Eyjablaðið - 17.01.1985, Qupperneq 2
' EYJABLAÐIÐ '
Edda Tegcdcr Ritnefnd: Sveinn Tómasson
Elías Bjömsson Raenar Óskarsson (áhm.)
Oddur Júlíusson Inga Dröfn Ármannsdóttir
Ámiann Bjarnfrcösson Baldur Böövarsson
Útgefandi: Alþýöuhandalagiö i Vestmannaevjum
Tölvusetning og offsctprcntun Evrnn h.t. \ m
J
Heillum horfin ríkisstjórn
íþróttir
Umsjón: Þorsteinn Gunnarsson
Þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var
mynduð á sínum tíma bundu menn við hana talsverðar
vonir. Það var m.a. vegna þess að stjórnin taldi sig búa
yfir ýmsum meðulum sem beita mætti til þess að koma
efnahagsmálum þjóðarbúsins á trausta fætur. í
nokkurn tíma naut stjórnin verulegs fylgis en það fylgi
hefur síðan farið minnkandi og nú fer ekki á milli mála
að núverandi ríkisstjórn er ein sú óvinsælasta sem setið
hefur hér á landi.
En hvað veldur því að ríkisstjórnin sem naut víðtæks
stuðnings almennings er orðin eins óvinsæl og raun ber
vitni um? Svarið er fyrst og fremst tvíþætt. Annars
vegar hefur henni gersamlega mistekist stjórn efna-
hagsmála og hins vegar hefur hún svikið kosninga-
loforðin stóru sem bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn gáfu fyrir síðustu Alþingiskosningar.
í efnahagsmálum lagði ríkisstjórnin höfuðáherslu á
að minnka þá verðbólgu sem í mörg ár hefur hrjáð
íslenskt efnahagslíf. Að vísu er unnt að sýna með tölum
að verðbólgan hefur minnkað en eru einungis falskar
tölur á ferðinni, tölur sem fengnar eru samfara leiftur-
sókn að lífskjörum almennings í landinu. Hin raunveru-
lega verðbólga geisar áfram af fullum krafti.
Ríkisstjórnin státaði sig af því að smíða traust fjárlög.
En reyndin varð önnur því þegar upp var staðið kom í
ljós hið margumtalaða fjárlagagat sem seinna var
saumað í með auknum erlendum lántökum, sjúklinga-
skatti og fleiru. Þeir menn sem töldu sig snillinga í
efnahagsmálum gátu sem sé ekki smíðað gatalaus
fjárlög.
Eitt var það mál sem ríkisstjórnin lagði ofurkapp á en
það var að gefa vextina frjálsa. Sú aðgerð átti að bjarga
ótrúlega miklu. En hver varð raunin? Nú eru vextir að
sliga lántakendur. Hinir ,,frjálsu” vextir eru svo háir að
t.d. þeir sem eru að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið
sjá enga leið til þess að standa í skilum með skuld-
bindingar sínar og verða vanskilamenn af þeim sökum.
Hinir frjálsu vextir hafa sem sé algerlega brugðist, þeir
íþyngja í stað þess að hjálpa. Nauðungaruppboðin eru
e.t.v. besta dæmið þar um. Þetta er enn eitt dæmið um
efnahagssnilli ríkisstjórnarinnar.
Hver man ekki eftir öllum kosningaloforðunum sem
ríkisstjórnarflokkarnir gáfu fyrir síðustu alþingis-
kosningar? Þar var miklu lofað en minna hefur orðið
um efndir. í þessu sambandi nægir eitt dæmi þótt af
mörgum sé að taka. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur lofuðu stórauknum lánum til íbúða-
bygginga og íbúðakaupa fyrir síðustu kosningar.
