Eyjablaðið - 28.02.1985, Page 1
EYJABLA
Úígefandi:
Alþvðuhandalagið
^ í Vestmannaeyjum
3. tölublað
Vestmannaeyjum, 28. febrúar 1985
45. árgangur
Breytingartillögur
minnihlutans
felldar
• Minni verklegar framkvæmdir
• Meiri eyðsla
• Sorpeyðingarstöð í biðstöðu
• Framtíðaríþróttasvæði í biðstöðu
Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu var
fjárhagsáætlun fyrir bæjarsjóð Vestmannaeyja og stofn-
anir hans afgreidd við síðari umræðu hinn 20. feb. s.l.
Minnihluti bæjarstjórnar gerði viðamiklar breytingar-
tillögur við fjárhagsáætlunina en meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn felldi þær flestar. Lítum á
nokkrar tillögur sem sjálfstæðismenn voru svo áfjáðir í
Hærra innheimtu-
hlutfall — betri
að fella.
Uggvænleg þróun
í meðfylgjandi töflu birtist íbúaþróun á íslandi milli áranna
1983 og 1984 (miðað við 1. des.) eftir kjördæmum. Það sem
athygli hlýtur að vekja er einkum það að ekkert kjördæmi úti á
landsbyggðinni að Reykjaneskjördæmi undanskildu nær lands-
meðaltali hvað íbúafjölgun snertir. Höfuðborgarsvæðið bólgnar
hins vegar út á kostnað landsbyggðarinnar.
1. des. ’83 1. des. ’84 Breyting Breyting
Gatnagerð
I tillögum minnihlutamanna
var gert ráð fyrir allverulegu
átaki í gatnagerð. Gert var ráð
fyrir gatnagerðarframkvæmd-
um fyrir 30 milljónir króna en
fyrir þá upphæð hefði mátt
standa fyrir framkvæmdum í
samræmi við áætlanir um að
ljúka varanlegri gatnagerð í
Vestmannaeyjum árið 1987.
Með því að fella tillögur minni-
hluta bæjarstjórnar liggur hins
vegar ljóst fyrir að næstum
ógerlegt verður að standa við
áætlanir og fyrirheit í þessum
efnum.
Aðhald í rekstri
Við minnihlutamenn
gerðum tillögur um aðhald í
rekstri á ýmsum sviðum og
bentum á að með því að gæta
aðhalds mætti verja fé til ýmissa
verkefna svo sem starfsmanna-
íbúða fyrir Sjúkrahúsið, bruna-
varnakerfis í Safnahúsi o.fl.
Þessar tillögur náði ekki fram
að ganga, Ekki náði heldur
fram að ganga tillaga okkar
minnihlutamanna um fram-
tíðaríþróttasvæði en allt of
lengi hefur verið sofið á því
máli og mun svo verða enn um
sinn.
Sorpeyðingarstöð
Þrátt fyrir það að mikið hafi
áunnist við að byggja sorp-
brennslu austur á Hrauni liggur
ljóst fyrir að nauðsynlegt er að
hefjast handa nú þegar um
byggingu varanlegrar sorp-
eyðingarstöðvar. Gryfjurnar
austurfrá eru í raun aðeins
bráðabirgðalausn. í fjárhags-
áætlun gerðum við minnihluta-
menn því ráð fyrir kr. 200.000
til þess að hefja nauðsynlega
undirbúningsvinnu við hönnun
nýrrar sorpeyðingarstöðvar.
Tillagan var felld svo enn
verður dráttur á því að hér
verði byggð sorpeyðingarstöð.
skil útsvars
í tillögum minnihlutans var
einnig gert ráð fyrir því að unnt
yrði að afla meiri tekna í gegn-
um útsvar og aðstöðugjöld án
þess þó að hækka álögur á
bæjarbúa. Við bentum á í því
sambandi að raunhæft væri t.d.
að gera ráð fyrir hærra inn-
heimtuhlutfalli enda væri engin
goðgá að ganga harðar að þeim
sem skulda í hinn sameiginlega
sjóð. Þeir sem skulda eru ekki
almennt launafólk því það
stendur undantekningalítið í
skilum með sitt. Hér er um að
ræða þá sem betur mega sín og
engin ástæða er til að hlífa. Þá
bentum við minnihlutamenn á
að í ár mætti gera ráð fyrir betri
skilum útsvars, þ.e. menn
veigruðu sér frekar við að stela
undan skatti eftir þær upp-
ljóstranir sem birtar voru opin-
berlega síðastliðið sumar. Allar
þessa hugmyndir okkar fengu
vægast sagt afar lítinn hljóm-
grunn.
Eftir stendur fjárhagsáætlun
Sjálfstæðisflokksins. —R.Ó.
Reykjavík 87106 88505 tala 1399 % 1,61
Reykjaneskjördæmi 55201 56202 1001 1,81
Vesturlandskjördæmi 15089 14974 -4-115 4-0,76
Vestfjarðakjördæmi 10414 10418 4 0,04
Norðurland vestra 10699 10769 70 0,65
Norðurland eystra 26160 25982 -4-178 4-0,68
Austurlandskjördæmi 13120 13095 h-25 4-0,19
Suðurlandskjördæmi 20072 20140 68 0,34
Óstaðsettir 33 37 4
Fjölgun:
Höfuðborgarsvæðið 128221 130485 2264 1,77
Önnur sveitarfélög 109673 109637 4-36 4-0,03
„Seljiði bara”
Ég er einn af þeim mönnum
sem tóku upp á því fyrir nokkru
síðan að byggja mér hús. Ég hef
ekkert rosalega háar tekjur svo
að þetta hefur nú verið hálfgert
basl. Ég og konan höfum reynt
að lækka byggingarkostnaðinn
með því að vinna mikið sjálf í
byggingunni og stundum hjálpa
vinir mínir mér með ýmislegt.
