Siglfirðingur


Siglfirðingur - 29.02.1924, Síða 2

Siglfirðingur - 29.02.1924, Síða 2
54 SIGLFIRÐINGUR t Jóhann Jónsson faðir Stefáns í Móskógum og Jóns á Litla Hóli, andaðist að heim- ili sínu, Litla Hóli, 20. þ. m., kom- inn hátt á tíræðisaldur. Verður háns nánar minst hjer í blaðinu síðar. kostnaðar við eftirlit með lyfja- búðunum. 18. Breyting á lögum nr. 38, 3. nóv. 1915, um afhending á landi til kirkjugarðs í Rvík. 19. Breyting á 3. og 4. gr. laga trá 22. nóv. 1907, um kennara- skóla í Reykjavík. 20. Breyting á lögum nr. 74, frá 1921, um tekju og eignarskatt. 21. Um heimild fyrir ríkisstjórnina að innheimta tolla og gjöld meó 25% gengisauka. 22. Um heimild fyrir ríkisstjþrnina til að veita undanþágu frá á- kvæðum laga nr. 47, 3. nóv. 1915, um breytingu á lögum uni útflutning hrossa frá 22. nóv. 1907. Pingmannafrumvörp. 1. Um breytingu á stjórnarskránni; flutningsm. Jón Magnússon. 2. Um breytingu á stjórnarskránni; fl.m. Jónas Jónsson o. fl. 3. Breyting á lögum um kosn- ingar til alþingis, nr. 28, 3. nóv. 1915; fl.m. Bj^rni frá Vogi. 4. Frumvarp um mannanöfn; flutn- ingsm. Bjarni frá Vogi. 5. Um sameiningu prófessorsem- bættisins í guðfræði við bisk- uppsembættið; flutningsmaður Tryggvi Rórhallsson. 6. Um breytingu á hæstarjetti; flutningsm. ]ón Magnússon. 7. Um lækkun á þingfararkaupi; frá íhaldsmönnum. 8. Frumvarp um vörutoli; frá í- haldsmönnum. 9. Breyting á lögum uni friðun laxa; flutningsmaður Jörundur Brynjólfsson. 10. Um afnám sendiherraembættis- ins í Kaupmannahöfn; flutn- ingsm. Tryggvi Rórhallsson. 11. Um afnám kennaraembættisins í hagnýtri sálarfræði; frá fram- sóknarmönnum. 12. Um breytingu á einkasölu rík- isins á áfengi, frá framsóknar- mönnum. 13. Um að sameina kennarastarfið í hagnýtri sálarfræði við for- stöðu Landsbókasafnsins; fl.m. Jónas Jónsson. 14. Um afnám kennarastóls í Klass- iskum fræðum og að flytja nú- verandi dósenta í grísku og latínu að mentaskólanum; fl.m. Jónas Jóhsson. 15. Um sjerstakt lestagjald af út- lendum vörufiutningaskipum; fl.m. Tryggvi Rórhallsson. 16. Um breytingu á íræðslu barna; fl.m. Jónas Jónsson. 17. Um atvinnu á íslenskum mót- orskipum; fl.m, Jón Baldvinsson 18. Um heimild fyrir bæjarstjórnir til að takmarka eða banna hundahald í kaupstöðum; frá íhaldsmönnum. 19. Um brunatryggingar í Reykja- vík; fl.m. þingmenn Rvíkur. 20. Um undanþágu frá fiskiveiða- lögunum, þess efnis, að leyfa 6 erlendum toguruni að stunda veiðar frá Hafnarfirði; flutn- ingsm. Ágúst Flugenring. 21. Um ákvörðun vinnutíma á skrif- stofum ríkisins; flutningsmaður Rórarinn Jónsson. 22. Um löggilding verzlunarstaðar í Hindisvík; flutningsm. Rórar- inn Jónsson. 23. Um breytingu á lögum um at- kvæðagreiðslu utan kjörstaðar, við alþingiskosningar; frá í- haldsmönnum. Nýr flokkur er myndaður í þing- inu uppúr hinuni svokallaða Borg- araflokki, og heitir hann »íhalds- flokkur.« Eru þessir þingmenn þegar gengnir í hann: Águst Flyg- enring, Árni Jónsson, Björn Líndal, Björn Kristjánsson, Eggert Pálsson, Iiákon Kristóíersson, Halldór Steins- son, lngibjörg Bjarnason, Jóh. Jósefsson, Jóh. Jóhannesson, Jón Auðunn. Jón Kjartansson, Jón Magnússon, Jón Sigurðson, Jón Porláksson, Magnús Guðmunds- son, Magnús Jónsson, Pjetur Otte- sen, Sigurjón Jónsson, Pórarinn Jónsson. Frumvarp Flygenrings um undan- þáguna frá fiskiveiðalögunum, hef- ur verið felt. Kauptu barni þíhu tryggingu til ákvæðisaldurs — þá á það fasteign til fullorðnisáranna. (»Andvaka.«) Fiskiskýrslur og hlunninda 1920. Skýrslur þessar komu út laust fyrir síðustu áramót. Hafa þær inni að halda margvíslegan fróðleik, sem fullkomlega er þess verður, að hon- um sje gaumur gefinn. Er slæmt hvað flestallar hagskýrslur koma - seint út hjer á landi og ótrúlegt, að þurfa skuli alt að þrem árum til að safna slíkum skýrslum og vinna úr þeim. Væri óskandi að hið bráðasta yrði ráðin bót á þessu, og skýrslurnar látnar koma út strax árið eftir. Ætti það að vera auð- gert, þar eð samgöngur eru nú orðnar svo góðar, að ekki ætti að þurfa að standa á skýrslunum. Hjer íer á eftir lauslegur útdrátt- ur úr þessum skýrslum, fyrst fyrir alt landið og svo aðeins fyrir Siglu- fjörð, I. Alt landið. Árið 1920 gengu til veiða: 30 Gufuskip 120 Mótorskip, stærri en 12 t. 39 Seglskip 355 Mótorbátar niinni en 12 t. 1002 Róðrarbátar. Tala skipverja á öllum þessum flota var 8947 að meðaltali allan veiðitímann (þar með ekki talin mannaskifti). Afli þessa skipastóls nam sem hjer segir: A. 28.138 þúsund fiskar af ýmsu tagi, samtals 69.996 þúsund kg. miðað við nýan flattann fisk. Er það tæpum 2 miljón fiskum fleira og um 5 miljón kg. meira en aft^ðist næsta ár á undan, 1919, og tæpum 5 miljón fiskum fleira en afl- aðist að meðaltali næstu 5 árin á undan, 1915—19. B. 48.305 hl. af alskonar lifur, og er það fullum 14 þús. hl. meira en næsta ár á undan. C. 165.357 hl. af síld, samtals 13.846 þús. kg. miðað við nýa síld. Er það 1.700 þús. kg. meira en næsta ár á und-

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.