Eyjablaðið - 15.11.1984, Page 4
Vidtalkf
Umsjón: Ragnar Óskarsson
Trú mín á
fyrirtækið vex
með hverjum degi
sem líður
í september s.I. tók til starfa í Vestmannaeyjum verksmiðja sem
framleiðir kerti undir merkinu Heimaey. Verksmiðja þessi er
nokkuð sérstök m.a. vegna þess að hún er verndaður vinnustaður
þar sem þeir vinna sem öðru jöfnu eru ekki gjaldgengir á hinn
almenna vinnumarkað. Bjarni Jónasson veitir verksmiðjunni for-
stöðu. Eyjablaðið tók hann tali nú á dögunum og spurði hann um
starfsemina.
— Við erum hérna með vélar
sem keyptar eru frá Danmörku
en með þeim má framleiða
bæði steypt og dýfð kerti. Eins
og þú sérð er starfsemin ekki
alveg komin í fullan gang og nú
sem stendur framleiðum við
einungis dýfð kerti.
— Hvað vinna hér margir?
— Nú vinna hér 12-15 manns á
tvískiptum vöktum. Aðallega
er um að ræða fólk sem býr við
skerta starfsorku en þrátt fyrir
það get ég fullyrt að það vinnur
mjög vel.
— Er framtíð í fyrirtæki eins og
þessu?
— Já, tvímælalaust. varan sem
við framleiðum er góð, mark-
aðurinn tekur vel við og verðið
er fyllilega sambærilegt við það
Pennavinur
Eyjablaðinu hefur borist bréf
frá Svíþjóð þar sem óskað er
eftir vestmanneyskum penna-
vini sem áhuga hefur á skiptum
á frímerkjum.
Nafn og heimilisfang er:
March Laumer
Trollebergsvágen 93 A 2
22231 Lund
Sverige
Bjarni Jónasson
sem gerist hjá öðrum fram-
leiðendum. Ég held að þetta
allt bendi einfaldlega til þess að
fyrirtækið á framtíð fyrir sér.
— Eru framleiddar margar teg-
undir kerta?
— Við framleiðum nú sem
stendur 5 útgáfur af dýfðum
kertum í 20 litum. Mjög bráð-
lega förum við svo að framleiða
steypt kerti, bæði úti- og inni-
kerti í öllum stærðum.
— Hvar er markaður fyrir
framleiðsluna?
— Markaðurinn er bæði hér og
uppi á landi og að auki höfum
við sent á erlendan markað.
— Hefurðu hugmynd um
hvernig kertunum hefur verið
tekið?
— Já, kertunum hefur verið vel
tekið bæði hér og úti á landi.
Ýmsir aðilar sem hafa keypt af
okkur kerti hafa hringt í okkur
og hrósað framleiðslunni og ég
held að ekki verði neinum
vandkvæðum bundið að vinna
aukinn markað, því gæðin sjá
um það.
— Hvað er svona gott við
Heimaeyjarkertin?
— Þaö er margt. Þau hafa
langan brennslutíma, renna
hvorki né sóta og eru gegnum-
lituð. Svo er auðvitað það sem
kannski skiptir mestu máli,
kertin eru dýfð og dýfð kerti
eru tvímælalaust betri en
önnur.
— Hvaða litir eru vinsælastir?
— Rautt og hvítt, í það minnsta
fyrir íslendinga.
— Hve mikil hefur framleiðslan
Túrneringar
yngri flokkanna
Handboltavertíðin hjá yngri
flokkunum hófst s.l. helgi, en
þá fór fram fyrsta túrnering
vetursins. Árangur flokkanna
var í flestum tilfellum við-
unandi, en þar bar hæst glæsileg
frammistaða 3. flokks Þórs
kvenna, en þær unnu alla leiki
sína í riðlinum, og það með
miklum yfirburðum. Hlutu þær
8 stig úr fjórum leikjum, og Týr
hlaut 6 stig og er í 2. sæti.
Innbyrðisleikur Eyjaliðanna
lyktaði 7-4 Þórs-stúlkunum í
hag.
