Morgunblaðið - 23.02.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
Schubert hafði þegar færtljóð Müller, Malarastúlk-una fögru, í tónbúningnokkrum árum áður þegar
hann tók til við að semja Vetrarferð-
ina. Verkið samdi hann í tveimur
hlutum, 12 söngvar í hvorum hluta,
annars vegar í febrúar og hins vegar
í október árið 1827. Fyrsta útgáfa
verksins var einnig í tvennu lagi og
kom út snemma og síðla árs 1828.
Lagaflokkurinn fjallar um ungan
mann, sem hefur verið svikinn í
tryggðum og notar Müller sífellt
myndlíkingar úr heimi náttúrunnar
til þess að sýna sálarvíl hins brostna
hjarta, frostið sem nístir sálina,
villuljós hugans og hrímið, sem
bregður gráma á hár hans, svo
nokkur dæmi séu tekin. Vetr-
arferðin hefur ávallt verið talin einn
af hápunktunum í ljóðalist Schubert,
enda sagði austurríska leikskáldið
Grillparzer um verk hans: „Hann lét
orðin syngja og tónana tala“.
Bjarni Thor hefur verið einn af
okkar farsælustu söngvurum und-
anfarin ár og hefur sungið viðamikil
bassahlutverk í fjöldamörgum óp-
eruhúsum í Evrópu og víðar. Bjarni
Thor, sem hlaut Grímuna sem
söngvari ársins árið 2006, stóð sig
frábærlega þessa laugardagsstund.
Að vísu gætti þess einu sinni eða
tvisvar í upphafi að það vantaði að-
eins upp á stuðninginn í veikum nið-
urlagshendingum, svo að tónninn
féll lítið eitt en slíkt er sparðatíning-
ur hinn mesti í ljósi frammistöð-
unnar. Vetrarferðin lék í höndum
hans og túlkunin og heildarsvip-
urinn var sannfærandi allt frá upp-
hafi til enda. Ekki er hægt að tala
um eiginlegan undirleik, þegar kem-
ur að píanópartinum, enda er píanó-
leikarinn fullgildur þátttakandi í
þessari tónsmíð. Ástríður Alda
sannaði það með Chopin-geisladiski
sínum nýverið að hún er flottur túlk-
andi rómantískrar tónlistar og var
samleikur þeirra Bjarna hnökra-
laus.
Íslenskri þýðingu á texta Vetr-
arferðarinnar var smekklega varpað
á tjald að baki flytjenda meðan á
flutningi stóð og setti það punktinn
yfir i-ið varðandi þennan flutning.
Hvort sem maður skilur þýskuna lítt
eður vel gefur slíkt tónleikaupplif-
uninni aukna dýpt.
Schubert í Salnum
Morgunblaðið/Ómar
Ástríður Alda og Bjarni Thor „Vetrarferðin lék í höndum hans og túlkunin
og heildarsvipurinn var sannfærandi allt frá upphafi til enda.“
Salurinn
Bjarni Thor Kristinssonbbbbn
Franz Schubert: Vetrarferðin, ljóða-
flokkur e. Wilhelm Müller. Bjarni Thor
Kristinsson bassi, Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir píanó. Laugardagurinn 19. febr-
úar kl. 17.00.
SNORRI VALSSON
TÓNLIST
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Skagfirski karlakórinn Heimir legg-
ur land undir fót í vikulokin og kem-
ur fram á tvennum tónleikum á suð-
vesturhorninu. Syngur kórinn í
Njarðvíkurkirkju á föstudagskvöldið
kl. 20.30 og í Langholtskirkju daginn
eftir, laugardag, kl. 15.
Helga Rós Indriðadóttir sópr-
ansöngkona stýrir kórnum í vetur
þar sem Stefán R. Gíslason er í leyfi.
„Á tónleikunum verða klassísk
karlakóralög, hestamannaljóð og óp-
erukórar,“ segir Helga Rós. „Við
byrjum á þjóðlegum nótum og svo er
efnisskráin eftir hlé meira léttleik-
andi. Hinn ungi skagfirski harm-
ónikkusnillingur Jón Þorsteinn
Reynisson kemur fram með okkur,
leikur með í nokkrum lögum og
verður líka með einleik.“
Helga Rós tók við Heimi í haust
og segir samstarfið við kórfélaga
hafa gengið mjög vel.
