Morgunblaðið - 23.02.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
www.noatun.is
Fermingarveislur
Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun.
1990
KR./MANN
VERÐ FRÁ
AÐEINS
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ef ákveðið verður að kjósa á ný til stjórnlaga-
þings samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um Ice-
save-frumvarpið verður það svokölluð uppkosn-
ing. Það þýðir að kosið verður á milli sömu
frambjóðenda og í lok nóvember og eftir sömu
kjörskrá. Hagkvæmnisjónarmið ráða því að
áhugi er á að sameina kosningarnar en sumir ótt-
ast að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave trufli
stjórnlagaþingskosningarnar.
Nefnd sem forsætisráðherra skipaði til að
fara yfir stöðu mála varðandi stjórnlagaþingið
eftir að Hæstiréttur ógilti kosninguna hefur ekki
skilað af sér. Miðað var við að nefndin lyki störf-
um 15. febrúar. Næsti fundur verður síðdegis í
dag og samkvæmt ummælum ráðherra eftir rík-
isstjórnarfund í gær er gert ráð fyrir að nefndin
skili þá af sér, eða allavega fyrir föstudag.
Nefndin hefur fjallað opið um alla kosti en
ekki var í gær komin tillaga að áliti. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins töldu fulltrúar stjórn-
armeirihlutans að valið stæði einkum á milli upp-
kosningar og þess að skipa stjórnlagaþingsfull-
trúana sem kosnir voru í ógildu kosningunni í
ráðgefandi stjórnlagaráð. Þó hefur heldur fjarað
undan síðarnefndu hugmyndinni. Þeir kostir eru
einnig í stöðunni að efna til nýrra stjórnlaga-
þingskosninga í sumar eða haust, eftir gagngerar
lagfæringar á lögunum, og að blása stjórnlaga-
þingið af og flytja vinnuna inn á Alþingi, eins og
sjálfstæðismenn hafa lagt til.
Smitast frá Icesave til stjórnlagaþings
Uppkosningarhugmyndin virðist hafa fengið
byr í seglin við ákvörðun forseta Íslands um að
vísa Icesave-frumvarpinu í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Hægt væri að spara verulega fjármuni
með því að kjósa á sama degi. Hverjar kosningar
kosta að minnsta kosti 250 milljónir. Þó er ljóst
að ekki er hægt að spara kostnað við heilar kosn-
ingar því ríkið þarf eftir sem áður að leggja í
kostnað við að kynna efni og frambjóðendur
hvors máls fyrir sig.
Engin ákvæði eru í lögunum um stjórnlaga-
þing um hvernig bregðast eigi við ógildingu kosn-
ingar eða um uppkosningu og heldur ekki vísað
til almennrar kosningalöggjafar um það með
óyggjandi hætti. Lögfræðingar sem stjórnlaga-
þingsnefndin hefur rætt við hafa mismunandi
skoðanir á því hvað gera þurfi miklar breytingar
á lögunum til að uppkosning geti farið fram.
Sumir hafa talið að hægt væri að framkvæma
hana einfaldlega með því að breyta dagsetn-
ingum í lögunum en aðrir hafa hvatt til meiri
breytinga en minni til að tryggja öruggari fram-
kvæmd kosningarinnar.
Alloft hefur komið til uppkosningar í sveit-
arstjórnarkosningum. Nýleg dæmi eru Reykhóla-
hreppur á síðasta ári og Borgarbyggð 2002. Þeg-
ar svo háttar til eru sömu framboðslistar og
einstaklingar í framboði og við hinar ógiltu kosn-
ingar og sama kjörskrá notuð. Það þýðir að þeir
sem hlotið hafa kosningarétt á milli kosninganna
fá ekki að neyta hans.
Stjórnmálamenn sem rætt var við eru sam-
mála um að almennt sé slæmt að blanda saman
ólíkum kosningum en kostnaðurinn vegur þungt í
huga þeirra sem vilja nýta tækifærið sem þjóð-
aratkvæðagreiðslan gefur.
Áhrifin geta vitaskuld verið á báða bóga.
Miðað við þann mikla mun sem var á þátttöku í
fyrri Icesave-atkvæðagreiðslunni og stjórnlaga-
þingskosningunum má búast við að kjósendur
hafi sterkari skoðanir á Icesave en frambjóð-
endum til stjórnlagaþings. Það gæti smitað á
milli kosninganna, þannig að frambjóendur yrðu
krafðir svara um afstöðu til Icesave og kjósendur
láti hana frekar ráða atkvæði sínu en afstöðu
frambjóðenda til breytinga á stjórnarskrá. Það
gæti hugsanlega leitt til verulegra breytinga á
skipan stjórnlagaþings, frá fyrri kosningum, og
jafnvel óvæntra úrslita.
Sömu frambjóðendur og
kjósendur við uppkosningu
Almennt talið slæmt að blanda saman kosningum Rökstutt með sparnaði
Morgunblaðið/Kristinn
Við Stjórnarráðið Ríkisstjórnarfundur fór fram í gær og biðu bílstjórar ráðherra þolinmóðir fyrir utan.
