Eyjablaðið - 01.05.1984, Qupperneq 4

Eyjablaðið - 01.05.1984, Qupperneq 4
4 EYJABLAÐIÐ Vidtalid * Umsjón: Ragnar Oskarsson Skólanum er um megn að vera í samkeppni við undanþágurnar í mörg ár hefur það viögengist að stór hluti stjórnenda fiskiskipa hefur starfað án tilskilinna réttinda. Einna alvarlegast er þetta ástand hvað vélstjóra snertir og hefur það síst farið batnandi undanfarin ár. Kristján Jóhannesson deildarstjóri við Fram- haldsskólann í Vestmannaeyjum hefur í mörg ár látið réttindamál vélstjóra til sín taka og oftar en einu sinni bent á að ríkjandi ástand sé ekki viðunandi. Evjahlaöiö ræddi við Kristján uni þessi mál og önnur er tengjast vélstjóramenntun almennt. Hvernig er réttindamálum vélstjóra í Vestmannaeyjum háttað í dag? Vélstjóratelag Vestmanna- eyja hefur í gegnum tíðina haldið nákvæma skrá unt undanþágur til vélstjóra og í fyrra voru þær 70 hér í Eyjum. Síðan þá hafa undanþágurnar án efa aukist þótt ég hafi ekki nákvæmar tölur þar um á reiö- um höndum. Undanþágurnar eru flestar veittar til vélstjóra á rninni bátum. en þeim fer fækk- andi eftir því sem bátarnir stækka. Hver veitir undanþágurnar? Bæjarfógetaembættið veitir undanþágurnar að fengrium meðmælum frá vélstjórafélag- inu hér. í flestunr tilvikum mælir Vélstjórafélagið með undanþágunum svo tiltölulega lítið mál er að fá þær. Mér finnst sjálfum að Vélstjóra- félagið ætti að vera harðara í sambandi við þessar undan- þágur en auðvitað á það erfitt um vik. því ástandið er þess eðlis. Hvernig er þessum málum háttað annars staöar á landinu í samanburði við það sem hér gerist? Eg veit að ástandið er slæmt á Suðausturlandi og á Aust- fjörðum og mun verra en hér. Þetta má m.a. rekja til þess að fyrir austan er ekkert vélstjóra- nám í boði. Nú liggur Ijóst fyrir að ekki er hægt að manna fiskiskipaflot- ann án undanþágumanna og ekki er unnt að uppræta undan- þágurnar með einu alsherjar banni. Hvað er hægt að gera? í tengslum við Vélskóla ís- lands er verið að undirbúa námskeið fyrir réttindalausa vélstjóra 25 ára og eldri sem þegar hafa öðlast í.þ.m. tveggja ára reynslu í starfi. Meiningin er sú að með slíku námskeiði geti menn öðlast I. stigs rétt- indi. Komið hefur til tals að fara eins að hér í Eyjum, þ.e. að bjóða upp á sams konar nám- skeið. Hér er öll aðstaða fyrir hendi svo ekki ætti málið að stranda þess vegna. Hvað finnst þér um þessa leið? t*að er nauðsynlegt að gera eitthvað og ég held að þessi leið sé rétt miðað við aðstæður. Það er auövitað hart að þurfa að reka menn sem hafa starfað lengi sem vélstjórar og öðlast Kristján reynslu í starfi og sjálfsagt að gefa þeint kost á slíkum nánr- skeiðum. Hitt er svo annað, að erfitt getur verið fjárhagslega fvrir þessa menn að leggja út í slíkt nám en þarætti ríkisvaldið auðvitað að koma inn í t.d. með skattaívilnunum. Hver er að öðru leyti þáttur Vélskólans í baráttunni gegn undanþágum? Skólinn getur afar lítið gert meðan undanþágurnar eru eins auðfengnar og raun ber vitni um. Reyndin er einfaldlega sú að skólanum er um megn að vera í samkeppni við undan- þágurnar því þær kosta tiltölu- lega lítið, en skólinn er dýr og þess vegna ekki eins fýsilegur kostur. Telur þú að skólinn hér veiti góða menntun og útskrifi góða vélstjóra? Skólinn útskrifar í raun ekki vélstjóra