Morgunblaðið - 23.02.2011, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
✝ Jón Vigfússonfæddist á
Kirkjubóli í Vaðla-
vík 7. apríl 1929.
Hann andaðist á
Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaup-
stað 15. febrúar
2011. Foreldrar
hans voru hjónin
Vigfús Krist-
jánsson, f. 19.12.
1894, d. 25.9. 1969,
og Kristín Málfríður Jónsdóttir,
f. 20.11. 1900, d. 10.3. 1974.
Systkini Jóns voru Ingibjörg og
Elísabet, fæddar 1927, Þór-
ólfur, f. 1932, og Kristján, f.
1936. Eftirlifandi eiginkona
Jóns er Svanhildur Stef-
ánsdóttir, f. 9.11. 1943 á Foss-
völlum í Jökulsárhlíð. Dóttir
hjónanna: Stefáns Sighvats-
sonar, f. 29.9. 1903, d. 30.5.
1963, og Sigurbjargar Fann-
eyjar Elíasdóttur, f. 1.1. 1915,
d. 23.12. 1997, en þau fluttu
búferlum niður í Vaðlvík þegar
Svanhildur var á 3. ári. Börn
Jóns og Svanhildar eru: 1) Elí-
f. 1999, Svanhildur Sól, f. 2002,
og Sveinn, f. 2005. 5) Víkingur
Jónsson, f. 31.1. 1979, d. 25.10.
1986. 6) Sigurbjörg Ósk Jóns-
dóttir, f. 25.9. 1982, sambýlis-
maður hennar Halldór Örn
Kristjánsson, f. 1974, dætur
þeirra Fanney Ósk, f. 2004,
Kolbrún Anna, f. 2007, og Hug-
rún Harpa, f. 2008. Sonur
Svanhildar er Stefán Fannar
Sigurðsson, f. 23.2. 1961, dóttir
hans Katrín Björg, f. 1988.
Jón ólst upp á Kirkjubóli í
Vaðlavík, þar stundaði hann
sjósókn frá unga aldri ásamt
föður sínum. Hann tók svo við
ábúð á Kirkjubóli eftir foreldra
sína ásamt Svanhildi Stef-
ánsdóttur árið 1965. Þau flutt-
ust svo ásamt börnum sínum
og móður Svanhildar inn að
Hólmum við Reyðarfjörð 18.
júlí 1968. Jón og Svanhildur
voru gefin saman í Eskifjarð-
arkirkju hinn 22.4. 1973. Þau
stunduðu búskap á Hólmum
ásamt æðarrækt allt til ársins
2005 en þá fluttust þau inn á
Tungumel 7 á Reyðarfirði.
Útför Jóns verður gerð frá
Reyðarfjarðarkirkju í dag, 23.
febrúar 2011, og hefst athöfnin
kl. 14.
as Jónsson, f. 16.9.
1965, sambýliskona
hans Margrét Þor-
valdsdóttir, f. 1968,
börn þeirra Vík-
ingur Trausti, f.
1989, Þorvaldur
Már, f. 1993, og
Henný Marín, f.
1996. 2) Kristín
Málfríður Jóns-
dóttir, f. 18.7.
1967, börn hennar
frá fyrra hjónabandi: Bjartmar
Snær, Sóldís Fönn og Unnur
Mjöll, f. 1997. Núverandi sam-
býlismaður Jón Kristinn Arn-
grímsson, f. 1970, börn þeirra
Heiðdís Björt, f. 2008, og Gerð-
ur Sól, f. 2010. Sonur Jóns
Kristins frá fyrri sambúð
Björgvin Rafn, f. 1997. 3) Vig-
fús Jónsson, f. 1.7. 1971, sam-
býliskona hans María Dagrún
Þórðardóttir, f. 1970. Synir
þeirra Jón, f. 1992, og Jakob, f.
1998 . 4) Sigurbjörn Jónsson, f.
19.4. 1974, eiginkona hans
Díana Mjöll Sveinsdóttir, f.
1974, börn þeirra Jökull Logi,
Mér verður á þessari stundu
hugsað um það hvað ég var
heppinn að fá að alast upp í
sveitinni hjá ykkur mömmu og
systkinum mínum. Þar var alltaf
nóg að gera, heyskapur, hugsa
um kýrnar og kindurnar, fara í
hólmana á vorin að taka dúninn
og annað sem búskapnum til-
heyrði. Þú sagðir kannski ekki
alltaf nákvæmlega hvernig ætti
að gera hlutina, sumt lærðum
við bara með því að fylgjast með
þér. Þú vildir okkur öllum vel og
lést okkur ekki gera verk sem
þú hélst við réðum ekki við eða
væru hættusöm. Stundum
gramdist mér það að fá ekki að
gera það sama og eldri bræður
mínir í heyskapnum, en eftir á
að hyggja er ég þér þakklátur,
því ef að er gáð hafði ég ef til
vill ekki þroska í þessi verk.
