Eyjablaðið - 31.10.1985, Síða 1
EYJABLA
L
Útgefandi:
Alþýðubandalagið
í Vestmannaeyjum
10. tölublað
Vestmannaeyjum, 31. október 1985
45. árgangur
Merk
Á þessu ári hafa farið fram
miklar umræður um íbúðir fyrir
aldraða. Nú í lok desember
verður 2. áfangi væntanlega
tilbúinn til notkunar. í þessum
áfanga er um söluíbúðir að
ræða, en því miður eru þessar
íbúðir allt of dýrar og þess
vegna eru það tiltölulega fáir
sem hafa fjárhagslegt bolmagn
til að eignast slíka íbúð.
Það er því nauðsynlegt að
byggja leiguíbúðir handa því
fólki sem hefur minni fjárráð.
Þess vegna lögðum við full-
trúar minnihluta bæjarstjórnar
fram tillögu á bæjarráðsfundi
s.l. mánudag.
TILLAGA
Við undirritaðir, fulltrúar
minnihluta bæjarstjómar
minnum á tillögu okkar er við
fluttum í bæjarstjórn miðviku-
daginn 31. júlí s.l. varðandi
byggingu verkamannabústaða.
Þar lögðum við til, að á tíma-
bilinu 1986-1990 verði byggð-
ar og keyptar 38 íbúðir. Jafn-
framt gerðum við sérstaklega
Um Jón
Eftirfarandi rákumst við
á í Helgarblaði Þjóðviljans:
,,Jón Helgason kirkju-
málaráðherra greindi frá því
í ræðu sinni við setningu
kirkjuþings, að brennivínið
væri búið að drepa allt það
Guðlega í íslendingum. Þá
varð þessi vísa til:
Á Kirkjuþingi kynnti Jón
klúður sinna þegna.
Drottinn hefur flúið Frón
fylliríis vegna.”
tillaga
ráð fyrir, að byggt verði raðhús
með sex íbúðum í.
Óþarfi er að taka það fram,
að tillaga okkar minnihluta-
manna var felld af fulltrúum
Sj álfstæðisflokksins.
Á þetta er nú minnt vegna
sérstakra funda bæjarfulltrúa
og fulltrúa stéttarfélaganna hér,
þar sem kannaður var áhugi
þeirra á frekari byggingum
íbúða fyrir aldraða. Hefur
komið fram hjá fulltrúum
stéttarfélaganna að áhugi þeirra
beinist fyrst og fremst að bygg-
ingum verkamannabústaða,
fyrir aldraða.
Að höfðu samráði við full-
trúa stéttarfélaga, gerum við
bæjarfulltrúar minnihluta
bæjarstjórnar, að tillögu okkar,
að hafist verði handa um
undirbúning og byggingu
tveggja raðhúsa með sex íbúð-
um hvort. Skulu byggingar-
framkvæmdir við fyrra húsið
hefjast eigi síðar en í mars
1986, með fjórum sambýlis- og
tveim einstaklingsíbúðum.
Hafist skal handa um byggingu
seinni áfanga, eigi síðar en í
nóvember 1986, með fjórum
einstaklings- og tveim sam-
býlisíbúðum. íbúðirnar skulu
byggðar samkvæmt lögum um
byggingu verkamannaíbúða.
Húsin skulu staðsett á svæðinu
sem ætlað er íbúðum fyrir aldr-
aða.
íbúðirnar skulu vera leigu-
íbúðir og njóta sömu þjónustu
og aðrar íbúðir aldraðra frá
Hraunbúðum.
Andrés Sigmundsson
Sveinn Tómasson
Þorbjörn Pálsson
Bæjarráð samþykkti að vísa
tillögunni til stjórnar Verka-
mannabústaða og fela stjóminni
að sækja um 12 íbúðir skv. lögum
um verkamannabústaði. —S.T.
— Getraunin —
• Hver skyldi hafa ritaö þessi orð í Fylki fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar 1982:
a) „Það veit enn betur að stuðningur við Sjálf-
stæðisflokkinn nú þýðir lægri hitagjöld og meiri
framkvæmdir”.
b) „Það er trú mín að hitaveita Vestmannaeyja geti
með bættum rekstri látið sér nægja hækkanir sem
verðbólgan veldur og jafnvel á næstu árum farið
að lækka verð sitt til enn meiri hagsbóta fyrir
bæjarbúa.”
• Hve mikið skyldi gjaldskrá Fjarhitunar hafa
hækkað frá því Sjálfstæðisflokkurinn fékk
meirihluta í Bæjarstjórn Vestmannaeyja?
(Setjið X í viðeigandi reit)
■ 3% ■ 30% ■ 300%
Rétt svör sendist Eyjablaðinu sem fyrst,
pósthólf 83.
Snemma beygist krókurinn
Undirstaðan brestur
Yfirbyggingin ridar til falls
1 dollar
Nú í byrjun vetrar kostar
einn Bandaríkjadollar um það
bil 42 krónur. hann kostaði það
sama í byrjun ársins. Gengið er
fast á dollaranum en Evrópu-
gjaldmiðlar hafa hækkað og
surnir mikið svo sem eins og
pundið, sem í ársbyrjun var um
það bil 1 dollar og 10-15 sent,
en er nú ca. 1 dollar og 43 sent.
