Siglfirðingur - 22.02.1924, Blaðsíða 3
I. O. G. T.
Stúkan »Framsókn« nr. 187 heldurfundi
á hverju miðvikudagskvöldi kl. 8 í húsi
Hjálpræðishersins.
Nýir meðlimir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrós« nr. 68 held-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. 3 á
sama stað.
Jeg, og sjálfsagt margir aðrir,
töldu það víst í fyrra haust, þegar
hafnarsjóður keypti »Sandfoss«, að
nú myndi þegar hafist handa í
þessum efnum, því allir töldu víst
að þau áhöld væru keypt í þeim
tilgangi, en hvað verður? Sandfoss
hefir legið og liggur enn tjóðraður
traustum strengjum hjer við bryggj-
urnar; árlega þarf að kaltpa kaðla
fyrir mörg hundruð krónur til að
tjóðra hann með og ýms fleiri
kostnaður mun falla á þessa eign
hafnarsjóðs; — mun ekki oftalið
að kostnaður við Sandfoss sje nú
orðinn hátt á annað þúsund krón-
ur á þessu rúma ári sent hann hefir
verið í eigu hafnarsjóðs, en eftir-
tekjan er engin nema litla holan
sem gerð var þegar vjelin var
reynd í fyrrahaust, sem hefði lík-
lega nægt til að grafa í dauðan kött.
Jeg mintist á það fyr, að höfnin
hjer, sem undirstaða að þroska
bæjarins, væri einhver arðbærasta
eign landsins. Pað væri því síst til
ofmikils ætlast þótt ríkissjóður á
sína hlið, ynni að því, að bæta
hana, og halda þar með við og
auka tekjur ríkisins af henni, sjer-
staklega þegar þess er gætt, að
rikissjóður hefir mjög slælega rækt
skyldur sínar gagnvart oss Sigl-
finðingum á ýmsum öðrum sviðum,
og skal jeg þar láta nægja að nefna
sjóvarnargarðinn, sem
ríkissjóði bar ótvíræð
skylda til að kosta að
fullu og halda við, þar
hann er gjörður til þess, að vernda
fyrir skemdum af náttúrunnar völd-
um, eign, sem ríkissjóður einn á,
hefur allar landskuldir af, og bera
joví allar skyldur sem landsdrottni
gagnvart landsetum sínum* Þessari
skyldu hefir ríkissjóður skotið hjá
sjer að háifu leyti og yfir á Siglu-
fjarðarbæ, þótt slíkt sje algerlega
gagnstætt landslögum og rjetti öll-
um, og' er slíkt í mesta máta ámæl-
isvert. (Framh.)
Jón Jóhannesson.
SIGLFIRÐINGUR
Erl. símfrjettir.
Denby, flotamálaráðherra Banda-
ríkjanna hefir orðið að segja af sjer
út af olíuhneykslinu þrátt fyrir það
þó Coolidge forseti lýsti því yfir,
að hann væri á bandi ráðherrans.
Bandaríkin eru hætt við hina
fyrirhuguðu flugferð til Norður-
heimskautsins, vegna kostnaðar.
Stórkostlegt hafnarverkfall hófst
í Bretlandi 16. þ. m. Tóku þátt í
því full 120 þúsund hafnarverka-
menn. Kröfðust þeir hækkunar á
kaupi sínu. — Síðustu fregnir segja
að verkfall þetta hafi hætt í
gærkvöld.
Sjerfræðinganefndir þær, sem
skaðabótanefnd bandamanna skip-
aði fyrir nokkru, og sem hefir
dvalið í Berlín síðan um mánaða-
mót til þess að kynna sjer ástand-
ið í Rýskalandi af eigin sjón, hafa
nú lokið störfum sínum með góð-
um árangri. Leggja þær til að Rjóð-
verjum verði veittur þriggja ára
gjaldfrestur á skaðabótagreiðslunum.
Landráðamál hefir verið höfðað
gegn þýska jafnaðarmannablaðinu
»Vorwárts«.
Blaðið »Tinies<:, sem út keinur í
Höfðaborg á suðurodda Afríku,
hefur látið í Ijósi óánægju sína yfir
því að Macdonald skyldi viður-
kenna ráðstjórnina rússnesku. Hef-
ir undirróður Bolchevicka aldrei ver-
ið meir þar en nú.
Tekjuafgangur Noregsbanka árið
1923, er 20 miljónir króna.
Esja<
leggur af staó frá Rvík á mánu-
daginn keniur, austur og norður
um land.
Umsækjendur
um bæjarstjórastarfið í Vest-
manneyjum eru: Jón Sveinsson
bæjarstjóri Akureyrar, Kristinn Ól-
afsson fógetafulltrúi í Rvík, Aade-
rup verkfræðingur, Halldór Pálsson
og ef til vill Stefán Stefánsson.
51
SIOLFI RÐINGUR
kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, m i n s t 4 0 b 1 ö ð,
kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. í lausa-
sölu 15 aura blaöið. Erlendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsainið. Þeir sem
auglýsa mikið geta komist að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef.
Kauptu barni þínu líftryggingu.
Ef til vill verður það einasti arfur-
inn! (»Andvaka.«)
Sjóvetlingar
Sokkar og
Skóleður
er ódýrast hjá
Sophusi Árnasyni.
25 íegundir af
Veggfóðri
er væntanlegt snemma í maí, verð
frá 0.40 rl.
Sophus Árnason.
Koltjara og
Bátasaumur
er væntanlegt með fyrstu ferð frá
útlöndum.
Sophus Árna.
Kol
eru væntanleg til bæjarins með
Esju næst. Má búast við að þau
verði nokkuð dýr þar eð þau eru
keyft í Reykjavík. En viðbúið er
að þau verði þó enn dýrari seinna.
Goöafoss
kemur ekki við í Englandi þessa
ferð. Verða Englandsvörur til
Norðurlandsins sendar með Lagar-
foss, sem nú er í Englandi, og
umskipað í Goðafoss á ísafirði.