Eyjablaðið - 17.05.1961, Blaðsíða 1
EYJABLA
22. argangur
Vestmannaeyjum, 17. maí 1961
8. tölublað
Ein vitleysan býður annarri heim:
Verður Herjólfur tekinn
úr Vestmannaeyjaferðum?
Nú eru komnar fram tillögur um að hætta Vest-
mannaeyjaferðum Herjólfs, rífa þriðjung far-
þegarúmsins úr Esjunni og lóta þau tvö skip í
hringsiglingar um landið.
Þegar róðherrar blaðra um
hluti, sem þeir hafa ekki
vit á,
Það hefur verið tízka hjá í-
haldinu að undanförnu að tala
þeim mun meira um sparnað í
opinberum rekstri, sem það hef-
ur á því sviði gerzt sukksamara
í framkvæmd.
Fróðir menn telja, að á árinu
1960 hafi á vegum ríkisins og
Reykvíkinga verið varið 37—40
milljónum króna í vezlur og
annað staut kringum gestakom-
ur til landsins.
Engan þarf því að undra
þótt fjármálaráðherrann, Gunn-
ar Tlioroddsen Iiafi talað drjúgt
um sparnað í upphafi þessa árs
eða í áætlunargerðum fyrir það.
— Hann boðaði mikinn sparn-
að í fjárlagáræðu sinni, og þing-
liðið, sem studdi fjárlög lians,
boðaði sparnað á næsta ári í 28
liðum. En engu að síður hækk-
uðu fjárlögin verulega og ein-
göngu vegna aukinnar eyðslu,
því framkvæmdir voru skornar
niður.
Meðal þessa sparnaðar, sem
færður var á skrá og boðaður
sem fagnaðarerindi var 5 millj.
kr. lækkun á framlagi til strand
siglinganna. En það var látið
fylgja með breytingu þessari, að
ckki yrði á neinn hátt dregið úr
þjónustunni, heldur átti galdur-
inn að liggja í því að fá út-
lcnda sérfræðinga til að skipu-
leggja þessa starfsemi upp á hag
kvæmari máta en áður hafði
verið gert.
Fyrstu tillögurnor voru
fórónlegar.
Eyjablaðið hefur áður sagt
frá því (hinn 6. des. s. 1. í grein-
inni Ráðherrar hafðir að fífl-
um), hve fáránlegar hinar fyrstu
tillögur norsku sérfræðinganna
reyndust. En sýnt þótti, að ef
þær ættu að korna í framkvæmd
myndu þær ekki einasta rýra
strandsiglingaþjónustuna held-
ur og stórauka kostnaðinn við
hana.
Jafnvel ráðherrarnir sáu þetta
og sögðu sínum norsku leigu-
spekingum að lesa upp og læra
betur, að þessum tillögum
hefði einungis verið hlegið, svo
nú yrðu þeir að vandasig og ná
saman sparnaðartillögum, er
hægt væri að sýna.
Nú á að kreppa að
Vestrnannaeyingum.
Og nú eru komnar nýjar til-
lögur til ríkisstjórnarinnar. Þær
eru byggðar á mikilli vinnu
spekinganna, sem búnir eru að
fara nokkra hringi umhverfis
landið með strandferðaskipun-
um og liggja auk þess langtfm-
um saman undir feldi, til að í-
grunda speki sína.
Ekki hefur stjórnin þó árætt
að kunngera fólkinu í landinu
hin nýju áform, hvað þá að
hrinda þeim í framkvæmd enn
sem komið er. En Eyjablaðinu
þykir ástæða ti! að gefa Vest-
mannaeyingum kost á að vita,
það sem það hefur orðið á-
skynja um úr tillögum þessum
og veit með fullri vissu um,
enda snertir það ekkert byggðar
lag á Iandinu óþyrmilegar en
Vestmannaeyjar, ef stjórnar-
völdin skyldu heimskast til að
framkvæma tillögur spekinga
sinna.
Auk þess sem suint úr eldri
tillögum leigu-spekinganna er
nú endurtekið, eru hinar nýju
tillögur aðallega þessar:
1. Hætt skal að hafa skip í
Vestmannaeyjasiglingum.
2. Rifið skal farþegarými Esj
unnar að þriðjungi og hún
þannig höfð í hringsiglingum
um landið.
3. Sett skal millidekk í lest
Framhald á 2. síðu.
Kaupið óbreyft
Þar eð samningar Verka-
lýðsfélagsins og Snótar við
Vinnuveitendafélagið voru
útrunnir hinn 15. maí, hafa
margir að því spurt, hvaða
kaup ætti að greiða eftir
þann tíma.
Því er vert að upplýsa eft-
irfarandi:
Kaupið' breytist ekkert.
Það er löngu viðtekin
regla, að unnið er eftir síð-
asta samningi, er í gildi vai',
þar til nýr samningur er gerð
ur eða verkfall eða verkbann
er tilkynnt af öðrum hvorurn
samningsaðila.
Ekkert af þessu hefur gerzt
og því er unnið eftir samn-
ingunum, sem gerðir voru
hér í vetur, unz málum verð-
ur á annan veg skipað.
Einn umiækjandi um brauðið
Halldór Kolbeins prestur á
Ofanleiti hefur, svo sem kunn-
ugt hefur verið um skeið, sagt
starfi sínu lausu.
Umsóknarfrestur um brauð-
ið var auglýstur til 15. maí.
Biskupsskrifstofan upplýsir,
að aðeins einn umsækjandi sé
um brauðið, Þorsteinn Lúter
Jónsson, prestur f Stöðulsholti
í Hnappadalssýslu.
Þorsteinn er fæddur 1906 í
Reykjavík. Hann er sonur hjón
anna Maríu Guðlaugsdóttur
frá Hallgeirsey í Landeyjum og
J óns Þorsteinssonar söðlasmiðs
frá Ártúnum á RangárvöIIum.
Hinn .væntanlegi prestur er
mörgum Vestmannaeyingum
kunnur, bæði vegna ætternis
sfns og ekki síður sökum kvon-
fangs síns, en hann er giftur
Júlíu Matthíasdóttur Finnboga-
sonar á Litlu-hólum hér í bæ.
Á árunum 1925—1927 vann Þor
steinn hér við verzlunarstörf
í verzlun Egils Jakobsen.
Þótt umsækjandi sé aðeins
einn, fer samt fram kosning og
er líklegt að hún verði 28. þ. m.
Högni í Vatnsdal
látinn
Hinn 14. þ. m. lézt Högni
Sigurðsson bóndi í Vatnsdal.
Hann var á 87. aldursári.
Högni var Vestmannaeyingur
að uppruna, sonur Sigurðar Sig
urfinnssonar hreppstj. á Heiði.
Eyjablaðið mun síðar minnast
þessa merka manns.