Siglfirðingur - 21.03.1924, Blaðsíða 3
SIOLFlRÐlNOUk
67
Siglufjörður.
Kvöldskemtun
hjelt stúkan »Framsókn« fyrra laugardag.
Fór þar fram upplestur, gamanvísnasöng-
ur, sjónleikur og dans. Skemtunin var hin
besta og aðsóknin ágæt. Eru slíkar kvöld-
skemtanir ómissandi tilbreyting og ættu
helst ekki vera sjaldnar en einu sinni í
inánuði.
Skipakomur
»Merkur« kom hjer í síðustu viku á leið
austur um. Með skipinu kom hingað
G. Bomkuist forstjóri, eftir nokkurra mán-
aða dvöl erlendis. — »ístand* kom hjer
síðastl. iaugardagskvöld. Með því komu
F’ormóður Eyólfsson og frú heim úr Nor-
egsför sinni. — »Goðafoss« kom hjer á
mánudaginn var og fór nóttina eftir áleið-
is til útlanda. Með skipinu fór Sig, Krist-
jánsson kaupmaður til Kaupmh.
S. G o o s
ætlar að gera stórfenglegar umbætur á
síldarverksmiðju sinni nú í vetur og vor.
Er ráðgert að taka niður allar eða flestar
gömlu vjelarnar og setja aðrar í staðinn
af nýjustu og fullkomnustu gerð, sem af-
kasta tvöföldu við þær eldri, með langtuni
færra starfsfólki þó. Munu umbætur þess-
ar kosta alt að 100000 kr.
Það er haft fyrir satt
að H. Thorarensen hafi siglt til Kaup-
mannahafnar til þess að fullnuma sig í
lyfjasamsetningu. — Með Islandi síðast
fjekk hann 150 kassa af Carlsberg-öli. —
Mátulega að verið, og auðsjáanlega ekki
byrjað á óþörfustu lyfjunum!
Norskur konsull
hefur Þormóður Eyólfsson verið skipað-
ur hjer á Siglufirði.
M, k. H a v g 1 i m t
eign Guðm. Björnssonar, fór til þorsk-
veiða 16. þ. m. Ætlar það að veiða með
línu vestur undir Jökli. Hjeðan fór skipið
með 12 tonn af beitusíld til Keflavíkur.
Erl. símfrjettir.
Morgan, hinn Ameríski miljóna-
mæringur, hefur lánað Frökkum
100 miljónir dollara. Hefur frank-
inn hækkað afskapiega síðan.
Sænska stjórnin hefur viðurkent
ráðstjórnina rússnesku.
Rrjár flugvjelar frá Bandaríkjun-
um lögðu af stað í flugferð kring-
um hnöttinn 17. þ. m.
Siglufjarðarprentsmiðja,
KAUPTAXTI
VERKAMANNAFJELAGS SIGLUFJARÐAR
sem gildir frá 1. apríl til maíloka næstkomandi:
Dagvinna........0,90 um kl.st.
Eftirvinna .....1,25 — —
Skipa- og helgidagavinna 1.25 — —
Siglufirði 20. mars 1924
Stjórnin.
Verslun Margrjetar Jónsdóttir
Vetrarbraut 8
hefir fengið með seinustu skipum: Kjólaspennur, Hárnet,
Hárkamba, Leggingabönd og margbreitt Kjólaskraut, Dömu-
hatta, Langsjöl, Tvinna o. m. fl. Með næstu skipum koma
Fermingarkjólar hvítir og svartir o. m. fl. því tilheyrandi.
Með því
' að reikningsskil eru fvrir hendi hjá íshúsfjelagi
Siglufjarðar, þá er hjermeð alvarlega skorað á alla
þá, sem skulda nefndu fjelagi, hvort heldur er hlutafje, síld, geymslu-
gjald eða annað, að greiða skuldir sínar fyrir lok þessa mánaðar í síó-
asta lagi. Annars má búast við að aðalfundur úrskurði innheimtu þess-
ara skulda með málsókn.
Jafnframt eru þeir, sem telja til skuldar hjá fjelaginu, beðnir að
framvísa kröfum sínum fyrir lok mánaðarins.
Siglufirði 20. mars 1924
Gjaldkerinn.
Bannvara eru
KVENNSOKKAR
fást hjá Sophusi Árna.
A f I i
er ágætur í Vestmanneyjum
N ý 1 á t i n n
er Halldór Jónsson bóndi á Kambsstöð-
um í Sljettuhlíð
Prestakö.ll
— Um Laufás sækja: Asmundur Gísla-
son Hálsi, Björn O. Björnsson Ási, Gunn-
ar Benediksson Saurbæ, Hermann Hjartar-
son Skútustöðum, Ingólfur Þorvaldsson
Vatnsenda, Sigurjón Jónsson Kirkjubæ og
Sveinn Víkingur.
— Um Vestmanneyjar sækja: Baldur
Andrjesson, Hálfdán Helgason, Sigurjór.
Arnason og Vigfús Þórarinsson.
— sjera Helgi Árnason í Ólafsfiiði hef-
ur fengið lausn frá embætti.
Skipstrand
Færeysk skúta strandaði við Skaftárós.
Skipverjar voiu 15 og dó einn þeirra.
A 1 þ i n g i.
Engin stjórn mynduð ennþá, en búist
við að það takist næstu daga.
Nokkur þúsund
tómar og saltfullar síldartunnur
sel jeg cif Siglufirði í júlí n.k.
Væntanlegir kaupendur ættu að
tala við mig sem fyrst.
Þormóður Eyólfsson.
Bókasafnið
verður eftir 1. apríl opið aðeins á
sunnudögum.
Bókavörður.
Högl, Patronur, Forhlöð
Sophus Arna.
Verið fljótir nú og kaupið
Flibba, Slaufur, Bindi,
Húfur og Sokka
því bannið stendur í 3 ár.
Sophus Árna.