Eyjablaðið - 18.01.1955, Blaðsíða 4
Ú R BÆNUM
Ihaldlð losnar ekki við togarann.
„VI LBORG“ liggur í Reykjavíkurhöfn og hleöur
upp kostnaði, sem Vestmannaeyingar verða að borga.
Tveir vaktmenn eru í skipinu og hafnargjöld
til Reykjavíkurhafnar hœkka stöðugt. Skipið
hefur legið heilan mánuð í algeru reiðuleysi.
Öírukkur
Eg hef sakncS mjög úr Fylki
nú undanfarið þóttarins „NcSan
fró sjó", sem hann Bjössi minn
á Barnum ritstýrði með mikilli
prýði.
En vitanlega hefur sá þóttur
ekki frá neinu að segja á með-
an úígerðarmaðurinn Björn Guð-
mundsson og félagar halda öll-
um flotanum í verkfalli, en það
verkfall má ekki nefna í slíkum
blöðum, sem Fylki, þar sem eng-
inn mundi trúa því að því væri
síjórn frá Moskyu.
En það Itafði víðtækari áhrif
en að skerða fjölbreytni Hauks
á Hofi í blaðamennsku, að
þátturinn féll niður, því síðan
hefur vinurinn í Goðasteini haft
harla lítio að segja útvarpinu í
fréttum héðan og varð hann því
að grípa til þess óindisúrræðis,
endursegja því greinar úr sama
blaði eftir „Svíasómann í Gcysi."
Hvert mundi vinurinn sækja
fregnir handa útvarpinu ef Fylk-
ir hætti að koma út?
Þess óláns mundi ég ekki vilja
óska honum.
Flestir Ivéldu, að með bæjav-
stjórnarfundinum síðasta væri
lokið hinum einstaklega vesæla
jvætti, sem íhaldsmeirihluti bæj-
arstjórnarinnar hefur átt í tog-
araútgerð bæjarins. En nú hefur
komið í Ijós, að svo er ekki.
Forstjóri útgerðarinnar var
nýlega sendur til Reykjavíkur
og skyldi erindi hans vera jvað
tvennt að komast eftir hver væri
hinn raunverulegi kostnaður
við stórviðgerð þá er fram fór
á Vilborgu Herjólfsdóttur með-
an á sölu skipsins stóð — en
þann kostnað áskildu siilu-
menn Vestmannaeyingum að
greiða, — og einnig var forstjór-
anum uppálagt að afhenda skip-
ið.
Hvorugum jvætti jy-ssa erind-
is tók/.t að ljúka. I’að upplýstist
þó að viðgerðarkostnaðurinn er
kominn upp í 900 juis. kr., og
eru þó enn ekki öll kurl til graf-
ar komin um þessa viðgerð.
Af afhendingunni varð ekkert,
sökum Jæss' að nýju eigendurn-
ir neita að taka við skipinu þar
eð enn hvíla á því óleystar sjó-
veðskröfur og fleiri skuldir, sem
sölumönnum tókst að leggja
Vestmannaeyingum til greiðslu-
skyldu á, þegar kaupin voru
gerð.
Togarinn Vilborg Herjólfs-
dóttir liggur því enn í höfn í
Reykjavík á ábyrgð og kostnað
Vestmannaeyinga og hleður jtar
á sig margskonar kostnaði. I
skipinu eru tveir vaktmenn nótt
og dag og hafnargjöld eru orðin
mikil Jrar eð mánuður er lið-
inn síðan skipið kom niður úr
slipp.
Reykvíkingar eru farnir að
hafa á orði, að líklega muni þessi
Vestmannaeyja - togari taka við
því hlutverki gamla Hærings að
liggja langtímum í reiðuleysi þar
í höfninni.
