Morgunblaðið - 23.02.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
Staksteinar þurftu að leita lengi íbresku pressunni til að finna
fréttir af nýrri þjóðaratkvæða-
greiðslu um Icesave. Það var ekki
fyrr en komið var á viðskiptasíðurnar
sem fréttir fundust. Samt láta Baugs-
miðlarnir og þeir í félagsheimilinu
eins og allt hafi logað í breskum fjöl-
miðlum.
En af hverju þettaáhugaleysi?
Jú, það er vegnaþess að Bretar
ákváðu að borga breskum innistæðu-
eigendum það sem þeir áttu inni og
var innan marka. Það gerðu þeir án
nokkurrar heimildar frá Íslandi. Þeir
höfðu ekki einu sinni samráð. Bresk-
ur almenningur er fyrir löngu búinn
að fá sitt. Hann hefur því engan
áhuga á málinu.
Það hefur bara einhver skrif-stofustjóri í breska fjármála-
ráðuneytinu fært yfirmönnum sínum
þar þær furðufréttir að hann hafi
fundið uppi á Íslandi stjórnmálamenn
sem vildu láta íslensku þjóðina borga
annarra manna skuldir.
Yfirmennirnir trúðu ekki sínumeigin eyrum.
Skrifstofustjórinn sá fram á aðhann fengi stöðuhækkun og yrði
jafnvel Sir ef þessar ótrúlegu fréttir
reyndust réttar.
Skrifstofustjórinn hefur því mikinnáhuga á málinu.
Það hefur breska þjóðin ekki.
Þess vegna eru svona ræfilslegarfréttir um málið í breskum fjöl-
miðlum.
Breska þinghúsið
Hagsmunamál
skrifstofustjórans
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 22.2., kl. 18.00
Reykjavík 5 léttskýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri -2 skýjað
Egilsstaðir -1 skýjað
Kirkjubæjarkl. 4 rigning
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 6 skúrir
Ósló -8 snjókoma
Kaupmannahöfn -5 léttskýjað
Stokkhólmur -8 skýjað
Helsinki -13 léttskýjað
Lúxemborg 1 léttskýjað
Brussel 2 heiðskírt
Dublin 10 skýjað
Glasgow 7 súld
London 7 þoka
París 7 skýjað
Amsterdam 2 heiðskírt
Hamborg -2 heiðskírt
Berlín -5 heiðskírt
Vín -2 léttskýjað
Moskva -17 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 15 skýjað
Winnipeg -13 skýjað
Montreal -10 heiðskírt
New York -4 heiðskírt
Chicago -3 snjókoma
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:57 18:26
ÍSAFJÖRÐUR 9:09 18:24
SIGLUFJÖRÐUR 8:53 18:06
DJÚPIVOGUR 8:28 17:54
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Úlfar Logason, 18 ára nemi, hefur
lagt fram stjórnsýslukæru til vel-
ferðarráðuneytisins vegna ólög-
mætra reglna um
blóðgjafir. Úlfar
lagði leið sína í
blóðbankabílinn í
byrjun febrúar til
að gefa blóð en
þegar á staðinn
var komið var
honum vísað frá
vegna kynhneigð-
ar sinnar. Í kær-
unni segir að „sú
synjun hafi verið
byggð á reglum Blóðbankans um
blóðgjafir þar sem fram kemur í 2.
tl. að karlmanni sé óheimilt að gefa
blóð ef hann hefur haft samfarir við
sama kyn.“ Úlfar gerir þá kröfu í
kæru sinni að bannið verði afnumið
og að lagður verði fram rökstuðn-
ingur sem umrædd regla byggist á.
Í viðtali við Morgunblaðið fyrir
rúmum tveimur vikum sagði Úlfar
reglurnar særandi og vildi hann
vekja umræðu um málið. „Upphaf-
lega reyndi ég bara að fá þetta í fjöl-
miðla en síðan fékk ég lögmann sem
sérhæfir sig í að verja mannréttindi
til að taka málið.“
Ekki verið kært áður
Páli Rúnari Mikael Kristjánssyni,
lögfræðingi Úlfars, er ekki kunnugt
um að reglurnar hafi verið kærðar
áður. Blóðbankanum berast þó
reglulegar fyrirspurnir um þær. Að
sögn yfirlæknis Blóðbankans benda
erlendar tölur til þess að áhætta
karlmanna sé margföld hvað varðar
margvíslega smitnæma sjúkdóma ef
þeir hafa haft mök við aðra karl-
menn. Páll Rúnar segir engar rann-
sóknir hafa verið gerðar á smitnæmi
þessa hóps á Íslandi og er hann á
þeirri skoðun að þær þurfi að fram-
kvæma áður en slíkar reglur eru
settar. „Það hefur að mínu viti ekki
farið fram neinar rannsóknir á Ís-
landi á þeirri hættu sem verið er að
vinna gegn. Það þýðir ekki að bera
fyrir sig að það sé ákveðin hætta í
stórborgum erlendis og ætla sér svo
að heimfæra það yfir á Ísland.“
Hver eru rökin?