Tryggja átti 80% lánshlutfall sem hefði komið mjög til
góða því fólki sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið,
ekki síst ungu fólki. En þetta kosningaloforð hafa
ríkisstjórnarflokkarnir svikið með þeim afleiðíngum að
ástandið í húsnæðismálum er verra og alvarlegra en
löngum áður því lánshlutfallið er ekki nema örlítið brot
af því sem lofað var. Þá hefur ríkisstjórnin og svikið
loforð þau sem hún gaf húsnæðissamvinnufélögum um
sérstök lán og lækkaði sérstaklega hlutfall lána út á
verkamannabústaði.
Þegar þannig er komið fyrir ríkisstjórn að henni
hefur mistekist í sínum stærstu málum og svikið þau
fyrirheit sem hún gaf i upphafi er ekki nema von að
almenningur snúi við henni baki og það hefur almenn-
ingur gert gagnvart ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar sem nú situr í andstöðu við fólkið í landinu.
—R.Ó.
önnur túrnering
2. flokks karla
S.l. helgi fór fram önnur
túrnering í íslandsmóti 2.
flokks karla í handknattleik.
Fyrir þessa túrneringu voru
Eyjaliðin í 2. og 3. sæti riðils
síns, en tvö lið komast í úrslit og
áttu þau því m jög góða mögu-
leika á að komast þangað. En
þessi möguleiki stórminnkaði í
þessari túrneringu, því það
voru KR-ingar sem voru í næst-
neðsta sæti fyrir túrneringuna,
sem stálu senunni. Þeir unnu
alla sína leiki og það mjög auð-
veldlega. Týr, sem hafði verið í
öðru sæti, fór í 3. sæti fyrir
vikið, og Þór fór í það fjórða.
Úrslit Eyjaliðanna urðu þessi:
Týr-Valur 14-16
Týr-KR 10-16
Týr-Selfoss 13-11
Týr-Þór 14-10
Þór-Valur 8-22
Þór-KR 8-15
Þór-Selfoss 16-12
„Derby” leikurinn milli
Eyjaliðanna var hnífjafn
framan af. En undir lok fyrri
hálfleiks náðu Týrarar tveggja
marka forskoti. Héldu þeir því
út allan leikinn og juku það um
tvö mörk í viðbót undir lokin,
þegar Þórarar freistuðu þess að
leika maður á mann. Lokatölur
14-10, Tý í vil.
Staðan fyrir þriðju og síðustu
túrneringuna sem haldin
verður hér í Eyjum 10. og 11.
febrúar n.k. er þannig.
Valur 14 stig
KR 11 stig
Týr 9 stig
Þór 6 stig
Selfoss 1 stig
—ÞoGu.
önnur túrnering 2.
flokks kvenna
S.l. helgi fór einnig fram
önnur túrnering 2. flokks
kvenna í íslandsmótinu í hand-
knattleik hér í Eyjum. 2. fl. ÍBV
stóð sig með miklum ágætum
en þarna er á ferð geysilega
efnilegur tlokkur. Sem dæmi er
aðeins ein af þessum stúlkum á
elsta ári. Verður því að halda
vel á spilunum til að það megi
rætast sem best úr þessum
flokki. Úrslitin í 2. umferðinni
urðu annars þessi:
ÍBV-HK 20- 5
ÍBV-Njarðvík 15- 2
ÍBV-Stjarnan 8-15
ÍBV-Víkingur 7-10
Víkingur trónir á toppnum í
þessurn riðli en Stjarnan og
IBV eru ekki langt á eftir.
3. og síðasta umferðin verður
svo 9. og 10. febrúar í Reykja-
vík. —ÞoGu.
Túrneringar
yngri flokkanna
Næstu túrneringar yngri
flokkanna verða nú um helg-
ina. 3. flokkur kvenna leikur í
Hafnarfirði. Þór trónir þar á
toppnum í sínum riðli með 8
stig en í 2. sæti er Týr með 6
stig.
3. flokkur karla leikur í
Reykjavík. Týr er þar í 2.-3.
sæti með 6 stig en Þór er í 4. sæti
með 5 stig.
