson,
nemandi úr í 10. bekk í Hlíðaskóla,
mætti í starfskynningu hjá Morg-
unblaðinu í gærdag. Fékk hann að
skyggnast inn í líf og störf starfs-
manna blaðsins og mun síðar segja
bekkjarfélögunum frá deginum.
Gaman er að segja frá því að þeg-
ar Þórhallur var fimm ára gamall
tók blaðamaður Morgunblaðsins við-
tal við hann, ásamt nokkrum fé-
lögum, á leikskólanum Hlíðaborg.
Aðspurður hvað Þórhallur ætlaði
að taka sér fyrir hendur þegar hann
yrði stór var svarið: Að vinna á
Morgunblaðinu. Hann sá sig þó ekki
í hlutverki blaðamanns heldur rit-
stjóra. Aðspurður hvort hann eigi
sér enn þann draum heitastan að
setjast í ritstjórastólinn segir Þór-
hallur: „Maður verður að standa við
orð sín,“ og brosir við.
Þórhallur hefur mikinn áhuga á
stjórnmálum, menningu, bók-
menntun og greinaskrifum. Hann
lýkur grunnskóla í maí og stefnir á
nám í menntaskóla á málfræði- eða
náttúrufræðibraut. Þórhallur er klár
og ákveðinn drengur sem án efa á
eftir að vegna vel í því sem hann
ákveður að taka sér fyrir í lífinu,
hvort sem það verða ritstjórastörf
eða eitthvað allt annað.
hugrun@mbl.is
Skrefi nær því að láta gamlan
leikskóladraum rætast
Morgunblaðið/Eggert
Upprennandi Þórhallur var að eigin sögn ánægður með daginn hjá blaðinu.
Var ákveðinn í að verða ritstjóri Morgunblaðsins
Vísitala neysluverðs miðuð við verð-
lag í nóvember hækkaði um 0,05%
frá fyrra mánuði. Án húsnæðis
hækkaði vísitalan um 0,09% frá októ-
ber.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 2,6%.
Er þetta minnsta 12 mánaða verð-
bólga sem mælst hefur frá því í apríl
2004 þegar hún var 2,2%. Verðbólgu-
markmið Seðlabankans er 2,5%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs án húsnæðis verið
um 3,7%. Undanfarna þrjá mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 0,8% sem jafngildir 3,2% verð-
bólgu á ári en 3,6% verðbólgu fyrir
vísitöluna án húsnæðis. Fram kemur
í tilkynningu
Hagstofunnar, að
flugfargjöld til út-
landa lækkuðu
um 18,7%
(vísitöluáhrif
-0,18%), verð á
bensíni og olíum
hækkaði um 2,6%
(0,14) og kostnað-
ur vegna raf-
magns til lýsingar
hækkaði um 8,9% (0,11).
Hækkun vísitölunnar nú er mun
minni en sérfræðingar bankanna
höfðu gert ráð fyrir. Spáði Greining
Íslandsbanka því, að vísitalan myndi
hækka um 0,5%.
Minnsta verð-
bólga frá 2004
Flugfargjöld
lækkuðu.
Verðbólgan mælist 2,6% á ársgrundvelli
Endurbótum á
gatnamótum
Miklubrautar og
Skeiðarvogs er
að ljúka og í dag
verður umferð
hleypt á nýjan
hluta forgangs-
reinar Strætó á
Miklubraut til
vesturs, en hún liggur nú einnig
undir Skeiðarvogsbrú. Jafnframt
verður aðrein frá Skeiðarvogs-
brúnni niður á Miklubraut til vest-
urs opnuð á ný eftir endurbætur
sem gera þurfti vegna forgangs-
reinarinnar.
Eftir þunga morgunumferðar
verða göturnar þrifnar, saltaðar ef
þörf er á, og bráðabirgðamerk-
ingar fjarlægðar. Umferð verður
hleypt á í kjölfarið, segir í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg. Í kvöld
verður bráðabirgðalýsing á mið-
eyju Miklubrautar austan við
Skeiðarvog fjarlægð. Hafist verð-
ur handa við þennan verkþátt eftir
kl. 19.
Framkvæmdum fyrir
Strætó við aðrein á
Miklubraut að ljúka
Magnaða moppuskaftið
Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar
Gólfin þorna á augabragði
Fljótlegt og þægilegt
Húsasmiðjan - Pottar og prik Akureyri - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Eyjatölvur - Miðstöðin
Vestmannaeyjum - Skipavík Stykkishólmi - SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki -
Nesbakki Neskaupsstað - Núpur Ísafirði - Vélaleiga Húsavíkur - Óskaþrif Hólmavík
SÖLUAÐILAR:
Ræstivörur ehf - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is