Morgunblaðið - 23.02.2011, Blaðsíða 32
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Beggi Smári var
að senda frá sér nýtt lag sem ber
nafnið „Warm & Strong“ á tonlist.is
og líka er hægt að horfa á mynd-
band við lagið á You Tube. Lagið er
þegar farið að hljóma á öldum ljós-
vakans en það er fyrsta smáskífan
af væntanlegri breiðskífu tónlistar-
mannsins sem ber nafnið Mood og
kemur út í apríl á vegum útgáfufyr-
irtækisins Hands Up Music.
„Platan er tilbúin,“ segir Beggi
og útskýrir að það sé góð tilfinning
að vera búinn að taka upp fyrstu
sólóskífu sína. „Það er mjög góð til-
finning að platan sé að koma út. Það
liggur mikil vinna að baki en ég er
búin að vera að vinna að þessu síð-
ustu tvö til þrjú ár. Það má segja að
platan sé gítarplata þó að þetta sé
einhver blanda af
poppi, rokki og
blús.“
Spannar langt
tímabil
Eins og oft er
með fyrstu sóló-
plötur spannar
hún frekar langt
tímabil í lífi höf-
undarins og er
frekar fjölbreytt
fyrir vikið. „Það
eru ekki öll lögin
samin fyrir plöt-
una en það er
samt einhver
samtónn í allri
plötunni,“ segir
Beggi.
„Warm & Strong“ er í rólegri
kantinum en kjarninn í því sem
Beggi gerir er gítarpopp með blús-
rætur að hætti kappa á borð við
Eric Clapton og John Mayer. Plat-
an var tekin upp og hljóðblönduð af
Daða Birgissyni hjá Benzin Music
sem spilar líka á hljómborð á plöt-
unni. Platan heitir Mood eftir
hljómsveitinni sem Beggi hefur
spilað hvað mest með og félagar
hans úr sveitinni Friðrik Geirdal
Júlíusson trommuleikari og Ingi
Skúlason bassaleikari spila að
hluta til undir á plötunni. Annað
hrynpar kemur líka við sögu en það
eru þeir Einar Scheving trommari
og Ingi Björn Ingason bassaleik-
ari.
Tónlist er greinilega í ættinni
hjá Begga en tónlistarmaðurinn og
lagahöfundurinn Örlygur Smári er
bróðir hans. „Við ólumst upp í
þessu saman. Við
vorum í mörgum
hljómsveitum
saman en fórum
síðan í sitthvora
áttina. Fáir vita
að Öggi er inni við
beinið rokk-
hundur, þrusu
söngvari og gít-
arleikari. Tónlist-
in okkar er
kannski ólík í dag
en við virðum
hvor annan og
höfum hjálpast
mikið að í gegn-
um tíðina. Þetta
er allt bara músík
þegar öllu er á
botninn hvolft.“
Mikil vinna „Það er mjög góð tilfinn-
ing að platan sé að koma út. Það ligg-
ur mikil vinna að baki en ég er búin
að vera að vinna að þessu síðustu tvö
til þrjú ár,“ segir Beggi.
Gítarpopp
með rætur í
blúsnum
Fyrsta smáskífa Begga Smára heit-
ir Warm & Strong Plata í apríl
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
Kvikmyndin The Eagle erblóði drifin aðlögun á sí-gildri bandarískri ung-lingabók eftir Rosemary
Sutcliff frá 1954. Ævintýraleg frá-
sögnin byggist á sagnfræðilegum
heimildum en slíkar sögur virðast
ætla að verða einkennandi fyrir feril
leikstjórans Kevins Macdonalds,
sem gert hefur það gott með mynd-
um á borð við The Last King of Scot-
land (2006).
Nýjasta mynd hans gerist á ann-
arri öld eftir Kristsburð og leggur út
af goðsögninni um dularfullt hvarf
níundu hersveitar Rómarveldis sem
lagði í hernað út fyrir endimörk
bresku nýlendunnar, út í skosku
auðnina. Sagan segir af ólíklegri vin-
áttu rómverska herforingjans Mark-
úsar (Channing Tatum) og breska
þrælsins Esca (Jamie Bell) en þeir
leggja upp í vegferð til að komast að
því hvað varð um hina horfnu her-
sveit og til að endurheimta helgitákn
hennar, gyllta örninn.
