Eyjablaðið - 01.05.1984, Qupperneq 3
EYJABLAÐIÐ
3
íþróttir
Umsjón: Þorsteinn Gunnarsson
Handbolti
Nú er handknattleiksver-
tíðinni lokið og er ekki hægt að
segja annað en að fulltrúar
okkar Eyjamanna hafi staðið
sig frábærlega vel. í fyrsta skipti
í sögu handboltans hér í
Vestmannaeyjum höfum við
eignast fyrstudeildarlið, og það
meira að segja tvö. Meistara-
flokkur Þórs vann 2. deildina
með miklum yfirburðum (10
stig í næsta lið fyrir neðan) og
meistaraflokkur ÍBV-kvenna
nældi sér í annað sætið í 2.
deildinni öllum á óvart og
tryggði sér þar með sæti í 1.
deildinni næsta keppnistímabii.
Hins vegar gekk ekki sem
skyldi hjá 3. deildarliði Týs.
F>eir höfnuðu í þriðja sæti og
voru einungis tveim stigum frá
annarar deildarsæti. EfSigurlás
Porleifsson hefði ekki þurft að
yfirgefa herbúðirnar á miðju
keppnistímabilinu má telja það
öruggt að Týr léki í 2. deild
næsta vetur. En það þýðir ekki
að gráta það. Það kemur vetur
eftir þennan og vonandi að þeir
hugsi sig vandlega um þegar
þeir ráða þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil.
AUGLÝSINGASÍMI
EYJABLAÐSINS 1177
Knattspyrna
Æfingaleikur
ÍBV-Fram 2-0 (1-0)
Annarar deildarlið ÍBV er
nú að búa sig af fullum krafti
undir sumarið undir stjórn
Einars Friðþjófssonar. Liður í
þessum undirbúningi var að fá
hingað 1. deildarlið Frarn til að
leika einn æfingarleik. Leikur-
inn fór fram s.l. laugardag á
malarvellinum í Löngulág í
frábæru veðri.
Leikurinn fór rólega af stað
og gerðist fátt markvert fyrr en
um miðjan fyrri hálfleik að Jón
Ólafur Jóhannsson braust
skemmtilega upp vinstri
kantinn og gaf vel fyrir markið
og þar var mættur Sigurjón
Kristinsson (Jonni) sem náði að
pota knettinum í mark Fram.
Staðan 1-0 fyrir ÍBV.
Seinni hálfleikur var mun
tjörugri. Strax á 5. mín. fengu
Framarar vafasama vítaspyrnu,
en Gunnólfur Lárusson
(Bimbó) gerði sér lítið fyrir og
varði spyrnuna sem Ómar Jó-
hannsson tók. Svo þegar um 60
mín. voru búnar af leiknum
skoraði Kári Þorleifsson annað
mark ÍBV með löngu en hnit-
miðuðu skoti eftir frábæran
undirbúning Hlyns Stefáns-
sonar, sem var tvímælalaust
besti maður vallarins. Þar við
sat þrátt fyrir að ÍBV fengi fleiri
marktækifæri til að auka
muninn.
Lið ÍBV: Þorsteinn G.
(Gunnólfur), Ólafur Á., Viðar,
Þórður, Þorsteinn V. (Óskar
S.), Hlynur, Bergur, Lúðvík,
Jón Ólafur (Daddi). Jonni og
Kári.
Ekki slæmt að vinna 1.
deildarlið Fram 2-0 en ÍBV
vann einnig 1. deildarlið
Þróttar með sömu markatölu
helgina þar áður. Lofa þessir
leikir mjög góðu þrátt fyrir hina
miklu uppstokkun sem átt
hefur sér stað í herbúðum ÍBV.
Þá áttu íslands- og bikar-
meistarar Akraness að koma
hingað á annan í páskum, en á
síðustu stundu tilkvnntu þeir að
þeir kæmust ekki vegna mann-
eklu. Lágu að þeirra sögn sjö
leikmenn í flensu.
Áformað er að leika tvo
æfingaleiki í viðbót, báða í
Reykjavík, helgina 5. og 6. maí
við KR og UBK. 12. maí hefst
svo íslandsmótið með leik við
Akranes í Meistarakeppni KSÍ.
Annars er niðurröðun leikja
ÍBV í 2. deild þannig:
Fyrri Seinni
leikur leikur
20.5. ÍBV-Víðir 11.7.
26.5.ÍBV-KS 21.7.