3. flokkur karla olli nokkrum
vonbrigðum því bæði Eyjaliðin
hafa þar á að skipa mjög góðum
liðum. Týr er í 2.-3. sæti með 6
stig en Þór er í 4, sæti með 5
stig. Innbyrðisleik Eyjalið-
anna lyktaði með jafntefli 11-
I 1.
4. flokkur Týs stóð sig með
miklum sóma. Þeir eru í 1.-2.
sæti ásamt Ármanni með 8 stig.
Þór er með 5 stig og er í 3.-4.
sæti. Innbyrðisleik Eyjaliðanna
lyktaði með sigri Týs 9-5.
5. flokkur stóð sig ágætlega.
Þór er í 2.-3. sæti með 6 stig en
Týr er í 4.-5. sæti með 4 stig.
Innbyrðisleikinn vann Þór 4-0.
Af þessari upptalningu má
sjá að handboltinn hér í Eyjum
er á uppleið. í flestum aldurs-
flokkum eru bæði Eyjaliðin í
toppbaráttunni, þannig að
breiddin í handboltanum hér í
Eyjum er gífurlega mikil og við
þurfum vart- að kvíða framtíð-
inni. —ÞoGu.
verið frá því að hafist var
handa?
— Við erum búin að framleiða
um 6 tonn. Á hverjum degi
vinnum við uppúr um 350 kg af
hráefni. Búið er að selja megn-
ið af þessari framleiðslu nú
þegar og á laugardaginn var
fóru t.d. 70 kassar á Reykja-
víkursvæðið.
— Þú sagðir áðan að þið selduð
eitthvað til útlanda. Er um veru-
legt magn að ræða?
— Við fengum pöntun frá Sví-
þjóð á 80 þúsund kertum rétt
fyrir verkfall og okkur tókst þá
að senda þeim 44 þúsund
stykki. Ég er reyndar þessa
dagana að leita að markaði í
Bandaríkjunum og bind ég
nokkrar vonir við þá leit m.a.
vegna þess að þeir sjálfir fram-
leiða léleg kerti. Auðvitað mun
framtíðin ein leiða þessi
markaðsmál í ljós en ég er langt
frá því að vera smeykur í þeim
efnum.
— Hefur vinnslan fram til þessa
gengið samkvæmt áætlun?
— Já. Auðvitað urðu smá
byrjunarörðugleikar eins og
gengur. Dýfingarvélin fékk
sína barnasjúkdóma en þetta er
allt komið í gott lag núna.
Gylfi með
21 árs landsliðinu
Gylfi Birgisson frá Þór lék
með íslenska landsliðinu U-21
árs á Norðurlandamótinu í
Noregi. Varð hann annar
Vestmannaeyingurinn til að
klæðast landsliðspeysu 21 árs
landsliðsins, en Sigmar Þröstur
Óskarsson varð sá fyrsti. Þrátt
fyrir slakt gengi landsliðsins, þá
stóð Gylfi sig mjög vel, skoraði
m.a. 8 mörk í eins marks sigri
yfir Noregi. Er Gylfi vel að
þessari viðurkenningu kominn,
því hann hefur sýnt og sannað
að hann er einn sá efnilegasti
handboltamaður sem komið
hefur fram á sjónarsviðið á
landinu að undanförnu. Óska
ég Gylfa til hamingju með
þennan áfanga. —ÞoGu.
Yaldir í æfingahóp
landsliðsins
Fjórir ungir og efnilegir
handboltamenn héðan úr
Eyjum voru valdir í æfingahóp
unglingalandsliðs íslands í
handbolta (18 ára og yngri).
Það eru þeir Hörður Pálsson
Týr, Sigurður Friðriksson Þór,
Gunnar Leifsson Þór og Adólf
Óskarsson Þór. Þá er hinn efni-
legi markvörður Þórs, Viðar
Einarsson, sterklega inn í
myndinni, en hann hefur átt við
minni háttar meiðsli að stríða.
Á verkefnaskrá unglingalands-
liðsins er Norðurlandamót sem
haldið verður fljótlega á næsta
ári. Er vonandi að það bætist þá
við nokkrir landsliðsmenn til
— Einhver sagði mér að þú
hefðir hannað merki fyrirtækis-
ins. Er það satt?
