Eyjablaðið - 24.05.1984, Qupperneq 2
2
EYJABLAÐIÐ
EYJABLAÐIÐ
Ritnefnd:
Sveinn Tómasson
Ragnar Óskarsson (ábm.)
Inga Dröfn Armannsdóttir
Baldur Böðvarsson
Edda Tegeder
Elías Bjömsson
Oddur Júlíusson
Armann Bjarnfreðsson
Útgefandi: Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Tölvusetning og offsctprentun: Evrún h.f. Vm.
___________________________ .. _______J
Breyting til hins betra?
Um þessar mundir eru tvö ár liðin frá því að sjálf-
stæðismenn fengu meirihluta í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja. Þennan meirihluta fengu þeir fyrst og fremst
vegna óvægins áróðurs gegn þeim meirihluta sem þá
sat, áróðurs sem byggðist á órökstuddum málflutningi
um menn og málefni. Öll meðul voru notuð í konsinga-
baráttunni 1982 og svo fór um síðir að þau hrifu og
sjálfstæðismenn settust kampakátir í valdastólana.
Eitt þeirra slagorða sem sjálfstæðismenn notuðu í
kosningabaráttunni var: „Breytum til hins betra”. Nú
þegar liðinn er rétt um helmingur kjörtímabils nú-
verandi bæjarstjórnar er ekki úr vegi að staldra við og
athuga hvernig til hefur tekist hjá þeim sjálfstæðis-
mönnum að efna þau loforð sem gefin voru og hvernig
þeir hafa breytt til hins betra.
Ekki þarf lengi að leita til þess að sjá að breyting til
hins betra hefur heldur betur látið á sér standa. Víða
hefur verið stigið stórt skref aftur á bak og víða ríkir
óstjórn í bæjarfélaginu í stað þeirrar styrku stjórnar sem
sjálfstæðismenn lofuðu Vestmannaeyingum.
Hér verður ekki tíundað allt það sem miður hefur
farið hjá þeim sjálfstæðismönnum þótt af nógu sé að
taka í þeim efnum. Hins vegar er rétt að upplýsa
bæjarbúa um hvernig stjórn sjálfstæðismanna hefur
brugðist í ýmsum grundvallaratriðum.
Allt frá því að sjálfstæðismenn fengu meirihluta í
bæjarstjórn hefur ríkt skipulagsleysi hvað verklegar
framkvæmdir varðar. Leir starfsmenn bæjarins sem um
árabil hafa af kunnáttu sinnt verklegum framkvæmdum
hafa nú oftlega þurft að sitja verkefnalausir enda allar
framkvæmdir í lágmarki.
Frá því að sjálfstæðismenn fengu meirihluta hefur
fjárhagsleg staða Fjarhitunar farið versnandi og nú er
svo komið að til stórvandræða horfir með fjárhagslega
afkomu fyrirtækisins. Nú er t.d. fyrirsjáanlegt að sjálf-
stæðismenn munu hækka afnotagjöld Fjarhitunar all-
verulega á næstunni.
Svipaða sögu er að segja um fjárhagsvanda bæjar-
sjóðs sjálfs. Vegna skipulagsleysis í fjármálastjórn
bæjarins er bæjarsjóður svo illa staddur að til stórra
vandræða horfir. Til dæmis um ástandið má nefna að á
árinu 1983 var fjármagnskostnaður bæjarsjóðs
áætlaður 7,3 milljónir króna en varð hvorki meira né
minna en 28,2 milljónir þegar upp var staðið. Petta
dæmi sýnir svart á hvítu að fjármálastjórn þeirra
sjálfstæðismanna er í molum.
En þar með er ekki öll sagan sögð. Fjárhagsvandi
bæjarsjóðs er enn meiri. Samkvæmt reikningum fyrir
árið 1983 er bæjarsjóður gerður upp með 19 milljón
króna halla. Fetta er einsdæmi sem sýnir betur en
nokkuð annað það ástand sem ríkir í fjármálastjórn
sjálfstæðismanna.
Fyrir kosningarnar 1982 sögðust sjálfstæðismenn
nrnndu lækka álögur á bæjarbúa. En hvað hefur síðan
gerst? í raun hefur útsvarið hækkað þrátt fyrir lægri
álagningarprósentu vegna þróunar verðbólgunnar.
