Morgunblaðið - 20.12.2010, Blaðsíða 2
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
„Þegar svona sprenging verður er
auðvitað mikil hætta á ferðum,“ seg-
ir Guðmundur Helgi Sigfússon,
slökkviliðsstjóri í Fjarðabyggð, en
hans menn komu fyrstir á vettvang
brunans í álveri Alcoa-Fjarðaáls í
Reyðarfirði á laugardaginn. 200.000
lítrar af olíu voru í rýminu þar sem
eldurinn kviknaði en ekkert fólk var
að störfum þar sem sprengingin varð
og urðu því engin slys á fólki.
Sprengingin sem olli brunanum
varð í stórum spenni um klukkan
fimm og var slökkvilið komið á stað-
inn innan nokkurra mínútna. Um
hálfri klukkustund síðar varð önnur
sprenging. Þá voru slökkviliðsmenn
þegar byrjaðir að sprauta froðu á
eldinn en þeir hörfuðu um sinn
vegna sprengingarinnar.
Sprautuðu froðu að utan
Þar sem fólki stóð ekki bein hætta
af eldinum gafst slökkviliðinu ráð-
rúm til að meta aðstæður og hættu á
frekari sprengingum rækilega áður
en hafist var handa að nýju. Að sögn
Guðmundar varð þó að hafa hröð
handtök vegna þess að hitinn fór
hækkandi eftir því sem eldurinn log-
aði lengur og með því jukust líkur á
að olían ókyrrðist og bærist í eldinn
og ylli enn frekari bruna og jafnvel
sprengingum.
Til þess að komast hjá því að nálg-
ast eldinn og leggja slökkviliðsmenn
í hættu var langdræg háþrýstidæla
slökkvibíls Egilsstaðaflugvallar not-
uð til að sprauta froðu að utan. Bíll-
inn var fenginn frá Egilsstöðum sér-
staklega til þessa og var einn þriggja
dælubíla á vettvangi.
Búið var að ráða niðurlögum elds-
ins um kl. 21.30 og starfi slökkviliðs-
ins var lokið um fjórum klukku-
stundum seinna. Neyðarflokkur
álversins stóð svo vakt á vettvangi
um nóttina þar sem olía lak ennþá úr
spenninum. Nóttin var þó tíðinda-
laus.
„Miðað við allar aðstæður fór
þetta betur en á horfðist í fyrstu og
við erum að reyna að koma fram-
leiðslunni í jafnvægi,“ segir Erna
Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Al-
coa-Fjarðaáls.
Að sögn Ernu liggur ekki fyrir
hvað olli sprengingunni sem svo
leiddi til eldsvoðans en hún segir að
athugun á því muni hefjast í vikunni.
Hún segir að ekki sé ljóst ennþá hve
mikið tjón hlaust af brunanum. Áhrif
uppákomunnar á framleiðslu versins
eru einnig óljós en vegna þess að ál-
verið var aðeins rafmagnslaust í um
tvo tíma stöðvaðist framleiðslan ekki
með öllu þó að hægst hafi á henni
vegna eldsvoðans.
Glímdu við eldinn í fjóra tíma
Orsök sprengingarinnar í álveri Alcoa-Fjarðaáls um helgina er enn óljós
200.000 lítrar af olíu sköpuðu hættu á frekari bruna Engin slys urðu á fólki
Ljósmynd/Hilmar Sigurbjörnsson
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsvarsmenn Flugfélags Íslands eru óánægðir
með að vélar félagsins þurfi að millilenda á Eg-
ilsstaðaflugvelli á leið sinni frá Reykjavík til
Noregs. Þurfa farþegar að ganga frá borði með
farangur sinn og sæta vopnaleit. Ekki þarf að
millilenda á leið frá Reykjavíkurflugvelli til
Grænlands og Færeyja.
Að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Isavia, er þetta vegna þess að
Reykjavíkurflugvöllur uppfyllir ekki þær kröfur
sem gerðar eru til flugverndar í millilandaflugi
en það geri Egilsstaðaflugvöllur. Isavia annast
rekstur allra flugvalla á Íslandi. Hvað varðar
flugið til Grænlands og Færeyja segir hún að
völlurinn hafi fengið sérstaka undanþágu frá
ýmsum reglum um flugvernd, til dæmis um
vopnaleit, til að fljúga innanlands og til þessara
tveggja áfangastaða og því þurfi ekki að koma
við á Egilsstöðum á leiðinni þangað.
Segir hún að ekki sé á dagskrá að afla þeirra
leyfa sem þarf til að Reykjavíkurflugvöllur geti
talist fullgildur millilandaflugvöllur þar sem ær-
inn tilkostnaður myndi fylgja því að uppfylla
þær kröfur sem gerðar eru. Ekki liggi heldur
neitt fyrir um frekari undanþágur.
