Siglfirðingur - 10.01.1924, Síða 5
SIGLFI RÐINGUR
27
Erl. símfrjettir. U P P BOÐ.
Stórt uppboð á allskonar verslunarvarningi verður haldið í »Valhöll*
þriðjudaginn 15. þ. mán. og byrjar kl. 1 síðdegis.
Gjaldfrestur til 10’ ágúst næstk.
Sigiufirði 9. jan. 1924.
Sophus A. Blöndal.
Frá Landssímanum.
Vegna verðfalls íslensku krónunnar hækka símskeytagjöld til útlanda
sem hjer segir frá 1. janúar 1924:
Danmörk 55 aura fyrir orðið að viðbættu 0,65 stofngjaldi.
England 55
Noregur 70 —
Svíþjóð 90 —
Frakkland 75 —
Færeyjar 30 —
Pýskaland 80 —
0,65
0.70
0,30
0,35
0,25
0,35
Símagjöld til annara landa hækka í rjettum hlutföllum við þessi lönd.
Stöðvarstjórinn á Siglufirði 2. janúar 1924
Otto Jörgensen.
Landssíminn.
Samúðarskeyti á þar tilgerðum spjöldum er hægt að senda til
allflestra landssímastöðva, í tilefni af dauðsföllum. Nafn þess látna verður
innfært í Minningaskrá Landsspítalasjóðs íslands. Sendandi samúðar-
skeytisins er sjálfráður um, hve mikið hann borgar undir skeytið. Gjald-
ið rennur alt til Minningasjóðs Landsspítalans. Landssíminn
tekur ekkert fyrir sína fyrirhöfn.
Stöðvarstjórinn á Siglufirði 2. janúar 1924
Otto Jörgensen.
Franska loftskipið Diamunde,
sem var að kanna loftsiglingaleiðir
til nýlendna Frakka, hefur farist í
miðjarðarhafinu með 50 mönnum.
Konungi Grikklands og ættmönn-
um hans hefur verið vikið frá
völdum.
Stórkostl. verkfallsundirbúning-
ur er hafinn í Noregi, sem nær til
sextíu þús. manna.
Símað er frá Kristianíu að allar
nefndir Stórþingsins, nema land-
búnaðarnefndin, sem hafa með
höndum viðskifta og fjármálin,
leggi til, að tollur á ísl. kjöti verði
lækkaður, gegn því, að fiskiveiða-
lögunum íslensku verði breytt Norð-
mönnum í hag.
Enska þingið kemur saman 15.
þ. m. og er búist við þingrofi og
nýum kosningum vegna þess að
enginn flokkur þjngsins hefir næg-
an meiri hluta til stjórnarmyndunar.
Ráðstefna Rjóðernissinna í Ind-
Iandi heimtar fullkomna heimastjórn
fyrir Indland og hefir samið stjórn-
arskrá. Politískum föngum hefir
verið gefið frelsi, til þess að mýkja
skap innfæddra gegn .Bretum.
Síra Oddgeir Guðmundsson
sóknarprestur í Vestmanneyjum
andaðist að heímili sínu 2. þ. m.
Togararnir
selja nú afla sinn í Englandi fyr-
ir frá ellefu til sextán hundruð sterl-
ingspund.
Á Akureyri
hefur steinolíuverslun ríkissins
2500 kr. útsvar og Áfengisverslun
ríkisins 800 kr. útsvar.
togarann, hefur Ásgeir Pjetursson
selt til Hafnarfjarðar fyrir 160 þús.
Stórriddarar
Fálkaorðunnar eru orðnii1 Vil-
hjálmur Stefánsson landkönnuður,
Sveinbj. Sveinbjörnsson tónskáld
og Geir Zoéga rektor. En riddarar
þessir: sjera Friðrik Friðriksson,
Bjarni Sæmundsson yfirkennari,
Jóhannes Nordai, íshússtjóri og
hreppstjórarnir Hallgr. Hallgrímsson
frá Rifkelsstöðum, Friðrik Bjart-
mannson Mýrum í Dýrafirði, Brynj-
ólfur Einarsson Sóleyjarbakka og
Olafur Finnsson Fellsenda Dala-
sýslu.
Stúlka kvarf
frá Akureyri á fimtudaginn var,
Sigríður Pálsdóttir að nafni, og
hefur ekki spurst til hennar síðan.
Ljóðabók
er nýkomin út eftir Pál J. Árdal,
Akureyri.
Aðalfundur
verður haldinn í Kaupmanna 8e
Verslunarmannafjelagi Siglufjarðar
laugardaginn 12. jan. kl. 8 s. d. í
húsi Guðl. Sigurðssonar.
Dagskrá samkvæmt fjelagslögum.
Ný bók
40 ára mirining Goodtemplara
á Akureyri
Verð 1,00
verður seld á götunum í dag.
Hver einasti templari kaupir
þessa bók.