Eyjablaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 1
EYJABLAÐI
Útgefandi:
Alþýðubandalagið
í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum, 21. nóvember 1985
45. árgangur
Timburmenn
frjálshyggjunnar
Nú er mánudagur þeirrar
ríkisstjórnar sem nú situr við
völd runninn upp. Eftir
gengdarlaust helgarfyllerí sem
lauk þannig að allir ráðherrar
vöknuðu upp í nýjum stólum og
einn stóllaus. Þetta á að
sjálfsögðu aðeins við um í-
haldshluta stjórnarinnar. Hinir
íhaldsmennirnir eru löngu
búnir að opna sig í báða enda
°g tryggja sig þannig fyrir vind-
sperringi sem getur feykt
mönnum úr stólum og em-
bættum.
Frjálshyggjan er loksins
kominn á sinn rétta stað, í
öskutunnuna og frummæl-
endur hennar éta nú ofan í sig
gífuryrði hinnar köldu
peningahyggju og væla á hverju
götuhorni þar sem stuðnings er
að vænta hinu dauðvona Haf-
skipi. Þessir menn eru ekki einu
sinni rnenn til að fara tígulega á
hausinn.
En mér er spurn, hvar er
allur stuðningurinn við fram-
sæknu ungu mennina sem
ætluðu að leggja heiminn að
fótum sér? Hvar er allt þetta
einkaframtak? Var Hafskip
dæmi um slíkt, eða var það
dæmi um framagosa með sam-
bönd til að rýja hina opinberu
lánastofnun, Útvegsbankann,
innúr skinninu?
Hver borgar svo fyrir sam-
kvæmið. Gestirnir sjálfir?
Ónei, ég og þú. Og ég veit ekki
með þig, en ég kaus ekki þessa
fíra og mér er illa við að standa
reikningsskil gerða þeirra.
Gunnar Kári Magnússon
Gunnar K. Magnússon:
Nei hættu nú!
Ég er einn af þeim Vest-
mannaeyingum sem er svo
óheppinn, eða heppinn, eftir
því hvernig á málið er litið, að
hafa foreldra mína annars
staðar á landinu. Þetta hefur
bæði kosti og galla í för með
sér. Maður losnar við hnýsnar
tengdamæður sem eru ágætar í
bláma fjarlægðarinnar, en aftur
á móti vantar oft þægilega
barnapíu fyrir yngstu börnin.
Stærsti gallinn er samt sá, að í
tilraunum til að viðhalda tjöl-
skyldutengslunum þá hlaðast
upp símareikningar sem eru
ekki heiðarlegum skattborgara
bjóðandi. Það lyftist því heldur
betur brúnin á kalli þegar
Mogginn gat þess í þingfrétt að
flutt hefði verið tillaga af Al-
þýðubandalagsmönnum þess
efnis að nú þegar yrði drifið í
því að lækka kostnað landsíma-
samtala. Þau kostuðu 10
sinnum meira en innanbæjar-
samtöl, en þyrftu ekki að kosta
nema helmingi meira að dómi
flutningsmanna.
Magnús H. Magnússon, sem
situr, eða sat a.m.k. á þingi á
þessum tíma, lýsti fylgi við
þessa tillögu.
En sá ráðherrann sem hafði
með símamál að gera, var ekki
alveg sammála (ekki spyrja
hvaða ráðherra það er, ég er
alltaf að ruglast á stólum og
mönnum). Það var nefnilega
svo dýrt að koma þessu bíl-
símakerfi í gagnið!
Hæstvirtur ráðherra vill sem
sagt að meginþorri þjóðarinnar
sem sjálfsagt aldrei hefur látið
sér til hugar koma að kaupa
bílsíma og veit varla af því að
slík tæki fyrirfinnist. borgi þessi
herlegheit í formi 8 sinnum
hærri símreikninga en þörf er á.
Svo voru þeir að handtaka ein-
hvern mannræfil fyrir okur!
Veistu?
Ad frá því að ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar tók við völdum í maí
1983
# hafa laun hækkað um 67,6%
# hefur eitt kíló af ýsuflökum
hækkað um 191,3%
# hefur eitt kíló af eggjum hækkað
um 204,6%
— Þessi dæmi sýna betur en margt
annað hvern hug ríkisstjórn Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokksins ber til
launafólks. —
Fyrsti snjórinn.
Orkuöflun Fjarhitunar Ym.
Snemma á þessu ári fól stjóm
veitustofnana veitustjóra að
gera úttekt á orkuöflun Fjar-
hitunar. Þessi samantekt lá
fyrir fundi stjórnarinnar 15.
október s.l.
