Eyjablaðið - 23.12.1961, Qupperneq 1
EYJABLA
22. ÁRGANGUR
ÞORL.ÁKSMESSU 1961.
JÓLABLÁÐ
VIKiVAKI
ÚR SÖNGLEIKNUM „ÆVINTÝRI ÞJÓÐVÍSUNNAR"
Opnast hamrahallir,
hljómi strengjaglaumur,
leiftri Ijós af blysum
langa vegi.
Nú er nótt í byggð.
Vakið ólfar allir
úti er svefn og draumur,
stígum dans unz Ijómar
loft af degi.
Nú er nótt í byggð.
Gnötri, nötri
grundin undir
geisumst þeysilétt.
Gígjur knýjum,
loga bogum
sindri um tind og klett.
Tónar hylli,
trylli, villi
töframóða þétt.
Tefjum dag
við rammaslag
og fornan norna sprett.
Sveiflast fat um fót.
Fluglétt þjótum
hnjót og grjót.
Álfasnótar yndishót
ör og skjót
elds af rót
leiftra Ijúfling mót.
Leikur lokkaflóð
Ijóst um brjóstin
rjóð og móð.
Læsist glóð
um barm og blóð.
Hulduþjóð,
hal og fljóð,
heillar nóttin hljóð.
Loftur Guðmundssori.