Eyjablaðið - 13.02.1963, Blaðsíða 1
EYJABLADID
24. árgangur. Vestmannaeyjum, 13. febrúar 1963. 3. tölublað.
Ríkisstjórnin viðurkennir ranga
stefnu sína í kjaramálum
Hinn 7. febrúar lagði ríkisstjórnin fram launa-
samningstilboð til ríkisstarfsmanna. Telur hún tilboð-
ið vera 16% kauphækkun að meðaltali. Er þetta
hrein yfirlýsing um það, að koupkúgun sú, sem hefur
verið æðsta hugsjón stjórnarinnar til þessa, sé rang-
lót og óverjandi.
KAUPBINDINGARSTEFNAN.
Það er víst flestum enn í
minni þrotlausar prédikanir
stjórnarinnar og hennar tals-
manna um það, að atvinnuveg-
irnir þyldu næstum engar kaup-
greiðslur til starfsfólksins er við
þá vinnur og að minnsta kosti
engar kauphækkanir, hvernig
sem dýrtíðin beljaði fram í
verðlagi hverskonar varnings.
Hvergi lieyrðist ráðherra tala
orð til síns lýðs, án þess að uppi
staða ræðuhaldsins væri: Þjóðfé
lagið þolir ekki kauphækkanir,
og allur blaðakostur landsins
tók undir þetta, að málgögnum
Alþýðubandalagsins undanskild-
um, söng þennan sarna söng,
einnig málgögn Framsóknar-
manna, enda höfðu Hermann
og Eysteinn rofið vinstri stjóin-
ina, vegna þess að þeir fengu
ekki framgengt kröfu sinni um
almennar kauplækkanir.
„VIÐREISNIN", KER.FI
KAUPLÆKKUNARMANNA.
í framhaldi af þeim beinu
kauplækkunum, sem íhaldið og
Kratarnir lögbundu 1959 með
hlutlausu samþykki Framskón-
ar, veltu hinir fyrrtöldu flokk-
ar svo hagkeríi þjóðarinnar til
á ýmsa lund og kölluðu breyting
arnar „Viðreisn“.
Allt var það kerfi fyrst og
fremst krókaleiðir til að ná því
marki, að misskipta tekjum
þjóðarinnar frekar en áður var,
til hagræðis fyrir kaupsýslustétt-
ina og meiriháttar framleiðend-
111 í öðrum greinum en útvegi
og landbúnaði. Að sama skapi
hliitu atvinnutekjur að rýrna.
„Viðreisnin" er sem sagt hag-
kerfi launakúgunar, kerfi vax-
andi misskiptingar þjóðartekn-
anna — og sem slík hefur hún
heppnast nú um skeið.
Ef einhver - skyldi efast um
þennan tilgang, þá er þeim hin-
um sama vert að minnast af-
stöðu ríkisstjórnarinnar til
vinnudeilna þeirra, sem orðið
hafa á „Viðreisnartímabilinu“.
Við hér í Eyjum getum til dæm-
is minnst þeirra átaka, sem hér
urðu í vertíðarbyrjun 1961, þeg-
ar ríkisvaldið hélt hér öllu í
helgreipum hálfa vertíðina með
því að banna atvinnurekendum
að gera eðlilega samninga við
verkafólk sitt, (og þeir reyndust
nægilega lítilmótlegir til að láta
tjóðra sig þannig eins og sauð-
kind í túni).
Hinu liefur svo aldrei staðið
á hjá stjórninni sjálfri, að þeg-
ar einhver kaupbreyting hefur
orðið upp úr vinnudeilum, sem
stjórnin lagði kapp á að gera
sem erfiðastar og lengstar, þá
hefur hún látið kaupbreyting-
una ná til þess fólks, sem hún
hafði húsbóndavald yfir, þ. e.
til ríkisstarfsmanna.
NÚ Á STJÓRNIN SJÁLF
í SAMNINGUM
Því er engan veginn að neita,
að stjórnin hefur náð árangri í
kaupkúgunarbaráttu sinni.
Verkalýðshreyfingin hefur ekki
megnað, sökum áhrifa atvinnu-
rekenda og ríkisstjórnarinnar
innan hennar, að ná fram kaup
hækkunum til jafns við dýrtíð-
araukninguna.
Ríkisstarfsmenn, sem lengst
af hafa getað látið sér nægja að
taka til sín árangur launabar-
áttu verkalýðshreyfingarinnar,
finna nú liag sínum illa komið,
þegar aðrir færa þeim ekki leng-
ur neinar stórar kauphækkanir
heim. Þeir hafa því uppi sjálf-
stæða kaupkröfugerð um þessar
mundir.
Ekki væru þeirra kröfur tald-
ar sanngjarnar á hærri stöðum,
ef þær kæmu frá verkalýðshreyf-
ingunni.