„Þeir tóku mér strax vel og leggja
sig alla fram, eru til í allskyns
hundakúnstir á æfingum og það hef-
ur verið óskaplega gaman hjá okkur.
Við æfum tvisvar í viku og félagarnir
leggja mikið á sig, sumir þurfa að
fara langa leið á æfingar.“
Er satt að Helga Rós hafi jafnvel
sett þá í þrekæfingar?
Hún hlær og svarar játandi. „Þeir
mæta ekki bara á söngæfingar held-
ur eru þetta líka leikfimiæfingar, en
það er hluti af upphitun. Þeir gera
allt sem ég segi,“ aftur hlær hún.
„Annars hjálpar það til við að ná
dýpri öndun og slaka á að hreyfa sig
um leið og maður syngur, röddin fær
að njóta sín.“
Söngur eykur vellíðan
Helga Rós, sem er frá Hvíteyrum
í Lýtingsstaðahreppi, stundaði nám
við Tónlistarskólann í Reykjavík og
er menntaður tónmennta- og söng-
kennari, og einsöngvari. Þá lauk hún
meistaragráðu við Tónlistarháskól-
ann í Stuttgart árið 1999 og var í
kjölfarið fastráðin sem einsöngvari
við óperuhúsið í Stuttgart þar sem
hún starfaði í 8 ár. Hún hefur komið
fram sem einsöngvari með Heimi við
ýmis tækifæri.„Það voru því ekki
margir kórfélagar sem ég þekkti
ekki þegar ég tók við kórnum í
haust,“ segir hún og bætir við að
þótt flestir kórfélaganna séu vanir,
þekki efnisskrána vel og viti hvað
þarf að leggja mikið á sig á tón-
leikum sé talsverð og ánægjuleg
endurnýjun í hópnum.
En hver skyldi að hennar mati
vera ástæðan fyrir vinsældum
Heimis og hinni rómuðu skagfirsku
raddfegurð?
„Áhugi kórfélaganna er ótrúlega
mikill. Einn sagði að Bretinn færi á
pöbbinn eftir vinnu en hann færi á
kóræfingu!“ segir hún. „Söngur er
líka hollur og eykur vellíðan.
Annars held ég að eitthvað í gen-
unum sé ástæðan fyrir þessari sam-
heldni og vinsældunum. Ég hef líka
haldið fram að ástæðan sé land-
fræðileg; fjallahringurinn sem um-
lykur okkur hefur sín áhrif.“
„Það hefur verið
óskaplega gaman“
Helga Rós Indriðadóttir stýrir Karlakórnum Heimi í vetur
Stjórnandinn Helga Rós Indriðadóttir með hluta Karlakórsins Heimis.
Hljómsveitin Skuggamyndir frá
Býsans leikur á tónleikum á Café
Rósenberg í kvöld, miðvikudag.
Hefjast tónleikarnir klukkan
21.00
miðvikudagskvöldið 23. febrúar
kl 21:00.
Hljómsveitin var stofnuð um
mitt ár 2010 en meðlimir hennar
eru íslenskum tónlistarunnendum
að góðu kunnir. Efnisskrá hljóm-
sveitarinnar er samsett af þjóð-
legri tónlist frá Balkanlöndunum
en sú tónlist er annáluð fyrir ólg-
andi tilfinningahita, blandaðan
austurlenskri dulúð. Forsprakkar
hljómsveitarinnar hafa sótt sér
innblástur með ferðum til Búlg-
aríu þar sem þeir hafa numið hjá
ýmsum þarlendum hljómlist-
armönnum.
Hljómsveitina skipa þeir Hauk-
ur Gröndal á klarínett, en hann
hefur fengist talsvert við Austur-
evrópska tónlist, Ásgeir Ásgeirs-
son á tamboura, Þorgrímur Jóns-
son á rafbassa, Erik Qvick á slag-
verk og Magnús Tryggvason
Elíassen á trommur.
Skuggamyndir frá
Býsans leika í kvöld
Spilað Hluti hljómsveitarmeðlima.
