Morgunblaðið - 24.12.2010, Side 52
52 24. desember 2010
The Box – Günter Grass bbbbn
Undanfarin ár hefur Günter Grass unnið að ævisögu sinni, byrjaði á
Beim Häuten der Zwiebel fyrir fjórum árum, þá kom Die Box 2008
og síðasta bindið, Grimms Wörter, kom svo út á
þessu ári. Ensk þýðing á Die Box kom út í haust.
Í bókinni rekur Grass söguna frá sjöunda ára-
tugnum og fram á þann níunda, en segir söguna
þó ekki beint. Hann leggur nefnilega börnum
sínum orð í munn, lætur þau segja söguna hvert
á sinn hátt, átta börn úr ólíkum hjónaböndum og
samböndum. Með þessu nær Grass að segja sögu
sína óbeint, segja sögu pólitískrar baráttu, bóka-
skrifa, ferðalaga og fjölskrúðugra kvennamála.
Leiðistef í gegnum bókina er Marie, eða Marie-
chen, eins og börnin kölluðu hana, fylginautur Grass öll árin með
myndavélina sína, gamla Agfa-kassamyndavél frá kreppunni miklu,
sem tók myndir af fortíð og framtíð. Eins og börnin rekja söguna var
Mariechen gamla hægri hönd Grass, notaði töfravélina sína til að
taka myndir af sögusviði bóka hans, hvort sem hún þurfti að
skyggnast aftur áratugi eða aldir; Agfa-kassinn náði öllu. Var hún
ein af ástkonum hans? Einhver varpar því fram en þeirri spurningu
er aldrei svarað þótt Mariechen sé eina konan sem fylgdi Grass að
segja alla ævi. Kannski varð hún móðurmynd, enda heldur eldri en
hann – eitt barnanna hefur það eftir henni að ekki þurfi öll ást að
vera líkamleg.
Við fáum líka að heyra hvernig það var að eiga föður sem var alltaf að
– ég leik við ykkur á eftir, ég þarf bara að klára smávegis, var við-
kvæðið alla tíð. Líka sjáum við hvernig hugmyndirnar urðu að bók,
rotta varð að Rottunni, spraka að Sprökunni og svo má telja. For-
vitnileg og ævintýraleg frásögn sem má kannski kalla ýkjur, en rétt-
ara þó að nota orðið skáldaleyfi.
Rosamund Lipton – Sister bbmnn
Þessi reyfari, sem mér skilst að sé fyrsta bók höf-
undar, hefur vakið mikla athygli í Bretlandi á
árinu og selst mjög vel. Hún segir frá ungri konu
sem snýr heim til Bretlands eftir margra ára dvöl
í Bandaríkjunum þegar systir hennar týnist. Hún
kemst snemma að því að þótt þær systur hafi
verið samrýndar vissi hún ekki eins mikið um
ævi systur sinnar og hún hélt. Þegar systirin
finnst svo látin, eins og vofði yfir, veit hún þó
nóg til að neita að trúa því að hún hafi svipt sig
lífi og fer að leita að morðingjanum.
Fléttan í sögunni er býsna snúin, fátt, eða nokkuð, sem það sýnist og
við sjáum ekki bara sífellt nýjar hliðar á systrunum, heldur líka á
fólkinu sem þær umgangast. Lupton heldur vel á spöðunum að segja
út bókina og meira að segja á síðustu metrunum, þegar enn einn
snúningurinn verður á öllu saman, snúningur sem gerbreytir bók-
inni, gengur fléttan fyllilega upp.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. Caught – Harlan Coben
2. Deception – Jonathan Kell-
erman
3. Deeper Than the Dead –
Tami Hoag
4. Innocent – Scott Thurow
5. Even Money – Dick Francis &
Felix Francis
6. The Scarpetta Factor – Pat-
ricia Cornwell
7. The Five Greatest Warriors –
Matthew Reilly
8. The First Rule – Robert Crais
9. Purge – Sofi Oksanen
10. Freedom – Jonathan Fran-
zen
New York Times
1. Dead Or Alive – Tom Clancy
& Grant Blackwood
2. The Confession – John Gris-
ham
3. Cross Fire – James Patter-
son
4. Port Mortuary – Patricia
Cornwell
5. The Girl Who Kicked the Hor-
net’s Nest – Stieg Larsson
6. Freedom – Jonathan Fran-
zen
7. Full Dark, No Stars – Steph-
en King
8. Hell’s Corner – David Bal-
dacci
9. Fall Of Giants – Ken Follett
10. The Help – Kathryn Stockett
Waterstone’s
1. Jamie’s 30-minute Meals –
Jamie Oliver
2. The Return: Midnight – L.J.
Smith
3. Awakened – P.C. Cast &
Kristin Cast
4. Kitchen: Recipes from the
Heart of the Home – Nigella
Lawson
5. One Day – David Nicholls
6. A Dance with Dragons–
George R.R. Martin
7. The Fry Chronicles – Steph-
en Fry
8. Life and Laughing: My Story
– Michael McIntyre
9. Guinness World Records
2011
10. Life: Keith Richards – Keith
Richards
Bóksölulisti
Lesbókbækur
S
hawn Corey Carter, sem tók sér lista-
mannsnafnið Jay-Z, hefur náð lengra í
tónlistarmetasögunni en flestir aðrir og
nægir að benda á það að fyrir síðustu jól
sló hann sjálfum Elvis Presley við á bandaríska
breiðskífulistanum, kom elleftu breiðskífunni á
toppinn, en Elvis náði aðeins tíu. Hann ruddi svo
enn nýjar brautir þegar ný bók hans, Decoded,
skaust inn á metsölulista New York Times fyrir
stuttu og situr þar nú í níunda sæti.
Jay-Z átti erfiða æsku, ólst upp við ömurlegar
aðstæður í Bedford-Stuyvesant-hverfinu í Brook-
lyn og leiddist út í glæpi eins og flestir jafnaldrar
hans, margoft handtekinn fyrir ofbeldisbrot og
eiturlyfjasölu og -dreifingu. Tónlistin togaði í
hann alla tíð, rímurnar, og hann var byrjaður að
semja rímur barn að aldri og fór líka mjög snemma
að troða upp sem rappari. Hann sendi frá sér
fyrstu breiðskífuna 1996 og neyddist til þess að
stofna eigin útgáfu til að koma henni út. Platan,
Reasonable Doubt, fékk frábæra dóma og seldist
afskaplega vel og segja má að saga Jay-Z hafi verið
nánast samfelld sigurganga síðan.
Hipphopprímur eru ljóð
Í Decoded segir Jay-Z nokkuð frá þessum hluta
ævi sinnar, en eins og nafnið ber reyndar með sér
byggist bókin að mestu á því að Jay-Z tekur
nokkrar rímur eftir sjálfan sig, greinir þær með
tilliti til merkingar og segir sögur af sjálfum sér,
lífinu og tilverunni, rekur einnig sögu hipphopps í
gegnum árin, hverjar helstu hetjur hans hafi verið
og hvaða áhrif þau hafa haft á hann.
Í bókinni segir Jay-Z að fyrir honum hafi vakað
þrennt; í fyrsta lagi að sýna fram á það að hipp-
hopprímur væru ljóð, þá að segja sögu kynslóðar
sinnar og þess vals sem hún hafi staðið frammi
fyrir í gegnum árin og loks að sýna það hvernig
hipphopp hefur gefið honum og fleiri leið til að
snúa sögum sínum á það form að allir geti með-
tekið þær. Að því sögðu þá er bókin býsna ævi-
söguleg, enda hefur saga Jay-Z verið samofin sögu
hipphopps frá því á áttunda áratugnum að hann sá
stráka standa saman í hring á götuhorni og rímna-
smið inni í hringnum.
Hann lýsir bókinni svo á vefsetri Amazon:
„Þegar einhver frægur segist vera að skrifa bók
búast allir við sjálfsævisögu; ég fæddist hér, ólst
upp þar, þoldi eitt, elskaði annað, tapaði öllu og
vann það aftur að lokum. En bókin er ekki um
það. Ég hef aldrei getað hugsað línulega eins og má
reyndar sjá á rímunum mínum. Þær fylgja rökum
ljóðrænu og tilfinninga, ekki beinni línu vandaðs
texta, og þannig er bókin.“
Listamaðurinn Shawn Corey Carter, sem heimsfrægur eru undir nafninu Jay-Z; rímnasmiður og rithöfundur.
Heyr, rímnasmiður
Rapparinn Jay-Z lætur sér ekki nægja að vera einn vinsæl-
asti tónlistarmaður í sögu Bandaríkjanna, hefur komið ell-
efu plötum á topp breiðskífulistans þar vestan hafs, heldur
hefur hann haslað sér völl sem rithöfundur og á nú bók á
metsölulista New York Times – sjálfsævisögulega textabók.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is