Morgunblaðið - 23.02.2011, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
Landspítalinn er
svæðissjúkrahús fyrir
Reykjavík og nágrenni
og jafnframt tilvís-
unarsjúkrahús fyrir
alla landsmenn. Í dag
fara um 70% allra fæð-
inga í landinu fram á
kvennadeild hans. Ríf-
lega helmingur kvenna
frá Suðurnesjum og
Suðurlandi fæðir á
deildinni og um fjórð-
ungur kvenna frá Aust- og Vest-
fjörðum. Í ljósi samdráttar í heil-
brigðisþjónustu á landsbyggðinni
gæti þetta hlutfall hækkað enn frek-
ar.
Tryggja þarf góðan aðbúnað fyrir
fæðandi konur á þessari stærstu
fæðingardeild landsins, með áherslu
á samveru móður og barns, ásamt
því að skapa aðstöðu fyrir feður eða
aðra aðstandendur með móður og
barni. Stór hluti fæðinga fer eðli-
lega fram en engu að síður þarf
móðirin margvíslega aðstoð fagfólks
í tengslum við fæðinguna, t.d. við
verkjastillingu í fæðingu og síðan
við brjóstagjöf og loks margvíslegan
stuðning til að takast á við þær
miklu breytingar sem verða á lífi
fólks við barnsfæðingu.
Við erfiðari fæðingar, þar sem
móðir eða barn eru veik, er þörf á
sérhæfðari aðstoð frá mörgum heil-
brigðisstéttum. Fagfólkið er mik-
ilvægt við þessar aðstæður en
stuðningur maka skiptir einnig
mjög miklu. Tengslamyndun föður
við barnið styrkist við aukna sam-
veru og því er mikilvægt að skapa
aðstöðu fyrir feður á sjúkrahúsinu.
Á kvennadeild LSH er rekin um-
fangsmikil sérhæfð mæðravernd
fyrir konur í áhættumeðgöngu en
hlutfall áhættumeðgangna eykst
stöðugt með vaxandi tíðni háþrýst-
ings, sykursýki og fleiri heilsufars-
vandamála.
Kvenlækningar
Á kvennadeildinni
fara fram skurð-
aðgerðir vegna
krabbameina í leghálsi,
legi og eggjastokkum
auk margvíslegra að-
gerða vegna góðkynja
meina sem þó geta
valdið verulegri skerð-
ingu á lífsgæðum. T.d.
óhóflegar tíðablæð-
ingar sem valda fjar-
veru frá vinnu í hverj-
um mánuði eða langvinnir verkir í
grindarholi tengt legslímuflakki.
Vegna þessara sjúkdóma eru fram-
kvæmdar mismunandi aðgerðir með
því markmiði að auka lífsgæði.
Sumar aðgerðirnar innifela að fjar-
lægja þarf leg og/eða eggjastokka
en aðrar aðgerðir eru minni inngrip
og felast í að reyna að draga úr ein-
kennum en þó viðhalda frjósemi.
Á seinni árum hefur hlutfall kvið-
sjáraðgerða stöðugt aukist, en það
krefst flóknari og dýrari tæknibún-
aðar en notaður er við opnar að-
gerðir. Eftir kviðsjáraðgerð næst
bati mun fyrr en við opnar aðgerðir
og því mikill ávinningur að gera
sem flestar aðgerðir með þeim
hætti. Í samvinnu við þvagfæradeild
LSH er unnið markvisst að grein-
ingu á þvagfæravandamálum og að-
gerðir framkvæmdar eftir því sem
við á. Í samvinnu við meltingar- og
skurðlækna eru framkvæmdar
rannsóknir þegar einkenni koma
fram vegna sigs á grindarbotni, oft
eftir erfiðar og/eða margar fæð-
ingar. Ef um innkirtlasjúkdóma og/
eða ófrjósemi er að ræða fara oft
fyrstu rannsóknir fram á kvenna-
deild en síðan er konum vísað áfram
í sérhæfðari rannsóknir og meðferð
eftir því sem við á.
Á kvennadeildina koma konur
vegna fósturláta og fóstureyðinga,
en það krefst sérhæfðrar meðferðar
og stuðnings. Deildin veitir bráða-
þjónustu í kvensjúkdómum, t.d.
vegna utanlegsfósturs, alla daga
ársins og stór hluti aðgerða eru
bráðaaðgerðir. Á kvennadeild fara
einnig fram aðgerðir vegna brjósta-
krabbameina en verulegar framfar-
ir hafa átt sér stað á því sviði á und-
anförnum árum þar sem
brjóstauppbygging er æ oftar gerð
samhliða brottnámi brjósts. Læknar
skurðdeildar LSH framkvæma að-
gerðirnar en hjúkrun og umönnun
er innan veggja kvennadeildar.
