Siglfirðingur - 10.01.1924, Blaðsíða 2
24
SIOLFIRÐINOUR
SIGLFIRÐINGUR
kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, m i n s t 4 0 b 1 ö ð,
kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. í lausa-
sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem
auglýsa inikið geta komist að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef.
t
Baldvin Gunnarsson,
kaupinaður
í Höfða á Kljáströnd, andaðist
að heimili sínu á gamlársdag. Hann
var um sjötugt; alkunnur gáfu og
gæðamaður; ættaður hjeðan af
Siglunesi.
Við árslokin 1923.
Ekkert ár hefur fólki fjölgað hjer
eins mikið eins og árið 1923. Er
það nokkuð fyrir þá sök, að fleira
hefur tæðst en dáið; rúm 40 börn
hafa fæðst, og 16 mans hefur dáið.
En mest stafar fjölgunin af því, að
miklu fleira fólk hefur fluzt inn en
út. Fólksfjöldinn við ársbyrjun í
fyrra var 1225 en nú við árslokin
1 3 35, þar af 144 utan kaupstaðar-
lóðarinnar. Á kjörskrá í bæjarmál-
efnum hefur fjölgað um meira en
100 manns, og eru kjósenduruir á
þeirri skrá, er nú liggur frammi 591
að tölu. Töluvert útlit er fyrir því,
að fólksfjöldinn hjer nái tveim þús-
undum innan tíu ára.
Bærinn stækkar óðum og raf-
ljósalausu húsununi fjölgar altaf,
sem eðlilegt er, þar sem rafstöðin
við Hvanneyrará er fyrir löngu
fullhlaðin. Telst svo til við lauslega
ransókn, að um 70 hús sjeu raf-
ljósalaus með öllu, og mörgönnur
hús hafa minni og færri Ijós en
þyrfti. Mun það láta nærri að í
bæinn, eins og hann er nú, muni
vanta yfir þúsund Ijós 16 kerta að
götuljósum meðtöldum. Við svona
búið má ekki lengur standa; hjer
þarf skjótra aðgerða við, en um
leið hyggilegra. Væri óskandi að
enn bjartara yrði þjer í bænum, úti
og inni, við næstu áramót, en nú.
B. P.
Grein þessi er svar sóknarprest-
sins við fyrirspurn frá mjer um
fólksfjöldann í bænum nú um ára-
mótin, og um tölu fæddra og dá-
inna síðastliðið ár. En með því að
þetta svar kom í greinarformi og
fjallaði auk þess um fleira en að
var spurt, birti jeg það hjer orð-
rjett með samþykki höfundar.
Af því sjest meðal annars, að
bæjarbúum hefur fjölgað um 110
árið sem leið; um 24 vegna fleiri
fæðinga en dauðsfalla og um 86
vegna meiri inn en útflutnings
manna. Er þetta að vísu mikil fjölg-
un en þó ekki meiri en svo, að
jeg þykist þess íullviss, að ekki
muni færri bætast við árlega næstu
árin, þannig. að eftir 5 ár hjer frá
teljum vjer Siglfirðingar full tvö
þúsund. — Pá á líka að vera kom-
in hjer upp hafskipabrygga, sjúkra-
hús, ný rafljósastöð, kirkja, leikhús
og gangstjettir um allan bæinn. Og
þá á hver einasti opinber
starfsmaður bæjarins að vera f y r-
i r m y n d stjettarbræðra sinna.
þetta á að vera og skal vera tak-
mark vort.
R i t s t j.
YfirJýsing’.
Jeg vil biðja »Sglf.« að geta þess,
að jeg á engan hátt hef ráðið því
hvernig götur bæjarins væru mok-
aðar og hverjir innu það verk.
Af gefnu tilefni neita jeg einnig
að vera meðráðandi þess, að flutt-
ur væri óþverri á götur bæjarins í
staðinn fyrir sand.
Flóvent Jóhannsson.
Reikningum
verður lokað 15. þ. mán. og 6°/0
vextir reiknaðir af skuldum f. f. ári,
sem þá verða ógreiddar.
Friðb, Níelsson.
I. O. G. T.
Stúkan »Framsókn« nr. 187 heldurfundi
á hverju niiðvikudagskvöldi kl. 8 í húsi
Hjálpræðishersins.
Nýir ineðlimir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrós« nr. 68 held-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. hálf
þrjú á sama stað.
Siglufjörður.
H. Thorarensen
lækni, er hjermeð boðið rúm í næsta
blaði til þess að gera grein fyrir þeirri
fullyrðingu sinni, að spítalabyggingarmál
Siglufjarðar liggi rykfallið uppá
h i 11 u . Sinni hann ekki þessu boði, verð-
ur það að skoðast sem svo, að ástæðan
að hans áliti þoli ekki að koma fyrir al-
mennings augu.
G a m 1 a á r i ð
endaði með blíðu veðri og notuðu
bæjarbúar það óspart sjer til skemtunar.
En nýja árið heilsaði með sunnan roki,
sem mölvaði lítilsháttar tvo vjelbáta.
Kærufrestur
útsvaranna var útrunninn um áramótin.
Kærur komu frá eftirtöldum 10 gjaldend-
um: .
Severin Roald 1
Sigurjón Björnsson
Sigr. Ingimundardóttir
Ole Tynes
Sören Goos
Helgi Hafliðason
Stefán Lárusson
H. Henriksen
Hrogn og lýsi h. f.
Steinþór Hallgrímsson
Samanburðarmenn þessara kærenda
voru um tuttugu.
Kærufundur.
Hinn lögákveðni fundur með útsvars-
kærendum og samanburðarmönnum þeirra,
var haldinn í »VaIhöll« 3. þ. m.fyrirfullu
húsi áheyrenda. Sagðist þar mörgum vel
að vanda; þó hafa þessir fundir oft vérið
fjörugri,
S t j ó r n a r s k r á i n
átti 50 ára afmæli 5. þ. m. Var þess
minst hjer með samkomu í leikfiinissaln-
uni. Ræður fluttu Sig. Kristjánsson og
G. T. Hallgrímsson, Karlakór söng nokk-
ur lög og Chr. Möller söng gamanvísur.
Síðast var dans. — Allur ágóði rann til
Ekknasjóðsins; eiga forgöngumennirnir
þakkir skildar fyrir það.
Sigurður Jakobsson
fyrrum kaupmaður, var nýlega fluttur
fárveikur á sjúkrahúsið á Sauðárkrók, og
andaðist hann þar. Hafði hann verið mjög
heifsutæpur mörg undanfarin ár, og oft í
og við rúmið. Hann lætur eftir sig ekkju
og þrjú stálpuð börn.
Þ e t t a b I a ð
er sex síður, og er þá unnið upp að
síðasta blaðið var aðeins 2 síður.