Ósveigjanleiki með ólíkindum
„Okkur finnst svolítið sérstakt að það skipti
máli hvert flugvélin er að fara,“ segir Árni Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
„Við teljum að [Reykjavíkurflugvöllur] uppfylli
þessar kröfur.“
Að sögn Árna höfðu vonir staðið til þess að
lausn fyndist á málinu og vélarnar fengju að
fljúga beint til Noregs. Segir hann að bæði Flug-
málastjórn og Isavia hafi verið ósveigjanleg í
málinu. „Okkur finnst þetta bara alveg með ólík-
indum.“ Noregsferðir félagins í kringum hátíð-
arnar verða níu talsins en Árni reiknar ekki með
að þær verði fleiri. Breytist staðan varðandi
millilendingarnar segir hann þó að athugandi sé
að fjölga þeim. skulias@mbl.is
Noregsflug lendir á Egilsstöðum
Flugvélar frá Reykjavíkurflugvelli verða að millilenda á Egilsstöðum á leið sinni til Noregs
Flugvélar á leið til Grænlands og Færeyja fá undanþágu og mega fljúga án þess að millilenda
Morgunblaðið/Ómar
Á flugi Flugvél Flugfélags Íslands yfir
Reykjavík í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli.
Áætlunarflug til Noregs
» Flugvélar Flugfélags Ís-
lands þurfa að millilenda á
Egilsstöðum á leið til Noregs
til að sæta vopnaleit.
» Félagið verður með flug til
þriggja áfangastaða í Noregi
yfir jól og áramót, til Stav-
anger, Bergen og Þránd-
heims.
» Flugfélagið reiknar að
óbreyttu með að ekki verði
farnar fleiri en þær níu ferðir
sem þegar hafa verið
ákveðnar kringum hátíðarnar.
Að sögn Guðmundar slökkvi-
liðsstjóra gekk slökkvistarfið
greiðlega og allir sem að
komu lögðu sitt af mörkum.
„Þarna unnu menn mjög vel
saman, allir sem að þessu
komu; lögreglan, slökkviliðin
og starfsmenn álversins.
Þetta er mjög yfirveguð og
góð vinna sem þarna fór fram
og menn eiga heiður skilinn
fyrir.“
Hilmar Sigurbjörnsson hjá
mannauðsteymi Alcoa-
Fjarðaáls tekur í sama streng.
Hann kom á vettvang skömmu
á eftir slökkviliðinu og segir
að menn hafi unnið fumlaust
og fagmannlega við erfiðar
aðstæður. Segir hann að
bruninn og slökkvistarfið hafi
verið mikið sjónarspil.
Slökkvistarfið vegna brun-
ans var umfangsmikið enda
hætta á miklu tjóni. Frá
slökkviliði Fjarðabyggðar
komu 30 slökkviliðsmenn að
starfinu og fjórir menn frá
Brunavörnum á Austurlandi
komu með flugvallar-
slökkvibílinn af Egilsstaða-
flugvelli og froðubirgðir. Þá
voru 10-15 þjálfaðir slökkvi-
liðsmenn úr neyðarflokki Al-
coa á vettvangi.
„Yfirveguð
og góð vinna“
UM 50 Í SLÖKKVISTARFINU
Björgunarsveitir á höfuðborgar-
svæðinu, alls um 70 manns, leituðu í
gær manns sem saknað hafði verið
frá heimili sínu í Breiðholti frá því á
laugardagskvöld. Maðurinn, sem er
sextugur, er sjúklingur eftir heila-
blóðfall.
Björgunarsveitir fundu manninn
rétt við heimili hans eftir stutta leit
og var hann bæði kaldur og illa átt-
aður. Var honum komið í sjúkrabíl
er kallaður var á staðinn.
Sjötíu í leit
Maður sem vaknaði við reykskynj-
ara á heimili sínu á Hofsósi á sjötta
tímanum í fyrrinótt braut sér leið út
um glugga og komst undan óbrennd-
ur en mikill eldur var laus í húsinu.
Hann skarst nokkuð við að brjóta
rúðuna og komast út og andaði að
sér reyk. Hann var færður til að-
hlynningar á Heilbrigðisstofnuninni
á Sauðárkróki og var líðan hans góð
eftir atvikum í gær og mun hann
ekki hafa fengið alvarlega reykeitr-
un.
„Húsið virtist vera orðið alelda
þegar við komum,“ segir Kári Gunn-
arsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri á
Sauðárkróki, en slökkviliðið á Hofs-
ósi fékk liðsauka þaðan til að takast á
við eldinn. Hann segir að húsið hafi
fljótt orðið alelda enda um lítið timb-
urhús að ræða. Húsinu varð ekki
bjargað og brann það að lokum til
grunna. Þar sem húsið stendur ekki
nærri öðrum húsum segir Árni að
ekki hafi skapast mikil hætta.
Grunur leikur á að eldurinn hafi
átt upptök sín í raftækjum í eldhúsi
hússins. skulias@mbl.is
Slapp úr
eldsvoða
Braust út um
glugga og skarst
Ljósmynd/Gestur Þorsteinsson
Rústir Húsið brann til grunna enda
úr tré og því góður eldsmatur.
Sjónarspil Eldsvoðinn var mikill sjónleikur og teygðu eldtungurnar sig um þrjátíu metra upp að sögn sjónarvottar.