Eyjablaðið - 30.01.1963, Side 1
EYJABLADID
24. argangur.
Vestmannaeyjum, 30. janúar 1963.
2. tölublað.
Fjárhagsáæltunin fyrir 1963.
Fasi'eignagjöld af íbúðum tvöfaldast.
* Útsvör hækka um 18f2 %.
* Niðurstöðutölur tekna og gjalda nema
20,7 milljónum króna.
Á bæjarstjórnarfundi hinn hvort um sig áætluð kr.
25. janúar var fjárhagsáætlun 20.715.000,00 og helzt þar flest
bæjarins fyrir árið 1963 sam- í sama horfi og að undanförnu
þykkt. utan hvað víðast þrýstir hin al-
Tekjur og gjöld bæjarins eru menna dýrtíð útgjaldaliðum bæj
Leikfélagið fær 2,5 millj. kr.
í byggingarsytk
Guðlaugsklíkan varð í minnihluta á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, þegar til atkvæða kom tillaga, sem
allir fulltrúar minnihlutans fluttu til þess að skapa
menningarfélögum bæjarins starfsskilyrði.
Leikfélag Vestmannaeyja, sem engin húsnæðisskilyrði
hefur nú til starfa, reyndi um margra mánaða skeið að ná
samstarfi við bæjarstjórnina um lausn sinna húsnæðismála.
Það fékk engar undirtektir við sitt mál hjá bæjarstjóranum
heldur aðeins vífilengjur og undanbrögð. Eitt af erindum
þess lá fyrir til afgreiðslu á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Allir fulltrúar minnihlutans lögðu fram svohljóðandi til-
lögu:
„Bæjarstjórn Vestmannaeyja heitir Leikfélagi Vest-
mannaeyja 2,5 milljónum króna byggingarstyrk til þess að
koma hér upp leiklistar- og hljómleikasal, er tryggt verði
að menningarfélög bæjarins og viðurkenndir aðkomnir
listamenn, er hér vilja efna til samkomuhalds, eigi forgangs-
rétt að.
Fé þetta greiðir bæjarsjóður af höndum eftir því, sem
fjórveiting í fjórhagsóætlun ókveður hverju sinni og oð fullu
innan tíu óra, þó aldrei örar en sem nemur óföllnum bygg-
ingarkostnaði.
Fjórveiting þessi er bundin því skilyrði, að bæjarstjórn
Vesfmannaeyja samþykki fyrirkomulag byggingarinnar,
hugsanlegan sameignarsamning Leikfélagsins við aðra að-
ila, er að byggingunni kunna að standa, og að eignarhlut-
ur Leikfélagsins í fyrirhugaðri húseign falli til bæjarfélags-
ins, ef Leikfélagið hættir störfum.
Um framlag þetta verði gerður nónari samningur milli
Leikfélagsins og bæjarstjórnarinnar ó gundvelli þessarar
samþykktar og verði þar m. a. kveðið ó um beztu-kjara rétt
allra leik- og tónlistarfélaga bæjarins um notkun hússins."
Guðlaugur lagði auðvitað til, að tillögunni yrði vísað
til bæjarráðs, en sú tillaga hans fékk aðeins 3 atkvæði
(Guðlaugur, Sighvatur og Jóhann Friðfinnsson), en 5 voru
á móti (tillögumenn og Gísli Gíslason).
Kom tillagan þá til atkvæða og var samþykkt með 5 sam-
hljóða atkvæðum, tillögumanna og Gísla, en 4 fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins greiddu ekki atkvæði.
Leikfélagið mun hafa í hyggju að gera sameignarsamn-
ing við Oddfellowregluna um samkomuhús við Sólhlíðina,
þannig, að það eigi sinn eignarhlut í samkomusal hússins
og geti fulln'ægt skilyrðum bæjarstjórnarsamþykktarinnar
um forgangsrétt leik- og tónlistarfélaga um not hússins.
arins upp á við. Þannig var nið-
urstaða fjárhagsáætlunarinnar
fyrir árið 1962 kr. 17,4 millj.
Útgjaldaaukningin er þannig á-
ætluð 3,3 millj. kr. og kemur
sama aukning fram í tekjulið á-
ætlunarinnar.