Á sumrin var að sjálfsögðu
farið í dagsferðir í Vöðlavíkina á
Land Rovernum og dagurinn
nýttur í að veiða, synda í ósnum,
tína ber og ýmislegt annað
skemmtilegt og á meðan horfðir
þú eftir rekaviði úti í gömlu
höfninni.
Seiglan í þér var ótrúleg
þrátt fyrir að þú værir veikur í
fætinum, hvað þú varst ósérhlíf-
inn og vissir alltaf hvað þú vildir
og hvert þú varst að fara. Þér
féll aldrei verk úr hendi, þú
vaknaðir á nóttunni til að sinna
kollunum, fórst á sjóinn, safn-
aðir rekaviði og fylgdist grannt
með þínu nánasta umhverfi og
náttúrunni.
Þú varst okkur hlýr og góður
og barnabörnunum þínum, sem
þú tókst á hné þér og söngst
fyrir vísur.
Elsku pabbi: Nú hefur þú
kvatt þennan heim og við sitjum
eftir með söknuði, en við vitum
að þér líður vel og þú hefur
fengið góðar móttökur hjá Vík-
ingi heitnum bróður okkar. Hvíl
þú í friði.
Bí, bí og blaka,
álftirnar kvaka;
ég læt sem ég sofi,
en samt mun ég vaka.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þinn sonur,
Sigurbjörn Jónsson.
Elsku pabbi, afi og tengda-
pabbi.
Nú er kallið komið, þú farinn
frá okkur á aðrar og vonandi
betri lendur. Ég er svo heppinn
að eiga þrjú heilbrigð börn sem
fengu að kynnast þér, vera með
þér í dagsins önn.
Alltaf vorum við tilbúin að
koma og hjálpa til við heyskap
eða hvað sem var, alltaf voru
krakkarnir jafn spenntir að
kíkja í sveitina og þá sérstak-
lega Þorvaldur en hann hafði
unun af því að fara í fjósið að
ekki sé talað um að fara á sjó,
en ófáar ferðirnar fór hann með
þér í hólmana og til að veiða.
Svo eftir að þið fluttuð inn á
Reyðarfjörð kíkti Henný oft til
ykkar og fékk þig meira að
segja til að spila við sig. Þú
varst ekki að tala of mikið en ég
held að flestir hafi vitað til hvers
var ætlast af þeim. Þegar þú
varst áttræður bjó ég til nokkr-
ar vísur um lífshlaup þitt og
komu okkar systkinanna í þenn-
an heim, þegar ég hafði lesið
þetta upp spurði einhver
„hvernig fannst þér?“ Eina svar-
ið sem kom var „allt í lagi það
sem ég heyrði“.
Það kom í minn hlut að dvelja
hjá þér síðustu klukkutímana í
þessu jarðlífi og eru það tímar
sem ég mun sennilega aldrei
gleyma, það seinasta sem ég
sagði við þig var „góða nótt og
ég bið að heilsa Víkingi“. Eftir
það sofnaði ég en var vakinn um
hálftíma síðar og var þá allt bú-
ið. Meðan á þessari stuttu bar-
áttu þinni við þessi alvarlegu
veikindi stóð gerði ég þrjár vís-
ur sem ég ætla að láta fljóta
með hérna í restina en þær
segja kannski meira en mörg
orð.
Senn líður að lokum það þýðir
bara eitt
þá lítum við bara til baka
mörg voru sporin þó þú farir ei
greitt
af mörgu er eflaust að taka.
Lífsins göngu lýkur hér
þetta er svona líking
kæra kveðju sendi ég þér
bið að heilsa Viking.
Við dánarbeðið stóð og starði á
þig
vondaufum augum horfðir þú á
móti
Drottinn Guð hann vildi fara að fá
þig
máttvana þú streittist stíft á
móti.
Elsku mamma, betri lífsföru-
naut hefði pabbi ekki getað átt.
Megi góður Guð styrkja okkur
öll á þessum erfiðu tímum.
Elías Jónsson, Margrét
Þorvaldsdóttir, Víkingur
Trausti, Þorvaldur Már
og Henný Marín.
Kæri, pabbi, tengdapabbi og
afi. Nú hefur þú fengið að sigla
þinn lífsins ólgu sjó. Margt hef-
ur á daga þína drifið enda
varstu svo lánsamur að lifa þá
marga.
