Eyjablaðið - 24.05.1984, Side 4
4
EYJABLAÐIÐ
Vidtalid
Umsjón: Ragnar Óskarsson
„Við munum gera
endurheimta sætið
Knattspymuvertíðin er hafin. S.I. sunnudag gerði 2. deildarlið
ÍBY jafntefli við Víði frá Garði í fyrsta leik sumarsins. Þau úrslit
hefðu reyndar þurft að vera önnur en því verður auðvitað ekki
breytt. Hjá ÍBV liðinu er framundan heilt íslandsmót og þrotlaus
barátta fyrir því að endurheimta 1. deildarsætið sem tapaðist s.l.
haust. Einar Friðþjófsson er þjálfari ÍBV liðsins. Eyjablaðið tók
hann tali og ræddi við hann um fótboitann.
— Hvernig leggst sumarið í þig?
— Sumarið leggst vel í mig svo
framarlega sem strákarnir fara
út í leikina með það hugarfar að
þeir séu 2. deildarlið að spila
við 2. deildarlið en ekki 1.
deildarlið að spila við 2.
deildarlið. Strákarnir eiga eftir
að koma til en eins og þú veist
er mikil uppstokkun í liðinu og
auðvitað spurning hvort það er
alveg tilbúið í slaginn nú.
Einnig er mjög mikilvægt að
áhorfendur gefi þeim tækifæri
til að sýna hvað í þeim býr og
dæmi þá ekki óhæfa strax að
loknum fyrsta leik.
— Hve margir nýliðar eru í
liðinu?
— Það má segja að í hverjum
leik séu að meðaltali 5-6 nýir
svo menn geta séð að um mikla
uppstokkun er að ræða.
— í fyrsta leik sumarsins gerði
liðið jafntefli sem mörgum þótti
léleg frammistaða. Hvað viltu
segja um þessi úrslit og þann
leik?
— Ég held að strákarnir hafi
einfaldlega ekki gert sér grein
fyrir því að þeir hjá Víði kynnu
að spila fótbolta. Við vorum
búnir að vinna Skagann og það
steig öllum mjög til höfuðs.
Þessi úrslit ættu að kenna
okkur að það þarf að taka á til
þess að komast áfram í annarri
deild engur síður en í fyrstu
deild.
— Hvernig er andinn í liðinu?
— Ég get fullyrt að andinn
hefur verið mjög góður. Hins
vegar koma auðvitað alltaf upp
vandamál því ekki er unnt að
gera öllum til hæfis. Ungu
strákarnir í liðinu og þeir sem
meiri reynslu hafa hafa fallið
mjög vel saman, þeir eldri hafa
verið iðnir við að segja hinum
yngri til og þar fram eftir
götunum. Þess vegna kvíði ég
ekki áframhaldinu.
— Hvað viltu segja um hin liðin
í deildinni?
— Ég á í raun erfitt með að
svara þessu vegna þess að ég
hef ekki séð liðin spila nú í ár.
Hins vegar veit ég að við erum
ekki að spila við neina „sveita-
menn" því mörg liðanna hafa
mikla reynslu og geta reynst
hættulegir keppinautar.
— Er eitthvað eitt lið sem þið
óttist öðrum fremur?
— Ég býst við að FH og ísa-
fjörður verði okkar aðalkeppi-
nautar. Einnig má búast við því
að Víðir og Völsungar geti náð
langt. Mér finnst líklegt að
þessi fjögur lið ásamt með
okkur muni berjast um toppinn
þegar upp er staðið. Enda þótt
þessi lið séu þau sem við
óttumst mest er erfitt að slá
nokkru föstu svona fyrirfram
því allt getur gerst í fótbolta
eins og margoft hefur komið í
ljós.
— Oft er sagt að áhorfendur á
knattspyrnuleikjum hafi mikið
að segja og geti haft veruleg
áhrif á gang leikja. Er eitthvað
til í því?
ÍBV meistarar
meistaranna
Sunnud. 13. maí skrapp lið
ÍBV til Reykjavíkur til að spila
við íslands- og bikarmeistara
Akraness í Meistarakeppni
KSÍ á Melavellinum. Var talið
nánast formsatriði að spila
þennan leik því lið ÍBV leikur
eins og kunnugt er í 2. deild og
hafa misst fimm fastamenn úr
liðinu frá því í fyrra, en Skaga-
menn höfðu óbreyttan mann-
skap. Búist var því við að
Vestmannaeyingunum ungu
yrði rúllað upp af Morgun-
blaðsdrengjum Skagamanna,
en annað kom á daginn.
