Eyjablaðið - 01.05.1969, Blaðsíða 2
*
lÉWIIIIIIInCiaiÍtW III lllíT I llBlMitlíÍÍÉiWWBItWIII. I LfPipil l«jP,P">.ffPfffW
íi umsjón Æskulýðsfylkingarinnar, Vestmannaeyjum. _ Andrés Sigmundsson (áb.)
Yinarkveðjur
iii i '
Sá er vinur, sem í raun
reynist, segir gamall máls-
háttur og þannig er það ætíð
með auðvaldið á íslandi, þeg
ar verkalýðurinn þarf að
rétta kjör sín með verkfalls-
vopninu. Reyndar annað
hvort, þar sem flokkur allra
stétta á ,í hlut, það þarf
reyndar engum hálfvita á ís-
landi í dag að segja það, að
auðvaldið ræður ríkjum í
íhaldsflokknum, sem skipti
um nafn 1929 og nefnist nú
Sjálfstæðisflokkur, og hefur
enginn flokkur grætt annað
eins á nafnbreytingu og hann
Það, sem mér. er nú ofar-
lega í huga, er það, að þann
25.. — 28. þessa mánaðar verð
25. — 28 þessa mánaðar var
skyndiverkfall til stuðn-
ings hinni xéttlátu kröfu
launamanna um vísitölubæt-
ur, og ef það ekki hrífur og
launamenn neyðast til að
fara í langt verkfall, vegna
þess að vinir þeirra, sem
stjórna flokki allra stétta,
vilja ekki framfylgja samn-
ingum heldur halda áfram
að níðast á þeim, og þver-
brjóta þá. Er það hvort að
fjölmiðlarnir, útvarp og sjón
varp, sem eiga að heita hlut
lausir, en hafa einatt sýnt
furðu hlutdræga íhalds-
mennsku í raun, taka til við
að flytja þætti um verkföll,
t.d. um árið þegar stóra verk
fallið var hér í Eyjum (en
Dagsbrún valdi sér hentugri
tíma um vorið). Þá var göml
um lækni er hér starfaði
fyrrum, settur í Daginn og
veginn, eins og og hver ann-
ar íhaldstrúður. Hann byrj-
aði að skjalla verkafólkið
hér af gömlum og góðum
kynnum, rósamaði dugnað
þess og starfsvilja og svo
kom það, þessar , starfsfúsu
hendur yoru nú bundnar og.
BIFREIÐA-
EIGENDUR
ATHUGIÐ!
Látið stilla ljósin
tímanlega.
Bifreiöaverkstœði
KRISTJÁNS
OG
BJARNA
þessi stóra verstöð nú lömuð
allt vegna vondra manna.
Hann athugaði það ekki, að
það voru verkamenn sjálfir,
sem voru að reyna að rétta
sinn hlut, en þeir eru vondu
mennirnir í þjóðfélaginu í
augum auðvaldsins. Hann
minntist ekki á það, hverjir
ekki vildu greiða réttlátara
kaup, eða hverjir stóðu fyr-
ir gengisfellingum og óða-
verðbólgu og afnámi vísitölu
úr lögum. Osei, sei nei. Öll-
um ættu að vera minnisstæð
verkföllin í fyrra, þá einu
sinni enn misnotaði auðvald-
ið fjölmiðlana, þá dundu á
verkafólki þættir eins og
Eiga verkföll rétt á sér, eða
þá, eru verkföll úrelt í nú-
tíma þjóðfélagi, og annar á-
móta söngur. Allir kannast
orðið við þessa þætti í fjöl-
miðlunum, þar sem öndverð-
ar skoðanir eiga að koma
fram og kljást, en lokaorð
verða oft, ég sé að andmæl-
endur eru á sarna máli í að-
alatriðum. Þessi aðferð er
mjög svo lúmsk og slunginn
að láta menn þvæla um á-
kveðið málefni fram og aft-
ur og þeir eru bara ósam-
mála í aukaatriðum, sem
engu máli skipta eða litlu,
þannig höndluðu þeir NATO
málið.
í útvarpsþætti fyrir nokkru
| kom fram sú frumlega hug-
mynd, að kaup skyldi fara
eftir framboði og eftirspurn,
þeirri gömlu auðvalds lógikk
þá sæu launamenn sína sæng
út breidda. Hann minntist
ekki á það, hinn góði mann,
. hvort kaupmenn ætluðu að
lækka lífsnauðsynjarnar til
samræmis (en eftir öðrum
þætti, þar sem allir fulltrú-
ar kaupmanna komu fram
og börmuðu sér ákaft og við
lá, að fulltrúar matvöru og
tízkuvöru færu i hár saman
um það hvor tapaði meiru,
og tízkukaupmaðurinn sagði
,,að ekki væru tómatssósur
úr móð”. Syo mönnum datt
í hug, því þeir yfirgæfu ekki
þetta bölvað basl og færu í
blessaða launavinnuna). Þá
væri nú ekki ónýtt fyrir auð
valdið að hafa allt þetta at-
vinnuleysi hér á landi, en
eins og við vitum halda
stóru kapitalistaríkin ákveðn
um prósentum í atvinnuleysi
þetta 3—5% til að halda
kaupinu niðri. Og í blaði
allra stétta í hinum afstyrm-
islegu skrifuðu Staksteinum
mátti lesa þá gáfulega klausu
að yerkafólk vildi heldur
þræla fyrir lægra kaupi en
standa í verkfalli, nýkomið
úr sjómannaverkfallinu, þá
höfum við það. Þeir geta svo
sem ropað þessir launuðu
skrifbentar auðvaldsins, sem
hafa góð laun, drattast úr
bælinu undir hádegi, mjaka
sér út í bíl og niður á skrif-
stofu, og pikka þar á vél.
