Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.01.1924, Page 1

Siglfirðingur - 18.01.1924, Page 1
SIGLFIRÐINGUR I. árg. Siglufirði 18. jan. 1924. 8. blað p\ A f TX'\ I KTKT getur komið sem þjófur á nóttu, \-Jf\LJ lJ' 11N 1^1 kippt í burtu fyrirvinnunni og skilið konu og börn eftir eigna- laus. — Framundan er s o r g i n og s v e i t i n. Tryggið því líf yðar í „Andvöku“ áður en það er um seinan! Umboðsmaður Friðb. Níelsson. Minni Góðtemplarareglunnar á 40 ára afmæli hennar 10. jan. 1924. ísland bygðist fyrst af frægu fólki af Noregsgrund. Paðan er oss kominn kraftur kapp og hreystilund, höfðingsskapur, hetjudygðir, heilagt óðsins mál, trú á alt hið göfga og góða gull í styrkri sál. Upp að köldum íslands ströndum átti maður leið löngu seinna; blómgrein bar hann barn af stórum meið, Þessa grein af góðum stofni gróðursetti hann hjer. Blómin sem að síðar bar hún sveitin Templara er. Reglan sterka, helga hreina hjer kom Noreg frá. Þar barst heilla önnur alda yfir kaldan sjá. Rúsund faldar þakkir gjalda þjer skal Ole Lied, nafn þitt skal í helgum heiðri haft um ár og síð, Háleitt starf, sem hjer var unnið hlaut loks sigur þann: Eftir vilja þings og þjóðar þá var sett hjer bann. Sigri fagna þó ei þessum þurfti langt um skeið; nú er aftur eiturdrykkjum opnuð greiðfær leið. Stríðsins fáni hátt er hafinn, hart nú barist er. Ló ei sterkuin fyrir fjendum fótmál hopum vjer. íslands feður, íslands mæður, íslands sönnu börn, vilja fyrir frelsi landsins fræga halda vörn. Sigurvonir vefjast um oss. Veiklist ei vor trú! Áfram höldum ára-starfi aldrei betur en nú. Pjóðin öll, hún þarf að skilja þetta stóra mál: Vínið er vors ættlands bölvun, eitur lífi og sál. Heill þjer Regla er hefir starfað hjer í fjörutíu ár! Andi þinn er æ hinn sami ungur, sterkur hár. Ritt er verksvið veröld gjörvöll, vígió Drottinn er, þaðan færðu styrk að stríða, styrk sem hjálpar þjer. Hannes Jónasson. Til barnast. „Eyrarrós“ á fyrsta ársafmæli hennar 12. jan. 1924. Vjer heilsum þjer, Eyrarrós unga, sem afmæli heldur í dag. Og óskum að nýbyrjað árið þinn efli og farsæli hag. Hvar sáum við ársgamalt áður svo efnilegt, velþroskað barn? Ress vöxtur, svo vænn og svo hraustur ber vott ei um kulda, eða hjarn. í barnshjartað bljúga og hreina I. O. G. T. Stííkan íFramsókn« nr. 187 heldurfundi á hverju miðvikudagskvöldi kl. 8 í húsi Hjálpræðishersins. Nýir meðliniir velkomnir. Unglingastúkan »Eyrarrós« nr. 68 held- ur fundi á hverjum sunnudegi kl. hálf jrrjú á sama stað. skal blómunum fegurstu sá. Ef aðhlynning öll er í lagi þau öflugum þroska þar ná. Hið fyrsta, er festir þar rætur, að flytja er erfitt á brott, og þess vegna er þýðingarmikið að það sje alt fagurt og gott. Rið börn, eruð þegar svoþroskuð, að þekkið hvað gott er og ilt. Ó, varist þið ætíð hið illa, sem unglings fær hjartanu spilt. Þú alfaðir, öllu sem ræður, hin algóða barnanna stoð. Gef Eyrarrós alla tíð þekki, þitt eilífa kærleikans boð. Hannes Jónasson. Siglfirðingar! Verzlið að öðru jöfnu við þá sem auglýsa í ,,Sglf.“. Peir sem aldrei aug- lýsa, eru á eftir tímanum, og við þá er elcki verzlandi.

x

Siglfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.