Eyjablaðið - 11.03.1955, Blaðsíða 3

Eyjablaðið - 11.03.1955, Blaðsíða 3
EYJABLAÐIÐ 3 80 félagsmenn, sem mættir voru á fundinum og þeirra á meðal Páll Scheving, enda byggðist sú tillaga, sem við fluttum, form. félaganna, um að láta fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu um uppsögn s'amninganna^ meðal annars á því, að svo gæti farið, að félögin hér yrðu ein um upp- siignina, og því nauðsynlegt, að sem flestum félagsmönnum gæf- ist kostur á því að segja sitt álit um málið. Vissi sáttanefndarmað- urinn, Guðlaugur Gíslas., að upplýsingar sjómanna um fiskverð með bátagjáld eyri vœru rangar, en leyndí þeirri vitneskju sinni fyrir útvegsmönnum? Guðlaugur segir: „Kom hann með „ábyggilegar tölur“ um, að sumstaðar á landinu hefðu verið greiddar kr. 1,34 til 1,40 fyrir hvert kg af fiski, án þess að hann léti þess nokkuð getið hvaðan hann hefði þessar upp- lýsingar. Hefur hann enda ekki treystst til að láta í té upplýs- ingar um það enn sem komið er.“ Á hinum sameiginlega fundi félaganna gaf ég upplýsingar um það fiskverð, sem greitt var á ýmsum stöðum á landinu, þegar fiskkaupandinn keypti bátagjald eyrisfríðindin. í fundargerðina er skráð að ég hafi nefnt, sem dæmi: Norðfjörð, Dalvík, Siglu 1 jörð og hraðfrystistöðvarnar við haxaflóa. Á fundi sem haldinn var í byrjun des. sl. í Reykjavík með nefndum frá L. í. Ú o» O sjómannafélögunum, \itnaði ég í hinar sömu tölur og sömu staði. í grein sem ég skrifaði í Eyja- blaðið um áramótin og var end- urprentuð í Þjóðviljanum, llutti ég hin sömu rök fyrir uppsögn sjómanna hér á fiskverðinu. Á fyrsta samninganefndar- lundi hér um fisk\’erðið, þar sem var mættur lögfræðingur frá L. í. U. benti ég á til viðbótar fvrri upplýsingum, að Fiskiðjuver ríkisins, sem er opinber stofn- un, hafi keypt fisk á kr. 1,35 og því til sönnunnar að bátur héð- an frá Vestmannaeyjum hafi lagt ]rar upp færafisk og fengið það verð fyrir fiskinn. Útgerðarmenn gerðu ekki minnstu tilraun til þess að af- sanna þessar upplýsingar mínar og hefðu þó átt að vera hæg heimatökin hjá fulltrúum L. í. Ú., að gera það ef hægt hefði .verið. Það er vítavert athæfi bæjar- stjórans, hafi hann vitað allán tímann að við værum að fara með staðlausa stafi og blekking- ar, að hann skyldi ekki koma þeirri vitneskju sinni á fram- færi við útgerðarmenn og þá sérstaklega eftir að hann tók að sér sáttamennskuna í deilunni. Eg hefi hvorki tíma né blaða- rúm til þess að eltast frekar við þessar bæjarstjóralygar, þar sem allt er af sama toga spunnið og það sem hér hefur verið lnak- ið, eins og t. d. það. að ég liafi ekkert haft við það að athuga, þegar skráð var í verkfallinu. Hann ætti að spyrja Skipstjórana og skráningarstjórann hvort svo hafi verið. Vissi sáttanefndarmað- urinn Guðlaugur Gísla- son ekki hverjar kröfur sjó manna voru? Bæjarstjórin gerir grín að því, að sjómenn liafi ekki feng- ið nema lítinn hluta þess fisk- verðs, sem þeir fóru frarn á. Hann minnist ekki á, að aðal krafan var um að fá sannvirði aflans, — að bátagjaldeyririnn kæmi til skipta. Því gerir bæjarstjórinn ekki grín að því, að sjómenn hér telja að þeim beri að fá fullt og sama verð fyrir sinn aflahlut og út- gerðarmaðurinn fatr fyrir háts- hlutinn. Það hefur Guðlaugur bæjar- stjóri fraih yfir Þorstein skóla- stjóra, — þó munnfcrði þeirra sé svipað, — áð stundum skynjar Guðlaugui hvort betra sé að tala um hlutina eða