Þar sem við seljum megnið af
okkar sjávarafurðum til USA
og raunar annarra einnig fyrir
dollara, en kaupum mest af
okkar vörum í Evrópumyntum,
sígur að þessu leyti til ógæfu-
hliðarinnar.
Ekkert er nú þetta í saman-
burði við þau ósköp sem dynja
á fiskvinnslunni í þeirri verð-
þenslu, sem verið hefur á þessu
ári með gengið fast.
Eigum við til dæmis að gera
ráð fyrir að í byrjun ársins hafi
það kostað fiskvinnsluna 35 kr.
að vinna, flytja og selja fisk í
Ameríku fyrir 1 dollar, 42
krónur. Jákvæður munur 7 kr.
pr. dollar. Með meira en þriðj-
ungs verðþenslu innanlands,
ætti einn dollar að kosta nú um
það bil 47 krónur. Neikvæður
munur að minnsta kosti 5 kr.
pr. dollar.
Ef fyrri talan er of Iág hlyti sú
seinni að hækka enn. Utkoman
er sem sé sú, að vinnslan getur
alls ekki framleitt söluvöm í
Ameríku fyrir 42 kr. pr. dollar.
Viðskipti af þessu tagi geta
menn ekki stundað til lang-
frama. Undirstöðuatvinnu-
vegur þjóðarinnar er rekinn með
halla; útgerð og vinnslu hefur á
undanförnum árum verið búin
þau skilyrði, að sjávarútvegur-
inn hefur verið rúinn um a.m.k.
5 milljarða kr.
Það er furðulegt, að stjóm-
málamenn skuli ýmist ekki hafa
vit á að búa undirstöðu-
atvinnuveginum viðunandi
skilyrði eða þjarma svo að
honum vísvitandi, að stefnir í
stöðvun og jafnvel hrun. í stað
nýsköpunar, uppbyggingar og
styrkingar í sjávarútvegi eru
höfuðgreinar hans nú að ljúka
við að éta síðustu leifarnar af
höfuðstólnum og meir en það.
Stjórnarstefnan
Upp á þessa þróun hafa
ráðamenn horft aðgerðar-
lausir, eða svo gott sem. Sjálf-
gengi hins frjálsa peningakerfis
er heilög kýr og ásamt alfrjálsri
verslunarálagningu stýrir það
Á fulltrúafundi Lífeyrissjóðs
Vestmanneyinga sem haldinn
var í september s.l. var sam-
þykkt tillaga þess efnis að skora
á stjórn Lífeyrissjóðs Vest-
manneyinga að hefja ellilíf-
eyrisgreiðslur til þeirra sem
orðnir eru 67 ára frá og með 1.
janúar 1986 án skerðingar (í
staðinn fyrir 70 ár komi sem
sagt 67 ára).
Þetta er góðra gjalda vert og
sýnir að einhverjir álíta þetta
apparat lífeyrissjóð en ekki
eingöngu lánastofnun eða
stofnun sem verslar með pen-
inga launþega.
Það er búið að halda einn
fund í stjórn Lífeyrissjóðs
Vestmanneyinga síðan þessi
tillaga var samþykkt á fulltrúa-
ráðsfundinum og það virðist
vaxtastiginu, sem er gildur
þáttur í verðþenslunni. Fram-
leiðsluatvinnuvegirnir þola
ekki mjög jákvæða raunvexti,
því þeir geta ekki látið aðra
greiða þá fyrir sig. Það væri
gaman að vita hversu margir
sjálfstæðismenn í fiskvinnslu
eru ánægðir með stjórnvisku af
þessu tagi, og það augljósa ráð-
leysi og skilningsleysi, sem
forusta flokks þeirra með Þor-
stein Pálsson í broddi fylkingar,
sýnir bardúsi þeirra við að
reyna að halda framleiðslunni á
floti.
Fari svo sem horfir, að
sjávarútvegurinn fái skell,
verður það skellur allrar þjóð-
arinnar. —G.S.
vera algert hernaðarleyndar-
mál hvað þar gerðist. Vonandi
hefur stjórnin ekki sest á
tillöguna, því á maður bágt með
að trúa á fulltrúa launþega í
stjórninni.
Að mér skilst, þá voru flutn-
ingsmenn að tillögunni vara-
formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja og varafor-
maður Snótar og þess vegna
hlýtur það að liggja ljóst fyrirað
fulltrúa þessara félaga í stjórn
Lífeyrissjóðsins sem eru for-
menn félaganna hljóta að vera
fylgjandi málinu. Þá eru það
fulltrúar atvinnurekenda og
fulltrúi sjómanna sem eftir eru.
Hvað gerá þeir? Vonandi bera
þeir gæfu til að samþykkja til-
löguna. —Launamaður.
Hvað nú?