Landssöfnun Lífs
Líf, styrktarfélag kvennadeildar
Landspítalans, var stofnað í desem-
ber 2009 og hefur það markmið að
styðja við alla starfsemi kvenna-
deildar og bæta aðbúnað fyrir kon-
ur og fjölskyldur þeirra. Lætur
nærri að hver einasta kona í landinu
– og þar með hver fjölskylda – hafi
einhvern tímann á ævinni þörf fyrir
þjónustu kvennadeildar, hvort sem
er í gleði vegna barnsfæðingar eða í
sorg vegna fósturláts, barnsmissis
eða veikinda. Starfsemi kvenna-
deildar snertir okkur öll!
Líf óskar eftir stuðningi þínum til
uppbyggingar miðstöðvar fæðingar-
og kvenlækninga á Íslandi á
kvennadeild Landspítalans. Það
geta allir gefið LÍF!
Landssöfnun Lífs, styrktarfélags
kvennadeildar Landspítalans, verð-
ur haldin hinn 4. mars nk. Söfn-
unarféð verður notað til að bæta að-
búnað og aðstöðu fyrir alla
starfsemi er varðar heilbrigði
kvenna og fram fer á kvennadeild
Landspítalans. Efla þarf þjónustu
við fæðandi konur og fjölskyldur
þeirra og ekki síður þarf að bæta
aðbúnað kvenna sem sækja þjón-
ustu vegna margvíslegra kvenlækn-
inga.
Gefum kvennadeild
Landspítalans nýtt líf
Eftir Hildi
Harðardóttur
»Um 70% allra fæð-
inga í landinu fara
fram á kvennadeild
Landspítalans (LSH) og
deildin veitir bráðaþjón-
ustu í kvensjúkdómum
alla daga ársins.
Hildur
Harðardóttir
Höfundur er yfirlæknir á kvennadeild
og stjórnarmaður í Líf.
Í janúar sl. úrskurð-
aði hæstiréttur að sú
ákvörðun umhverf-
isráðherra frá 29. jan-
úar 2010 að synja
staðfestingar þeim
hluta aðalskipulags
Flóahrepps 2006-2018
sem er í fyrrum Vill-
ingaholtshreppi skuli
vera ógild. Í þeim
hluta er væntanleg
Urriðafossvirkjun.
Umhverfisráðherra hafði rök-
stutt synjun sína með því að
óheimilt væri samkvæmt skipulags-
og byggingarlögum að fram-
kvæmdaaðili greiddi kostnað vegna
vinnu við aðal- eða deiliskipulag.
Hæstiréttur féllst ekki á þau rök
og tekur fram að í þeim lögum sé
„hvergi lagt bann við því að fram-
kvæmdaaðili greiði kostnað við
vinnu við aðal- eða deiliskipulag“.
Rök hæstaréttar eru svo al-
menns eðlis að gera má ráð fyrir
að þau gildi einnig fyrir önnur
sveitarfélög í sambærilegum kring-
umstæðum. Niðurstaða hæstaréttar
í þessu máli getur því komið í veg
fyrir samskonar deilur um virkj-
anir í öðrum sveitarfélögum og þar
með auðveldað öflun virkj-
unarheimilda um land allt. Ber að
fagna því.
Hinn 1. maí 2010 birtist grein í
Morgunblaðinu eftir
mig sem nefndist
„Enn breytt viðhorf í
orkumálum“. Tilefni
hennar var að verk-
efnisstjórn Ramma-
áætlunar hafði þá ný-
lega skilað skýrslu um
2. áfanga þeirrar áætl-
unar. Frábærri
skýrslu að mínu mati
sem einkenndist af
kerfisbundnum, skipu-
lögðum og öguðum
vinnubrögðum.
Meðfylgjandi töflur sýna annars
vegar þær tíu virkjanir af þeim
sem Rammaáætlunin fjallaði um
sem höfðu, samkvæmt skýrslunni,
lægstan stofnkostnað á einingu, í
árlegri orku í milljónum króna á
hverja teravattsund (Mkr/TWh/a)
(efri taflan), og hinsvegar þær tíu
virkjanir sem hafa minnst um-
hverfisáhrif, einnig á orkueiningu
(U/TWh) (neðri taflan). Hvort
tveggja eru eftirsóknarverðir eig-
inleikar, hliðstæðir því að við sækj-
umst eftir ódýrri vöru sem jafn-
framt er góð vara. Sem kunnugt er
fer það tvennt alls ekki ávallt sam-
an.