4. flokkur karla leikur hér í
Eyjum. Týr er þar í 1.-2. sæti í
sínum riðli með 8 stig ásamt
Armanni, en Þór er í 3.-4. sæti
með 5 stig.
5. flokkur karla leikur í
Borgarnesi. Þór er í 2.-3. sæti
með 6 stig en Týr er í 4.-5. sæti
með 4 stig.
3. og síðasta umferðin verður
svo 16.-17. febrúar.
Óska ég öllum flokkunum
góðs gengis um helgina.
—ÞoGu.
Næstu leikir
í handboltanum
Áttundi leikur Þórs í hinni
hörðu keppni 1. deildar fór
væntanlega fram í Reykjavík í
gærkveldi, en þá áttu Þórarar
að heimsækja Þróttara. Þarsem
blaðið fór svo snemma í prent-
un höfum við ekki tök á að birta
úrslit Ieiksins. Þessi leikur var
geysilega mikilvægur fyrir Þór-
ara í hinni hatrömmu fallbar-
áttu 1. deildar. En nú í vikunni
urðu Þórarar fyrir miklu áfalli.
Hinn snjalli Gylfi Birgisson
meiddist á fæti og var settur í
gifs. Verður hann frá í a.m.k. 3
vikur.
Staðan á botninum er mjög
tvísýn. Þór, Þróttur og Stjaman
hafa öll 6 stig, en U.B.K. hefur
aðeins 2 stig. Þór og Þróttur
hafa leikið 7 leiki en Stjarnan 6.
N.k. sunnudag skreppa Þór-
arar aftur upp á fastalandið. Þá
heimsækja þeir Stjörnuna og
hefst sá leikur kl. 20:00.
N.k. miðvikudag hefst svo
bikarkeppnin. Þór fær þá KR í
heimsókn í 16 liða úrslitunum.
Næsti leikurTýsí 3. deildinni
verður föstudaginn 25. jan. Týr
trónir á toppnum í sínum riðli
og fátt virðist ætla að koma í
veg fyrir að þeir komist í úrslit.
En nú hafa þeir misst Sigur-
lás Þorleifsson sem er farinn til
Svíþjóðar, þannig að róðurinn
gæti orðið þungur þegar í úr-
slitin er komið. En að sjálf-
sögðu vonum við hið besta og
óska ég Týrurum áfram-
haldandi velgengni í 3. deild-
inni.
Næsti leikur meistaratlokks
kvenna ÍBV í 1. deildinni
verður á morgun (föstudag) kl.
20:00 hér í Eyjum, við Fram.
Stúlkurnar eru í næst neðsta
sæti þannig að það er mikilvægt
að þær fái a.m.k. eitt stig í
þessum leik. Hvet ég bæjarbúa
að fjölmenna í Höllina og
hvetja stúlkurnar til sigurs í
þessum mikilvæga leik.
—ÞoGu.
Æfingar hafnar
hjá ÍBV
Æfingar eru hafnar hjá
meistaraflokki ÍBV fyrir 2.
deildina í sumar. Æfingapró-
grammið í stuttu máli fyrir
veturinn er þannig að í janúar
verða 4 æfingar (á fimmtu-
dögum kl. 18:30), í febrúar
verða 12 æfingar (mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl.
18:30), í mars verða 16 æfingar
(fimmtudagar bætast við) og í
apríl verða 14 æfingar (mánu-
daga, þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 18:30) ásamt fjórum
æfingarleikjum. í maí hefst svo
íslandsmótið. Ekki er reiknað
nreð að mörg ný andlit bætist í
hópinn fyrir keppnistímabilið.
Vitað er þó um Svein Sveinsson
og Þórir Ólafsson. Ekki er
reiknað með að einhverjir leik-
menn yfirgefi ÍBV fyrir n.k.
keppnistímabil. —ÞoGu.