með réttindi því áður en réttindi fást þart' vélstjóra- efni að fá ákveðna reynslu á sjó. Menntunin sem skólinn veitir er nreira almenns eðlis og fræðileg og í þeim efnum held ég að skólinn standi fyliilega fvrir sínu. T.d. held ég að að- staðan í skólanum nú sé góð og þess vegna geti hann fullnægt þeim kröfum sem til hans eru gerðar. Sumt af hinu fræðilega námsefni er reyndar að verða úrelt. en það stendur vonandi til bóta. Þá fer ekki hjá því að maður hafi áhyggjur af því að fjárveitingar til Framhalds- skólans hafa verið skornar við nögl í sambandi við kennslu- stundafjölda og getur það auð- \itað skaðað \élstjóranámið. Nú hefur aðsókn að vél- stjóranámi verið dræm undan- farin ár. Áttu von á að breyting verði á í náinni franitíð. Já ég á von á því. Ég held að sú brevting verði samfara sam- drætti í sjávarútvegi og menn fari fljótlega að sækja sér menntun til að trvggja sitt starf. Tengist vélstjóranámið á einhvern hátt öryggismálum sjómanna sem nú er svo mikið um rætt? Að sjálfsögðu. Fullyrða má varðandi öryggismál sjómanna að menntun vélstjóra er einn stærsti þátturinn vegna þess að þeir sem lært hafa hiutina eru öðru jöfnu hæfari en hinir. Menntun vélstjóra er fyrst og fremst fyrirbyggjandi þátturog verður auðvitað að vera nteð í umræðu og aðgerðunt er tengj- ast örvggismálum sjómanna. Viðtal R.Ó. TIL UMHUGSUNAR A síðasta bæjarstjórnarfundi bar Arnar Sigurmundsson sarnan störf bæjarfulltrúa í núverandi og fyrrverandi meirihluta. Taldi hann allt önnur og betri vinnubrögð tíðkast nú en þá. nú væru það bæjarfulltrúarnir sjálfir sem hefðu völdin. en áður hefðu vondu embættismennirnir stjórnað öllu með harðri hendi. Þessa þulu þekkja menn reyndar frá því fvrir síðustu bæjarstjórnarkosningar því hún var eitt aðalkosningabragð sjálfstæðismanna þá. En full- yrðing Arnars um að nú ráði bæjarfulltrúarnir sjálfir er ekki rétt. Astandið innan núverandi meirihluta er nefnilega þannig að Arnar er maðurinn sem öllu vill ráða og hann fer ekkert dult með þann vilja sinn. Þetta kom greinilega í Ijós á umræddum bæjarstjórnarfundi er Sigurður Jónsson flutti ásamt Andrési Sigmundssyni tillögu um að varðveita bát nokkurn sern mjög hefur verið til umræðu undanfarið. Þar sem Arnari var ekki kunnugt um tillöguna fyrirfram ogekki fylgjandi henni varð hann bálreiður og talaði unt skrípaleik. meiriháttar brandara og þar fram eftir götunum. Hann reyndi nteð öllunt mætti að fá tillöguna fellda og var auðséð á öllu að hann taldi sig sjálfkjörinn til að ráða ferðinni innan meirihlutans enda fór svo að tillagan var felld. Öll frantkoma Arnars á umræddum bæjarstjórnarfundi sýndi svo sannarlega að hann telur sig þann sem ráða á ferðinni og eftir sínum hugmyndum eigi hinir bæjarfull- trúarnir að fara. Undirritaður er sem sé þeirrar skoðunar að bæjarfulltrúar meirihlutans ráði ekki ntiklu þegar allt kemur til alls. Arnar stjórnar og ræður. —Félagi INNLANS SKÍRTEINI ÚTVEGSBANKANS BERA HÆSTU VEXTISEM NOKKUR ÍSLENSK INNLÁNSSTOFNUN BÝÐUR ---OG ÞVÍ FYLGJA FLEIRIGÓÐIR KOSTIR.- RAÐGJAFINN I GTVEGSBANKANCIM LEIÐIR ÞIG í ALLAN SANNLEIKANN CJM ÞAÐ. KOMDU Á EINHVERN AFGREIÐSLUSTAÐ ÚTVEGSBANKANS OG SPYRÐU EFTIR RÁÐGJAFANUM. ÚTVEGSBANKINN EINN BANKI • ÖLL ÞJÓNUSTA

x

Eyjablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.