Siglfirðingur - 21.12.1923, Síða 1
SIGLFIRÐINGUR
I. árg.
Siglufirði 21. des. 1923.
4. blað
Bæjarstjóri.
Eins og nú standa sakir hjer á
Sigiufirði, þá má svo heita, að ekki
sje viðunandi hvernig ýmsum mál-
um bæjarins er komið. Hjer hafa
verið gerðar lítið hugsaóar ráðstaf-
anir, sem, þegar til framkvæmda
hefir komið, hafa rekið sig hver á
aðra og gert nauðsynlegar fram-
kvæmdir í bænum að hreinasta
skrípaleik, bænum til stórskaða.
Petta má ekki ganga svo lengur.
Pað verður að finna einhverja vegi
til þess að slíkt komi ekki fyrir
framvegis.
Aðalástæðan fyrir því hvað margí
fer hjer ver en vænta mætti, er
fyrst og fremst fjótfærni, íhugunar-
leysi og jafnframt oflítil þekking á
verklegum framkvæmdum í bænum
og á notagildi þeirra atvinnufyrir-
tækja, sem bærinn hefuryfir að ráða.
Jeg sje ekki, að úr þessu verði
bætt á annan hátt en með þvf að
fá hingað bæjarstjóra, sem ekki
hefur öðrum hnöppum að hneppa
en að stjórna málefnum bæjarins,
og getur því lagt allann sinn hug
að þeim starfa. Að þessi breyting
hafi aukin útgjöld í för með sjer,
er engum vafa bundið. En ekki
ætti það að verða neinn farartálmi,
og mun síðar sýnt fram á að auk-
in útgjöld víð þessa breytingu, eru
ekki tiifinnanleg.
Löggæsla hjer á Siglufirði fer alt
af vaxandi, og er nú þegar orðinn
ærinn starfi fyrir einn mann. Og
þar sem útlit er fyrir að skipaferðir
aukist og tolltekjur hækki j— og
það í næstu framtíð, — þá fer fó-
getastaðan hjer að verða yfirgrips-
meiri en svo, að hægt sje að búast
við, að nægur tími verði afgangs
til þess að stjórna bæjarmálunum,
svo að vel fari. Virðist þá ekki
annað vera fyrir hendi en aðskilja
þessar tvær stöður.
Sölubúðir okkar
verða opnar þangað til kl. 12 annað kvöld. Á aðfangadag verður þeim
lokað kl. 4 e. m.
Friðb. Níelsson, Sophus Árnason, Ásgeir Pjetursson,
Versl. Hamborg, Sig. Kristjánsson, Sig. S. J. Fanndal.
Lesið þetta með athygli.
Til þess að gefa fátækum bæjarbúum kost á að fá
ódýrar nauðsynjar til jólanna, sel jeg á morgun og
aðfangadag:
Flourmjöl
Hrísgrjón
Export
Strausykur
Sveskjur
í 35 aura,
á 35 aura,
í 130 aura,
í 70 aura,
í 65 aura,
Haframjöl
Kaffi óbr.
Melís
Rúsínur
Sagógrjón
á 35 aura
á 145 aura
á 75 aura
á 100 aura
á 65 aura
Aðeins gegn borgun um leið! Enginn fær meira en
5 kílógr. af hverri tegund.
Aðeins á morgun og aðfangadag!
FriÖb. Níelsson.
Jeg ætla ekki að fara lengra út í
þetta mál nú, það er alveg nýtt og
þarf rólegrar athugunar við. Enda
mun síðar gefast tækifæri til að
ræða það nánar.
Fl.
Höfundurinn er beðinn velvirð-
ingar á því að greinin gat ekki
komið í síðasta blaði.
Lað skal tekið fram, að þó blað-
ið birti greinina, þá er það höfundi
ekki sammála að öllu leyti. En af
því að málið er alveg nýtt, og eig-
inlega stórmál í sjálfu sjer, sem
vert er að rætt sje og athugað frá
ýmsum hliðum, þá var þess getið
í síðasta blaði, að greinin hefði
borist blaðinu.
Lað er nú ekki ósennilegt að
menn líti mismunandi á þetta mál,
ekki síður en á ýms önnur bæjar-
mál sem deilum hafa valdið, enda
urðu mótmælin á undan sjálfri
uppástungunni að þessu sinni.
í síðasta tbl. »Framtíðarinnar«
ræðst ritstjórinn á þessa hugmynd,
og telur henni það eitt til gildis,
að hún baki bæjarsjóði 10. þúsund
króna aukin útgjöld árlega. Skrifar
hann í því sambandi lof mikið um
bæjarfógetann, þar sem hann þakk-
ar honum e i n u m öll stærri fram-
faraspor, sem stigin hafa verið hjer
síðustu árin. »Sglf.« þykir það of-
mælt og nokkuð öfgakent, að þakka
einum manni af ellefu það sem vel
hefur gert verið, og ekki minnist
ritstj. hans þess, að meiri hluti
hafnarnefndar hafi nokkurntíma
verið á móti kaupum Söbstaðseign-
arinnar, og átti hann þó sæti í
nefndinni þegar kaupin voru gerð.
Mun joví fullkomið mishermi að