Morgunblaðið - 20.12.2010, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2010
www.noatun.is
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
l
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
hefð
ir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
ir
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
ir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
ir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
H fðu þa
gott með
NóatúniJólahefðir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
hefð
ir
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r J
óla
hefð
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
efði
r
Jó
lah
NÓATÚNS
GRÍSAHAMBORGAR-
HRYGGUR
KR./KG
1598
FULLKOMIN
JÓL!
1998
20%
afsláttur
FRÉTTASKÝRING
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Alþingi samþykkti aragrúa af band-
ormum og ýmsum lögum um skatta
og aðrar álögur um helgina en hlé
var gert á þinginu vegna hátíðanna
á laugardag.
Samþykkt var frumvarp um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum, vörugjald
af ökutækjum, eldsneyti o.fl., sér-
stakan skatt á fjármálafyrirtæki og
virðisaukaskatt. Um eitt þessara
frumvarpa voru allir þingmenn
sammála, um sérstakan skatt á fjár-
málafyrirtæki en allir viðstaddir
þingmenn greiddu atkvæði með
frumvarpinu, 51 að tölu.
Í atkvæðagreiðslum um önnur
skattafrumvörp sátu þingmenn
stjórnarandstöðunnar ýmist hjá eða
greiddu atkvæði á móti þeim.
Allt af sama meiði
Kristján Þór Júlíusson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins sem á sæti í
fjárlaganefnd, kveður frumvörpin
koma til með að hafa áhrif víða. „Við
getum sagt sem svo að mestu
áhyggjur mínar varðandi skatt-
heimtuna eru tekjuskattur einstak-
linga. Það er alveg ljóst að sá tekju-
stofn er að dragast saman. Svo er
þessi tíeyringur úti um allt kerfið í
þessum minni sköttum sem vigta
ekki svo stórt hver og einn en þetta
dreifist og hefur áhrif víða. Ég tel
að við séum komin að ákveðnum
endimörkum varðandi gjaldþol ein-
staklingsins. Það er ekkert eitt sem
snertir mig frekar en annað. Þetta
er allt af sama meiði.“
Kristján telur menn nú hljóta að
velta fyrir sér samspili bótakerfis
og skattakerfis. „Ég sannfærist
alltaf betur og betur um það að við
séum komin út í einhverjar ógöng-
ur. Þegar maður horfir á samspil
bótakerfis og skattkerfis. Lítið
dæmi er fjármagnstekjuskattur á
sparnað ellilífeyrisþega og áhrif
tekjuskerðingar á útgreiðslu lífeyr-
is. Þetta eru atriði sem eru farin að
vigta meira fyrir einstaklinga.
Menn hljóta því að velta því fyrir
sér hvernig þetta samspil er, með
hvaða hætti menn sjá ríkisvaldið
standa að ákvörðun bótafjárhæða.
Grunninn vantar allan,“ segir Krist-
ján.
Skattahækkanir bera þungann
Kristján telur skattahækkanir til
þess gerðar að halda Íslandi innan
samstarfsáætlunnar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. „Stóra myndin er
þessi, skattahækkanir bera uppi að
ríkissjóður heldur sig innan sam-
starfsáætlunar AGS um afkomu
ríkissjóðsins, frumjöfnuð. Það er
ekki niðurskurður útgjalda sem
hefur gert gæfumuninn í því.“
Þrír fjórðu niðurskurður
Helgi Hjörvar, formaður efna-
hags- og skattanefndar, segir það
ekki hægt að leiðrétta halla ríkis-
sjóðs án þess að allir finni fyrir því.
„Við erum í því verkefni að uppræta
tvö hundruð þúsund milljóna króna
halla á ríkissjóði. Því miður verður
það ekki gert öðruvísi en að við finn-
um öll fyrir því. Fólk fann fyrir
skattaaðgerðunum á síðasta ári
þegar innleiddir voru aftur skattar
sem voru lækkaðir í góðærinu.
Núna er þetta hins vegar tekið að
meginhluta til af útgjaldahliðinni
eða um þrír fjórðu hlutar af aðgerð-
unum. Stærsti hlutinn sem er tek-
inn á skattahliðinni kemur ekki með
beinum hætti við almenning. Þar er
stærsti hluti tekjuöflunarinnar
skattlagning úr séreignarsjóðum,“
segir Helgi Hjörvar.
Helgi kveður jafnframt aðra
skatta lagða á sem snerta almenn-
ing ekki með beinum hætti.
„Síðan er sérstakur skattur á
fjármálafyrirtæki og aðrar breyt-
ingar á fjármagnstekjuskatti og
fyrirtækjasköttum. Almenningur
mun að öllum líkindum verða mest
var við árlega krónutöluhækkanir á
bensíni, áfengi og tóbaki núna um
áramótin. Fólk finnur auðvitað fyrir
þessu. Þær fjárhæðir eru samt ekki
ýkja háar.“
Morgunblaðið/Golli
Alþingi Ögmundur Jónasson og Helgi Hjörvar í þingsölum Alþingis en áður en þingmenn fóru í jólafrí um helgina afgreiddu þeir fjölda mála.
„Fólk finnur fyrir þessu“
Fjölmörg lög um ýmsar skattahækkanir samþykkt á Alþingi um helgina
Kristján Þór telur hið opinbera komið að endimörkun gjaldþols einstaklinga
Alþingi sam-
þykkti að veita 43
einstaklingum,
sem fæddir eru í
19 löndum, ís-
lenskan ríkis-
borgararétt á
laugardag. Þetta
var jafnframt síð-
asta verk þings-
ins fyrir jólahlé.