Leikurinn fór rólega af stað,
en jafnræöi var með liðunum í
fyrri hálfleik. Nokkur færi litu
dagsins Ijós og féllu þau flest í
hlut Skagamanna, en sem betur
fer virtist seni þeir hefðu
gleymt skotskónum í sements-
haug uppi á skaga. Það sést best
á því að þeir skoruðu eina mark
sitt með skalla, en þeim virtist
algerlega fyrirmunað að skora
með fótunum.
Seinni hálfleikur var mun
fjörugri. Fljótlega skoraði
Hlynur Stefánsson ágætis mark
eftir góðan undirbúning Sigur-
jóns Kristinssonar, sem átti
eftir að koma mikið við sögu í
þessum leik, en dómarinn
dæmdi markið ógilt og þótti
mörgum það undarlegur dóm-
ur.
En ekki lögðu Eyjamenn
árar í bát á annars mjög
pollóttum Melavellinum. Viðar
Elíasson átti gullfallega
sendingu á Sigurjón Krisinsson
sköntmu síðar, sem hljóp alla
skagavörnina af sér og skoraði
örugglega fram hjá Bjarna
ntarkverði. Aðeins tveim mín.
seinna var Sigurjón aftur á
ferðinni, núna með glæsisend-
ingu á Lúðvík Bergvinss sem
skoraði svo annað mark ÍBV á
skemmtilegan hátt. Nokkrum
allt til að
í 1. deild”
Einar Friðþjófsson
— Já, áhorfendur geta skipt
miklu máli. Það er afar mikil-
mín. síðar skoraði undrabarnið
Sigurður Jónsson með skalla
eftir hornspyrnu fyrir ÍA og
eftir þetta mark þyngdist sókn
þeirra mikið. En vörn ÍBV stóð
fyrir sínu og tókst að halda
fengnum hlut. Lokatölur ÍBV-
ÍA 2-1.
Það er óhætt að segja að lið
ÍBV hafi komið skemmtilega á
óvart í þessum leik og náð fram
sætum hefndum fyrir tapið í
úrslitaleiknum í Bikarkeppn-
inni í fyrra. En takmarkið í ár er
auðvitað að fara beint upp í 1.
deild aftur, en fólk má ekki
vera of kröfuhart. Fimm fasta-
ntenn hafa horfið á braut og í
þeirra stað hafa kornið ungir og
óreyndir leikmenn, flestir um
tvítugt.
2. deild
ÍBV-Víðir 2-2
Sl. sunnudag hófst svo
keppni í 2. deild. ÍBV fékk .þá í
heimsókn lið Víðis frá Garði,
en Víðir lenti í 3. sæti í 2. deild í
fyrra. Strekkingsvindur var
þegar leikurinn fór fram og
hafði töluverð áhrif. ÍBV hafði
vindinn í bakið í fyrri hálfleik,
en náði ekki að skapa sér nein
marktækifæri og var staðan 0-0
í hálfleik. Seinni hálfleikur var
ntun fjörugri og ekki leið á
löngu þar til tuðrunni hafði
verið bombað í netið. Eftir
ntikil mistök í vörn ÍBV náði
einn leikmanna Víðis boltanum
og lék óhindraður upp að marki
Eyjamanna og skoraði örugg-
lega 1-0 fyrir VÍði. Aðeins
fimrn mín. síðar jafnaði ÍBV.
Bergur átti þá góða fyrirgjöf
fyrir mark Víðis þar sem Kári
var á auðum sjó, en í stað þess
að skjóta sjálfur gaf hann á
Jonna sent var í enn betra færi
og skoraði örugglega. Ekki leið
á löngu þar til IBV skoraði
annað mark. Þórarinn átti
fallega sendingu á Kára sent
konist einn innfyrir vörn Víðis.
vægt að liðið sé hvatt til dáða og
á það ekki einungis við þegar
vel gengur heldur einnig og
ekki síður þegar illa gengur.
Skítkast sem sumir áhorfendur
láta sífellt frá sér fara þegar illa
gengur fer afar illa í leikmenn
og hefur slæm áhrif á gang
leikja. Mér finnst bæjarbúar
stundum vera ósanngjarnir í
dómum. Til dæmis má nefna að
ef liðið vinnur segir fólk
gjarnan: „Við unnum”, en ef
það tapar er sagt: „Þeir
töpuðu”. Ég legg mikla áherslu
á það að bæjarbúar séu sann-
gjarnir í dómum sínum ekki síst
nú þegar svo margir nýliðar eru
að byrja. Þá má ekki brjóta
niður með ósanngjörnum og
neikvæðum dómum.
— Æfiði stíft?
