Eyjablaðið - 31.05.1961, Side 4
EYJABLAÐID
Útgefandi: Sósíalistafél. Vestmannaeyja. Áb.: Tryggvi Gunnarsson. Frentsm. Eyrún hf.
Hvítasunn umót með
íhalds-sóma
Það var ekki fjölmennt á vormófi því, sem
yngri deild íhaldsins boðaði hér fil um hvífa-
sunnuhelgina, og það orkar líka sfórlega fvímælis,
hve góðmennf þar var.
Á velmektardögum sínum
tókst íhaldinu stundum að
t'lytja margt ungmenna hingað
í bæinn á hvítasunnu mót sín.
Sómi þess a£ mótunum var
samt meira en vafasamur, því
svo var ölæði hins aðkomna lýðs
og siðlaust framferði taumlaust,
að út yfir allan þjófabálk tók.
Af þeim sökum lrættu þeir foi-
sjármenn ungliðadeildarinnar,
sem ekki voru fullkomlega sam-
dauna skrílslátunum, að efna
til þessara móta um skeið.
Dauf þátttaka.
En nú var aftur hafizt handa.
Auglýsingar gengu fjöllum
hærra í margar vikur. Blöð í-
haldsins boðuðu dýrðina mynd-
skreytta og vart varð svo opn-
að útvarp, að ekki væri þar meg
inmál tilkynninga um hina fyr-
irhuguðu fjöldaför íhaldsung-
anna til Eyja um hvítasunnuna.
Og til þess að taka a£ öll tví-
mæli um að hér væri ekki bara
venjulegur þvælingur drykkju-
róna í upþsiglingu, hljóðaði
einn liður dagskrárinnar upp á
messugerð Jóhanns Hlíðar, sókn
arprests, í Herjólfsdal, yfir mót-
inu á annan hvítasunnudag.
Nú að „mótinu“ afstöðnu
geta íhaldsblöðin að vísu ekki
um, hver fjöldi manna hafi tek-
ið þátt í Vestmannaeyjaförinni,
en segja þar á móti: „Skemmtan
irnar fóru hið bezta fram og
voru öllum til sóma . . .“
Þess er og getið í blöðum í-
haldsins, að Þór Vilhjálmsson,
forseti Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna og Ragnhildur
Helgadóttir, kona hans, hafi ver
ið meðal gesta mótsins og þar
við er látið sitja í upptalning-
tinni, og hefði þó verið lítið
fyrir því haft að geta þess, að
auk þeirra hjóna komu 23 gest-
ir til mótsins.
Farkostur amerískra stríðs-
manna Ijósmyndaður.
í myndskreyttu raupi Morg-
unblaðsins frá „mótinu“ er sýnd
alllöng bílalest stödd á sunnan-
verðri Heimaey og látið að því
liggja, að þar sé „mótið“ á skoð
unarferð um Vestmannaeyjar.
Rétt mun það, að mynd sú er
tekin sama daginn og hinir 25
slöngruðu hér eitthvað um. En
einmitt þá voru hér aðrir gest-
ir einnig á ferðinni. Það voru
stríðsmenn af Keflavíkurflug-
velli, og eru bílar þeirra einnig
með á umræddri mynd og bend
ir það til þess, að þeir hafi raun
verulega verið þátttakendur í
þessu vormóti íhaldsins, þótt
með óformlegri hætti væri en
hjá hinum 25.
Þá er og sýnt á mynd með
sömu frásögn slangur af fólki á
vélbáti úti í Klettshelli. Það hef
ur lengi verið siður stálpaðra
krakka hér í Eyjum að stökkva
um borð í báta þá, er upp
leggja í hringför um Eyjar og
brugðu þeir, sem á bryggju
voru staddir auðvitað ekki vana
sínum í þessu efni, þegar far-
kostur þeirra komumanna lagði
frá landi.
Messufall í Herjólfsdal.
Siikurn fámennis á „móti‘-‘
þessu varð auðvitað messufall í
Herjólfsdal og var því skarð fyr
ir skildi í dagskránni. En í anda
einkaframtaksins var auð/itað
reynt að bæta það upp, bæði
með brennivínsdrykkju og inn-
brotum.
Ágætur athafnamaður
kemur til sögunnar.