Páll Rúnar segist ekki hafa heyrt
rökin fyrir reglunum og þess vegna
sé nú kallað eftir því að
ákvörðunin sé rökstudd.
„Eru rökin þau að hér
sé verri skimun en er-
lendis, eða meiri
áhætta? Erum við ein-
faldlega að fylgja er-
lendum fyrirmyndum í
blindni? Ef svo er þá eru
það engin rök.“
Að sögn
Páls Rún-
ars
myndu
Íslend-
ingar sýna gott fordæmi með því að
kanna áhættuna sjálfstætt „Það á að
meta hvert atvik fyrir sig og taka
upplýsta ákvörðun á grundvelli
ákveðinna staðreynda, en ekki með
handahófskenndum hætti og þannig
að það mismuni og misbjóði stórum
hóp einstaklinga sem vilja láta gott
af sér leiða. Maður hefði ætlað að
reglur sem þessar væru ekki settar
nema að vel ígrunduðu máli.“
Kæran send Landspítala
Kæra Úlfars var lögð fram síðast-
liðinn fimmtudag og var óskað eftir
því að afgreiðslu málsins yrði lokið
innan fjórtán daga frá dagsetningu
kærunnar. Að sögn Páls Rúnars
hefur hún nú verið send Landspít-
alanum til umsagnar. „Ráðuneytið
hefur óskað eftir sjónarmiðum
Landspítalans varðandi kæruna en
slíkt tekur tíma og því mun af-
greiðslu málsins ekki verða lokið
innan fjórtán daga. Þeim er gefinn
þriggja vikna frestur, sem mér
finnst tiltölulega rúmur, en þetta er
ákvörðun stjórnvaldsins og við un-
um henni.“
Aðspurður hvað málið geti tekið
langan tíma segist hann ekki búast
við að því ljúki fljótt. „Öll hags-
munabarátta tekur sinn tíma, það
verður bara að halda áfram. Ég er
alltaf bjartsýnn um að stjórnvöld
snúi af villu síns vegar, en er hóf-
lega bjartsýnn samt,“ segir Páll
Rúnar.
Bjartsýni ríkir hjá Úlfari
Þrátt fyrir ungan aldur segist
Úlfar hafa viljað standa einn að
kærunni en margir styðji þó við
bakið á honum. Aðspurður hvort
hann sé bjartsýnn á að reglunum
verði breytt segir Úlfar: „Já, auðvit-
að. Hversu margir hefðu haldið, fyr-
ir tíu árum, að samkynhneigðir ættu
eftir að mega gifta sig hér á Íslandi.
Ég vil halda að við verðum fyrsta
landið til að leyfa þetta.“
Kærir bann við blóðgjöf
samkynhneigðra karla
Engar rannsóknir verið gerðar á smitnæmi samkynhneigðra hér á landi
Morgunblaðið/G.Rúnar
Blóðgjafir Ísland hefur farið að dæmi nágrannalandanna hvað varðar reglu-
verk um blóðgjafir og er samkynhneigðum karlmönnum ekki leyft að gefa blóð.
Í kæru Úlfars, sem send var vel-
ferðarráðuneytinu fyrir helgi,
segir að reglurnar séu í and-
stöðu við réttarheimildir um
jafnræði og bann við mis-
munun. Þá er jafnframt tekið
fram að enginn lagalegur
grundvöllur sé fyrir mismun-
uninni sem væri nauðsynlegur
ef til stæði að réttlæta hana
með einhverjum hætti.
„Þá er því við að bæta að með
því að neita samkynhneigðum
karlmönnum um að gefa blóð
hefur verið sett regla sem er
ekki einungis ólögmæt heldur
er hún jafnframt niðurlægj-
andi og særandi fyrir
viðkomandi ein-
staklinga.“
Mismunun
KÆRA ÚLFARS LOGASONAR
Úlfar Logason
Páll Rúnar M.
Kristjánsson