Gjaldskrár dagvistunarstofnana hafa stórlega hækkað
og gert barnafólki, ekki síst einstæðum mæðrum, erfitt
fyrir. Fá hafa hækkanir á gjaldskrá Fjarhitunar heldur
betur gengið þvert á loforðin fyrir kosningar. Og áfram
væri unnt að halda.
Af því sem hér hefur verið rætt má hverjum manni
augljóst vera að sjálfstæðismenn hafa algerlega brugð-
ist því trausti sem Vestmannaeyingar sýndu þeim 22.
maí 1982. —R.Ó.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem
vottað hafa okkur samúð sína vegna fráfalls
ÓLAFAR J. ÞÓRARENSDÓTTUR
Gunnlaug Einarsdóttir, Þórarinn Magnússon
Rósalinda Reynisdóttir, Emil Þór Reynisson
Arni Árnason, Sigurður G. Þórarinsson,
Asmundur J Þórarinsson
Um Ríkísmat
sjávarafurða
Snemma á sl. vetri lagði
ríkisstjórnin fram frumvarp til
laga um nýja stofnun, Ríkismat
sjávarafurða, (hér eftir nefnt
R.S.) sem taka á við hlutverki
Framleiðslueftirlits sjávar-
afurða.
Það fer ekki á milli mála. að
ýmsir gallar og aðrir vankantar
hafa verið á meðferð, vinnslu
og útflutningi sjávarafurða hjá
okkur í gegnum tíðina. Hins
vegar er ekki víst að laga-
setning breyti þar öllu um og
kannski litlu, og hlutur Fram-
Ieiðslueftirlitsins er máske ekki
sá þáttur, sem aðfinnsluverð-
astur er.
Á ýmsum sviðum varðandi
meðferð afla, er kannski mest
þörf á hugarfarsbreytingu
þeirra, sem um fjalla.
Frumvarp stjórnarinnar var
þó þannig úr garði gert, að
óbreytt gat það varla gengið.
Sannleikurinn er sá, að fæstir
bjuggust við því lengst af, að
það færi áfram, en þegar leið á
veturinn, var lögð vaxandi
pressa á að afgreiða það.
Margar breytingar voru á
frumvarpinu frá því, sem gilti
um Framleiðslueftirlitið og var
svokallað Fiskmatsráð og staða
þess helsta nýmælið og um leið
það sem vakti mesta gagnrýni
þeirra, sem engar breytingar
vildu.
Fiskmatsráð
Samkv. frumvarpinu átti að
koma á laggirnar 7 manna fisk-
matsráði, þar sem í eru fulltrúar
hagsmunaaðila. Ráðið skyldi
vera ráðgefandi, tillöguger-
andi, umsagnaraðili, úrskurð-
araðili í deilumálum, og síðast
en ekki síst stjórn fyrirtækisins.
í frumvarpinu voru ákvæði
þess efnis, að eftirlitsmenn í
fyrirtækjum tækju þátt í yfir-
mati til jafns við matsmenn
R.S. Auk þess voru ákvæði um
framleiðsluleyfi, sem mörgum
voru þyrnir í augum.
Rétt fyrir páska afgreiddi
meirihluti sjávarútvegsnefndar
frumvarpið úr nefnd með smá-
vægilegum breytingum og gaf
út nefndarálit, sem þýddi
næstum óbreytt frymvarp stutt
af stjórnarflokkunum.
Um páskana samdi undir-
ritaður allmargar breytingar-
tillögur ásamt Guðmundi Ein-
arssyni.
Útkoman varð svo sú, að
stjórnarliðið tók tillögur sínar
og nefndarálit til baka og síðan
AUGLÝSINGA
© 1177
EYJABLAÐIÐ
samþykkti það sama stjórnarlið
og ráðherrar allar okkar
breytingatillögur, þar sem
mörgum ákvæðum frumvarps-
ins var snúið við, einkum þeim,
sem andmælendum frumvarps-
ins hafði verið mesti þyrnir í
augum.
Slík meðferð stjórnarfrum-
varps er einsdæmi.
Niðurstaðan
Þrátt fyrir allmargar breyt-
ingar varð frumvarpið svo sem
engin fyrirmynd, en hafði þó
lagast og helstu vankantarnir
sniðnir af, einkum var staða
Fiskmatsráðs öðruvísi eftir
þær.
