Siglfirðingur - 07.12.1923, Qupperneq 3
SIGLFIRÐINGUR
7
Húsmæður! Bestu kaupin til jólanna gerið
þið í verslun Ásgeirs Pjeturssonar, þar fæst:
Kaffi, Export, Sukkulaði, Cacao, Sukkat, Möndl-
ur sætar, Kúmen, Gerduft, Rúsínur, Sveskjur,
Sætsaft, Purkaðir ávextir, svo sem: Epli, Apri-
cosur, Ferskjur og Bláber, Melís, Strausykur,
Púðursykur, Hveiti, Haframjöl, Rúgmjöl, Sago,
Perlugrjón, Baunir, Súpulit, Kanel, Hjartarsalt,
Natron, Kristalsápa, Jólakerti stór og smá, Eld-
spítur o. m. fl. Verðið er mjög lágt.
Virðingarfyist
Finnur Níelsson.
Vegna þess að jeg þarf að gera reiknings-
skil mjög bráðlega bið jeg alla þá sem ennþá
skulda Landsverslun hjer fyrir steinolíu að gera
full skil fyrir 15. þ. m.
; pr. Landsverslun
Andrjes Hafliðason.
eða sama sem engin óseld síld
vera á markaðinum. Síldarsöltunar-
»spenningurinn« er í algleymingi.
Hann getur tæplega vaxið úr þessu,
en hann gæti minkað seinni-
partinn í vetur eða vor, ýmsar
ástæður eru hugsanlegar, sem þess
yrðu valdandi. Fað á að grípa gæs-
ina meðan hún geíst. Þess vegna
álít jeg svo að Hafnarnefnd og
Bæjarstjórn hafi farið alveg rjett að,
»frá almennu sjónarmiði sjeð.« Eða
átti Bæjarstjórnin að fara að bíða
eftir einhverjum sjerstökum ein-
staklingi, sem ef til vill hefði kom-
ið biðin betur? Spyr sá sem ekki
veit.
Ánnar Borgari.
Siglufjörður.
a m t í ð i n«
vill hjálpa til að dusta rykið af sjúkra-
húsbyggingarmálinu. Það er ágætt. — En
hvers vegna er málið rykfallið? Og hvers
vegna var það lagt upp á hillu? Svör
óskast!
Oflof '
um sjálfan sig virðist það vera hjá rit-
stjóra »Framtíðarinnar« að þykjast hafa
átt upptök að því með tiltögu á borgara-
fundi 1920, að farið var að Ieggja fje í
sjóð til byggingar sjúkraskýlis. Það var
n. I. hreppsnefndin sáluga sem átti upp-
tökin og var byrjað á því,mörguin árum
áður en læknirinn kom til bæjárins.
U n g m e n n a f j e 1 a g i ð
hjelt skemtisamkoinu 1. des. í tilefni
af 5 ára fullveldi landsins. Sig. Björg-
ólfsson flutti ræðu, »Fullveldið 5 ára,«
snjalt erindi sem ef til vill verður birt
hjer í blaðinu við tækifæri. JónJóhannes-
son las upp ágætt kvæði og Chr. Möller
söng sprenghlægilegar gamanvísur. Endað
var ineð dansi — eins og vant er.
S i g 1 i n g a r.
Botnía kom hingað s. I. mánudagskvöld
og Ooðafoss á þiiðjudagsnótt, bæði á
leið austur um land til útlanda.
Flelgi Hafliðason
kom heim með Botníu. Flefur liann
dvalið í Rvík undanfarið sjer til heilsu-
bótar.
Eimskipafjelagið
hefir nú sent út áætlun fyrir skip sín
næsta ár. Eiga þau að fara samtals 30
ferðir milli landa. Viðkomustaðir á Siglu-
firði eru 9 á leið frá útlöndum og vestur
um land, en 10 á leið vestan um land til
SIGLFIRÐINGUR
kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, m i n s t 4 0 b 1 ö ð,
kosta 4 krónur er greiðist fyrirfram. í lausa-
sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem
auglýsa mikið geta komist að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef.
Hvítar
Manchettskyrtur
nýkomnar í
„Hamborg.“
Epli, Vínber
og
Appelsínur
ódýrast í
„Hamborg.“
,HAMBORG‘
selur langódýrast
MATV0RU!
Spyrjið um verðið.
útlanda. Fyrsta ferð frá Danmörku er
Qoðafoss, sem á að vera hjer 24. janúar.
Sameiginlegur fundur
í Hafnarnefnd og Bæjarstjórn, var hald-
inn i fyrradag fyrir lokuðum dyrum.
Hófst hann kl. 4 e. m. og stóð yfir þang-
að til ljósin dóu á tíunda tímanum. —
Sjálfsagt hafa þarna vetið einhver stór-
tíðindi á ferðinni.
Seinnipartinn í gær var enn haldinn
sameiginlegur fundur, en hvað hann stóð
lengi yfir veit blaðið ekki. 'Heyrst liefur
að samkomulagið hafi ekki verið nema í
meðallagi.
Bæj arfógetinn
hefur beðið fyrir svohljóðandi smágrein:
»Athygli ahnennings skal vakin á því, að
nú er gengið um bæinn í lögtökum á
þinggjöldum, eins og eðlilegt er, en al-
menningur ætti að kappkosta að greiða
slík gjöld án lögtaks.«