í glugga á húsi einu við Báru
stíginn hékk uppi auglýsing um
það, hvar nokkur rússnesk tíma
rit á Vestur-Evrópumálum
væru fáanleg. Slíkt frelsi manna
lil lesmálskaupa virtist ekki
falla inn í þjóðfélagshugmynd-
ir hinna ungu aðkomnu íhalds-
manna, sem hér höfðu kosið að
halda liátíð lieilags anda til efl-
ingar hugsjón sinni. Og ein-
hver ágætur athafnamaður í
hppi þeirra framdi innbrot í
inisið með það fyrir augum að
fjarlægja svo siðspillandi auglýs
ingu, og máske hefði framtaks-
semi athafnamannsins ekki lát-
ið staðar numið við þá athöfn
eina, ef honum hefði enzt næði
til að betrumbæta hús þetta,
svo sem hugur hans stóð til. Það
skal með öllu ósagt látið, hvort
hann hefði ekki talið hugsjón
sinni betur borgið með því að
minnka eitthvað fjárráð verka-
lýðsfélaganna, sem hafa skrif-
stofu sína í húsi þessu og munu
hafa geymt þar einhverjar krón-
ur.
En sitt er hvort gæfa og
gjörfuleiki. Það sannaðist hér
enn. Áður en til þess kom, að
hinn gjörfulegi athafnamaður
gæti gengið svo frá hýbýlum
þarna við Bárustíginn, að sam-
boðið væri hugsjón hans, kom
raunar lögreglan á vettvang og
þar með var gæfa piltsins til þjóð
félagsumbóta þorriu þann dag-
inn.
Hann var leiddur fyrir rétt og
upp kveðinn yfir honum sekt-
ardómur fyrir tiltækið .
Öllum til sómal!
En þótt dómstólar telji ekki
nema sumt af störfum hvíta-
sunnumóts Sambands ungra
Sjálfstæðismanna í Vestmanna-
eyjum vorið 1961 til sóma eða
í anda íslenzkra laga, þá er þó
allur munur, að flokkurinn sem
slíkur lætur sér ekki þess háttar
fyrir brjósti brenna. í síðasta
Fylki segir m. a. svo um „mót“
þetta: Vorhátíð F. U. S. fór
fram um hvítasunnuna og tókst
mjög vel . . . Skemmtanirnar
fóru hið bezta fram og voru
öllum lil sóma . . . er að þeim
stóðu."
Þótt flestir Vestmannaeying-
ar standi að vísu dálítið ókunn-
ugir frammi fyrir þessu nýja
sóma-hugtaki íhaldsins, þá þyk-
ir Eyjablaðinu hlýða að óska
því til hamingju með sóma
þann, sem því nú hefur hlotn-
ast, en mælast jafnframt til þess,
að það haldi honum út af fyrir
sig, enda munu flestir aðrir vel
geta hugsað sér að vera án sóma
af: þessu tagi.
ÚR BÆNUM
Prcst-kosning.
Sunnudaginn 28. þ. m. fóru
hér fram prestkosningar.
Þátttaka í kosningunni var
lítil, enda aðeins einn prestur
í kjöri. Það voru 411 atkvæði
greidd í kosningunni, en 2316
voru á kjörskrá, kosningaþátt-
takan er því tæp 18%.
Samkvæmt gildandi reglum
um prestkosningar verða at-
kvæðakassar geymdir í 3 daga
(sem er kærufrestur um kosning
una), en síðan sendir á biskups
skrifstofuna í Reykjavík og at-
kvæði talin þar.
Eru ó förum til
Tékkóslóvakíu.
Á vegum Tékknesk-íslenzka
félagsins hafa undanfarin tvö ár
farið héðan nokkur börn á aldr
inum 12—15 ára til mánaðar
eða 5 vikna dvalar í Tékkósló-
vakíu.
Þessi starfsemi heldur enn á-
fram og um Jónsmessuleytið
fer enn liópur barna austur
þangað og verða 3 Vestmannaey
ingar væntanlega í þeim hópi:
Ragnar Jónsson, Helgafells-
braut 25.
Sigurður Gíslason, Skólav. 10
Kristinn Hermannsson, Há-
steinsvegi 5.
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja.
Verkalýðsfélagið hélt aðal-
fund sinn hinn 28. maí.
Þá var lýst stjórnarkjöri, en
stjórn félagsins hafði orðið sjálf
kjörin, eins og Eyjablaðið hef-
ur áður greint frá. Hagur fé-
lagsins má teljast góður og
hafði Styrktarsjóður félagsins
á liðnu ári náð því marki að
geta tekið til starfa. Var honum
sett stjórn á fundinum.
Eftir að lokið var dagskrá
fundarins, sagði Hermann Jóns-
son formaður félagsins, þætti úr
ferð þeirri, er hann er nýkom-
inn heim úr frá Sovétríkjun-
um, en hann var einn þeirra
þriggja tslendinga, sem þangað
fóru í boði verkalýðssambands
Sovétríkjanna til að vera við-
staddir 1. maí hátíðahöldin í
Moskvu, en þeir ferðuðust auk
þess mikið um landið, bæði
norður til LeningTad og suður á
Krímskaga og dvöldu ails í hálf-
an mánuð þar eystra.