En þrátt fyrir það að maður
hefur lagt sig allan fram við að
koma þessu upp þá er ég hrein-
lega að gefast upp á öllu saman.
Sjálfstæðismenn
hafna fyrir-
byggjandi starfi
Ein þeirra tillagna minni-
hluta bæjarstjórnar sem sjálf-
stæðismenn felldu við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar var
þess efnis að veitt yrði 60.000
kr. í svokölluð sérstök verkefni.
Tillagan miðaði að því að féð
skyldi notað til fyrirbyggjandi
starfs vegna fíkniefnaneyslu og
sem framlag til verklegrar
kennslu og stuðningskennslu
sem beinist að því að koma
unglingum, sem eiga við félags-
leg vandamál að stríða, í tengsl
við vinnumarkaðinn.
Upphæðin er ekki há og fyrir
hana er ekki mikið unnt að gera
og allra síst eitthvert krafta-
verk. Hins vegar hefði hún
nægt til að undirbúa ýmsar
fyrirbyggjandi aðgerðir til
hjálpar þeim sem við félagsleg
vandamál eiga að stríða.
Meirihluta Sjálfstæðisflokks-
ins finnst engin ástæða til þess að
veita fé til slíkra verkefna og er
það útaf fyrir sig umhugsunar-
vert ekki síst fyrir ungt fólk nú á
alþjóðaári æskunnar.
—R.Ó.
Ástæðan fyrir því er að lánin
sem ég varð að taka vegna
hússins á sínum tíma eru alveg
að drepa mig. Þessi vísitölu-
binding er svo vitlaus að það er
ekki fyrir nokkurn mann, í það
minnsta ekki venjulegan mann
eins og rnig, að standa í skilum.
Þetta er samdóma álit allra sem
hafa tekið lán til húsbygginga
eða húsakaupa að undanförnu.
En það sem er verst í dæminu
er að þeir sem ráða ferðinni í
landinu vilja ekki viðurkenna
að vísitölukerfið er alveg snar-
vitlaust og þær reddingar sem
ríkið ætlar nú að gera fyrir
okkur sem erum í vanskilum
eru bara út í bláinn og ekkert
annað en gálgafrestur.
Grátlegast við þetta allt var
þó að heyra ráðleggingar for-
sætisráðherrans í sjónvarpinu
um daginn þegar hann sagði
okkur að selja bara húsin sem
við værum að basla við að koma
upp og þar með væri vandinn
leystur. Þessar ráðleggingar
ráðherrans sína vanþekkingu
hans á húsnæðismálum og
einnig ótakmarkað virðingar-
leysi fyrir þeim sem leggja á sig
ómælt erfiði til þess að koma
sér þaki yfir höfuðið. Og mér er
spurn, hver hefur efni á að
kaupa af okkur húsin og taka
að sér afborganirnar?
Kannski Steingrímur, en
hann getur aveg verið viss um
að ekkert venjulegt fólk hefur
efni á því. —Launamaður.
Aldar-
minning
Brynjúlfs
Sigfússonar
I tilefni aldarminningar
Brynjúlfs Sigfússonar verður
haldin samkoma föstudaginn 1.
mars kl. 21:00 í Safnahúsinu.
Flutt verða lög eftir Brynjúlf af
kór Landakirkju, Geir Jón
Þórissyni og félögum úr Lúðra-
sveit Vestmannaeyja. Ræður
flytja Haraldur Guðnason og
Þorsteinn Sigurðsson.
Fréttatilkynning frá
undirbúningsnefnd.
Félag Norð-
lendinga
Aðalfundur Félags Norð-
lendinga* í Vestmannaeyjum
var haldinn 8. febrúar s.l. á
Skútanum. Fundinn sátu 17
félagsmenn, en í félaginu eru
u.þ.b. 100 manns. Formaður
var kosinn Guðmundur Búa-
son. Aðrir í stjórn eru: Vara-
formaður Hjörtur Hermanns-
son, gjaldkeri Jóhann Ólafsson,
ritari Sveininna Bjarkardóttir
og meðstjórnandi Unnur
Alexandersdóttir.
Eftirtaldir voru kosnir í
skemmtinefnd: María Vil-
hjálmsdóttir, María Friðriks-
dóttir. Arnfinnur Friðriksson,
Þórður Rafn Sigurðsson og
Lilja Alexandersdóttir.
Á fundinum kom fram áhugi
á að endurvekja spilakvöldin
sem voru mjög vel sótt hér á
árum áður, en hafa nú legið
niðri um nokkurt skeið. Því
hefur verið ákveðið að efna til
þriggja kvölda keppni og
verður fyrsta félagsvistin haldin
í Samkomuhúsi Vestmanna-
eyja laugardaginn 2. mars.
Það er von stjórnar og
skemmtinefndar að félags-
menn, og aðrir þeir sem ánægju
hafa af spilamennsku, fjöl-
menni og taki þannig þátt í að
vekja upp þennan vinsæla þátt í
félagslífinu.
—F réttatilky nning.
Yetrarstarf
aldraðra
Félagsstarf eldri borgara
heldur áfram af fullum krafti
fimmtudaginn 28. feb. kl. 20.
Þá verður spilavist o.fl. Það
er Knattspyrnufélagið Týr sem
sér um starfið á Hraunbúðum
þetta kvöld.
Fimmtudaginn 7. mars kl.
15:30 verður spilað á Hraun-
búðum. Það er Kvenfélagið
Líkn, sem sér um þennan dag.
Eldri borgarar í bænum eru
hvattir til að taka þátt í félags-
starfinu á Hraunbúðum.
Félagsmálaráð.