Ístak keypti á dögunum ógnar-
stóra hjólagröfu af Brimborg sem
nota á við gerð Búðarhálsvirkj-
unar. Síðustu misseri hefur verið
fátítt að jarðvinnuvélar séu keypt-
ar til landsins og hjá Brimborg sjá
menn fá merki þess að verktaka-
geirinn sé að taka við sér, fyrir
utan vinnu við Búðarhálsvirkjun.
Hjólaskóflan er tæplega 50
tonn, sú stærsta af Volvo-gerð
sem hingað hefur verið flutt. Setja
átti hana um borð í Goðafoss fyrir
helgi en vegna strandsins seinkar
komu hennar um tvær vikur. Það
ætti þó ekki að koma að sök því
skófluna sem fylgir gröfunni, og
tekur 7,1 rúmmetra í einu, átti
hvort sem er ekki að afhenda
strax. Ístak keypti fyrir áramót
aðra slíka af Brimborg sem notuð
er við verkefni í Noregi.
Kristinn Már Emilsson, fram-
kvæmda- og markaðsstjóri at-
vinnutækjasviðs Brimborgar, seg-
ir ekki merki um að líf sé að
færast í jarðvinnu hér á landi,
þótt alltaf sé eitthvað að gerast í
kringum virkjunarframkvæmdir.
„Það er bara ekki mikið í píp-
unum og þar að auki eru um 70%
af fyrirtækjum í landinu í end-
urskipulagningu og ekki einfalt
að nálgast fjármagn.“ Staðan sé
slæm og mikil fagþekking við það
að glatast.
runarp@mbl.is
Strandið tafði skófluna
Vegna strands Goðafoss tefst heimkoma 50 tonna hjóla-
gröfu um tvær vikur Fátítt að nýjar vélar séu keyptar
Uppboðum á 49
leiguíbúðum á
Akureyri, sem
auglýst voru í
Morgunblaðinu í
gær, verður væntanlega frestað,
samkvæmt upplýsingum frá Íbúða-
lánasjóði. Félagið sem á þær vonast
til að geta samið við sjóðinn þannig
að greiðslur frá leigjendum standi
undir greiðslu af lánum.
Íbúðirnar sem voru auglýstar á
byrjun uppboðs eru í eigu fyrirtæk-
isins Betri kosts ehf. Flestar eru
þær við Kjarnagötu og Lækjartún
en 11 eru annars staðar í bænum.
Þær eru nánast allar í útleigu.
Vignir Þormóðsson, fram-
kvæmdastjóri Betri kosts, sagðist í
gær vonast til að geta samið við
Íbúðalánasjóð þannig að reksturinn
stæði undir sér. Á íbúðunum hefðu
hvílt lán í krónum en þau hefðu
hækkað mikið í hruninu. Leigan
hefði hins vegar ekki hækkað.
Þegar Íbúðalánasjóður hefur
eignast leiguíbúðir hefur hann boðið
íbúum að leigja þær áfram.
Uppboð-
um líklega
frestað
Eigendur leita
samninga við ÍLS
Jónína Rós Guð-
mundsdóttir,
þingmaður VG,
segist ósammála
þeirri túlkun
Ólafs Ragnars
Grímssonar for-
seta að Alþingi og
þjóðin deili nú
löggjafarvaldinu
varðandi Icesave-
samninginn. En
fer hún fram á að forsetinn segi af
sér eins og hún gerði í fyrra eftir að
forsetinn synjaði Icesave II?
„Þá var ég svo óundirbúin, það
hvarflaði ekki að mér að hann myndi
gera þetta,“ segir Jónína. „Ég varð
snöggreið, öll þessi vinna sem við
vorum búin að leggja á okkur í des-
ember var fyrir bí. En núna er það
hluti af minni lífsreynslu að þetta
geti gerst.
Mér fannst núna meiri líkur en
minni á að hann myndi synja lög-
unum staðfestingar, þess vegna voru
viðbrögðin allt öðruvísi.“
kjon@mbl.is
Krefst ekki
afsagnar
Jónína Rós
Guðmundsdóttir
Ákveðið verður á ríkisstjórnarfundi næstkom-
andi föstudag hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla
verður um Icesave-frumvarpið. Atkvæða-
greiðslan á að fara fram innan tveggja mánaða.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir
að tímasetningin ráðist af því hvort önnur kosn-
ing fylgi með en hugmyndir hafa verið uppi um
að kjósa á ný til stjórnlagaþings samhliða þjóð-
aratkvæðagreiðslunni.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna, varaði eindregið við
því, í umræðu utan dagskrár á Alþingi um synj-
un forseta, að óskyldum málum yrði blandað
saman. Hún sagði að þjóðaratkvæðagreiðslan
þyrfti að fara fram innan tveggja mánaða en
engin slík tímapressa væri á öðrum málum.
Hvatti hún til þess að stjórnvöld vönduðu sig í
þetta sinn. Þá sagði hún að Icesave-málið væri
alveg nógu flókið og þyrfti óskipta athygli kjós-
enda.
Allir aðalfulltrúar í landskjörstjórn sögðu af
sér eftir að Hæstiréttur ógilti stjórnlagaþings-
kosningarnar. Ögmundur sagði í gær að ný
landskjörstjórn yrði kosin á næstu dögum.
Óskyldum málum verði ekki blandað saman
DAGSETNING ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU ÁKVEÐIN Á FÖSTUDAG