TJÓÐURSAUÐIRNIR
EKKI SPURÐIR RÁDA.
En nú bregður svo við, að
þegar stjórnin er sjálf í sömu
sporum og Sighvatur og Gústi
Matt. voru í 1961, þá spyr hún
ekki þessa fyrri tjóðursauði
sína, hvort kaup megi hækka
eða hvað megi bjóða.
Nú leggur stjórnin einfald-
lega fram tilboð um 16%
kauphækkun, en þar með er sag
an ekki fullsögð. Allir vita, að
því tilboði verður ekki tekið og
þá fer málið fyrir sérstakan kjara
dómstól. Það er á allra vitorði,
að eitthvað muni sú stofnun
fara bil beggja milli kröfunnar
Framsóknarmenn í þessum
bæ gátu í hvorugan fótinn stig-
ið eftir bæjarstjórnarkosningarn
ar í vor, svo voru þeir upp með
sér eftir þann sigur, sem þeir
unnu. Nú töldu þeir sig orðna
stóra karla, sem gætu gert sig
gildandi, ekki einasta heima í
héraði, heldur og ekki síður
ætluðu þeir að gjörast stórráðir
í kjördæmisráði Framsóknar á
Suðurlandi og í Framsóknar-
flokknum á landsmælikvarða.
Segir nú ekki af vaskleik
þeina félaga um skeið, en ekki
er það að efa, að sigurvegarar
hata borið höfuð hátt, hvar
sem þeir áttu að skipa málefn-
um Vestmannaeyja í flokki sín-
um.
En þótt um skeið færi fáum
sögum af vopnaburði hinna sig-
urreifu lietja, þá má nú sjá, að
langhundar HelgaBergs eru
teknir að birtast á hverri for-
síðu Framsóknarblaðsins sem
út kemur, og það segir sína
sögai.
Nánar tiltekið er sú saga á þá
lund, að fyrir nokkru var hald-
inn kjördæmisráðsfundur Fram
sóknarmanna til að ákveða fram
boð flokksins í Suðurlandskjör-
Frá Snót
4. febmai : . i. var gen ið irá
samkomulagi milli Vinnuveit-
endafélags Vestmannaeyja og
Verkakvennafélagsins Snótar um
5% hækkun á öllum kauptöxt-
um félagsins og gildir sú hækk-
un frá 28. janúar s. 1.
Þann 5. þ. m. var undirritað-
ur samningur sá, er gerður var
í nóvember s. 1. milli bæjarráðs
og Verkakvennafélagsins Snótar
um kjör ræstingakvenna í skól-
um bæjarins. Hafði verið boðuð
vinnustöðvun í Barna- og Gagn-
fræðaskólanum fi'á og með 8.
þ. m., hefði samningurinn eigi
verið staðfestur fyrir þann tíma.
Samkvæmt þessum samningi
er fast mánaðarkaup ræstingar-
kvenna nú kr. 3072,90 með or-
lofi, og er hin nýja 5% hækk-
un þar innifalin. Ennfremur
eru ákvæði um veikindadaga,
slysabætur og uppsagnarfrest.
Allar konur, er vinna að
í skólunum skulu samkvæt samn
ingnum vera meðlimir Verka-
kvennfélagsins.
dæmi í megindráttum.
Sigurvegararnir í Vestinanna-
eyjum höfðu auðvitað í huga, að
gera þar kröfu til þess, að Vest-
mannaeyjamaður skipaði eitt af
vonarsætum framboðslistans við
næstu kosningar. Ekki mui.
hugur þeirra þó hafa stefnt
hærra en á þriðja sætið.
En þar var blásið á þá.
Þar var settur Helgi Bergs,
kontóristi úr Reykjavík ,maður-
inn, sem glutraði því sæti síð-
ast, þótt fyrri kosningatölur
segðu það sæti cruggt.
Sigurvegararnir úr Vestmanna
eyjum tóku við afturgöngunni
jDegjandi og hljóðalaust. En svo
svelgdist þeim á frammi fyrir
draugnum, að þeir gerðu ekkert
tilkall til 4. sætisins. í það vai
settur kaupfélagsstarfsmaður á
Selfossi, Óskar Jónsson.
Þá vöknuðu hetjurnar og
heimtuðu 5. sætið.
En í þeirri orrustu vegnaði
sigurvegurunum héðan úr Eyj-
um eins og þrek þeirra stóð til.
Þeir voru barðir niður, og sætið
afhent öðrum starfsmanni Kaup
félags Árnesinga, apótekaranum
Matthíasi Ingibergssyni.
Framhald á 2. síðu
Framhald á 4. síðu.
Stjórn Snótar.
]3að cr búið að scnda
þcim draug!
Framsókn hefur roöað í efstu sæf-i list-a síns
á Suöurfandi.