Siglfirðingur - 10.01.1924, Blaðsíða 1
SIGLFIRÐINOUR
I. árg.
Siglufirði 10. jan. 1924.
' 7. blað
•Góðtemplarareglan 40 ára.
(1884. — 10.
Árið 1884 var nýbyrjað. f*að var harðæri þá,æins
og oftar hjá oss íslendingum; — frostaveturinn ’81
með ísárinu ’82 var ný um garð genginn, með fjen-
aðarfelli og bjargarskorti hjer norðanlands, og mis-
lingarnir höfðu nýgeysað yfir landið og hneigt að
velli fjölda manns.
Landbúnaðurinn lá í rústum, sjáfarútvegur var
enginn til nema opnir bátar og fáein hákallaskip,
verslun óhagstæð, en drykkjuskapur var ærinn,
Það má þvi kallast stórfurða, að kjarkur var eigi
svo drepinn úr jojóðinni, að hún gæti gripið og not-
fært sjer nýjar menningarhugmyndlr umheimsins, en
svo var þó eig^.
Norðmaðurinn Ole .Lied, sem þá stundaði skó-
smíðar á Akureyri, hafði kynst O.-T.reglunni — sem
þá var óðum að útbreiðast í menningarlöndum heims-
ins, -- í föðurlandi sínu, Noregi. Hann og nokkrir
menn aðrir á Akureyri, sem höfðu opið auga fyrir
því, hvílíkt þjóðarböl og jjjóðarhneysa að öfdrykkjan
er, bundust samtökum um það, að verja kröftum sín-
um til að berjast gegn henni, en þó sjerstaklega til
þess, að varðveita sjálfa sig fyrir skaðræðis áhrifum
hennar, og Ole Lied fjekk samþykki og umboó hinn-
ar norsku stórstúku, til þess, að stofna stúkur hjer á
landi. Þann 10. jan. 1884 stofnaði hann svo á Akur-
eyri stúkuna Ísafold-Fjallkonan No. 1, með 12 með-
limum og voru það frumherjar G.:T.reglunnar hjer á
landi. Hefir stúkan Í.-Fj. stöðugt starfað síÖan alt til
þessa dags og ávalt staðið mjög framarlega í bind-
indisbaráttunni. Lað hefir þurft meira en meðal kjark
til þess, að hefjast þannig handa á þeim tímum. Vjer,
sem nú störfum undir merki reglunnar getum tæpast
gert oss Ijóst, hve afarörðug að öll aðstaða hefir ver-
ið fyrir þennan fámenna hóp; og líklega tæpast að
þeir sjálfir hafi gjört sjer það Ijóst. Þarna var við
margra alda rótgróna venju að etja. Lá þótti’-eá méstur
maður í augum almennings, sem mest þoldi að drekka,
og sá varla líðandi í góðum fjelagsskap, sem ékki
vildi »vera með« við skál. Embættismennirnir gengu
á undan álþýðunni í drykkjuskapnum þá, eins og
raunar þykir ofmjög brenna við enn í dag. Menn
komu varla saman, hvort heldur var til gleði eða
sorgar, «án þess að liafa vín um hönd. Og slagsmál
og illindi voru oft afleiðingar þess,
Lað varð reglunni að háppi, að í þessum fámenna
hóp voru menn, sem strax í byrjun munu hafa ásett
jan. — 1924.)
sjer að gjöra bindindisstarfið að líísstarfi sínu, og
sem voru þann veg gerðir, vð áhrifa þeirra hlaut að
gæta. Fað voru þeir Friðbjörn bóksali Steinsson óg
Jón timburmeistari Stefánsson, báðir síðar dannebrogs-
menn á Akureyri. Lessir menn voru þeir heiðursmenn
sem allir er þektu, litu upp til með virðingu og trausti,
það var þvi öllum Ijóst, að það mál sem þeir lögðu
slíka alúð við og öeigingjarna, sem bíndindismálið,
hlaut að vera gott málefni. Pessum tveimur heiðurs-
mönnum má óefað þakka það, hve, vel hinn fyrsti
vísir reglunnar sem gróðursettur var á landi hjer, óx
og dafnaði, þyí þeir kröfðu til Handa reglunni þá.
virðingu seni hún átti fullan rjett ti! og fengu hana
von bráðar.
Lað er varia hægt að ætla, að þessum fáu mönn-
um, hvað þá öðrum hafi verið það fullkomlega Ijóst
í byrjunirini, að þeir voru þarna að leggja hj'jrningar-
stejn að jafn hávaxinni menningarbyggingu handa
hinni íslensku jjjóð, og reglan nú er orðin, um
« slíkt gat tæpast nokkurn dreymt á þeim tíma — en
hitt var þeim óefað Ijöst, að þeir voru þarna að vinna
gott verk »til viðreisnar góðum siðum« i landinu.
Peir hræddust ekki hleypidónia og óvild, en lögðu
ótrauðir út í baráttuna og hafa með því unnið hinni
ísíensku þjóð það gagn, sern meira er vert en svo,
að nokkurum manni detti í hug að reyna að telja
það i tölum.
En jafnframt liafa þessir menn reist sjer með
stofnun reglunnar hjer á landi, þann minnisvarða er
standa niun óbrotgjarn svo lengi serh íslensk tunga
er töluð.
Saga ö.-T.reglunnar hjer; á landi er almenningi
svo kunn, að ekki þykir þörF að rekja hana hjer, skal
þó drepið á allra helstu atriðin.
Stórstúkan var stofnuð í Rvík 1886 af Birni Páls-
syni (tengdasyni Snorra heitins Páíssonar verslunarstj.
hjer á Siglufirði) og úr því fór reglunni óðum að
fleyja fram, enda bættust þá margir ágætir og mætir
menn undir merkið. Vínsölubann komst á í hverju
eftir annað af kauptúnum landsins og stúkur voru
stofnaðar um land alt, á árabilinu frá 1890 til 1908
að aðflutningsbannið var samjjykt með [Djóðaratkvæði
og kom það til fratnkvæmda sem lög þremur árum
síðar. Með því var náð því marki sem sett hafði verið
töngu á'ður, og varð ísland fyrsta Jand álfunnar, sem
með frjálsri löggjöf gjörði vínið landrækt.
Framhaid á 6. síðu.