Siglfirðingur - 21.12.1923, Blaðsíða 2
/
16
SIGLFIRÐINGUR
I. O. G. T.
Stúkan »Framsökn« nr. 187 heldurfundi
á hverju miðvikudagskvöldi kl. 8 í húsi
Hjálpræðishersins.
Nýir meðlimir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrós« nr. 68 held-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. hálf
þrjú á sama stað.
svo hafi verið.
Og vorkunarlaust hefði ritstjór-
anum átt að vera að fara rjett með
kaupverð hafnarlóðarinnar, þó hann
aldrei nema gengi viljandi framhjá
öllum kostnaði .og endurbótum.
i Kaupverð þeirrar eignar, sem nú
hafa verið boðnar nærri 20 þús. kr.
í ársleigu fyrir, var um 90 þús. kr.
en ekki 63 þús., eins og hann segir.
En úr því að bæjarfógetanum
einum eru þakkaðar hinar miklu
framfarir bæjarins síðustu árin og
úr því að farið var að tilfæra ein-
stök dæmi, þá virðist svo sem telja
hefði mátt upp fleira en gert var,
af þeim framkvæmdum sem hann
hefir verið fylgjandi og barist fyrir,
þó um sum þeirra hafi verið nokk-
ur meiningamunur meðal bæjarbúa,
eins og t. d. Skeiðskaupin og kaup-
in á Sandfoss. Er þessa ekki getið
hjer bæjarfógetanum til hnjóðs —
síður en svo — heldur til þess að
syna íramá, að bæjarbúar eru als
ekki á einu máli tim nytsemi a 11 r a
þeirra íyrirtækja, sem hann hefir
barist fyrir og »leitt fram til sigurs.«
Og dálítið brosleg viiðist vera full-
yrðingin um það, að hinum nýja
bæjarstjóra — hver sem hann kann
að verða — muni ekki farast stjórn
bæjarins e i n s v e 1 og bæjarfóget-
anum. Parf til slíkrar fullyrðingar
meira en meðal fjarsýni, sem lík-
lega læknum einum er meðfædd.^
Og ekki öfundar »Sglf.<- bæjarfó-
getann af slíku oflofi.
Annars er öll þessi lofgjörð rit-
stjórans einkennileg mótsögn við
frarnkomu hans á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, þar sem hann deildi
hart á bæjarfógetann fyrir gjörðir
hans í bæjarmálum. — En þá hafði
hann ekki frjett um bæjarstjórahug-
myndina.
Ekki er það ætlun »SgIf.« að
gera þessa bæjarstjórauppástungu
að neinu kappsmáli, en telur það
hinsvegar enga goðgá þótt um hana
sje rætt og ritað á víð og dreif;
Ritstj.
Skrá yfir bækur
sem fást í bókaverzlun Friðb. Níelssonar.
F.
Fransikus og Pjetur, barnasaga, í bandi 2,00
Formálabók eftir Einar Arnórsson, í kápu 4,00
— — — í bandi 9,00
Frá heimili fagnabarerindisins, í bandi 15,00
Frá sjónarheimi, eftir G. Finnbogason í bandi 6,50
Fornaldarsaga, eftir P. H. Bjarnason, í bandi 5,00
Ferðir Múnchausens barons, í bandi 2,50
För Gullivers til Putalands, f bandi 1,50
Ferbaminningar I, eftir Sv. Egilsson, í kápu 4,00
— '//, - — — í - 4,00
Erl. símfrjettir.
Nýja stjórnin í Þýskalandi gerir
víðtækar tilraunir til þess að koma
skipulagi á skaðabótagreiðslurnar,
og horfir nú mikið vænlegar með
samkomulag milli Þjóðverja og
Frakka, en áður hefur verið.
Vonlaust er talið að breska
stjórnin verði áfram við völdin.
Neitar Lloyd George algerlega allri
samvinnu við hana, eða íhaldsflokk-
inn og ætlar að bera fram van-
traustsyfirlýsingu. Er búist við að
frjálslyndi flokkurinn og verka-
mannaflokkurinn samþykki hana,
og að verkamannaflokkurinn myndi
svo stjóin í janúar. En þá fara líka
nýjar kosningar fram.
Myntráðsstefnu Norðurlanda er
nýlega lokið. Var þar samþykt að
hvert ríkið fyrir sig gæfi út skifti-
mynt, ógjaldgenga í hinum.
Bretar hafa slegið eign sinni á
Suðurpólinn og landið' þar um-
hverfis.
Amerika krefst þess að fá fyrsta
veðrjett í öllum þýskum eignum ef
nokkuð eigi að verða af lánveitingu
Þjóðverjum til handa.
Courmont, ræðismaður Frakka í
Rvík, andaðist í París 11. þ. m.
SIGLFIRÐ INGUR
kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð,
kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. I lausa-
sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem
auglýsa mikið geta komist að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef.
Siglufjörður.
Munib eftir ab gefa Snjó-
títlingunum. S. Á.
»_Framtí ði n«
sem verið hefur undir læknishendí frá
fæðingu, hefur nú loks fengið hvíld. —
Er það gott fyrir hana, því »þar er hver
sælastur,« en verra fyrir Siglufjörð, sem
nú er Fratíðarlaus bser.
Hey rst h ef ur
að hafnarnefndin sje að bolla.egga
viðbót við hafnarlögin þess efnis, að fjár-
heimtur hafnarsjóðs skuli æ og æfinlega
heyra undir bæjarfógetann — en ekki
hugsanlega væntanlegan bæjarstjóra. Þyk-
ir sagan trúleg þeim er til þekkja, en ótrú-
leg hinum.
Ath ygli
skal vakin á auglýsingu »Bergenska«
gufuskipafjelagsins, um ferðir þess hjer
við land í vetur.
»S i g 1 f i r ð i n g u r«
kemur aftur út á aðfangadaginn. Aug-
lýsingar í það blað þurfa að vera komn-
ar fyrir hádegi á morgun.
»Sí r í u s«
fór frá Reykjavík í gærkvöld. Getur
verið hjer á morgun.
S öluþ úð i r
njega vera opnar til kl. 12 á, miðnættj