Á meðan jæssu ler fram tínir
Þorsteinn Þ Víglundsson áróð-
ursfleipur Guðlaugs Gíslasonar
| upp úr Fylki og flytur það sem
hlutlausar fréttir í útvarpinu, að
tap Bæjarútgerðarinnar nemi 14
milljónum króna. Þessi tala er
auðvitað fjarri öllum sanni, en
þó er ekki að vita nema Jress-
um núverandi ráðamönnum
takist að nálgast hana ef svo
heldur áfram lengi, sem gert
hefur nú á einu valdaári þeirra
hér í bæjarmálunum. Og einmitt
mitt í Jressum dæmalausustu
endemum í fjármálastjórn jæssa
bæjar skrilar vesalings Þorsteinn
sína nýárshugjeiðingu um sam-
starf þeirra Sveins Guðmunds-
soiiar við íhaldið.:
„Gjörðum ckkar í þcssum
efnum réði fyrst og fremst
sýn okkar á því, hvað sjálfu
bæjarfélaginu yrði hag-
kvæmast og mesttil heilla."
En Vestmannaeyingar búa nú
við vaxandi skilning á því, að
íhaldið og þess fylgihnettir eru
bæjarfélajginu harla Iítið hag-
kvæmir og ærið takmarkaðir
heillafuglar og víst er unt það
að framkvæmd á því loforði
þeirra, að gera út eins og menn,
hafa fáir hugsað sér eins og jaað
nú er framkvæmt.
Fasteigitagjöld
til bœjarsjóðs Vestmannaeyja 1955. Féllu í
gjalddaga 15. janúar 1955.
RÆJARGJALDKERI.
Lögtaksúrskurður hefur verið kveðinn upp á eft;r-
farandi gjöldum:
1 Sjómannatryggingu til 31/13 1954.
2. Veitingaskattur til 31/12 1954.
3. Skipulagsgjald af nýreistum húsum, sem
virt voru til brunabóta fyrir 31/12 1954.
4. Skráningargjöldum bifreiða.
Má taka framangreind gjöld lögtaki að liðnum 8
dögum frá birtingu auglýsingar þcssarar.
■~Jj
Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum, 6. janúar 1955.
TORFJ JÓHANNSSON
Úútvegsbændafélagið •
hér hefur vísað frá sér samp-
ingsgerðinni um fiskverð til I,.
I. U., en af }:>ess hálfu hefur
samninganefnd um málið verið
skipuð eftirtöldum mönnum:
Sverrir Júlíusson, Reykjavík,
Ingvar Vilhjálmsson, Rvík,
Sveinn Benediktsson, Rvík,
Jóhann Sigfússon, Vestmanna
eyjum og Jónas Jónsson, Vest
mannaeyjum-
Á lundi samninganefndanna
s. 1. sunnudagskvöld (jjar sem
Vestmannaeyingar einir mættu)
var deilunni vísað til sáttasemj-
ara.
Samninganefnd sjómanna er
þannig skipuð:
Sigurður Stefánsson,
Jónas Guðmundsson,
Steingrímur Arnar,
Alfreð Einarsson.
Samningsumleitanir um fiskverð.
Samninganefnd Sjómannafél.
Jötuns og Vélstjórafélagsins hafa
kunngert bæjarbúum kröfur sín
ar. Aðalkrafa jreirra er sú, að
sjómenn og útgerðarmenn geri
sameiginlega samninga við frysti
húseigendur um fast fiskverð,
þar sem bátagjaldeyrisréttindin
verði metin til verðs og seld
með aflanum.
Til vara (ef ekki næst sam-
komulag um aðaltillöguna)
krefjast sjómenn kr. 1,38 pr. kg.
af þorski, en Jiað er sem því
næst hið sannanlega fiskverð
með bátagjaldeyrisréttindun-
um.
Starfsmenn bæjarins
hafa nú farið fram á launahækk-
un, enda hafa starfsmenn ým-
issa annarra bæja fengið fram
kauphækkanir.
Síldveiði.
Vélbáturinn Bergur fiskaði 36
tunnur af síld í net hér á Vík-
inni í gær. Nokkrir aðrir bátar
lögðu þar net í gær.
Þeir Guðlaugur bæjarstjóri og
Þorsteinn skólastjóri bíða eftir
flugferð til Reykjavíkur og mun
för þeirra stcnda í sambandi við
togaraútgerð Vestmannaeyinga
þar í höfninni. Ekki er vitað
hvort þeir gera sér vonir um að
afhenda skipið endanlga, eða
þeir ætla að leysa af hólmi hina
reykvísku vaktmenn, sem nú
eru í skipinu.
Fundur í stúkunni Sunnu í
kvöld kl. 8,30.