Þeir geta sent okkur slíkar
vinarkveðjur. Ætli hann
haldi að við þrælum í slori
og drullu fyrir ánægjuna.
Að hann skyldi ekki leggja
það til að við skyldum vinna
kauplaust, bara fyrir ánægj-
una. Annars stakk það svolít
ið, þegar hann talaði um að
vera komna úr löngu sjó-
mannaverkfalli. En einhvers-
staðar heyrðist því fleygt,
að ríkisstjórnin hefði ætlað
oð halda sjómönnunum það
lengi í verkfalli, að launa-
menn treystu sér ekki á eft-
ir, ef til vill miðar atvinnu-
leysið í sömu átt. Nú bíðum
við og sjáum hvað setur.
Með samstöðu og baráttu-
kveðju.
Heimeyingur.
P. S. Þessa grein skrifaði
ég nokkrum dögum fyrir
sumardaginn fyrsta. Svo ég
þurfti ekki lengi að bíða, til
að fá hana staðfesta, því í
kvöldverðartímanum í sum-
ardaginn fyrsta flutti einn
aðalritstjóri Danskamogga er
indi í útvarpið er nefndist
„Hugleiðing við sumarmál”,
Eftir almennt orðagjálfur
um sumarkomuna og fleira,
skrafaði hann um hvað hin-
ar miklu lýðræðisþjóðir,' Öret
ar og hinar Norðurlandaþjóð
irnar hefðu mikla erfiðleika
á efnahagssviðinu vegna
verkfalla, og þær vildu fara
í..
aðrar leiðir, því verkföll
væru svo úrelt í nútíma
't.
þjóðfélagi. Þá höfum yið
það.
Nú er knattspyrnan að
hefjast af fullum krafti, og
hafa flestir þeir, sem með
knattspyrnu fylgjast beðið
þessa tíma með óþreyju. Nú
í vetur hafa knattspyrnu-
menn landsins æft af fullum
krafti, og benda allar líkur
til þess, að Albert Guðmunds
son hafi lagt nýjan grund-
völl að betri knattspyrnu,
með þeim æfingaleikjum, er
háðir hafa verið, en árangur
inn á eftir að koma betur í
ljós, er landsmótin hefjast.
Val hinna 17 manna til und-
irbúningsæfinga fyrir leikinn
við Arsenal, vekur hjá
manni löngun til gagnrýni,
að velja algjörlega úr liðum
af Reykjavíkursvæðinu, utan
þá tvo, Guðna Kjartansson
úr ÍBK og Pál Pálmason, og
að engin skuli vera valin úr
Akranesliðinu og frá Akur-
eyri, en þessi tvö lið verða
án efa þau lið, sem á toppn-
BJARGRÁÐ ALÞÝÐU UNDIR VIÐREISN
SAKI
Af rúsínum kíló fjögur fæ mér
og fimm matskeiðar perluger.
Heim fjögur kíló hrísgrjón ber,
hvar tíu kíló sykur er.
í þrjátíu lítrum af volgu vatni
væti þetta af stakri natni.
Sykurinn síðast til það batni
síðan hræri ég snilldaryel.
I þrjár vikur ég vökvan geymi
víst hræri dag hvern lítið eitt.
Og sía með grisju, ekki gleymi,
svo gruggið næstum verði ei neitt.
Finnst mér gott, þá fjórða vika er liðin
þá fleygin ljúfa ber að vörum mér.
Já, býsna löng hún getur verið biðin
en borgast því að Saki Ijúfur er.
um verða í sumar, sérstak-
lega munu menn fylgjast vel
með Akranesliðinu, en það
vann sig upp í 1. deild síð-
astliðið sumar, sennilega
mun einvaldur landsliðsins
hafa það sér til afsökunar,
að betra sé að velja menn
af Reykjayíkursvæðinu svo
snemma sumars, þar sem
heildar mynd af getu Iiðanna
liggur ekki fyrir enn. 1. maí
leika Týr og Þór í meistard-
flokki, en þessir félagsleikir
hafa lagst niður að mestu,
untíanfarin 2 ár og er það
miður. Mér hefur fundizt
þessir leikir skapa þá bar-
áttu og spennu, sem ein-
kennt hefur ÍBV liðið útávið.
En vonandi fáum við að sja
góða og spennandi knattl
spyrnu i sumar.
Kristinn.
Handhnottleihur
Handknattleikur er Sú í-
þróttagrein, sem er hvað vin
sælust hérlendis að knatt-
spyrnunni undanskilinni.
Hér í Vestmannaeyjum er
án efa hægt að koma á góð-
um handknattleik, en aðstöð-
una vantar. Það er alveg
frumskilyrði til þess að hér
geti orðið framfarir í hand-
knattleik og öðrum ifini í-
þróttum, er að hér sé byggt
íþróttahús, sem fullnægir
öllum nútímakröfum en það
er kannski bjartsýni að gerá'
sér vonir um að svo geti orð
ið, meðan bæjaryfirvöldin
hafa ekki manndóm að koma
sundmálinu í örugga höfn.
Hér fer á eftir úrslit í
handknattleiksmóti Vestm.
eyja, sem haldið var dagana
14. — 18. apríl.
1. fl. kvenna Týr — 404040
1. flokkur lcvenna:
Týr ■ Þór ........ 13—15
1. flokkur karla:
Framh. á 4. síðu.