Eyjablaðið - 31.01.1955, Blaðsíða 4
ETJABLAÐIÐ
Sjómannaiamfökín munu ekki bregðast
Ú R BÆNUM
Sjómannafélagið Jötunn
hélt aðalfund 20. jan. s. 1.
Samkv. lögum félagsins skal
stjórnin kosin með alsherjarat-
kvæðagreiðslu fyrir aðalfund og
var því auglýst eftir listum í
desembermánuði með hálfs mán-
aðar framboðsfresti. Aðeins einn
listi barst og var því stjórnin
sjálfkjörin.
Stjórnin er skipuð þessurn
mönnum.:
Sigurður Stefánss., formaður,
Sigurfinnur Einarss., v. form.,
Ögmundur Sigurðsson, ritari.
Þórður Sveinsson, gjaldkeri,
Jónas Guðmundsson, v.gjaldk.
Varastjórn.:
Ólafur Bjarnason, Símon Bárð-
arson, Giétar Skaftason.
Trúnaðarmannaráð.:
Sigurður Gissurason, Einar
Jónsson, Hlöðver Helgason og
Sigurður Hreinsson.
Sjómannadagsráð.:
Sigurfinnur Einarsson, Her-
mann Pálsson, Guðni Einarsson,
Grétar S.kaftason, Jón Nikulás-
Son.
Fundurinn var fjölmennur og
ríkti einhugur með gerðir
stjórnar og samninganefndar í
yfirstandandi samningagerð um
kaup og kjör og fiskverð.
Vélstjórafélag Vestmannaeya
hélt aðalfund sinn 21. jan. s.l.
þessir voru kosnir í stjórn félags-
ins.:
Steingrímur Arnar, formaður,
Svein Tómasson, v-formaður.
Ágúst Helgason, ritari.
Alfreð Þorgrímsson, gjaldkeri.
Jón Kristinsson, fjármálaritari.
Varastjórn.:
Alfreð Einarsson og Einar
Hjartarson.
Trúnaðarráð.:
Ögmundur Ólafsson, Ólafur
JónsSon, Andres Hannesson og
Björn Kristjánsson.
Sj ómannadagsráð.:
Guðmundur Á. Böðvarsson.
Ólafur Jónsson, Úraníus Guð-
mundsson, Sigurður Ögmunds-
son og Hilmir Sigurðsson.
Vélstjórafélagið hélt annan
fund í gær til að ræða baráttu
þá er félagið nú leggur í til að
ná fram hækkuðu fiskverði.
Fundurinn var ágætlega sóttur
og ríkti þar eindregin baráttu-
hugur.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt á fundinunr með sam-
hljóða atkvæðum.:
„Fundur haldinn í Vélstjóra
félagi Vestmannaeyja 30. jan.
'955 lýsir yfir fullum stuðningi
við ákvarðanir stjórnar og trún-
aðarmannaráðs um boðun vinnu
stöðvunar á bátaflotanum.
skyídu sinni.
Framhald af 1. siðu.
ig? Því er fljót svarað. Þá voru
nefnilega að starfi hér sams-
konar menn, með sanrSkonar
auðsöfnunar ogokurþörf í hjarta
á kostnað hins vinnandi manns,
og við sjómenn eigunr í lröggi
við hér í dag. En meinbugur-
inn í ráði gönrlu sjómannanna
var sá að vegna menntunarskorts
og hlédrægni frjálsrar lrugsunar,
senr eru öruggir fylgifiskar sár-
ustu fátæktar, höfðu þeir ekki
til fullnustu skilið og tileinkað
sér töframátt samtakanna.
En þetta breyttist' smátt og
smátt. Djarfir hugsjónaménn úr
röðunr alþýðunnar risu upp
gegn valdinu, skópu samtökin
og færðu þau í fast fornr. Loks
tókst að gera samninga unr kaup
og kjör.