Þú varst okkur öllum mikil
fyrirmynd með fasi þínu sem
ávallt var glatt, ljúft og jafnvel
glettið.
Þú varst ávallt tilbúinn að
hjálpa öðrum og koma fram við
alla eins og jafningja. Þú komst
ávallt til dyranna eins og þú
varst klæddur og lást aldrei á
þínum skoðunum.
Þú undir þér aldrei betur en
þegar þú fékkst að ganga um
þína heimahaga hvort sem um
var að ræða í Vaðlavíkinni eða
heima á Hólmum. Þrátt fyrir að
þú gengir ekki heill til skógar
síðustu áratugina af þinni lífsleið
fann maður aldrei á þér neinn
bilbug. Þú gekkst bara í þín
verk eins og þú værir heill á lík-
ama.
Þegar maður lítur til baka og
minnist þín kemur upp í huga
manns mynd af þér við bónda-
störfin heima á Hólmum. Þegar
þú varst að mjólka kýrnar, gefa
þeim eða sinna þínum ástkæru
fuglum í hólmunum.
Mér er sérstaklega minnis-
stætt að núna á gamlársdag
stytti ég bol sem þú ætlaðir að
vera í. Þegar ég var búinn að
því horfðir þú á saumaskapinn
glottir og sagðir: „Já, þetta er
nú bara þokkalega gert hjá
þér“. Já, minningarnar eru
margar um þig elsku pabbi
minn. Þrátt fyrir mjög erfið
veikindi sem þú þurftir að ganga
í gegnum síðustu vikurnar af
þinni lífsleið. Þá er ég svo þakk-
lát fyrir að hafa fengið að vera
hjá þér.
Ég er svo lánsöm að hafa
fengið að ala þér 3 barnabörn.
Það gladdi þig mikið þegar þær
vildu koma til þín og sitja í fang-
inu á þér og þú söngst fyrir þær
vísur eins og „Bí, bí og blaka og
„Gamli Nói“. Þú áttir alltaf eitt-
hvert nammi til þess að gefa
stelpunum mínum og skildir oft
ekkert í því af hverju þú mættir
ekki gefa þeim smásúkkulaði
þótt það væri mánudagur en
ekki laugardagur. Enda komu
dætur mínar til þín og sögðu:
„Afi. áttu ekki smá Ópal handa
okkur?“
Ég er svo innilega þakklát
fyrir að hafa fengið að njóta
þess að vera dóttir þín. Hún
Fanney mín sagði við mig þegar
ég var að segja henni að þú
værir farinn frá okkur:
„Mamma, ekki gráta, nú er afi
engill hjá Guði.“ Já, og það ertu
sannarlega, nú getur þú gengið
heill og notið þess að finna
hvergi til. Minning þín mun
ávallt lifa í hjörtum okkar þótt
söknuðurinn sé mikill.
Ég ætla að fá að kveðja þig
með þínum orðum, vertu sæll og
takk fyrir komuna.
Hvíldu í friði, faðir minn
kæri.
Í frelsarans hendur ég sál
þína færi.
Sigurbjörg Ósk,
Halldór Örn og dætur.
Jón Vigfússon
Það komu margir við hjá
ömmu síðustu dagana á Hrafn-
istu í Boðaþingi. Ég held að
henni hafi líkað vel þar enda
vildi hún gjarnan hafa margt
fólk í kringum sig. Þannig hafði
hún t.d. mjög gaman af því að
Guðlaug Ólafsdóttir
✝ Guðlaug Ólafs-dóttir fæddist
9. febrúar 1928 í
Dalbæ í Gaulverja-
bæjarhreppi. Hún
lést á hjúkr-
unarheimili Hrafn-
istu í Kópavogi 8.
febrúar 2011.
Útför Guðlaugar
var gerð frá Digra-
neskirkju 16. febr-
úar 2011. Jarðsett
var í Kópavogskirkjugarði.
fá fólkið sitt í
heimsókn og skoð-
aði hún gjarnan
myndir af afkom-
endunum undir það
síðasta. Sem börn
fengum við Snorri
frændi stundum að
fara með ömmu og
afa í sumarbústað-
inn. Þar óðum við
uppi, prakkararnir,
og fengum óskerta
athygli og gerðum það sem við
vildum. Amma hafði ótrúlega
þolinmæði fyrir því og sá meira
að segja ástæðu til að biðja
nærstadda afsökunar ef við
höfðum gengið aðeins of langt.