Það er athyglisvert að 7 af þess-
um 10 virkjunum er að finna í báð-
um töflunum. Þær eru í senn ódýr-
ar og hafa lítil umhverfisáhrif.
Þeirra á meðal eru þær virkjanir
sem mikið hafa verið í umræðu
undanfarið svo sem Urriðafoss-
virkjun, Holtavirkjun og Hvamms-
virkjun í neðri Þjórsá og Búð-
arhálsvirkjun í Tungnaá. Og þar er
líka Arnardalsvirkjun í Jökulsá á
Fjöllum, sem er í fyrsta sæti um
lítil umhverfisáhrif og í öðru sæti
um lágan stofnkostnað.
Hún sýnist því kjörin sem und-
irstaða orkufreks iðnaðar á Norð-
urlandi eystra; ekki síst í ljósi þess
að hún er laus við þá óvissu sem
eðli máls samkvæmt fylgir beislun
jarðhitans.
Það er líka athyglisvert að af
þessum 7 virkjunum eru 3 í Þjórsá
á Suðurlandsundirlendinu, Urr-
iðafossvirkjun, Holtavirkjun og
Hvammsvirkjun. Þess er að vænta
að úrskurður hæstaréttar einfaldi
öflun heimilda frá yfirvöldum til að
ráðast í þær. Áður hafði Lands-
virkjun aflað sér frá fyrri ráðherra
heimildar til Búðarhálsvirkjunar.
Hinar þrjár eru Arnardalsvirkjun í
Jökulsá á Fjöllum, Skata-
staðavirkjun í Skagafirði og Skaft-
árvirkjun í Skaftá. Niðurstaða
Hæstaréttar er afar þýðingarmikil
fyrir væntanlegar virkjanir yf-
irleitt.
Taflan sýnir að samanlögð orku-
geta 10 virkjananna með lægstan
virkjunarkostnað er svipuð og 10
virkjananna með minnst umhverfis-
áhrif, um 10 TWh/a. Þar af eru 8,7
TWh/a í þeim sjö virkjunum sem
eru sameiginleg þessum tvenns-
konar mælikvörðum.
Ánægjuleg viðhorfsbreyt-
ing í virkjunarmálum
Eftir Jakob
Björnsson »Niðurstaða hæsta-
réttar í þessu máli
getur því komið í veg
fyrir samskonar deilur
um virkjanir í öðrum
sveitarfélögum og þar
með auðveldað öflun
virkjunarheimilda um
land allt.
Jakob Björnsson
Höfundur er fyrrverandi
orkumálastjóri.
Virkjanir með lægstan stofnkostnað á orkueiningu
Nr. Virkjun/vatnsfall
1 Urriðafossvirkjun/Neðri Þjórsá 0,980 400 0,980 1 4
2 Arnardalsvirkjun/J á Fjöllum 4,000 600 4,000 2 1
3 Hvammsvirkjun/Neðri Þjórsá 0,665 690 0,665 3 2
4 Hotavirkjun/Neðri Þjórsá 0,415 800 0,415 4 7
5 Djúpá/Fljótshverfi 0,498 1190
6 Skatastaðavirkjun B/Skagafirði 1,260 1240 1,260 6 8
7 Bjallavirkjun/Tungnaá 0,340 1350
8 Búðarhálsvirkjun/Tungnaá 0,585 1450 0,585 8 3
9 Hrafanbjargavirkjun A/Skjálfandafljót 0,622 1720
10 Skaftárvirkjun/Skaftá 0,760 1780 0,760 10 10
Samtals: 10,125 8,665
Virkjanir með minnst umhverfisáhrif á orkueiningu
Nr. Virkjun/vatnsfall TWh/a U U/TWh/a
1 Arnardalsvirkjun/J.á Fjöllum 4,000 12,3 3,08
2 Hvammsvirkjun/Neðri Þjórsá 0,665 2,5 3,76
3 Búðarhálsvirkjun/Tungnaá 0,585 2,2 3,76
4 Urriðafossvirkjun/Neðri þjórsá 0,980 4,7 4,80
5 Blönduveita/Blanda 0,131 0,7 5,34
6 Skrokkölduvirkjun/Kaldakvísl 0,215 1,4 6,51
7 Holtavirkjun/Neðri Þjórsá 0,415 3,1 7,47
8 Skatastaðavirkjun B/Skagafirði 1,260 10,0 7,94
9 Bláfellsvirkjun/Hvítá 0,536 6,4 11,84
10 Skaftárvirkjun/Skaftá 0,760 9,1 11,97
Samtals: 9,547
Rö
ð
ef
tir
um
h-
ve
rfi
sá
hr
ifu
m
á
or
ku
ei
ni
ng
u
Rö
ð
ef
tir
or
ku
s-
to
fn
ko
st
na
ði
TW
h/
a
Or
ku
st
of
-
nk
os
tn
að
ur
M
kr
/T
W
h/
a
TW
h/
a
Ekki fylgir því mikið
erfiði að hafa alltaf
réttast fyrir sér í op-
inberri umræðu ef
talsmönnum viðkom-
andi sjónarmiða er ein-
um hleypt að borðinu.