í fyrstu voru samningar nrjög
óhagstæðir sjónrönnum og kjara-
bætur varla annað og meira en
orðin tóm. En eftir því sem sam-
tökin efldust og skilningur á
nytsenri þeirra óx harðnaði bar-
áttan, sú barátta sem staðið Iref-
ur æ síðan.
Þegar litið er í stórum drátt-
unr yfir baráttu sjómannasamtak
anna hér í Vestmannaeyjunr er
það Ijóst, að jrað hefur kostað
geysileg átök og stéttarlegar
fórnir að ná þeim samningum,
serri beztir lrafa verið, og var
fafnframt telur fundurinn að
aldrei megi hvika frá því mark-
miði félagsins að ná fram fullu
verði fyrir aflahlut vélstjóra, til
jafns við jrað verð, sem útgerðar-
menn fá fyrir sinn íisk.“
Fundurinn skoraði einnig á
trúnaðannannaráð félagsins og
stjórn að vera vd á verði og gera
hverjar jrær ráðstafanir, senr lrezt
jrættu henta. ti.l a.ð knýja fram
sigur í sjómannadeilunni og
mun nú vera í athugun hvort
samúðarvinnustöðvun landvél-
stjóra t. d. í frystihúsunum verði
ákveðin.
Skipstjórc- og stýrimanna-
félagið Verðandi
hélt aðalfund 23. janúar s. 1.
í stjórn voru kosnir.:
Eyjólfur Gíslason, formaður,
Gísli Eyjólfsson, ritari,
Hjálmar Jónsson. gjaldkeri.
Fundurinn samþykkti eih-
róma áskorun jress efnis að all-
ir bátar stórir og smáir verði
skyldaðir til að hafa gúmíbáta
um borð.
samningsgreinin um sameigin-
legt fiskverð útgerðarmanna og
sjómanna hámark þess réttlætis,
sem sjómenn hafa vænst í þeim
málum. Og jrað merkilega var
að útgerðarmenn voru sjálfir á-
nægðir, að eigin sögn.
ÞAÐ EINA, SEM NÚ ER KRAF-
IZT ER REFJALAUS GREIÐSLA
HINS UMSAMDA KAUPS.
En svo byrja útgerðarmenn
á Jrví að brjóta gerða samninga
við sjómenn viðvíkjandi fisk-
verðinu, og þeim helzt það uppi
í þrjú ár. Sjómenn neyðast til
að hefja víðtæk málaferli til við-
reysnar málstað sínum. Og nú er
svo komið eltir nær þriggja ára
Jrvarg, að æðsti dómsstóll lands-
ins hefur dæmt útgerðina hér
fyrir svik á gerðum samningum
og Jrar af leiðandi tilraun til
stórfjárdráttar úr vasa sjómanna.
Sjómenn hér voru raunar
aldrti í neinum vafa með það
hvernig þeim málaferlum lykt-
aði. Þeirra málstaður var svo
skýrt jákvæður, og túlkaður af
svo miklum myndarbrag af lög-
fræðingi sjómanna, Jóni Eiríks-
syni, svo sem kunnugt er.
Sjómönnum var þó Ijóst, að
jrótt hæstiréttúr dæmdi Jreim í
vil í gjaldeyrismálinu þá var
gjaldeyririnn í slíkum trölla-
höndum, að óvíst væri að sá
dómur mundi koma að fullum
notum fyrir sjómenn hér í fram
tíðinni. Þessvegna fóru Jreir út í
Jrað um áramótin 1953 J954.
segja upp samningum sínum og
þar með hinni umræddu fisk-
verðsgrein. Og snemma á árinu
1954 leggja þeir til samninga-
gerðar við hlið fleiri sjómanna-
félaga ,um fast fiskverð, sem
skyldi Iryggjast á eignarrétti sjó-
manna á bátagjaldeyrinum, f
hlutfalli við aflaskiptin. Þeirri
samningagerð lauk með undir-
skriftum 18. jan. 1954.