Frumvarpið fór á
fleygiferð í gegnum þingið og tóku
umræður um það einvörðungu 8
mínútur. Formaður allsherjar-
nefndar, Róbert Marshall, segir
vanalegt að veiting ríkisborgara-
réttar fái skjóta meðferð. „Þetta er
alltaf síðasta málið hjá þinginu.
Dómsmálaráðuneytið vísar umsókn-
um til allsherjarnefndar sem ekki
uppfylla öll lagaskilyrði. Nefndin
kannar þá ýmis sjónarmið og leggur
svo tillögur fyrir þingið að lokum.“
Gögn skoðuð vegna máls
ungs drengs á Indlandi
Á meðal þeirra sem hlutu íslensk-
an ríkisborgararétt var ungur
drengur sem fæddist í nóvember
með hjálp staðgöngumóður í Ind-
landi. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur mál hans verið til
athugunar hjá dómsmála- og mann-
réttindaráðuneytinu vegna þess að
gögn sem fylgdu umsókn hans voru
ekki fullnægjandi. Róbert segir mik-
ið af persónulegum upplýsingum
fylgja umsóknum um ríkisborgara-
rétt og margvísleg sjónarmið komi
því til athugunar. haa@mbl.is
43 hlutu
ríkisborg-
ararétt
Umræður stóðu
yfir í átta mínútur
Róbert
Marshall
Alþingi samþykkti um helgina
breytingu á lögum um atvinnuleysis-
tryggingar sem lengir rétt fólks til
atvinnuleysisbóta tímabundið um
eitt ár, úr þremur árum í fjögur.
Réttur til fjögurra ára greiðslu-
tímabils nær til þeirra sem misstu
atvinnu og fengu atvinnuleysisbætur
greiddar í fyrsta skipti 1. mars 2008
eða síðar. Lenging greiðslutímabils-
ins mun auka útgjöld Atvinnuleys-
istryggingasjóðs en á móti er talið að
útgjöld til fjárhagsaðstoðar hjá fé-
lagsþjónustu sveitarfélaganna auk-
ist minna en ella. Breytingin er gerð
vegna aukins atvinnuleysis.
Bótaréttur
lengdur um ár
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, telur for-
sætisráðherra staðfesta í svari sínu
við fyrirspurn um kostnað vegna
sérfræðiþjónustu starfsmanna fé-
lagsvísindasviðs Háskóla Íslands að
ekki hefur verið tilgreindur kostn-
aður vegna Stefáns Ólafssonar, Sig-
urbjargar Sigurgeirsdóttur og Þór-
ólfs Matthíassonar. Guðlaugur Þór
telur Jóhönnu þannig hafa leynt
þingið upplýsingum.
Forsaga málsins er sú að Óli Björn
Kárason þingmaður spurði forsætis-
ráðherra hver kostnaður við að-
keypta þjónustu, ráðgjöf og sérverk-
efni á vegum ráðuneyta hefði verið á
tímabilinu maí 2007 til maí 2010.
Ráðherra gaf sér nokkra mánuði til
að svara fyrirspurninni en bar þá
fyrir sig að ráðuneytið hefði ekki
starfsmannalista háskólanna né upp-
lýsingar um hverjir hafa verið fyrr-
verandi og núverandi starfsmenn
eða kennarar við íslenska háskóla.
Þetta töldu þingmennirnir Óli Björn
og Guðlaugur Þór óásættanleg svör
enda er starfsmannalistinn öllum að-
gengilegur á vefnum. Guðlaugur Þór
breytti þá fyrirspurn þingmannsins
lítillega til að auðvelda ráðherranum
svörin.
Í svari ráðherra sagði m.a.: „Hvað
varðar utanríkisráðuneytið og heil-
brigðisráðuneytið þá töldu hvorki
þau ráðuneyti né aðrir sem unnu að
svarinu í 12 ráðuneytum að fyrir-
spurn alþingismannsins beindist að
almennu starfsmannahaldi í ráðu-
neytunum.“
Þingmennirnir telja það alvarlegt
ef ráðherra telur tímabundin verk-
efni sem ráðið er í án auglýsingar
teljast til almenns starfsmanna-
halds. Forsætisráðherra sendi þá frá
sér tilkynningu og vísaði á bug ásök-
unum Guðlaugs Þórs.
Tekist á um kostnað
við aðkeypta þjónustu
Telur forsætisráðherra hafa leynt þingið upplýsingum
Jóhanna
Sigurðardóttir
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Ásta Ragnheiður Jóhann-
essdóttir, forseti Alþingis, boð-
aði við lok þingsins um helgina
nýtt frumvarp um
breytt þingsköp.
Sagðist hún hafa á
undanförnum vik-
um unnið að því að
ná samkomulagi
við alla þingflokka
um málið, sem mið-
aði að því að
styrkja eftirlitshlutverk þings-
ins og draga skýrari línur á
milli Alþingis og fram-
kvæmdavaldsins. Er ætlunin að
leggja frumvarpið fram að
loknu jólaleyfi, sem stendur
til 17. janúar á næsta ári.
Alls varð á þriðja tug
mála að lögum síðasta
starfsdag þingmanna fyrir
jólafrí, sem lauk síðdegis
á laugardag.
Breytt þingsköp boðuð
Á ÞRIÐJA TUG ÞINGMÁLA VARÐ AÐ LÖGUM