Leikurinn ætti að vera
enn auðveldari ef tals-
mennirnir sveipa sig
fræðistimpli, vitna í
rannsóknir og ég tala
nú ekki um að vera gert kleift að
komast algerlega hjá því að svara
málefnalegri gagnrýni.
Framangreind staða er einmitt
uppi hjá fiskihagfræðingunum í Há-
skóla Íslands sem stunda það trúboð
að mikil hagkvæmni og þjóðhags-
legur ábati fylgi framseljanlegum
fiskveiðikvótum. Þrátt fyrir fram-
angreint forskot er mikill efi í huga
almennings um kvótakerfið. Margir
gera sér grein fyrir því að kerfið hef-
ur algerlega brugðist því upp-
runalega markmiði sínu að auka
þorskaflann og sömuleiðis að fræði-
mennirnir sem átt hafa sviðið hafa
verið kostaðir af sérhagsmuna-
samtökum sem hafa viljað vernda
kerfið sitt.
Erlendir fræðimenn eru farnir í
ríkari mæli að setja spurning-
armerki við trúarsetningar í fræðum
Ragnars Árnasonar hagfræðings um
að framseljanleg veiðiréttindi leiði
sjálfkrafa til þjóðhagslegs ábata og
ábyrgrar nýtingar fiskistofna. Bent
hefur verið á hversu rýr röksemda-
færsla liggi fyrir framangreindum
fullyrðingum. Eftirlitskostnaður hef-
ur vaxið mest hjá þeim þjóðum sem
hafa gengið hvað lengst í að einka-
væða réttinn til fiskveiða, s.s. Ný-
Sjálendingum og Íslendingum. Ef
ábyrgð hefði aukist hefðu umsvif
Fiskistofu dregist saman í stað þess
að blása út á sama tíma og fiskveiðar
hafa minnkað.
Margir hægrimenn á Íslandi eru
haldnir þeim misskiln-
ingi að kvótakerfið
byggist á lögmálum
frjáls markaðar þar
sem samkeppni hvetur
til aukinnar hagkvæmni
í rekstri. Það er af og
frá en kerfið einkennist
mjög af fákeppni og
stöðnun.
Framkvæmdastjóri
Vísis í Grindavík, Pétur
Pálsson, viðurkenndi á
fundi Samtaka atvinnu-
lífsins þann 9. febrúar sl. að af 20
kvótahæstu útgerðum sem ráða yfir
84% kvótans væru aðeins tvær yngri
en 30 ára. Varla þarf frekari vitna við
um að kvótakerfið er lokað kerfi þar
sem fákeppni ræður ríkjum. Allt tal
um að megnið af veiðiheimildum hafi
skipt um hendur á síðustu árum er
vægast sagt orðum aukið.
Sömuleiðis er allt tal um að það
verði að festa núverandi kvótakerfi
til langs tíma í sessi furðulegt í ljósi
þess að í raun er með því verið að
festa í sessi fákeppni og stöðnun í at-
vinnugreininni. Engu að síður felur
kerfið í sér gríðarlega óvissu um
framtíð heilu byggðarlaganna eins
og sorgleg dæmin sanna þar sem
byggðarlögin eru sett undir geð-
þóttavald handhafa veiðiheimild-
anna. Óvissa byggðarlaganna hefur
falið í sér að fáir hafa treyst sér til
þess að fjárfesta í fasteignum eða af-
leiddum atvinnurekstri sjávarbyggð-
anna og ekki hefur bætt úr skák
stöðugur samdráttur veiðiheimilda
frá því að kvótakerfið var tekið upp.
Að hafa alltaf
réttast fyrir sér
Eftir Sigurjón
Þórðarson
Sigurjón Þórðarson
»Einungis 2 af 20
kvótahæstu útgerð-
um sem ráða yfir 84%
kvótans eru yngri en 30
ára!
Höfundur er formaður
Frjálslynda flokksins.