Organistablaðið - 01.11.1980, Síða 28
Þá voru 2 menn kjörnir heiðursfélagar
F.I.O., þeir Páll Halldórsson, fyrir frábær
stjörf í þágu Organistablaðsins, og Gunnar
Thyrestam sem hefur gert sér far um að
kynna íslensk orgelverk erlendis, en
Gunnar er áttræður um þessar mundir.
Fundarstjóri var Kristján Sigtryggsson.
Smári Ólason las fundargerð síðasta
félagsfundar og urðu nokkrar umræður um
hana og eftir nokkrar athugasemdir var hún
samþykkt.
Þá fór fram inntaka nýrra félaga, en þeir
eru:
Ólafur Finsen, Seljasókn,
dr. Orthulf Prunner, Háteigskirkju,
Pálmar Eyjólfsson, Gaulverjabæ.
Næsti dagskrárliður var skýrsla for-
manns.
Haldnir voru nokkrir stjórnarfundir á
árinu. Vann stjórnin að leiðréttingu
launamála nokkra félagsmanna.
Stjórnin fór fram á styrk úr Kristnisjóði til
Organistablaðsins kr. 40.000.- og fékkstsú
upphæð fyrir árið 1979 og fyrir 1980
samtals 80.000,-
Félagsfundur var 4. maí og rætt um
handrit að nýju messuformi. Jón Stefáns-
son lýsti störfum nefndar um það efni.
Ennfremur efndi stjórnin til félagsfundar
28.9.80, þar sem aðallega voru rædd
orgelkaup.
Næst las gjaldkeri upp reikninga félags-
ins og voru þeir samþykktir. Var innheimta
mjög góð.
Þá var komið að stjórnarkjöri.
Þeir Jón Stefánsson og Helgi Bragason
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Formað-
ur var endurkjörinn, ritari Guðný
Magnúsdóttir og gjaldkeri Daniel Jónas-
son. Varaformaður Jakob Tryggvason og
meðstjórnendur til vara Haukur Guðlaus-
son og Reynir Jónasson. Endurskoðendur
Gústaf Jóhannesson og Geirlaugur
Árnason og til vara Einar Sigurðsson.
Blaðnefnd var endurkjörin þeir Glúmur
Gylfason, Smári Ólason og Þorvaldur
Björnsson.
Áskrift að Organistablaðinu f. 1979 kr.
3.000 g.kr. til annarra er félagsmanna.
Félagsgjald var ákveðið 22.600,- fyrir
organista með umtalsverð laun.
Áskrift fyrir árið 1980 var ákveðið kr.
6.500,-
Nokkrar umræður urðu um launamál,
bílataxta svo og laun söngfólks.
Ennfremur um Organistablaðið s.s.
endurprentun á eldri árgöngum.
Páll Kr. Pálsson nefndi af gefnu tilefni
organistalög og benti á hversu mikinn
vanda þau leystu.
Formaður sagðist hafa rætt við
menntamálaráðherra um organistalög og
hefði hann beðið um uppkast að slíkum
lögum samþykktum af F.Í.O.
Fundarmenn voru 14.
G. Magnúsdóttir, ritari.
Frá félagsfundi F.Í.O.
F.Í.O. hélt félagsfund í Hvassaleitisskóla
28.09.80.
Boðað efni fundarins var: Orgel og
orgelkaup.
Fjörugar umræður urðu um efnið og
margir tóku til máls. Ýmsar skoðanir komu
fram og sýndist sitt hverjum, eins og vænta
mátti.
Voru félagar sammála um að stærð
orgelanna skipti ekki öllu máli, heldur
gæðin og að lítil hljóðfæri þyrftu
nausynlega að hafa tvö hljómborð.
Einnig kom fram, að tekjur kirknanna
hefðu minnkað og þar með möguleikinn á
kaupum á stórum orgelum.
Ekki voru allir sammála um hvort orgel
skyldu vera með eletrísk eða mekanísk
spilaborð og register.
Sú hugmynd kom fram að félagið reyndi
að hafa áhrif á rafmagnsorgelakaupin, með
því að skrifa bréf til allra sóknanefnda um
það efni.
Fundarmenn gáfu sér tíma til að hlusta á
ýmsar hljómplötur með mismunandi
gerðum af hljóðfærum, pípuorgelum og
rafmagnsorgelum og gera samanburð þar
G. Magnúsdóttir
Fréttir
Aðalfundur F.I.O., haldinn 19.10. 1980,
samþykkir eftirfarandi ályktun:
Félagsmenn telja það skyldu sína, sem
starfsmenn kirkjunnar, að skýra frá þeirri
28 ORGANISTABLAÐIÐ