— Jú, einhver varð að gera það.
— Hvaða skoðun hefur þú á
vernduðum vinnustað?
— Ég hafði í raun ákaflega
lítinn áhuga á þess háttar fyrir-
bæri en eftir að ég tók þetta
starf að mér varð mér ljóst að
verndaður vinnustaður er
mikils virði og trú mín á fyrir-
tækið vex nú með hverjum degi
sem líður. Fólkið sem vinnur
hér virðist vera ánægt. Það
vinnur vel og er áhugasamt og
vitna afköstin best um það.
— Þú ert sem sé bjartsýnn?
— Já ég hef ekki ástæðu til
annars. Ég vona líka að Eyja-
búar standi vörð um þetta fyrir-
tæki því það tryggir því tilveru.
Eg held reyndar að almenning-
ur hér hugsi nú þegar hlýlega til
fyrirtækisins. Því til stuðnings
get ég nefnt að um síðustu helgi
seldu J.C. menn 10 þúsund
kerti víðs vegar um bæinn. Það
var góður árangur og þar fengu
Vestmannaeyingar svo sannar-
lega góða vöru.
—Viðtal: R.Ó.
að auka hróður Vestmannaeyja
enn frekar. —ÞoGu.
Næstu leikir
Annar leikur Þórs í hinni
hörðu keppni 1. deildar fór
væntanlega fram í Hafnarfirði í
gærkvöldi, en þá áttu Þórarar
að heimsækja íslandsmeistara
F.H. Þar sem blaðið fór svo
snemma í prentun höfum við
ekki tök á að birta úrslit
leiksins. Fyrsti heimaleikur
Þórs verður 21. nóvember eða
n.k. miðvikudag, við bikar-
meistara Víkings, en eins og
kunnugt er spilar Þorbergur
Aðalsteinsson með Víking, en
hann þjálfaði einmitt Þór s.l.
keppnistímabil.
Næsti leikurTýsí 3. deildinni
verður á morgun, föstudags-
kvöld kl. 20:00, en þá fær Týr
Selfoss í heimsókn. Eru hand-
boltaáhugamenn hvattir til að
mæta í höllina á fyrsta heima-
leik Týs í 3. deildinni og horfa á
strákana hans Kjartans taka
Selfyssingana í karphúsið.
Þá hefur verið dregið í
Bikarkeppni H.S.Í. Þórarar
þurfa að skreppa í höfuð-
borgina og leika við K.R., en
Týr fær nýliða Í.H. í heimsókn.
Þá dróst 2. flokkur Þórs einnig
gegn K.R. en 2. flokkur Týs
tekur ekki þátt í Bikarkeppn-
inni.
Næsti leikur meistaraflokks
Í.B.V. kvenna í I. deildinni
verður n.k. miðvikudag hér
heima gegn Víking. Hvet ég
bæjarbúa til að fjölmenna í
höllina. —ÞoGu.
Af flokksstaifinu
Árshátíð
Laugardaginn 27. okt. sl. hélt Alþýðubandalag Vestmannaeyja
árshátíð sína í Alþýðuhúsinu. Hátíðin var hin glæsilegasta og sóttu
hana um 100 manns. Margt var til skemmtunar og dansað var fram
eftir nóttu.
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi
var haldinn á Selfossi 3. og 4. nóv. sl. Á fundinum voru fjölmörg
mál tekin fyrir auk venjulegra aðalfundarstarfa. Ný stjórn
kjördæmisráðs var kosin og er hún þannig skipuð:
Aðalstjórn:
Ármann Ægir Magnússon, formaður
Anna K. Sigurðardóttir, varaform. og gjaldkeri
Unnar Þór Böðvarsson, ritari
Varastjórn:
Margrét Gunnarsdóttir
Elín Oddgeirsdóttir
Gyða Sveinbjörnsdóttir
Flokksráðsfundur
Dagana 16.-18. nóv. verður Flokksráðsfundur Alþýðu-
bandalagsins haldinn í Reykjavík í flokksmiðstöð Alþýðu-
bandalagsins að Hverfisgötu 105.
Héðan frá Eyjum fara 4 fulltrúar á fundinn.