Myndin verður áhugaverðari eftir
því sem söguhetjurnar ferðast norð-
ar inn á hálendi Skotlands. Þar kom-
ast þær í kynni við frumstæðan þjóð-
flokk óárennilegra stríðs- og veiði-
manna, Selafólkið. Ákveðin umskipti
verða á högum hetjanna á þessum
slóðum því Rómverjinn Markús
verður að þykjast þræll Esca svo
hann verði ekki drepinn um-
svifalaust af frumbyggjunum.
The Eagle er stórmynd á gamla
mælikvarðann þar sem hún notast
lítið sem ekkert við grafískar brellur
og tölvuteiknaða heri. Þess í stað
sést trúverðugur fjöldi lifandi leik-
ara þeysast um ægilegt og raun-
verulegt landslag. Framvindan verð-
ur ekki minna stórbrotin fyrir vikið.
Hún er mjög epísk og bardagarnir
stórtækar stimpingar með tilheyr-
andi óhugnaði og spennu. Spennan
felst aðallega í togstreitu persóna
við að reyna að breyta rétt í heimi
þar sem allt siðferði virðist afar bar-
barískt og afstætt. Vægðarlaus
slátrun andstæðra fylkinga með til-
heyrandi blóðbaði, virðist því á köfl-
um vera helst til tilgangslaus og erf-
itt er fyrir áhorfendur að fylkja sér
um hetjurnar.
Hvort sem hinir uppivöðslusömu
rómversku hermenn myndarinnar
reyna að verja hernumin svæði á
Englandi gegn innfæddum eða þeir
etja kappi við frumstæðari þjóð-
flokka norðar í Skotlandi minnir
barátta þeirra á bardaga kúreka við
indíána í villta vestrinu. Herveldi
Rómverja með sínum rustalegu
skemmtunum og þrældómi virðist í
ljósi myndarinnar, ekki minna villi-
mannslegt en andstæðinganna. And-
stæðingar Rómverjanna eru þannig
í senn fórnarlömb og óvinir. Þeir eru
kúgaðir og arðrændir af Rómverjum
og því tilbúnir að vinna ódæðisverk í
nafni frelsis. Aðalstríðsmaður Sela-
fólksins og erkióvinur söguhetjanna,
er til dæmis drifinn af slíkri hug-
dirfsku að sannfæring hans getur
hugsanlega fengið áhorfendur til að
snúast á sveif með hans málstað.
Fyrir utan þennan tvískinnung er
hin epíska saga klassísk. Hún snýst
um stórtæka fjöldabardaga, heið-
ursvarnir og auðvitað ódauðlegt
samband feðra og sona. Konur eru
eins og svo oft áður algjörlega ut-
anveltu í þessu samhengi og hér
verða þær ekki einu sinni rómantísk
viðföng hetjanna.
Myndin er tekin í ægifögru lands-
lagi auðnar Ungverjalands og Skot-
lands. Ferðalag Markúsar og Esca
er sýnt með ljóðrænni líðandi
myndatöku úr nokkurri fjarlægð en
þegar kemur að bardögunum er
tökuvélin óstöðugri og meira er um
nærmyndir til að auka spennu.
Frumsamin tónlist Atla Örv-
arssonar, sem er samsett af dul-
arfullum hálandatónum og kelt-
neskum sálmasöng, kórónar svo
stórbrotna kvikmyndaupplifunina.
Smárabíó
The Eagle bbbmn
Leikstjórn: Kevin Macdonald. Aðal-
hlutverk: Channing Tatum, Jamie Bell,
Donald Sutherland og Mark Strong. 114
mín. Bretland og Bandaríkin, 2011.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Blóðbað Vægðarlaus slátrun myndarinnar virðist á köflum vera helst til tilgangslaus og erfitt er fyrir áhorfendur
að fylkja sér um hetjurnar. Hér slátrar Markús einu fórnarlambinu af mörgum í kvikmyndinni The Eagle.
Blóði drifnir, barbarískir bardagar
„Platan er tónjöfnuð af Bob
Katz, sem er gömul goðsögn og
þrefaldur Grammy-verðlauna-
hafi,“ segir Beggi, sem er að
vonum ánægður með innlegg
hans. Katz var sömuleiðis
ánægður með Begga og setti
færslu á Twitter þar sem hann
mælir með tónlistarmanninum
og segir plötuna „þá persónu-
legustu og mest ekta blúsplötu
sem hann hafi tónjafnað“.
Ekta blúsplata
BOB KATZ TÓNJAFNAÐI