I skýrslunni kemur fram sú
Fróm
ósk
Fyrir ekki Iöngu meðan
Fylkir, sem er málgagn Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmanna-
eyjum. var og hét, þá var í
blaðinu fastur póstur sem hét
Skírnir. Var í þeim þætti farið í
kirkjubækur og tekin upp nöfn
þeirra barna sem skírðust og
getið var um foreldra. Veit ég
um marga sem fer líkt og mér
að sakna þessa dálks úr Fvlki.
Þeirri frómu ósk er hér komið á
framfæri að blaðið geri hér
bragarbót á. Slíkt yrði talið
merkilegt innlegg í komandi
kosningabaráttu. —O.
Aðalfundur
Eyverja
Aðalfundur Eyverja er nú
nýlega afstaðinn. í samræmi við
það að Sjálfstæðisflokkurinn
segist ósjaldan vera fulltrúi
kristindóms í íslenskum stjóm-
málum. þá höfum við hlerað að
yfirskrift fundarins hafi verið:
„Friður sé með yður". A.m.k.
tökum við ekki mark á dreifi-
bréfi sem okkur barst skömmu
fyrir fundinn og bar yfir-
skriftina „Upprætum klíkuna".
I bréfinu a tarna fer svo lítið
fyrir bróðurkærleik að þeir sem
alla jafna starfa í þágu t'riðar og
kærleika geta varla átt þar hlut
að máli. —o.
alvarlega staðreynd að end-
ingartími reita á virkjunar-
svæðinu sem voru virkjaðir í
október 1984 og í byrjun árs
1985 er ekki nema um 1 ár, en
fyrstu virkjuðu reitir entust í 4
til 6 ár.
í ljósi þessa alvarlega ástands
leggur veitustjóri til að lögð
verði áhersla á byggingu
miðlunargeyma, til þess að
jafna út álagssveiflur á hraun-
veituna. Það ætti að létta mjög
stjórn á hraunveitunni og þar
með auka Iíftíma hennar.
Gróft áætlað kostar 2.000 m3
geymir um 9-10 millj. króna.
Slíkur tvískiptur geymir hefði
1000 m3 forða af heitu vatni
eða 45 Mwh. Með slíkum
geymi mætti einnig nýta
umframafl hjá Rafveitu Vest-
mannaeyja til kyndingar raf-
Trausta
samninga
Um áramótin eru núverandi
kjarasamningar lausir og fram-
undan er harðvítug samninga-
lota. Þegar kröfur eru meitl-
aðar verða menn að horfa til
þess að núverandi ríkisstjórn er
búin að gera ísland að lág-
ketils, en þar er um að ræða
umtalsverða orku.
Til þess að þetta geti orðið
þyrfti helst strax næsta sumar
að leggja 30 kv kapal frá Raf-
veitunni upp að dælustöðinni
við Löngulág.
Stjórn veitustofnana sam-
þykkti á þessum fundi að við
gerð næstu fjárhagsáætlunar
verði hugað að virkjun nýrra
svæða svo sem á norðuröxl Eld-
fells, en þar er einmitt vitað um
talsverðan hita, sem trúlega
mætti virkja án mikils til-
kostnaðar.
Þar sem Ijóst er að óðum
styttist sá tími sem við getum
nýtt hitann úr hrauninu, verður
að bregðast við í tíma og gera
viðeigandi ráðstafanir eins og
fram kemur í úttekt veitustjóra.
—S.T.
launalandi. Hún er búin að inn-
leiða meiri fátækt en hér hefur
verið til um áratugaskeið. í ljósi
þessara staðreynda er óhjá-
kvæmilegt annað en að ná fram
raunverulegum kauphækkun-
um. Til þess eru allar efnislegar
forsendur. Launafólk ætlast til
þess nú sem aldrei áður að um-
samdar hækkanir hverfi ekki
eins og dögg fyrir sólu. Það
verður að gerast. —O.
— Getraunin —
Hver skvldi hafa ritað þessi orð í Fvlki fyrir
bæjarstjórnarkosningamar 1982?
„Þinn eiginn launaseðill, heimilisrekstur og
budda, sem aldrei hefur verið léttari, hitaveitu-
gjald, vatnsskattur, rafmagnsreikningur, gjalda-
og skattbyrði sannar þér nú betur en nokkurn tíma
áður að kosningar geta verið kjarabarátta, bæði á
þing og í bæjarstjórn."