— Venjulega eru 4 æfingar í
hverri viku. Þetta eru bland-
aðar æfingar og spjall um síð-
asta leik og hvernig næsti leikur
skuli leikinn. Þegar við byrjuð-
um að æfa var lögð mikil
áhersla á þrekæfingar en nú er
höfuðáherslan lögð á æfingar
með boltann.
— Tekur liðið þátt í öðrum
Markvörðurinn varði, en það
kom ekki að sök því Sigurjón
fylgdi vel á eftir og skoraði
örugglega. Nú héldu flestir að
sigur ÍBV væri í öruggri höfn.
En 3 mín. fyrir leikslok fær einn
leikmanna Víðis óvænta gjöf
frá leikmönnum ÍBV, stendur
einn og óvaldaður á markteig
og rennir knettinum út á sam-
herja sinn sem einnig stóð einn
og yfirgefinn og hann átti ekki í
minnstu erfiðleikum með að
koma tuðrunni í netið. 2-2 urðu
því lokatölur leiksins.
Vissulega svekkjandi að
missa þarna 2 stig á mjög svo
klaufalegan hátt, en það kemur
dagur eftir þennan dag með
blóm í haga og allt það.
mótum en 2. deildarkeppninni?
— Já við tökum þátt í bikar-
keppni KSÍ og hefst fyrsti
leikurinn í henni n.k. miðviku-
dag er við leikum hér heima við
H.V. frá Akranesi. Að auki er
það svo Evrópukeppni bikar-
hafa og í hana verður dregið
núnaíjúlí. í þvísambandierum
við að vona að við fáum þekkt
lið sem andstæðing en fram til
þessa hefur heppnin ekki verið
með okkur í þeim efnum. Fram
til þessa hafa heimaleikir okkar
í Evrópukeppninni allir verið á
Reykjavíkursvæðinu en nú
standa vonir til að við getum
notað Hásteinsvöllinn sem
okkar heimavöll.
— Hverju spáir þú um úrslitin í
2. deild Islandsmótsins?
— Eg vil engu spá en við
munum gera allt til að endur-
heimta 1. deildarsætið enda er
það afar mikilvægt fyrir framtíð
knattspyrnu í Vestmanna-
eyjum. En til þess að svo megi
verða verða allir Eyjabúar að
standa þétt saman og hvetja
strákana með jákvæðu hugar-
fari. Það er besti styrkurinn sem
hægt er að veita liðinu.
Viðtal: R.Ó.
Næsti leikur
Næsti leikur ÍBV í 2. deild er
nk. laugardag við KS (Siglu-
fjörð). Vonandi fjölmenna
bæjarbúar á völlinn þrátt fyrir
nokkur vonbrigði með síðasta
leik.
V estm.eyjamótið
í yngri flokkunum
Hér eru úrslit í seinustu
leikjum:
3. fl. Týr-Þór 1-0
4. fl. A Týr-Þór 1-1
4. fl. B Týr-Þór 2-0
5. fl. A Týr-Þór 2-1
5. fl. B Týr-Þór 2-0
Nokkurt hlé verður nú gert á
Vm.-mótinu því 3„ 4. og 5. fl.
byrja nú á næstunni í íslands-
mótinu. Vm-mótið í 6. og 7. fl.
hefst hinsvegar með pompi og
pragt 9. júní.
—ÞoGu
Atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna
Nú í þinglokin runnu í
gegn frumvörp um atvinnu-
réttindi skipstjórnarmanna
og vélstjóra, þrátt fyrir
mikla andstöðu.
Að vísu hafði ráðherra
gert nokkrar breytingar og
frestað gildistöku nokkurra
ákvæða, en eftir stendur
það, að slakað er á mennt-
unarkröt'um skipstjórnar-
manna á sama tíma og sífellt
er krafist aukinnar mennt-
unar á nær öllum sviðum
þjóðlífsins.
í sumum tilfellum ganga
slíkar kröfur að vísu allt of
langt, en afleitt hlýtur að
teljast, að draga úr kröfum,
þegar um sjómenn er að
tefla.
Jafnt og þétt hefur verið
gengið á hlut fiskimanna á
undanförnum misserum,
bæði með aukinni kostnað-
arhlutdeild með bráða-
birgðalögum frá í fyrravor
og með tilfærslu út-
flutningsgjalds til útgerðar
nú í vetur.
Nú á að ganga á mennt-
unarkröfur sjómanna og
vanvirða með því sjómanns-
starfið.
Á hausti komanda hlýtur
að verða mikil umræða um
þessa hluti, og vonandi tekst
að koma í veg fyrir að slíkt
hugarfar verði ráðandi, eins
og kentur fram í frumvörp-
um þeim, sem urðu að lög-
um á mánudaginn var.
—G.S.