þegja. Gjafir eru yður gefnar — sjómenn. — Guðlaugur segir um deilurn- ar að til þeirra hafi verið „af litlu viti slofnað, er sjó- menn létu fávisa forspraitka sina blekkja sig til að segja upp samtiingum. og gera óhóflegar kröfur. . . ." Það er venjulegur talsmáti bæjarStjórans að bregða and- stæðingum sínum um lávísi og heimsku og situr víst síst á mét að fara út í einhver vitsntuna- samjöfnuð við forustumenn íhaldsins. Hinsvegar er það þungur á- fellisdómur á sjómannastéttina hér, að hún sé ár eftir ár að kjósa fávísa heimskingja til for- ustu í samtökum sínum, því vit- anlega hefur sjómönnum gefist tækifæri til þesS á hverju ári í þau tólf ár, sem ég hefi verið kosinn fonnaður Jötuns að velja sér hæfari mann og greindari tif starfans. En þar sem bæjarstjóranum er það svo mikið áhugamál, að fyrir félagið veljist hæfari for- ysta, — að hans dómi, — skal lionum bent á, að um mánaðar- mótin nóv. og des. er ávallt aug- lýst eftir framboðslistum til stjórnarkjörs í félaginu og er framboðsfrestur venjulega hálf- ur mánuður. Þá getur liann reynt að koma fram stjórnarlista, með því að fá einhverja félags- rnenn til þess að bera hann fram fyrir sig og vitanlega þurfa frambjóðendurnir að vera full- gildir meðlimir félagsins. Það skal svo óátalið af minni hálfi, þó Guðlaugur setji á stað allt kosningaapparat íhaldsins til þess að afla þeim lista fylgi. Fordæmi eru fyrir því, að ó- viðkomandi hafi skipt sér af kosningum í Jötni, samanber, þegar Páll Scheving skipulagði framboð og kosningaundirbún- ing annars listans í Alþýðusam- bandskosningunum 1950 og 1952 og voru þeir u.ndirbúnings fundir haldnir í Lifrarsamlag- inu, — eftir vinnutíma. Um slíkt er ég ekki að fást, ef allt er löglega framkomið og framkvæmt. Af illri nauðsyn er grein þessi orðin lengri en ég ætlaði í upp- hafi og hefði hún þó þurft að vera margfallt lengri ef gera á skil öllum lygavef Fylkis. Það er ekki til þess að rétt- læta mína eigin persónu, að ég svara þessum skrifum Guðlaugs, sem að öllu jöfnu er ekki svara verður, — en það er óréttlátt gagnvart sjómannastéttinni, að láta honum líðast að ausa hana auri og ósannindum, að vild sinni, í trausti þeSs að enginn virði hann svars. Sig. Stefánsson. KAUPGJALD VERKAMANNA frá 1. inarz 1955. Visitala: 161 - 156 - /23 stig grunnk. dagv. eftirv. næt.-hd.v. Alm. verkam. vinna 9,24 — 14,88 — 22,32 — 29,76 Verkam. í fagv. 9,75 — 15,21 — 22,82 — 30,42 Vinna í kolum ,salti o.fl. 9,90 — 15,44 — 23,16 — 30,88 Bifreiðastjórn 10,20 — 15,91 — 23,77 — 31,82 Dixilmenn 10,50 —16,38 — 24,57 — 32,76 Stj. á vélsk. ýtum o.fl. 10,80 — 16,85 — 25,27 — 33,70 Box- ketil- og sementsv. 12,00 — 18,42 — 27,63 — 36,84 VERKAMENN! Geymið auglýsinguna. VERKALÝÐSFÉLEG VESTMANNAEYJA. sæ KAUPGJALD VERKAKVENNA frá 1. marz 1955. Vísitala 161 stig. grunnk. dagv. eftirv. nœt.-lid.v. Alm. verkakv. vinna 7,00 — 11,27 — 16,91 — 22,54 Hreistr. og spyrð. á fiski 7,55 — 12,16 — 18,24 — 24,32 Flökun, saltf.v. o.fl. 9,24 — 14,88 — 22,31 — 29,76 VERKAKONUR! — Geymið auglýsinguna. Verkakvennafélagið S N Ó T. TILKYNNING Vegna þess að vörubifreiðum hefur fjölgað mjög í bœnum í haust bœði til bifreiðastöðv- arinnar og útgerðarmanna, vekjum við at- hygli á því, að ekki er hœgt að fjölga með- limum stöðvarinnar um tíma. BIREIÐASTÖÐ VESTMANNAEYJA. HKHh>«KHKHHHKHKHKHh^^

x

Eyjablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.