Það kom nú svo sem ekki mjög
oft fyrir, minnir mig. Nóg var
haft þar fyrir stafni, þau amma
og afi fóru með okkur í golf, í
sund í múraralauginni o.fl. o.fl.
Svo einstaka sinnum tók amma
okkur með í að gróðursetja í
landinu. Það land er nánast
orðinn skógur í dag og á amma
stóran þátt í því.
Á páskum var gríðarmikið
fjör í bústaðnum hjá ömmu og
afa. Páskaeggin voru vandlega
falin og ekki af minni gerðinni.
Og alltaf þegar komið var í bú-
staðinn sá amma til þess að all-
ir fengju eitthvað að borða. Ég
sé hana alveg fyrir mér á þeyt-
ingi um eldhúsið þar að smyrja
ofan í okkur gaurana. Þegar
amma og afi bjuggu á Þinghóls-
brautinni kom ég ansi oft við
hjá ömmu.
Við bjuggum tiltölulega
skammt frá og fór ég þangað
með blaðið sem ég bar út til
þeirra. Þá var hjólað við hjá
ömmu, sem yfirleitt var heima
við og tilbúin með eitthvað mat-
arkyns til að bjóða lafmóða
blaðberanum. Hún tók húsmóð-
urhlutverkið alvarlega og ekki
vafðist það fyrir henni að ráð-
leggja manni um hina ótrúleg-
ustu hluti. En hún kunni ým-
islegt fleira, m.a. að mála.
Málverkin hennar eru glæsileg,
m.a. landslagsmyndir og mynd-
ir af æskuslóðum hennar. Og
ekki var hún síðri í postulíns-
málningu.
Á jólum eru alltaf teknir
fram bollarnir sem hún málaði
og merkti með nöfnum okkar.
Síðasta bollann hér málaði hún
fyrir Óla Val litla í lok árs 2008.
Heilsu ömmu hrakaði svo
smám saman og var hún alls
ófær um að sinna listinni undir
það síðasta. Með afa ferðaðist
hún á ævi sinni kringum allan
hnöttinn og sá heiminn. Þau
voru góð saman. Hvíl í friði,
amma mín.
Helgi Már Ólafsson.
✝
Okkar ástkæra
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Breiðabólsstað í Reykholtsdal,
andaðist fimmtudaginn 10. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 24. febrúar kl. 13.00.
Guðni Þórðarson,
Jón Snævarr Guðnason, Þórdís Unndórsdóttir,
Sigrún Halla Guðnadóttir, Ólafur Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR ÞORSTEINSSON,
Staðarhvammi 21,
Hafnarfirði,
lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn
20. febrúar.
Guðmundur Ingi Thorsteinsson,
Þorsteinn Elí Halldórsson, Karen Lynn Thorsteinsson,
Elsa Eyrós Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir minn og afi okkar,
PÁLL STRAUMBERG ANDRÉSSON,
Palli í Múla,
er látinn.
Útförin verður gerð frá Reykhólakirkju
laugardaginn 26. febrúar kl. 13.00.
Jarðsett verður í Akraneskirkjugarði sama
dag.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á að láta dvalarheimilið Barmahlíð á
Reykhólum njóta þess.
Pálína Straumberg Pálsdóttir,
Páll Straumberg Guðsteinsson,
Oddur Andrés Guðsteinsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR,
Réttarholti,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugar-
daginn 19. febrúar, verður jarðsungin frá
Grenivíkurkirkju laugardaginn 26. febrúar
kl. 14.00.
Haraldur Höskuldsson, Sigrún Aðalsteinsdóttir,
Guðlaugur Höskuldsson,
Óli Gunnar Höskuldsson,
Sigurbjörn Höskuldsson, Janette Höskuldsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
REYNIR GUÐLAUGSSON
bóndi frá Hrísum Helgafellssveit,
Vallarflöt 5,
Stykkishólmi,
lést sunnudaginn 13. febrúar.
Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju
föstudaginn 25. febrúar kl. 14.00.
Halldóra Baldursdóttir,
Guðrún Karólína Reynisdóttir, Magnús Guðmundsson,
Unnar Reynisson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Steingrímur K. Reynisson, María Lovísa Ragnarsdóttir,
Margrét Reynisdóttir, Agnar Björnsson,
Anna Reynisdóttir, Páll Aðalsteinsson,
Bryndís Reynisdóttir, Oddur Óskar Pálsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BERGUR SIGURPÁLSSON,
Tjarnarmýri 41,
lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
19. febrúar.
Bjarni Reynir Bergsson,
Sigurpáll Bergsson, Hjördís Harðardóttir,
Bergur Bergsson, Sigrún Ólafsdóttir
og barnabörn.