29.5. Skallagr.-ÍBV 11.8.
2.6. ÍBV-FH 15.8.
13.6. Njarðvík-ÍBV 18.8.
16.6. ÍBV-Völsungur 25.8.
23.6. Tindastóll-ÍBV 1.9.
30.6. ÍBV-ÍBÍ 8.9.
7.7. Einherji-ÍBV 15.9.
Þar sem ÍBV er í 2. deild
verða þeir að taka þátt í for-
keppni Bikarkeppninnar.
1. umferð: ÍBV-HV 23. maí
2. umferð: ÍBV/HV-ÍK 5. júní
3. umferð: ÍBV/HV/ÍK gegn
Skallagrímur/Stjarnan 19.júní.
Síðan koma 16 liða úrslit.
Fjórða keppnin sem ÍBV
tekur þátt í í sumar er Evrópu-
keppni bikarhafa. Dregið
verður í henni í júlí og leikdagar
þá ákveðnir. Vonandi dettur
ÍBV í hinn margumtalaða
lukkupott því þeir eiga það svo
sannanlega skilið eftir austan-
tjaldsdrættina undanfarin ár,
sem hefur haft í för með sér að
skuldabaggi ÍBV hefur verið
óheyrilega þungur og þykir það
ganga kraftaverki næst að
félagið skuli geta starfað enn
þann dag í dag.
Tipp
Þeir fjórir keppendur sem
eftir voru í tippkeppninni duttu
allir úr leik í síðustu umferð.
Sigurvegarar eru því Jón
Olafur Jóhannsson og Gylfi
Birgisson, en þeir voru með í
fimm fyrstu skiptin. Báðir eru
þeir miklir áhugamenn um
enska knattspyrnu og fylgjast
grannt með gangi mála og hefur
það ekki svo lítið að segja auk
þess að sjáfsögðu að*hitta á
„auðveldu" leikina. Öska ég
þeim félögum til hamingju með
sigurinn og nafnbótina: „Tipp-
meistarar Vestmannaeyja
1983-1984".
Að lokum vil ég þakka öllum
þeim er tóku þátt í tipp-keppn-
inni fyrir þátttökuna og vona að
lesendur hafi haft gaman af.
Læt ég þessu því hér með lokið.
—ÞoGu.
V estmannaeyingar!!!
Drekkið 1. maí kaffið í Alþýðuhúsinu.
Húsið opnað kl. 15:00.
1. maí nefndin.
ÖLFUSBORGIR
Erum farin að taka á móti pöntunum til dvalar í
sumarhúsum félaganna í Ölfusborgum í sumar.
Allar upplýsingar á skrifstofu Snótar að Heiðar-
vegi 7 sími 2770.
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja.
SÖLUBÖRN
V estmannaeyjum
1. maí merkin verða afhent sölubörnum að
Heiðarvegi 7 (Snótarhúsinu) frá kl. 10:00 til kl.
12:00. Athugið breyttan afhendingarstað.
1. maí nefndin.
VESTMANNAEYJABÆR
ATVINNA
Tómstundaráð auglýsir eftir starl's-
kröftum í störf flokksstjóra l'yrir Vinnuskóla og
Skólagarða. einnig yfirflokksstjóra.
Starfið hefst í júníbyrjtin og stendur í rúmar 6
vikur.
Umsóknarfrestur er til 10. maí n.k. Upplýs-
ingar um starfið og launakjör veitir undirritaður
og ber að skila umsóknum til samá aðila.
Tómstiindafulltrúi.
Sendum verkafólki í Vestmannaeyjum
hamingjuóskir 1. maí ’84
Tanginn
Kaupfélag Vestmannaeyja
* *
Utvegsbanki Islands
Sparisjóður Vestmannaeyja
Skipaafgr. Friðriks Óskarssonar
Olíufélagið
*
Olíuverslun Islands
Skeljungur
Samtog
Kjami
Reynistaður
Skipaviðgerðir
Skipalyftan h.f.
Bensínsalan Klettur
Lifrarsamlag Vestmannaeyja
Vinnslustöð Vestmannaeyja
Samfrost
ísfélag Vestmannaeyja
Fiskiðjan h.f.
Fiskimjölsverksmiðjan í Vm.
V estmannaeyjabær
Eyjablóm
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
E.P.-innréttingar Flötum 25
Músík & Myndir
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja
Vídeóklúbbur Vestmannaeyja
Geisli