Eftir stendur að ráðið er nú
einungis ráðgjafar og umsagn-
araðili, en ekki stjórn stofn-
unarinnar og heldur ekki úr-
skurðaraðili í deilum, sem upp
kunna að koma. Eftirlitsmenn
fyrirtækja taka ekki þátt í yfir-
mati, heldur fylgjast með því,
eins og sjálfsagt er. Öll greinin
um framleiðsluleyfi er tekin út
og fleira lagað af því tæi.
Eins og sagt var í upphafi, er
ekki víst að lagabreyting nægi
til að bæta úr því sem ábótavant
hefur verið. Lögin sem fyrir
voru gátu svo sem vel dugað
áfram. Aðalatriðið er að slík
stofnun þarf að vera lifandi,
fylgist sem allra best með
vinnslu afla frá fyrsta stigi til
hins síðasta með vakandi auga
á kröfum markaðarins og
reglugerðir séu í stöðugri skoð-
un, en verði ekki áratuga
gamlar.
Fréttatilkynning
frá bæjarsjóði um
árlega hreinsunarviku,
dagana 27. maí til 2. júní
1984
Vikuna 27. maí til 2. júní
1984, verður hefðbundin
hreinsunarvika. Bæjarbúar eru
hvattir til að taka virkan þátt í
hreinsuninni og stuðla þannig
að fegrun umhverfisins.
Eins og undanfarin ár mun
bæjarsjóður hafa vörubifreiðar
í akrstri um bæinn til að fjar-
lægja rusl. Þeim aðilum, sem
þurfa að koma frá sér rusli eru
beðnir að safna því saman utan
lóðamarka, þar sem aðgengi-
legt er að hirða það og ganga
þannig frá því, að ekki sé hætta
á að það fjúki.
Jafnframt verður boðið upp
á að fjarlægja bílhræ og aðra
stærri hluti.
Æskilegt er, að lóðarhafi eða
fulltrúi hans verði viðstaddur
hreinsunina. Þeim, sem sjá um
flutning á brennanlegu rusli, er
bent á sorpbrennsluna austu'r á
hrauni. Bílhræjum og öðru ó-
brennanlegu rusli, skal ekið í
Helgafellsgryfju. Annars
staðar á Eyjunni, er með öllu
óheimilt að henda rusli.
Eftirfarandi skipulag verður
viðhaft:
Mánudaginn 28. maí: Svæð-
ið frá hraunjaðri til og með
Skólavegi neðan Kirkjuvegar.
Þriðjudaginn 29. maí: Svæð-
ið frá Skólavegi til og með
Illugagötu.
Miðvikudagur 30. maí:
Svæðið ofan Kirkjuvegar
Föstudagur 1. júní: Vest-
urbærinn
Allar nánari upplýsingar
verða veittar í síma 1093,
föstudaginn 25. maí og fyrr-
greinda daga milli kl. 14:00 og
17:00.
Allir bæjarbúar eru hvattir til
að nota helgina til hreinsunar
og nýta þetta tækifæri, til að
koma frá sér rusli og öðru því,
sem lýti er á umhverfinu og
taka þannig virkan þátt í
hreinsuninni og stuðla að
fegurra umhverfi.
Bæjarstjórinn
í Vestmannaeyjum
Sjá nánar í auglýsingu.
—G.S.
VESTMANNAEYJABÆR
Ákall til bæjarbúa
Arleg hreinsunarvika verður dagana 27. maí til
2. júní n.k. Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að
taka virkan þátt í hreinsun og fegrun umhverfis
síns.
Bent er á tilhögun hreinsunarvikunnar á
öðrum stað í blaðinu.
*
Aríðandi tilkynning
til þinggjaldenda
Samkvæmt ákvörðun Fjármálaráðuneytisins,
verða að kvöldi 4. júní reiknaðir dráttarvextir á
vangreidd þinggjöld.
Dráttarvextir eru nú 2,5% fyrir hvern mánuð
eða byrjaðan mánuð og reiknast þannig 5%
dráttarvextir á fyrirframgreiðslu þinggjalda er féll
í gjalddaga 1. maí sl.
Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum