Eyjablaðið - 05.01.1955, Síða 5
EYJABLAÐIÐ .
Sama mjólkurverð hér
og í Reykjavík.
Tveggja ára barátta hefur borið mikinn árangur, en
fullur sigur hefur enn ekki náðst.
Ríkisstjórnin fæst enn ekki til að standa við loforð sitt
um sama mjólkurverð og annars staðar gildir.
Verkalýðsfélagið samdi
um málið fyrir tveim
árum.
Svo sem kunnugt er hefur
Verkalýðsfélagið hér sagt upp
samningum sínum við atvinnu-
rekendur og hefur verið sanrn-
ingalaust milli þesSara aðilja nti
um mánaðarskeið-
Ástæðan fyrir þessu er sú að
síðastliðin 2 ár hefur félagið átt
í stöðugri baráttu fyrir því að
ná í'ram framkvæmd á því at-
riði, sem lofað var af hálfu
stjórnarvaldanna við lausn des-
er íslenzka ríkisstjórnin gaf út
á ensku um þetta mál í septem-
bermánuði s. 1. og nefnidst The
Icelandic Efforts for Fisheries
Conservation. Á blaðsíðu 23 í
þeirri bók er sérstaklega vitnað
til þess, að á þeim stöðum, sem
þessi tillaga fjallar um, hafi
verið möguleikar til að hafa frið-
unarsvæðin stærri en gert var.
Það er enda vitað, að á sínum
tíma létu íslenzk stjórnarvöld
það undan andróðri Breta í
þessu máli að hafa friðunarsvæð-
in, að minnsta kosti á þessum
tilteknu stöðum, minni en regl-
ur þær, sem annars var farið
eftir, gáfu tilefni til.
Hér skal ekki lagður neinn
dómur á það, hve viturlegt eða
réttmæt sú undanlátssemi kann
að hafa verið. Hún hefur vafa-
laust verið framkvæmd í þeirri
von, að Bretar mundu þá líta á
okkar ráðstafanir af nteiri skiln-
ingi en ella. Hitt vita svo allir,
að í reynd hafa Bretar sýnt okk-
ur fullan fjandskap í þessu máli
og hafið við okkur viðskipta-
stríð vegna þess. Það liggur því
alveg Ijóst fyrir, að þótt tilslak-
anirnar hafi ef til vill átt sér
einhverja afsökun í öndverðu, þá
er því ekki lengur til að dreifa.
Eins og fyrr getur, felur til-
laga þessi í sér ekki neina endan
lega lausn þesS máls, er hún
fjallar um, en hún miðar að
stækkun fiskveiðisvæða íslenzka
bátaflotans og friðun mikilvægra
fiskimiða fyrir botnsköfum,
svæða, sem nú eru flest óspart
sótt og þaulnýtt af erlendum tog
urum, — og framkvæmd hennar
ætti ekki að vera neinum ann-
mörkum háð og því framkvæm-
anleg þegar í stað, aðeins með
hæfilegum tilkynningar fyrirvara
emberverkfallsins 1952, að mjólk
yrði hér seld á sama verði og
annarstaðar, þ. e. á kr. 2,70
líterinn.
í þrotlausu stappi, sem um
þetta mál hefur staðið 'síðan,
hefur að vísu mikið áunnizt, þar
eð mjólk var hér fyrir tveim ár-
um seld á ýmsu verði frá 3,25
kr .upp í 4,00 kr., en er nú svo
sem kunnugt er seld á 2,85 og
3,16. En þrátt fyrir skýlaus lof-
orð hefur ekki náðst fram full-
elnd þess loforðs, sem samið var
upp á og er það vissulega lær-
dómur fyrir verkalýðshreyfing-
una hvernig það gefst að eiga
eftirkaup við ríkisstjórn auð-
mannastétarinnar.
Það skal tekið fram að Vinnu-
veitendafélag Vestmannaeyja
hefur skuldbundið sig til þess
að vinna að réttlátri lausn þesSa
rnáls með verkalýðsfélögum bæj-
arins, og hefur að minnsta kosti
formaður þess félags Tómas M.
Guðjónsson sýnt fulla viðleitni
| til þess að standa við þá sktdd-
bindingu. En allt um það hefur
ríkisstjórnarliðið, jafnt Sjálf-
stæðis-forkólfarnir og Framsókn-
ar-broddarnir lagt öll loforð á
hilluna og neitað að gera nauð-
synlegar ráðstafanir til að leysa
málið. Sýnir þetta enn það sem
þó var áður vitað, að fjandskap-
ur í garð hins vinnandi fólks
er það sem ríkisvaldið ástundar
öllu frekar.
Bœjarstjórnin fœr aðstöðu
en vantar áhuga.
Bæjaryfirvöldin hafa nú feng-
ið aðstöðu til þess að leggja sitt
lóð á vogarskál þessa máls, með
því að fá í sina umsjá mjólkur-
flutninga milli Þorlákshafnar og
Eyja. Þessir flutningar verða á
næsta ári styrktir allt að fjórð-
ungi milljónar króna úr ríkis-
sjóði- En til þessa liafa núver-
andi bæjaryfirvöld ekki gert
annað en að reka hornin í
taráttuna fyrir sanngjörnu mjólk
urverði og virðist þeim félög-
unum, konsúlnum við Skóla-
vég og sparisjóðsstjóranum í
Goðasteini hreint ekki falla það
illa þótt Samsalan selji mjólk
hér dýrari en á nokkrum öðrum
stað. Og hefur bæjarstjórnar-
meirihlutinn meira að segja fellt
tillögu um að skora á Samsöluna
að hafa verðlag hér eins og á
öðrum útsölustöðum mjólkur.
__________________;________ %_
HHHKHKHHHKHKHHHHHÍ^^
ICauptaxti
Vélstjórafélags Vestmannaeyja.
LANDVÉLSTJÓRAR:
Vaktavinna: Mánaðarkaup .............. kr. 3696.00
Tímavinna: Dagvinna ..................... — 18,48
Eftirvinna ...................... — 27,72
Næturvinna ..................... — 36,96
MÁNAÐARKAUP Á VÖRUFLUTNINGABÁTUM:
1. vélstjóri .......................... kr. 4763,14
2. vélstjóri ............................. — 3988,24
Svo og frítt fæði.
KAUPTRYGGING Á FISKIBÁTUM:
1. vélstjóri .......................... kr. 4279,75
2. vélstjóri ........................... — 3480^2«^
Kauptaxti landvélstjóra og vélstjóra á vöruflutningabfttum
gildir frá 1. des. 1954. Kauptrygging á fiskibátum gildir frá i- jan.
1955.
STJÓRNIN.
Sjómannafélagið Jöfunn
heldur fund í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 8,30.
Rætt um samningana.
Félagar eru minntir ó að fjölmenna.
STJÓRNIN.
HKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHHHKHK^
Skrifstofa verkalýðsfélaganna
í Alþýðuhúsinu er opin ó virkum dögum fró kl. 4,30
til kl. 6,30 e. h.
Verkalýðsfélagið, Snót og Jötunn.
HKHKHK#K>4K^4«>4K>4^HKHKHK4k>*
I Vestmannaeyingar!
( Munið fólksbifreiðastöðina að Faxastíg 27.
| Bifreiðar til reiðu allan sólarhringinn. \
\ GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
( LITLA BILASTÖÐIN
/ — Sími 281 — |
Gleðilegt nýárl
\ Fulltrúaráð verkálýðsfélaganna. (
\ Alþýðuhúsið. \