Siglfirðingur - 22.02.1924, Page 1
SIGLFIRÐINGUR
L árg.
Alþingi
var sett á föstudaginn var, 15.
þ. m. og hófst með guðsþjónustu
í dómkirkjunni. Sjera Eggert Páls-
son prjedikaði. Að guðsþjónustu
lokinni var gengið til alþingishúss
og las forsætisráðherra, Sig. Egg-
erz, upp tilskipun konungs, dags.
3. des. s. 1. um að Alþingi væri
kvatt saman 15. febr. Tók þá ald-
ursforseti, Klemens Jónsson, við
stjórn og var gengið til kosninga.
Forseti í sameinuðu þingi var
kosinn Jóh. Jóhannesson en vara-
forseti Pórarinn Jónsson. Skrifarar
Jón Auðunn og Ingólfur Bjarnason.
A laugardaginn var svo haldinn
fundur í sameinuðu þingi og þar
teknar fyrir framkomnar kosninga-
kærur. Hafði verið kært yfir kosn-
ingunum í Eyjafjarðarsýslu, Seyðis-
fjarðar og ísafjarðarkauðstað. Lagði
kjörbrjefanefnd til, að kærurnar
yrðu ekki teknar til greina, og voru
kosningarnar í umræddum kjör-
dæmum samþyktar þannig:
Á Seyðisfirði með 30 atkv.
í Eyjafjarðarsýslu með 26 atkv.
Á ísafirði með 30 atkv. gegn 9.
Á mánudaginn voru þessir þing-
menn kosnir til efri deildar: Björn
Kristjánsson 2. þm. Gullbringu og
Kjósarsýslu, Elnar Árnason 1. þm.
Eyfirðinga, Eggert Pálsson 1. þm.
Rangvellinga, Guðm. Ólafsson þm.
Austur-Húnvetninga, Halldór Steins-
son þm. Snæfellinga, Ingvar Pálma-
son 2. þm. Sunnmýlinga, Jóh. Jó-
hannesson þm. Seyðfirðinga og
Jóh. Jósefsson þm, Vestmanney-
inga. Auk þeirra eiga sæti í efri
deild allir landskjörnu þingmenn-
irnir, 6 að tölu.
Pá skit'ti þingið sjer í deildir og
gekk til kosninga.
Forseti efri deildar var kosinn
Halldór Steinsson og til vara Egg-
erLPálsson og Björn Kristjánsson.
Skrifarar Hjörtur Snorrason og
Einar Árnason.
Siglufirði 22. febr. 1924.
Forseti neðri deildar var kosinn
Benedikt Sveinsson • og til vara
Magnús Guðmundsson og Pjetur
Ottesen. Skrifarar Magnús Jónsson
og Tryggvi Pórhallsson.
Á þriðjudaginn var kosið í fastar
nefndir í báðum deildum sem hjer
segir:
F j á r h a g s n e f n d: Nd.: Jón
Porláksson, Jörundur Brynjólfsson,
Jón Auðunn, Halldór Stefánsson og
Jakob Möller. Ed.: Jón Magnússon,
Ingvar Pálmason og Björn Krist-
jánsson.
Fjárveitinganefnd: Nd.:
Pórarinn Jónsson, Porleifur Jóns-
son, Jón Sigurðsson, Ingólfur
Bjarnason, Pjetur Ottesen, Tryggvi
Pórhallsson og Magnús Guðmunds-
son. Ed.: Jóh. Jóhannesson, Einar
Árnason, Ingibjörg Bjarnason,
Guðm. Ólafsson og Hjörtur Snorra-
son. •
Samgöngumálanefnd:
Nd.: Jón Auðunn, Sveinn Ólafsson,
Hákon í Haga, Pjetur Pórðarson
og Árni Jónsson. Ed.: Eggert Páls-
son, Einar Árnason, Jóh. Jósefs-
son, Guðm. Ólafsson og Hjörtur
Snorrason.
Landbúnaðarnefnd: Nd.:
Hákon í Haga, Pjetur Pórðaison,
Árni Jónsson, Halldór Stefánsson
og Björn Líndal. Ed.: Hjörtur
Snorrason, Sig. Jónsson og Eggert
Pálsson.
Sjáfarútvegsnefnd: Nd.:
Sigurjón Jónsson, Ásg. Ásgeirsson,
Ágúst Flygenring, Jón Baldvinsson
og Björn Líndal. Ed.: Björn Krist-
jánsson, Ingvar Pálmason og Jóh.
Jósefsson.
Mentamálanefnd: Neðrid.:
Magnús Jónsson, Bernhard Stef-
ánsson, Sigurjón Jónsson, Ásgeir
Ásgeirsson og Jón Kjartansson.
Ed.: Ingibjörg Bjarnason, Jónas
Jónasson og Jón Magnússon.
Aslherjarnefnd: Nd.: Jón
Porláksson, Jörundur Brynjólfsson,
Jón Kjartansson, Jón Baldvinsson
13. blað
t
Th. Thorsteinsson
kaupmaður,
eigandi verslunarinnar Liverpool í
Reykjavík, andaðist á laugard. var.
og Magnús Jónsson. Ed.. Jón
Magnússon, Jónas Jónasson ’og
Eggert Pálsson.
Um nefndarkosningarnar þykir
það helst athyglisvert, og er einna
mest um það talað í höfuðstaðn-
um og víðar, að tveir af þing-
mönnum — fyrir utan ráðherra og
deildarforseta — komust ekki í
neina nefnd. Eru það þeir Bjarni
Jónsson frá Vogi og Magnús Torfa-
son. Pykir þetta alleinkennilegt og
óskiljanlegt fyrirbrigði í þingsögu
vorri, þar sem þó svo virðist, að
föst regla hafi verið, að a 11 i r
þingmenn ættu sæti að minsta
kosti í einni nefnd hver. Og að
undanförnu hefir Bjarni átt sæti í
helstu nefndum þingsins og verið
þar miklu ráðandi um ýms stórmál
þjóðarinnar. Er það því furðulegra
að honum skyldi nú vera bolaó frá
nefndarstörfum.
Annars virðist svo sem lítið ætli
að verða úr vonum manna um
það, að leyfarnar af sjálfstæðis-
flokknum gamla, gerðu bandalag
við hinn nýstofnaða Borgaraflokk,
eða sameinuðust honuin, og er
það leitt. Hefði þá tekist að mynda
hreina meirihluta stjórn, sem flestir
munu vera sammála um, að affara-
sælast muni reynast. En í þess stað
virðast flokkarnir, eftir því sem
næst verður komist, vera þannig
skipaðir:
Borgaraflokkurinn . . 19
Framsóknarflokkurinn 15
Sjálfstæðisleyfar ... 7
Alþýðuflokkurinn . . 1