Vísindafélag Ís-
lendinga efnir til
málþings í Þjóð-
minjasafninu í
dag, miðvikudag,
undir yfirskrift-
inni: Um fjár-
mögnun grunn-
rannsókna á
Íslandi – Bein
framlög eða sam-
keppnissjóðir?
Stendur málþingið frá kl. 16-18.
Frummælendur verða prófess-
orarnir Magnús Karl Magnússon og
Jón Torfi Jónasson. Guðrún Nordal
stýrir málþinginu.
Málþing um
fjármögnun
rannsókna
Magnús Karl
Magnússon
Gerður Kristný mun á morgun,
fimmtudag, ræða um ljóðabók sína,
Blóðhófni, í fyrirlestraröðinni
Hvernig verður bók til? Fyrirlest-
urinn verður í stofu 105 á Há-
skólatorgi fimmtudaginn 24. febr-
úar og hefst klukkan 12.00.
Gerður Kristný hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin á dögunum
fyrir Blóðhófni og fjallar meðal
annars um tilurð bókarinnar. Ljóð-
in kallast á við eitt þekktasta ljóð
Eddukvæða, „Skírnismál“.
Fyrirlestraröðin er skipulögð af
ritlist við íslensku- og menning-
ardeild í samvinnu við Bókmennta-
og listfræðastofnun.
Gerður
Kristný fjallar
um Blóðhófni
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Mið 23/2 kl. 20:00 forsýn Þri 8/3 kl. 20:00 aukasýn Lau 26/3 kl. 19:00 12.k
Fim 24/2 kl. 20:00 forsýn Mið 9/3 kl. 20:00 6.k Fös 1/4 kl. 19:00
Fös 25/2 kl. 20:00 frumsýn Fös 11/3 kl. 19:00 7.k Lau 2/4 kl. 19:00
Lau 26/2 kl. 19:00 2.k Fös 11/3 kl. 22:00 aukasýn Sun 3/4 kl. 20:00
Þri 1/3 kl. 20:00 aukasýn Mið 16/3 kl. 20:00 8.k Fim 7/4 kl. 20:00
Mið 2/3 kl. 20:00 3.k Fim 17/3 kl. 20:00 9.k Lau 9/4 kl. 19:00
Fös 4/3 kl. 19:00 4.k Fös 18/3 kl. 19:00 10.k Sun 10/4 kl. 20:00
Fös 4/3 kl. 22:00 aukasýn Fös 18/3 kl. 22:00 ný aukas Sun 17/4 kl. 20:00
Lau 5/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 24/3 kl. 20:00 11.k Fös 29/4 kl. 19:00
Lau 5/3 kl. 22:00 aukasýn Fös 25/3 kl. 19:00 aukasýn Lau 30/4 kl. 19:00
Sun 6/3 kl. 20:00 5.k Fös 25/3 kl. 22:00 aukasýn
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Ofviðrið (Stóra sviðið)
Fim 3/3 kl. 20:00 Fim 10/3 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 20:00
Ástir, átök og leiftrandi húmor
Fjölskyldan (Stóra svið)
Sun 27/2 kl. 19:00 aukasýn Sun 20/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 31/3 kl. 19:00 lokasýn
Lau 12/3 kl. 19:00 aukasýn Sun 27/3 kl. 19:00 aukasýn
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar. Allra síðustu sýningar!
Afinn (Litla sviðið)
Sun 27/2 kl. 20:00 Lau 19/3 kl. 19:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans. Sýnt á Stóra sviðinu í mars
Nýdönsk í nánd (Litla svið)
Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 22:00 Fim 14/4 kl. 20:00
Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Lau 26/2 kl. 19:30 Fös 15/4 kl. 19:00
Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Lau 26/2 kl. 22:00
Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr. Sýnt á Stóra sviðinu í apríl
Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið)
Sun 27/2 kl. 12:00 Sun 27/2 kl. 14:00 lokasýn
Bestu vinkonur allra barna. Síðustu sýningar!
Nýdönsk í nánd – á Stóra sviðinu í apríl
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
551 1200 / leikhusid.is
LÉR
KONUNGUR
Sýningum lýkur í febrúar