Eyjablaðið


Eyjablaðið - 19.04.1961, Blaðsíða 1

Eyjablaðið - 19.04.1961, Blaðsíða 1
Ihaldið ætlar að bregða búi Bæjarstjórn hefur samþykkt að bjóða Dalabúið út til sölu eða leigu. - Við- reisnin hefur sligað búskap bæjarins, og róðdeild þeirra Guðlaugs og Ársæls leiðir til þess, að bærinn flosnar upp fró búskapnum. í janúar s. 1. lagði meiri- hluti bæjarstjórnar fram tillögu um að bjóða kúabú bæjarins að Dölum út til sölu. Tillög- unni var vísað til Dalabús- nefndar og síðari umræðu. Svo leið og beið og enginn fundur var haldinn í bæjar- stjórn fyrr en 14. apríl. En þá var heldur ekki beðið boð- anna, heldur samþykkt að bjóða Dalabúið til sölu eða leigu. Ekki breytti það neinu, þótt bent væri á, að óiíklegt má teljast að við útboð búsins nú fái bærinn kauptilboð, sem skili því verðmæti, sem í bú- inu liggur. Allir voru fulltrúar fhalds- ins útbeigdir af því, að mjólk urframleiðsla búsins mætti með engu móti hætta. en viidu korna henni í hendur einka- rekstursins, rétt eiris og þeir vissu ekki, að fátt hefur á síð- ustu árum orðið sér jafn ræki lega til skammar og ýmsir þættir einkarekstursins, sem virðist í fæstum greinum þola „viðreisnina", sem postular einkarekstursins komu á í fyrra, einmitt til að hinn marg iofaði einkarekstur gæti sýnt yf irburði sína. Það er augijóst mál, að eng- in trygging er fyrir því, að Dala- búið verði rekið að neinu gagni ef bærinn sieppir af því hend- inni, eða hver skyidi svo sem geta bannað þeim, sem búið eignuðust að bregða búi eða fiosna upp? Hitt er augljóst, að meðan hægt er að hafa hér þær gras- nytjar, senr enn er, þá er það ekki tii uppbyggingar byggðar- laginu, að bæjarféiagið hlaupist frá því búi, sem það með ærn- unr kostnaði hefur komið sér upp. Lanssíminn áíormar miklar Iramkvæmdir hér í sumár Nýr hafnarbátur Svo sem getið hefur verið um í blöðum, er nýlega komið hér í höfnina nýtt skip, hafnarbát- urinn Lóðsinn. Bátur þessi er um 70 rúmlest ir að stærð með 500 hestafla díselvél. Báturinn er smíðaður í Þýzkalandi eftir teikningu Hjálmars Bárðarsonar og er sér staklega miðaður við hlutverk sitt hér í og við höfnina. Það leikur ekki á tveim tung- um, að hinn eldri hafnarbátur, Léttir, var fyrir löngu ófullnægj andi til þcirra starfa, sem hafn- arbátar hér þurfa að hafa. Ekki er enn upp gefið, hvað liinn nýi bátur kostar. Hinn upprunalegi smíðasamningur um hann hljóðaði upp á 605 þúsund þýzk mörk, en það er nálægt sex milljónir íslenzkra króna, en allar breytingar, sem gerðar hafa verið frá samningn- um eru þar að auki, að svo miklu leyti, sem þær valda kostnaðarauka, svo og kostnað- ur við undirbúning smíðanna og heimsiglingu skipsins. Björgunarfélag Vestmanna- eyja og Slysavarnadeildin Ey- kyndill hafa búið Lóðsinn ýms- um tækjum til björgunarstarfa og Slysavarnafélag íslands hef- ur gefið gúm-björgunarbát skipið. Einar Sveinn Jóhannesson er, skipstjóri á Lóðsinum, en Sig- urður Sigurjónsson vélstjóri. Gamli hafnarbáturinn, Léttir, verður enn í notkun undir stjórn Ólafs Ólafssonar eins og áður. Eins og kunnugt hefur verið um skeið, er unnið að undir- búningi þess, að sæsímastrengur verði lagður milli íslands og Færeyja. Endastöð íslands-meg- in verður hér í Eyjum, suður við Stórhöfða. Þaðan verður lagður jarð- strengur að símstöðvarhúsinu, stöðvarhúsið stækkað og búið nýjum tækjum tii sjáifvirkrar símaþjónustu. Einnig verða ný- ir strengir lagðir að tækjastöð- inni á Stóra-Klifi, en sú stöð fær mjög aukin verkefni, þar Framhald á 2. síðu. Gamli hafnarbáturinn „Léttir“ tekur á móti „Lóðsinum" 4. apríl

x

Eyjablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.