Hinn nýji samningur miðað-
ist við þær upplýsingar, sem sjó-
mannasamtökin höfðu þá yfir
að ráða um verðmæti gjaldeyr-
isins. En sannleikurinn er sá, að
fulltrúar sjómanna eigai ekki
greiðan aðgang að bókhaldi L.
I. Ú. í einu né neinu.
Síðan hefur komið í ljós, að
þær upplýsingar, sem fyrir lágu,
voru ekki réttar, og tekist hefur
að sanna að á árinu 1954 hafa
sjómenn hér í Vestmannaeyjum
borið mjög skarðan hlut frá
borði f samskiptum sínum við
útgerðina, miðað við fyrri samn-
inga að loknum dómi.
Sjómenn hafa þess vegna sagt
upp samningum nú, til þess að
leiðrétta þá afturför, svo sem
kostur er á. Sem sagt, sjómenn
krefjast ekki í aðalatriðum
bættra kjara, heldur vilja þeir
leiðrétta }:>ann missklnng L.Í.Ú.
og sumra útgerðarmanna hér að
sjómenn geri sér að góðu aftur-
för í samskiptum sínum við Jrá.
Og í Jreim efnum munu Jjeir
notfæra sér þann arf sem hinir
eldri sjómenn hafa eftirlátið,
sem sé þekkinguna á mætti sam-
takanna, og telja Jrað eftir at-
vikurn nauðsynlegt.
VIÐ STÖNDUM í FARAR-
BRODDI SAMTAKANNA.
Hvernig á Jrví stendur að sjó-
mannafélögin hér í Vestmanna-
eyjum sögðu ein sér upp fisk-
verðinu, af öllum þeirn sjó-
mannafélögum, sem að sanming-
unum stóðu í fyrra, skal ég ekki
segja um fyrir fulla vissu. En
mér er nær að halda, að nú í
dag séu uppi háværar raddir
um það í þeim félögum flest-
um, að æskilegra hefði verið að
fara öðruvísi að.
Við sjómenn hér í Vestmanna-
eyjum skulum vera þess minnug-
ir að mörg augu og eyru ó-
ánægðra starfsfélaga okkar í
öðrurn fiskibæjum landsins bein
ast nú með athygli að hverju
sem er að hefjast og höfum hug-
fast að nú stöndum við framar
í fararbroddi samtakanna, en
nokkru sinni fyrr.
Verum Jress minnugir, að
hvert víxlspor færir oss eitt skref
ti! baka í áttina til neiðar þeirra
fyrirrennara okkar sem fyrstir
skygndust undan okinu, en þó
skenktu okkur arfinn. Einangrun
ina þrufum vér ekki að óttast
meðan við höfum siðferðisþrek
til Jæss að standa allir sarnan
setn einn maður. Látum ekki
undir höfuð leggjast að sækja
fundi félaga okkar og leggjum
hverir öðrum lið við að slá nið-
ur Jrann draug ályga og rógs, scm
örfáir gagnaðilar hafa vakið upp
og sent gegn samtakaforustu
okkar og göngum síðan til bar-
daga öruggir í trúnni á sigur
hins réttláta málstaðar okkar.
nillUIIIIIIIIIIIIIillUlilillHllHiillIIIIIIIIIIIIÍIJIillllllllllllllllllllllHlllllllHIIIIIIIIiniIIIIINilllUIIIIHni
T A P A Z T hefur silfur-
eyrnalokkur með hrafn
tinnusteini.
Skilist gegn fundarlaun-
um. Upplýsingar í síma 206
iiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiifliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiinniuiiii];
Þeir Norðlendingar,
sem ætla að taka þátt í þorra-
blóti félagsins 12, febr., verða
að vera búnir að tilkynna þátt-
töku sína fyrir 5. febr. í verzl.
Einars Lárussonar. — Stjórnin.
l:!liin!l!lIÍ!ÍlT'IT!:i!i:illi:'i!!li,[[!!:!:i,li|!:!ll!l[|[l|[íl:';i!;i!lll!llt!Bil|!|í||||(|||!||||[|||||||||||[