Á tekjuliðnum er mest aukn-
ing áætluð á fasteignagjöldum,
en þau hækka í heild um 50%
og þannig þó, að engin hækkun
er á gjöldum annarra fasteigna
en húsnæðis, sem bera alla aukn-
inguna og hafa fasteignagjöld af
íbúðarhúsum haékkað um 100%,
svo sem gjaldendur eru nú óð-
ast að fá tilkynningar um.
Laugardaginn 26. þ. m. var
nýr bátur sjósettur úr Dráttar-
braut Vestmannaeyja. Þétta er
lítill súðbyrtur þilfarsbátur, 8
rúmlestir að stærð, með 36 hest-
afla vél.
Gunnar M. Jónsson smíðaði
bátinn, en eigandi hans er Jón
Gunnlaugsson á Gjábakka. Bát-
urinn hlaut nafnið Hvítingur.
Þetta er einkarfalleg lítil
fleyta, svo sem kunnugt er öll-
um þeim, er leið hafa átt um
innanverðan Strandveginn, því
báturinn hefur staðið fullbúinn
í skipasmíðastöðinni nú að und-
anförnu.
Útsvörin hækka um 18,2% og
nema nú (ásamt aðstöðugjöld-
um, en svo nefnast nú útsvör
fyrirtækja) kr. 16,3 milljónir í
stað 13,8 í-fyrra.
Samið um kjör ræsfingakvenna
V
í skólunum
Um miðjan nóvember síðast-
liðinn undirrituðu fulltrúar
Verkakvennafélagsins Snótar
samkomulag við bæjarráð um
kaup og kjör þeirra kvenna, er
vinna við ræstingu í skólunum
hér. Samningaumleitanir höfðu
þá staðið yfir frá því í byrjun
september, en aðdragandi þeirra
var, að mikil óánægja ríkti orð-
ið meðal ræstingakvenna með
kjör sín. Þær höfðu engan sér-
stakan samning að styðjast við
og mikils ósamræmis gætti í
launagreiðslum í hvorum skóla.
Konur þær, er vinna við
barnaskólann höfðu sjálfar náð
fram smáleiðréttingu í fyrravet-
ur. Var kaup þeirra eftir það
miðað við 4 stundir á dag, tvær
í dagvinnu og tvær í eftirvinnu
á lágmarkstaxta Snótar.
í gagnfræðaskólanum voru
greiddir 4 tímar í dagvinnu á
karlmannskaupi, þótt hluti af
vinnutímanum þar kæmi á eft-
irvinnu. Þar af leiðandi voru
konurnar, er þar unnu með um
500 kr. lægra kaup á mánuði,
en hinar, auk þess sem vinnuá-
lag í gagnfræðaskólanum var
miklu meira þar sem ræstinga-
konurnar voru aðeins þrjár. Enn
fremur tíðkaðist þar, að skóla-
stjórinn skammtaði konunum
„byrjunarfaun" misjáfniega lang
an tíma og voru þau um 200 kr.
lægri á inánuði en hinna. Urðu
þær að sætta sig við þau laun
þar til hann taldi þær „fullþjálf
aðar í faginu.“ Var því engin
furða, og þó fyrr hefði verið,
að konurnar, sem unnu í skólan-
um snéru sér til síns stéttarfé-
lags og óskuðu eftir að málum
þessum yrði komið í viðunandi
horf.
Nú er kaupgjald hér mest mið
að við Reykjavík, en þar eru
svona störf eingöngu unnin í
ákvæðisvinnu, samkvæmt samn-
ingi verkakvennafélagsins þar
við borgarstjórn. Sá samningur
tók einnig gildi í Kópavogi í
haust. Ekki mátti þó bæjarstjóri
heyra nefnt að slík tilhögun yrði
tekin hér upp, þótt ákvæðis-
vinna sé ofarlaega á baugi hjá
atvinnurekendum núna, hins
vegar lét hann bæjarráð sam-
þykkja 1. október að greiða
þessa vinnu eftir hreingerning-
artaxta Snótar, þ. e. með karl-
mannskaupi og var þá miðað við
dagvinnu og eftirvinnu.
Nokkrum dögum áður hafði
skólastjóri gagnfræðaskólans sett
ræstingakonum skólans úrslita-
kosti. Höfðu þær óskað eftir
sama kaupi og greitt var í barna
skólanum og að einni konu yrði
bætt við. Aldrei kvað skóla-
stjóri það skyldi vérða og varðaði
sig -ekkert um,- hvað greitt væri
í barnaskólanum. Sat hann' við
Framhald á 2. síðu.